Það verður almyrkvi á vesturhluta landsins miðvikudaginn 12. ágúst 2026. Þótt það sé enn langt í þennan atburð eru erlendir ferðamenn þegar farnir að sýna því áhuga að koma til landsins. Látrabjarg gæti orðið vinsælasti staðurinn þar sem almyrkvinn stendur hvað lengst. Fjallað verður um þetta í Speglinum og meðal annars rætt við Sævar Helga Bragason. Fyrst verður hins vegar rætt við Viktor Traustason, einn þeirra tólf, sem eru í framboði til forseta Íslands. Hann setur þrjár reglur á oddinn í fr...
May 10, 2024•20 min•Ep. 305
8. maí 2024 Arnar Þór Jónsson er einn tólf frambjóðenda til embættis forseta Íslands, en forsetakosningar fara fram í júní. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Arnar um hvað það er sem knúði hann til framboðs, sýn hans á forsetaembættið og fleira. Síðustu daga hafa sendinefndir Hamas og Ísraelsstjórnar fundað í Kaíró, til að ræða vopnahléssamkomulag sem Egyptar og Katarar lögðu fram á dögunum og Bandaríkin og Sameinuðu þjóðirnar eiga aðild að. Margar breytingar hafa verið gerðar á samkomulaginu frá...
May 08, 2024•20 min•Ep. 304
Ásdís Rán ætlaði að gera raunveruleikasjónvarp um að hún færi í forsetaframboð. Þættirnir duttu upp fyrir en Ásdís ákvað að bjóða sig fram. Næstu vikur verður rætt í Speglinum við alla þá sem eru í framboði til forseta. Vladimír Pútín var formlega settur í embætti Rússlandsforseta í morgun, fimmta sinni. Í innsetningarræðu sinni sakaði Pútín Vesturlönd enn um yfirgang og sviksemi og sagði þau bera alla ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Hann sagðist þó ekki útiloka samstarf við þau í framtíðinni. Guðr...
May 07, 2024•20 min•Ep. 303
Innrás Ísraela í Rafahborg vofir yfir og hefur gert lengi þúúsundir hafa þegar lagt á flótta en hafa að engu að hverfa. Síðdegis samþykktu leiðtogar Hamas skilyrði fyrir vopnahléi á Gaza en ísraelsk stjórnvöld hafa enn ekki tekið í þann streng. Birna Þórarinsdóttir framkvæmdastýra UNICEF á Íslandi segir aðstæður á Gaza og í Rafah ömurlegar en vont geti enn versnað. Afar brýnt sé að greiða fyrir því að hjálpargögn berist til nauðstaddra og vonandi verði vopnahlé að veruleika Önnur af tveimur rann...
May 06, 2024•20 min•Ep. 302
Spegillinn verður vestur á fjörðum og forvitnast um sveitastjórnarkosningar sem fara fram í nýsameinuðu sveitarfélagi Tálknafjarðar og Vesturbyggðar á morgun. Hann heldur líka vestur um hafi og heldur áfram umfjöllun um stúdentamótmælin í bandarískum háskólum. Þá verður rætt við Stíg Helgason, ritstjóra kosningaumfjöllunar RÚV um forsetakosningarnar, en fyrstu leiðtogaumræðurnar eru í kvöld.
May 03, 2024•20 min•Ep. 301
2. maí 2024 Frumvarp að nýjum lögum um lagareldi styrkir sjókvíaeldi í sessi en herðir kröfur til fyrirtækja í geiranum. Eftirlitsaðilar segja nýju lögin bragarbót en náttúruverndarsinnar mótmæla frumvarpinu. Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í lögin og ræðir við Hafstein Dan Kristjánsson lektor við lagadeild HR, Hrönn Ólínu Jörundsdóttur, forstjóra Matvælastofnunar og Jón Kaldal, talsmann Íslenska náttúruverndarsjóðsins. Á annað þúsund manns hafa verið handtekin í mikilli mótmælaöldu sem riðið ...
May 02, 2024•20 min•Ep. 300
Hvað er í gangi í Sundhnúksgígaröðinni? Þrýstingur eykst og augu jarðvísindamanna eru á mælitækjunum. Rætt var við jarðeðlisfræðinginn Halldór Geirsson. Fyrsti ráðherra Skotlands boðaði afsögn sína í gær, eftir afdrifarík, pólitísk mistök. Við segjum frá áframhaldandi vandræðum Skoska þjóðarflokksins. Við heimsækjum Westminster-höll Játvarðs konungs og kastala Vilhjálms sigursæla, í Normandi - en samt í Gufunesi.
