Spegillinn - podcast cover

Spegillinn

RÚVwww.ruv.is
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Óeirðir í Bretlandi, ásókn suðrænna ferðamanna í kuldann og ódýru krónuna í Noregi

Á fimmta hundrað manns hafa verið handtekin og yfir eitt hundrað ákærð í tengslum við óeirðir sem brotist hafa út í Bretlandi í kjölfar morðs á þremur telpum í borginni Southport í fyrri viku. Óeirðaseggirnir beina reiði sinni einkum að innflytjendum, löglegum jafnt sem ólöglegum, þrátt fyrir að fyrir liggi að ódæðismaðurinn sé fæddur í Bretlandi. Hallgrímur Indriðason ræðir við Sigrúnu Davíðsdóttur í Bretlandi. Norðmenn fagna góðu ferðasumri því ferðamenn í leit að kulda og hrolli sækja þangað ...

Aug 07, 202410 minEp. 365

Breytt hlutverk gagnavera, Tim Walz, varaforsetaefni Kamölu Harris

Þrjú fyrirtæki, Borealis Data Center, atNorth og Verne Global, reka sjö gagnver hér á landi. Vern rekur eitt, atNorth þrjú og Borealis þrjú. Miklar breytingar eru að verða á starfsemi gagnaveranna - þau eru að færa sig úr hinum umdeilda rafmyntagreftri. Ragnhildur Thorlacius ræðir þessa þróun við Bergþóru Halldórsdóttur, einn stjórnenda Borealis, sem rekur gagnaver við Korputorg, Fitjar og Blönduós. Tim Walz, ríkisstjóri Minnesota, verður varaforsetaefni Kamölu Harris í bandarísku forsetakosning...

Aug 06, 202410 minEp. 364

Hungursneyð í Súdan og strandveiðar við Ísland

Hungursneyð ríkir í Zamzam-flóttamannabúðunum í Norður-Darfurhéraði í Súdan, þar sem áætlað er að um 600.000 manns hafist við. Þetta kemur fram í tilkynningu Sameinuðu þjóðanna og greiningarstofnunarinnar IPC, en IPC er samvinnuvettvangur Sameinuðu þjóðanna og nokkurra alþjóðlegra hjálparsamtaka, sérhæfir sig í greiningu á fæðuöryggi í heiminum og skorti á því, samkvæmt samnefndum, alþjóðlega viðurkenndum kvarða. Hungursneyðin í Zamzam er sú þriðja sem lýst hefur verið yfir í Afríku frá því að b...

Aug 02, 202410 minEp. 363

Væringar í Venesúela

Minnst 11 manns hafa látið lífið í hörðum og fjölmennum mótmælum í Venesúela síðustu daga, vegna ætlaðra vélráða við talningu atkvæða í nýafstöðnum forsetakosningum. Þar var Nicolás Maduro útnefndur sigurvegari og rétt kjörinn forseti, þriðja skiptið í röð, en stjórnarandstaðan telur sig hafa vissu fyrir því að sinn frambjóðandi, Edmundo González, hafi unnið yfirburðasigur, og ber fyrir sig hvorutveggja skoðanakannanir í aðdraganda kosninga og útgöngukannanir. Á fréttafundi sagði Maduro mótmælen...

Aug 01, 202410 minEp. 362

Stríð og friður í Miðausturlöndum

Hefndarstríð Ísraela gegn Palestínumönnum vegna mannskæðrar hryðjuverkaárásar vígasveita Hamas í fyrra haust hefur staðið í tæpa tíu mánuði. Á þessum tíma hafa Ísraelar drepið um 40.000 almenna borgara, að meirihluta til konur og börn, og lagt stóran hluta allra mannvirkja á Gaza í rúst. Þrátt fyrir mikinn og vaxandi þrýsting frá alþjóðsamfélaginu eru engin teikn á lofti um að lát verði á þessum stríðsrekstri í bráð heldur benda viðburðir síðasta sólarhrings frekar til þess að ófriðarbálið í aus...

Jul 31, 202410 minEp. 361

Nýorka toppar jarðefnaeldsneyti í ESB, klukkuþreyta og svefnmynstur ungmenna

Orkuskipti eru forsenda þess að Evrópusambandið - og Ísland reyndar líka - nái loftslagsmarkmiðum sínum um kolefnishlutleysi fyrir 2050. Þótt nokkuð vanti upp á að þessi umskipti gangi nógu hratt fyrir sig hefur góður árangur náðst á síðustu misserum og fyrstu sex mánuðir þessa árs voru fyrsta hálfa almanaksárið, þar sem meira var notað af vind- og sólarorku heldur en jarðefnaeldsneyti við framleiðslu á rafmagni, í Evrópusambandinu sem heild. Ævar Örn Jósepsson rýnir í nýja skýrslu um orkuskipti...

