Julian Assange var leystur úr Belmarsh öryggisfangelsinu í Lundúnum í morgun, þar sem honum hafði verið haldið meira og minna í einangrun í rúm fimm ár án dóms og eiginlegrar málsmeðferðar, með framsal til Bandaríkjanna yfirvofandi. Sigríður Dögg Auðundsdóttir formaður blaðamannafélagsins fagnar frelsun Assange, en segir málalyktir þó ekki geta talist sigur fjölmiðla- og tjáningarfrelsis. Spegillinn óskaði eftir gögnum um ákvörðun matvælaráðherra að leyfa hvalveiðar á þessu ári - þau varpa ljósi...
Jun 25, 2024•20 min•Ep. 335
24. júní 2024 Sviðsstjóri netöryggissveitarinnar Certis segir að tölvukerfi liggi undir sleitulausum árásum sem langflestum sé hrundið, það sé mikilvægt að uppfæra kerfi stöðugt til að verjast þeim en þáttur notenda skipti líka miklu. Skólar á landsbyggðinn glíma ekki við sömu áskoranir og skólar á stærri stöðum en þó getur líka verið mikill aðstöðumunur milli skóla á stærri stöðum segir mennta-og barnamálaráðherra.
Jun 24, 2024•19 min•Ep. 334
Árið 2023 var tólfta árið í röð sem flóttafólki í heiminum fjölgaði. Hartnær 120 milljón manns voru á flótta í fyrra, þar af um 47 milljónir barna undir 18 ára aldri. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Í gær, á alþjóðlegum degi flóttafólks, kynnti Flóttamannastofnunin niðurstöður alþjóðlegrar könnunar, þar sem ríflega 33 þúsund manns í 52 löndum víðsvegar um heiminn voru beðin að taka afstöðu til fjölmargra atriða varðandi fólk á flótta. Ein meginniðurstaða...
Jun 21, 2024•20 min•Ep. 333
Tillaga um vantraust á matvælaráðherra var felld í morgun. Aðeins eru nokkrar vikur síðan ríkisstjórnin í heild stóð af sér síka tillögu. Ráðherra segir tíma þingsins betur varið í annað en stjórnarliði sem sat hjá efast um erindi VG á þingi og segir eðlilegt að ráðherra sem misbeitir valdi sínu víki. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur fréttakonu um málið og við heyrum brot úr málflutningi Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur og Jóns Gunnarssonar. Flokkadrættir og átök á Ev...
Jun 20, 2024•20 min•Ep. 332
Nokkrir úr hópi tékkneskra ferðalanga sem lentu í alvarlegu bílslysi í Öxnadal í síðustu viku hafa verið útskrifaðir af sjúkrahúsi, en tveir eru enn á gjörgæslu. Bílstjórinn hefur réttarstöðu sakbornings, umfangsmikil rannsókn er þó skammt á veg komin. Hlekkirnir þurfa ekki að vera áþreifanlegar til að það sé mansal, segir sendisaksóknari Íslands hjá Eurojust, og mansal þrífst ekki aðeins hjá skipulögðum brotahópum. Erfingjar rúmlega fimm þúsund listmuna og gersema sem stjórnvöld á Spáni gerðu u...
Jun 19, 2024•20 min•Ep. 331
Vantrauststillaga í garð matvælaráðherra. Rætt við þingflokksformann Miðflokksins Bergþór Ólason og þingflokksformann Framsóknarflokksins Ingibjörgu Isaksen. Af hverju gengur svona illa að sakfella í mansalsmálum? Rætt við Kolbrúnu Benediktsdóttur saksóknara. Ráðherraráð Evrópusambandsins hefur staðfest viðamikla og umdeilda löggjöf um endurheimt lífríkis, vistkerfa og náttúru eftir harðar deilur og átök.
Jun 18, 2024•20 min•Ep. 330
Fyrir áttatíu árum þegar lýðveldið var stofnað og valinn forseta í staðinn fyrir kóng var ekki bara verið að setja lokapunktinn á sambandið við Dani en þá voru líka mikilvæg tímamót í lýðræðislegri þróun landsins. Þjóðerniskennd getur verið jákvæð en víða er höfðað til hennar til að ala á sundrungu. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Ragnheiði Kristjánsdóttur sagnfræðing. Þýskaland og Skotlands mætast í opnunarleik Evrópumótsins í knattspyrnu. Mótið er haldið í Þýskalandi og öryggisgæslan er gríð...
Jun 14, 2024•20 min•Ep. 329
Í þættinum verður farið yfir þingveturinn sem á að vera ljúka en óvist er hvenær það verður. Stjórnarandstaðan hvessti sig við upphaf þingfundar í morgun og húðskammaði stjórnarflokkanna. Ríkisstjórnin segir mikilvæg mál verða sett á oddinn; fjármálaáætlun og útlendingamál þar efst á baugi. Í þættinum verður einnig sagt frá nýju skipulagi við rjúpnaveiðar sem sátt virðist ríkja um.
Jun 13, 2024•20 min•Ep. 328
12. júní 2024 Forstjóri Hvals hf sagðist í morgun vera efins um að fyrirtækið myndi veiða hval á þessari vertíð vegna seinagangs matvælaráðherra. Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, telur orð forstjórans vera viðbrögð við minni eftirspurn á Japansmarkaði og Þórarinn Ingi Pétursson, formaður atvinnuveganefndar Alþingis, segir Hval hafa nægan tíma til stefnu. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við þá. Innan við þrír sólarhringar eru liðnir frá því Emmanuel Macron, forseti Frakklands, boðaði óvænt til...
Jun 12, 2024•20 min•Ep. 327
Enginn virðist ánægður með ákvörðun um að heimila hvalveiðar í ár. Matvælaráðherra ákvað í dag að heimila veiðar í ár. Edda Elísabet Magnúsdóttir hvalasérfræðingur segir að það sé ekkert grín að veiða dýr sem er fjörutíu tonn og tuttugu metrar að lengd. Þjóðarleiðtogar og alþjóðasamtök fagna ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um að Ísraelar og Hamas skuli semja um vopnahlé á grundvelli samkomulags sem Bandaríkin lögðu fram. Vonir standa til að svo fari, en formlegt samkomulag er þó ekki í hö...
Jun 11, 2024•20 min•Ep. 326
Rúmlega helmingur af þeim 360 milljónum Evrópusambandsbúa sem voru á kjörskrá neyttu atkvæðisréttar síns og kusu í Evrópuþingskosningunum. Helsta niðurstaðan er sú að flokkar sem skipa sér nálægt miðju og til hægri við hana fengu mest fylgi en þjóðernissinnaðir hægriflokkar styrktu stöðu sína, mest í Frakklandi þar sem flokkur forsætisráðherrans galt afhroð. Hann hefur boðað til þingkosninga eftir nokkrar vikur og þykir djarflega teflt. 44% fleiri ökumenn voru stöðvaðir í fyrra en árið á undan v...
Jun 10, 2024•20 min•Ep. 325
Fyrir tveimur árum hófst vinna í barna- og menntamálaráðuneytinu til að finna leiðir til að styrkja stöðu drengja í skólakerfinu. Stöðu sem er um margt alvarleg og getur enn versnað, eins og fram kom í máli Tryggva Hjaltasonar höfundar úttektar og skýrslu sem kynnt var í gær og fjallað um í Speglinum. Þar voru lagðar til fjölmargar aðgerðir og lausnir til að sporna við því að námsárangri drengja hraki og brottfalli þeirra úr námi. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við formanna Kennarasambands Ísland...