Jul 30, 202410 minEp. 360

Nýr forseti í Íran og ísbjarnafár á Grænlandi

Nýr forseti tekur við völdum í ÍRan á þriðjudag. Hann hefur lofað breytingum sem Magnús Þorkell Bernharðsson, prófsesor í Mið-Austurlandafræðum, segir að gæti orðið erfitt að standa við. Ólöf Ragnarsdóttir ræðir við Magnús Þorkel. Ísbirnir eru til vaxandi vandræða í byggð á Grænlandi. Lögum hefur verið breytt til að auðvelda fólki að skjóta svokallaða vandræðabirni, sem láta sér ekki segjast þótt þeir séu marghraktir í burtu frá mannabyggðum heldur snúa ítrekað aftur á sömu slóðir. Ævar Örn Jóse...

Jul 29, 202410 minEp. 359

Gliðnun á sprungum frá Krýsuvík til Hólmsheiðar, Ólympíuleikar, útilokanir og öryggisgæsla

Áhrif umbrotanna á suðvestanverðum Reykjanesskaganum síðustu misseri teygja sig víða, eins og Benedikt Sigurðsson komst að þegar hann hitti Halldór Geirsson jarðeðlisfræðing að máli í Búrfellsgjá, skammt suðaustur af Vífilsstaðavatni, sem liggur þvert á það sem kallast sprungusveimur Krýsuvíkureldstöðvakerfisins. Í honum eru virkar gliðnunarsprungur sem teygja sig nokkra tugi kílómetra til norðausturs. Við skoðun á gervitunglamælingum fyrir nokkrum árum tóku jarðvísindamenn eftir nokkurra millim...

Jul 26, 202410 minEp. 358

Barnaníðingur á Ólympíuleikum og fólksfækkun í Japan

Ólympíuleikarnir verða settir við hátíðlega athöfn í París á föstudag. Leikarnir eru stærsti íþróttaviðburður heims og fjölmiðlar keppast við að segja frá öllu sem þeim við kemur. Ljót fortíð hollenska strandblakarans Steven van de Velde er eitt þeirra mála sem fjallað er um. Það hefur varpað skugga á gleðina í aðdraganda leikana og vakið miklar deilur, því van de Velde er dæmdur barnaníðingur. Eva Björk Benediktsdóttir kynnti sér málið. Japanir voru í ársbyrjun ríflega eitt hundrað tuttugu og e...

Jul 25, 202410 minEp. 357

Rannsóknarnefnd samgönguslysa og banaslys

Fyrir sex árum 2018 létust 15 i umferðinni árið allt, sá fjöldi er þegar kominn í 11 í ár og slíkt vekur spurningar um orsakir slysanna. Rannsóknarnefnd samgönguslysa kannar þær og leggur til úrbætur til að reyna að koma í veg fyrir að slys endurtaki sig. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Helga Þorkel Kristjánsson og Björgvin Þór Guðnason frá rannsóknarnefndinni um starf hennar.

Jul 24, 202410 minEp. 356

100 dagar í kosningar vestan hafs og Paul Watson í haldi á Grænlandi

Kamala Harris hefur 100 daga til að fylkja bandarískum kjósendum að baki sér og vinna upp forskotið sem Trump hefur í kosningabaráttunni. Repúblikanar hafa sama tíma til að bregðast við gjörbreyttum forsendum í kapphlaupinu um Hvíta húsið. Paul Watson, aðgerðasinni sem eitt sinn var með umdeildustu mönnum á Íslandi situr í fangelsi á Grænlandi og bíður þess að verða mögulega framseldur til Japans.

Jul 23, 202410 minEp. 355

Kamala Harris líklegt forsetaefni Demókrata

Í rúmar þrjár vikur dundu á Joe Biden áskoranir um að draga sig í hlé úr kosningabaráttunni, hann virtist hvergi ætla að hvika og síðast á laugardag sagði hann að það væri - áfram ekkert stopp við sína - nánustu samstarfsmenn. En síðar sama dag eftir samtöl við ráðgjafa var annað hljóð komið í strokkinn og á sunnudag í gær lýsti Biden því yfir að hann væri hættur. Það hafi verið mesti heiður sem honum hafi hlotnast að vera forseti Bandaríkjanna, en hann telji það landi og flokk til heilla að han...