Jun 07, 2024•20 min•Ep. 324
6. júní 2024 Það kom á óvart hvað tungumálið er stór breyta, segir Tryggvi Hjaltason, höfundur nýrrar skýrslu um stöðu drengja í menntakerfinu sem unnin var að beiðni menntamálaráðuneytisins. Þótt staðan sé vond er botninum sennilega ekki náð en það er hægt að ná miklum og mælanlegum árangri með ákveðnum aðgerðum, segir Tryggvi, í samtali við Frey Gígju Gunnarsson. Tilraunir með lífeldsneyti skiluðu betri niðurstöðum en Garðar Kári Garðarsson, rannsakandi í Háskólanum á Akureyri, hafði þorað að ...
Jun 06, 2024•20 min•Ep. 323
5. júní 2024 Það eru um sjö mánuðir síðan Grindavík var rýmd, jarðhræringarnar halda áfram og verkefnin sem við blasa eru mörg og krefjandi. Atvinnu- og húsnæðismálin kannski mest aðkallandi segir Árni Þór Sigurðsson, formaður nýrrar framkvæmdanefndar um málefni Grindavíkur, í viðtali við Önnu Kristínu Jónsdóttur. Um þrjú hundruð og sjötíu milljónir eru á kjörskrá fyrir kosningar til Evrópuþingsins sem hefjast á morgun og standa fram á sunnudag. Þingið var í upphafi valda- og áhrifalítið en hefu...
Jun 05, 2024•20 min•Ep. 322
Það er ekkert sem bendir til þess að dimmur og ofbeldisfullur veruleiki fylgi hinu svokallaða nýja Íslandi, segir afbrotafræðingur. Upplifun af ofbeldisbrotum fólks af erlendum uppruna mótast oft af því hvort viðkomandi sé gerandi eða þolandi. Meirihluti Gazabúa hefur verið sviptur aðgangi að mannúðaraðstoð og hungursneyð vofir yfir á Gaza öllu, segja alþjóðlegu hjálparsamtökin Oxfam. Hér heima er einn stjórnarflokkanna, VG er við það að þurrkast út. Formaður flokksins vill leita í róttækar rætu...
Jun 04, 2024•20 min•Ep. 321
Hve mikinn þátt í sigri Höllu Tómasdóttur átti sókn hennar á nýjum miðlum þar sem sérstaklega var höfðað til yngri kjósenda? Breytingar á íslensku samfélagi endurspeglast í fangelsum landsins, í fyrra sættu 242 frá 40 löndum gæsluvarðhaldi og hafa aldrei verið fleiri. Fangelsismálastjóri segir þróun samfélagsins endurspeglast í fangelsunum og það þarf að hlúa betur að hinsegin nemendum í smærri byggðum landsins segja talsmenn Hinsegin lífsgæða.
Jun 03, 2024•20 min•Ep. 320
Á morgun ganga Íslendingar að kjörborðinu og kjósa sér sjöunda forseta lýðveldisins. Tólf frambjóðendur eru á kjörseðlinum, tæplega tvö hundruð sextíu og sjö þúsund á kjörskrá og kjörstaðir eru í kringum hundrað og fjörutíu Þegar búið er að loka kjörstöðum eykst spennan eftir fyrstu tölum og kastljósið beinist að talningarstöðunum. Allt þarf þetta þó að gerast eftir kúnstarinnar reglum. Spegillinn ræðir við Tómas Hrafn Sveinsson. Forsetaframbjóðendunum hefur verið tíðrætt um mikilvægi þess að ve...
May 31, 2024•20 min•Ep. 319
30. maí 2024 Kjörfundur í forsetakosningunum hefst á laugardagsmorgun og miðað við skoðanakannanir sem birst hafa í dag er erfitt að spá fyrir hver verður sjöundi forseti Íslands. Þingkosningar voru í Suður-Afríku í gær. Allt bendir til þess að Afríska þjóðarráðið, flokkur Nelsons Mandela, missi meirihluta sinn á þingi í fyrsta skipti í 30 ára sögu lýðræðislegra kosninga í landinu. Áhrifin af innkomu Grindvíkinga á íbúðamarkað eru ekki komin fram nema að litlu leyti en þegar það gerist verða þau...
May 30, 2024•20 min•Ep. 318
29. maí 2024 - Eldgos og skoðanakannanir Eldgos sem hófst á Sundhnúksgígaröðinni laust fyrir klukkan eitt miðvikudaginn 29. maí er það fimmta á rúmu hálfu ári eða síðan Grindavíkurbær var rýmdur 10. nóvember þegar kvikugangur myndaðist undir bænum. Þrjár vikur voru þá liðnar frá því að lokum fjórða gossins var formlega lýst yfir. Í millitíðinni höfðu um tuttugu milljónir rúmmetra af kviku safnast í kvikuhólfið undir Svartsengi og hafði kvikan aldrei verið meiri frá því að þessi kafli umbrotanna ...
May 29, 2024•20 min•Ep. 317
Losun frá íslenska samfélaginu er enn þá á uppleið. Þetta sýna nýjar tölur sem kynntar voru á árlegum loftslagsdegi í Hörpu í dag. Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs, segir alvarleg mistök hafa verið gerð þegar felldir voru niður hagrænir hvatar á rafbílum. Ísraelsher hefur nú drepið ríflega 36.000 manns á Gaza í hefndarstríði sínu vegna mannskæðs hryðjuverks vígasveita Hamas í Ísrael 7. október síðastliðinn. Um eða yfir 90 prósent hinna drepnu eru almennir borgarar, meirihlutinn konur ...
May 28, 2024•20 min•Ep. 316
Það herðist baráttan hjá forsetaframbjóðendum; aðeins nokkrir dagar þar til gengið verður til kosninga og ljóst hver gegnir embætti forseta næstu árin, þá ríður á að skera sig úr hópnum. Ekkert húsnæði er í sjónmáli undir Konukot þótt tvö ár séu að verða liðin síðan borgaryfirvöld sögðu það sprungið og henta illa undir starfsemina.
May 27, 2024•20 min•Ep. 315
Nýlega samþykkti Alþingi áætlun í málefnum íslenskrar tungu þar sem taldar eru upp 22 aðgerðir stjórnvalda til að vernda og þróa tungumálið, og gildir áætlunin til 2026. Rætt verður við Ármann Jakobsson, formann íslenskrar málnefndar. Þá verður einnig fjallað um skotsvæðið á Álfsnesi sem verður þar næstu fjögur til fimm árin við litla hrifningu íbúa. Fyrst er þó viðtal við forsetaframbjóðanda og að þessu sinni er komið að Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur.
May 24, 2024•20 min•Ep. 314
Síðar í Speglinum verður fjallað um væringarnar á hægri væng evrópskra stjórnmála sem gætu ógnað velgengni harðlínuflokka í kosningum til Evrópuþingsins, sem haldnar verða eftir hálfan mánuð. Það verður líka fjallað um gleymda stríðið í Mjanmar sem hefur geisað í þessu lokaða landi síðan herinn hrifsaði til sín völdin á ný fyrir þremur árum. En fyrst er það næstsíðasti forsetaframbjóðandinn - Ástþór Magnússon.
May 23, 2024•20 min•Ep. 313
22. maí 2024 Spegillinn heldur áfram viðtölum við forsetaframbjóðendur - að þessu sinni er rætt við Helgu Þórisdóttur, sem Ragnhildur Thorlacius hitti fyrir á göngum Útvarpshússins. Stjórnvöld þriggja Vestur-Evrópuríkja, Noregs, Írlands og Spánar, lýstu því yfir í gær, að þau hygðust viðurkenna sjálfstæði Palestínu. Hallgrímur Indriðason spurði Jón Orm Halldórsson alþjóðastjórnmálafræðing hvaða þýðingu þessar yfirlýsingar hefðu. Síðustu daga og vikur hafa verið sagðar fréttir upp úr umsögnum lög...