Jul 22, 202410 minEp. 354

Truflanir í tölvukerfum heimsins og ófrjósemisaðgerðum fjölgar í Bandaríkjunum

Það var ringulreið á flugvöllum heimsins, mörgum hverjum, í dag, raðirnar hlykkjuðust um og biðin var löng; um miðjan dag var búið að aflýsa á annað þúsund flugferðum sem og fjölda skurðaðgerða, truflun varð á sjúkrahúsum, í fjármálastarfsemi og hjá fjölmiðlum vegna galla í hugbúnaðaruppfærslu frá fyrirtækinu Crowdstrike sem hafði svo áhrif á stýrikerfi frá Microsoft. Birna Íris Jónsdóttir framkvæmdastjóri Stafræns Íslands segir að áhrifin hér hafi ekki verið víðtæk en vissulega bregði mönnum vi...

Jul 19, 202410 minEp. 353

Núverandi kerfi olíu- og bensíngjalda skilar ekki lengur nægum tekjum

Hærra hlutfall rafmagnsbíla og sparneytnari dísil-og bensínbíla hefur orðið til þess að tekjur stjórnvalda af olíu- og bensíngjöldum hafa dregist saman um 30% frá 2012, á sama tíma og umferð hefur aukist um 50% og álag á vegi að sama skapi. Nánast ekkert var greitt fyrir akstur á rafmagns- og tengiltvinnbílum en það breyttist um áramótin þegar tekið var upp gjald, 6 krónur á kílómetra fyrir rafmagns og vetnisbíla en 2 krónur fyrir tengiltvinnbíla. Auka á jafnræði og sanngirni með nýju kerfi um n...

Jul 18, 202410 minEp. 352

J.D. Vance, vatnsfrek starfsemi og stjórn vatna

Donald Trump kynnti í gær varaforsetaefni sitt og, ef nýjustu skoðanakannanir ganga eftir, að öllum líkindum næsta varaforseta Bandaríkjanna. Sá heitir James David Vance, iðulega kallaður J.D., og er öldungadeildarþingmaður Repúblikana fyrir Ohio. Hann hefur ekki alltaf verið aðdáandi Trumps, eins og Ævar Örn Jósepsson rekur. Ísland er ríkt af vatni en sókn eftir því til ýmissar starfsemi, ekki síst fiskeldis, fer stöðugt vaxandi og það verður að umgangast auðlindina af virðingu segir Sigrún Ágú...

Jul 17, 202410 minEp. 351

Aldrei fleiri strokulaxar greinst en í fyrra og þeir fóru víða.

Aldrei hafa jafn margir strokulaxar af norskum uppruna greinst og árið 2023 og aldrei hafa strokulaxar veiðst í jafn mörgum ám segir í skýrslu Hafrannsóknastofnunar. Tíðni stroka úr sjókvíaeldi og fjöldi fiska var mun meiri en gert hafði verið ráð fyrir bæði við mat á umhverfisáhrifum laxeldis og áhættumati erfðablöndunar. segir líka. Rætt við Guðna Guðbergsson, sviðsstjór Ferskvatns- og eldissviðs Hafrannsóknastofnunar um niðurstöðurnar.

Jul 16, 202410 minEp. 350

Tilræðið við Trump og landsþing Repúblikana

Landsfundi Repúblikana, hófstí borginni Milwaukee í Wisconsin-ríki í Bandaríkjunum laust fyrir klukkan átján að íslenskum tíma, Landsfundurinn stendur í fjóra daga. Búist er við að allt að 50.000 manns, þar af eru rúmlega 2.400 kjörmenn, sem hafa það hlutverk að útnefna forsetaframbjóðanda flokksins, Donald Trump, með formlegum hætti, á fimmtudag. Fundurinn er haldinn í skugga banatilræðis við Trump á kosningafundi í Pannsylvaníu á laugardaginn var, þar sem litlu mátti muna að tilræðismanninum t...

Jul 15, 202410 minEp. 349

Biden eða ekki Biden? Demókratar í úlfakreppu

Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, sækist eftir endurkjöri. Biden hefur ár um áttrætt, og þrátt fyrir nokkrar efasemdaraddir um að svo aldraður maður ætti erindi í Hvíta húsið í fjögur ár til viðbótar fór hann í gegnum forvalið hjá Demókrötum án minnstu mótspyrnu og er frambjóðandi flokksins til þessa valdamikla embættis - ennþá. Á hátíðarfundi NATO í gær kynnti hann heiðursgestinn Volodymyr Zelenskyy á svið sem Pútín forseta, og á blaðamannafundinum í kjölfarið talaði hann um varaforsetann Trump...