May 22, 2024•20 min•Ep. 312
Rætt er við Eirík Ingi Jóhannsson, forsetaframbjóðanda. Pétur Jökull Jónasson, 45 ára gamall Íslendingur, hefur verið ákærður fyrir aðild að innflutningi á nærri hundrað kílóum af kókaíni til landsins, í timbursendingu fyrir tveimur árum. Fjórir hlutu þunga dóma vegna málsins. Það getur valdið þolendum miklum kvíða að mæta gerendum sínum fyrir dómi. Nemendur í tölvunarfræði hafa hannað dómsal í sýndarveruleika sem líkir eftir einum af sölum hérðasdóms. Þannig getur fólk búið sig undir að mæta ge...
May 21, 2024•20 min•Ep. 311
Í þættinum er haldið áfram að ræða við forsetaframbjóðendur og nú er röðin komin að Baldri Þórhallssyni. Það verður einnig fjallað um nýja greiningu Deloitte á stöðunni í Grindavík. Er hægt að gæða bæinn lífi á ný og hvað kostar það? Rúmlega fimmtungur innviða er skemmdur og óvissa ríkir um framhaldið, bæði ofanjarðar og neðan. Þá er einnig sagt frá dönskum herskipum á norðurslóðum sem sinntu varnarhlutverki sínu með fallbyssum sem engin leið var að miða á skotmörk svo gagn væri að.
May 17, 2024•20 min•Ep. 310
16. maí 2024 Viðtöl Spegilsins við frambjóðendur til embættis forseta Íslands halda áfram. Í þessum þætti ræðir Freyr Gígja Gunnarsson við Höllu Hrund Logadóttur. Utanríkisráðherrar Íslands og þriggja Evrópusambandsríkja; Eistlands, Lettlands og Litáens, héldu til Georgíu í gær til að ræða við ráðamenn úr stjórn og stjórnarandstöðu og sýna samstöðu með þeim sem mótmælt hafa umdeildum lögum sem Georgíuþing samþykkti í vikunni. Rætt er við Björn Malmquist, fréttaritara RÚV í Brussel, um afstöðu ES...
May 16, 2024•20 min•Ep. 309
15. maí 2024 Spegillinn hefur tekið og birt viðtöl við frambjóðendur til embættis forseta Íslands og mun gera það áfram. Að þessu sinni ræðir Freyr Gígja Gunnarsson við Höllu Tómasdóttur. Þórdís Kolbrún Gylfadóttir Reykfjörð er í opinberri heimsókn í Tiblisi í Georgíu ásamt utanríkisráðherrum Eistlands, Lettlands og Litáens. Tilgangurinn er að styðja georgísku þjóðina í viðleitni sinni til að auka samstarf við Evrópuríki, jafnt innan ESB sem utan. Tilefnið er ekki síst umdeild lagasetning um fjá...
May 15, 2024•20 min•Ep. 308
Flutningur fólks sem sætt hefur mansali héðan til Afríku er merki um þá hörku sem færst hefur í útlendingamál, segir talskona Stígamóta Mikill hiti var í mótmælendum í miðborg Tiblisi í morgun, þegar þingið samþykkti afar umdeild lög, sem sögð eru grafa undan lýðræði og fjölmiðlafrelsi í landinu. Framkvæmdastjóri samtaka um vestræna samvinnu segir lögin greiða götu stjórnvalda til alræðis og enn er rætt við forsetaframbjóðanda, nú er það Jón Gnarr sem tók sér matarhlé til að ræða um forsetaembæt...
May 14, 2024•20 min•Ep. 307
Forsetinn á að sameina þjóðina og beita sér fyrir því þáttökur allra í samfélaginu, hlú að tungu, sögu og menningu þjóðarinnar og vera sá sem hún getur hallað sér að þegar á móti blæs segir Katrín Jakobsdóttir. Utanríkisráðuneytið leggur til að opnað verði sendiráð í Madrid höfuðborg Spánar, á næsta ári. Gríðarlegt álag hefur verið á kjörræðismönnum Íslands undanfarin ár Mannekla hjá grænlenska ríkisútvarpinu er mikil. Fjöldi starfsmanna hefur sagt upp og erfitt er að manna stöður. Engu síður er...
May 13, 2024•20 min•Ep. 306