Jul 12, 202410 minEp. 348

Aðför að réttindum til friðsamlegra mótmæla

Mannréttindasamtökin Amnesty International birtu á mánudag skýrslu um stöðu réttarins til friðsamlegra mótmæla í tuttugu og einu Evrópuríki og niðurstöðurnar eru sláandi: Þessi grundvallarréttur borgara í lýðræðisríkjum á undir högg að sækja, og það eru stjórnvöld sem sækja að honum, leynt og ljóst, með margvíslegum hætti. Ævar Örn Jósepsson fjallar um þetta og ræðir við Önnu Lúðvíksdóttur, framkvæmdastjóra Íslandsdeildar Amnesty International. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Markús Hjalt...

Jul 11, 202410 minEp. 347

Varnir Norðurlanda, þróun og stjórnsýsla í skólamálum

Varnarmálaráðherrar Norðurlandanna hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um að NATÓ ríkin fái bætt aðgengi að loftrými Norðurlandanna til aðgerða og æfinga. Þetta segir Jónas Gunnar Allansson skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins í viðtali við Ragnhildi Thorlacius. Skólaþjónusta hefur þróast hægt á Íslandi síðustu áratugi. Pólitískur óstöðugleiki hefur þar mikið að segja. Sigríður Margrét Sigurðardóttir, doktor í menntavísindum, rannsakaði menntaforystu á sveitarstjórnastigi...

Jul 10, 202410 minEp. 346

Búvörulög og hæfi þingmanna, gróðureldar í Brasilíu

Alþingi samþykkti í mars búvörulög. Lögin veita miklar undanþágur frá samkeppnislögum og vegna þessara laga getur Kaupfélag Skagfirðinga keypt Kjarnafæði Norðlenska - stærsta kjötvinnslufyrirtæki landsins. Meðferð meirihluta atvinnuveganefndar Alþingis á málinu hefur verið gagnrýnd. Lagafrumvarpið gjörbreyttist í meðförum nefndarinnar. Gunnhildur Kjerúlf birgisdóttir ræðir við Hafstein Dan Kristjánsson, lektor við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Pantanal heitir stærsta, samfellda hitabeltisvotl...

Jul 09, 202410 minEp. 345

Skúffaðir nágrannar í Frakklandi, flókin stjórnarmyndun framundan

Lára Benjnouh býr í 800 manna þorpi í blómlegu landbúnaðarhéraði í Cher-dalnum Mið-Frakklandi. Það er óhætt að segja að meirihluti nágranna hennar hafi sennilega búist við sigri síns fólks í gær. 56% kusu Þjóðarfylkingu Le Pen og hún gerir ráð fyrir að margir séu skúffaðir. Sjálf býst hún allt eins við stjórnarkreppu, en segir það betra en að öfgafólk nái stjórnartaumunum í Frakklandi. Eirkur Bergmann Einarsson prófessor í stjórnmálafræði segir að það verði ákaflega flókið að mynda stjórn í Frak...

Jul 08, 202410 minEp. 344

Hver er Keir Starmer og hvaða verkefni bíða?

Hvaða verkefni bíða hins nýja forsætisráðherra Bretlands og nýrrar ríkisstjórnar hans? Halla Gunnarsdóttir hefur lengi fylgst vel með breskum stjórnmálum og starfaði um tíma innan þeirra. Hún bendir á að auka þurfi hagvöxt í landinu og lagfæra mikilvæga innviði, Bretland sé að mörgu leyti illa statt. Ævar Örn Jósepsson fjallar um fortíð Keirs Starmers, lögfræðings sem var öflugur verjandi og baráttumaður í mannréttindum sem varð grjótharður saksóknari. Hann þykir ekki sérlega litríkur og sjarmer...

Jul 05, 202410 minEp. 343

Farsóttir og bólusetningar, kosningar í Bretlandi

Dræm þátttaka eldra fólks í covid- og flensubólusetningum er áhyggjuefni. Hún jókst í faraldrinum en hefur fallið aftur og er komin undir 50%. Barnabólusetningar, til dæmis við mislingum, eru líka nokkuð undir viðmiðum sóttvarnalæknis. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Kamillu Sigríði Jósefsdóttur, yfirlækni á sóttvarnasviði landlæknis. Sinn er siður í landi hverju, segir máltækið, og það á líka við um kosningar, þar á meðal um það, á hvaða vikudegi þær eru haldnar. Bretar kjósa jafnan á fimmtud...

Jul 04, 202410 minEp. 342

Kynsjúkdómar og flóðhestar á fljúgandi ferð

Sýklalyf höfðu nánast útrýmt kynsjúkdómum eins og lekanda og sárasótt hérlendis en á síðustu árum hafa þeir færst mjög í aukana. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Kamillu Sigríði Jósefsdóttur, yfirlækni hjá Landlæknisembættinu. Fljúgandi skeið eða harðastökk er ekki það fyrsta sem manni dettur í hug þegar maður sér myndir af flóðhestum, enda flóðhestar með þyngstu og þunglamalegstu skepnum sem ganga þessa Jörð - nema maður sé prófessor í þróunar-lífaflfræði við Konunglega dýralækningaháskólann í...

Jul 03, 202410 minEp. 341

Samkeppni um heilbrigðisstarfsmenn og vinnuumhverfi skiptir máli við mönnun

Álags vegna gætir víða á Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu, það er erfitt að fá tíma og húsnæði hennar mætti líka víða vera betra. Ekki bætir úr skák að í mörgum hverfum hefur byggð þést þar sem heilsugæslustöðvarnar voru þegar sprungnar. Sigríður Dóra Magnúsdóttir, forstjóri Heilsugæslunnar segir að húsnæði og aðstæður á stöðvunum skipti miklu þegar kemur að mönnun, það sé samkeppni um hvern einasta heilbrigðisstarfsmann.

Jul 02, 202410 minEp. 340

Vöntun á heimilislæknum og stjórnmálaleiðtogar hvor af sínum pólnum í Frakklandi

Óskandi væri að hver heimilislæknir sinnti ekki fleirir en tólf hundruð 1.200 skjólstæðingum, segir Margrét Ólafía Tómasdóttir, formaður félags heimilislækna en í raun er hlutfallið á höfuðborgarsvæðinu næstum helmingi hærra. Kornungur leiðtogi Þjóðfylkingarinnar í Frakklandi og gamalreyndur foringi Óbugaðs Frakklands eigast við í seinni umferð þingkosninga á sunnudaginn.

Jul 01, 202410 minEp. 339

Kappræður, enski boltinn og gin frá norskri prinsessu

Við fjöllum um hin verðmæta sýningarrétt að enska boltanum og af hverju Síminn og Sýn eru reiðubúin að greiða himinháar upphæðir fyrir hann. Það verður líka fjallað um afskipti norsku áfengiseinkasölunnar af bleiku gini sem norsk prinsessa ætlaði að framleiða. Gísli Kristjánsson með pistil frá Noregi. Byrjum samt á forsetakosningunum í Bandaríkjunum og fyrstu kappræðuðunum milli Joe Biden og Donald Trump í nótt - þær voru óvenju snemma á ferðinni því það er ekki kosið fyrr en í nóvember. Freyr G...

Jun 28, 202420 minEp. 338

Verðbólgan tregðast við, kosið í Frakklandi og ungir Akureyringar í Vísindaskóla

Það gengur hægt að vinda ofan af verðbólgunni sem er þó komin undir 6% í fyrsta sinn um langt skeið - þingkosningar standa fyrir dyrum í Frakklandi og sumir telja að valið standi milli pestar og kóleru- þessa dagana eru nemendur í skólastofum Háskólans á Akureyri yngri en allajafna. Tregbreytanleg er orðið sem greiningardeildir bankanna nota til að lýsa þróun hennar næstu mánuði. Róbert Farestveit, hagfræðingur hjá ASÍ segir húsnæðismarkaðinn sökudólginn og sá vandi verði ekki leystur með vaxtas...

Jun 27, 202420 minEp. 337

Kosningar á Bretlandi, hvalveiðar og losun frá dönskum landbúnaði

Eftir rúma viku rennur upp kjördagur á Bretlandi og í kvöld mætast Keir Starmer leiðtogi Verkamannaflokksins og Rishi Sunak forsætisráðherra Íhaldsflokksins í sjónvarpskappræðum í Nottingham. Kosningaspár gera ráð fyrir stórsigri Verkamannaflokksins. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Höllu Gunnarsdóttur alþjóðastjórnmálafræðing, sem stödd var í Lundúnum. Forstjóri Hvals kvartaði undan stjórnsýslueftirliti með félaginu og sagði samskipti á köflum vera í of djúpum skotgröfum og einkennast af tortr...

Jun 26, 202420 minEp. 336
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android