Apr 30, 2024•20 min•Ep. 299
Er þörf á norrænu varnarsamstarfi þegar þau eru öll í NATO? Jónas Allansson, skrifstofustjóri á varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins segir að Atlantshafsbandalagsaðild allra styrki bæði bandalagið og Norðurlöndin sjálf með þéttri samvinnu og samruna á sviði hermála, líkt og þegar sé á félagslega og pólitíska sviðinu. Samingur um Uppbyggingarsjóð EES ríkjanna, Íslands, Noregs og Lichtenstein er enn til umfjöllunar í Ráðherraráði Evrópusambandsins, tæpum fimm mánuðum eftir að framkvæmdastjó...
Apr 29, 2024•20 min•Ep. 298
Hulda Þórisdóttir, stjórnmálasálfræðingur, fer yfir stöðuna í komandi forsetakosningum sem metfjöldi frambjóðenda ætlar að taka þátt í. Fyrst verður hins vegar skyggnst á bakvið tjöldin og skoðað hvernig það er að vera forseti Íslands og hvað það er sem hann gerir.
Apr 26, 2024•20 min•Ep. 297
24. apríl 2024 Ísland er herlaust en ekki hlutlaust segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra. Hún vill leggja aukna áherslu á öryggis- og varnarmál landsins. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við hana. Dómsmálaráðuneytið svaraði fyrir helgi umsögnum sem hafa borist í tengslum við nýtt og umdeilt frumvarp til útlendingalaga. Þar segir ráðuneytið meðal annars að kærunefnd útlendingamála sé að drukkna í málum og að nauðsynlegt sé að afnema málsmeðferðarreglu sem það segir sér-íslens...
Apr 24, 2024•20 min•Ep. 296
Hverjir eiga möguleika á því að verða næsti forseti Íslands? Hver skoðanakönnunin rekur aðra þessa dagana, síðast í dag kom könnun sem sýnir mikið forskot tveggja frambjóðenda. Eiga fleiri möguleika? Hvað með þann þriðja sem er á fleygiferð og þann fjórða - gamalkunnugt ólíkindatól. Eva H. Önnudóttir prófessor í stjórmálafræði spáði í nýjustu skoðanakönnunina með Speglinum. Síðustu tólf mánuði hafa komið upp átta mál þar sem lögregla hefur rannsakað hvort andlát hafi borið að með saknæmum hætti....
Apr 23, 2024•20 min•Ep. 295
Í fjármálaáætlun til næstu ára er 18 milljörðum króna ráðstafað í breytingar á örorkulífeyriskerfinu sem taka eiga gildi í september 2025, verði frumvarp Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra, samþykkt. Ætlunin er að einfalda kerfið og tryggja samfellu , hvetja til atvinnuþátttöku og draga úr skerðingum og hækka frítekjumörk. Vigdís Jónsdóttir forstjóri VIRK segir margt til bóta og býst við að breytingarnar hafi mikil áhrif á starfsemi VIRK. Réttarhöld hófust í dag yfir ...
Apr 22, 2024•20 min•Ep. 294
ADHD er bæði ofgreint og ofmeðhöndlað hér á landi segir yfirlæknir ADHD-teymis Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Landlæknir segir að á hverjum tíma séu nokkur mál vegna ávísana of stórra skammta ADHD-lyfja til meðferðar hjá embættinu og að misbrestur hafi verið á að næg eftirfylgni sé með slíkum lyfjameðferðum. Reykjanesbær, Suðurnesjabær og Sveitarfélagið Vogar hafa í vikunni átt samráðsfundi með íbúum um möguleika á sameiningu sveitarfélaganna þriggja. Íbúafundir hafa verið haldnir í hverju sv...
Apr 19, 2024•20 min•Ep. 293
18. apríl 2024 Landsréttur skoðar hvort formgalli í máli hjúkrunarfræðings sem var sýknaður af manndrápsákæru eigi að leiða til þess að sýknudómurinn verði ómerktur og málinu vísað aftur til héraðs. Ákæruvaldið telur sig geta krafist þess að hjúkrunarfræðingurinn verði til vara dæmdur fyrir manndráp af gáleysi, en verjandi hennar segir ekki hægt að skipta um hest í miðri á. Freyr Gígja Gunnarsson segir frá. Byrjað er að draga úr urðun sorps í Álfsnesi og lög kveða á um að hætta skuli urðun að fu...
Apr 18, 2024•20 min•Ep. 292
17. apríl 2024 Vantrauststillaga í Alþingi. Harður tónn var í ræðu Ingu Sæland formanns Flokks fólksins við þegar hún flutti tillögum um vantraust, þingrof og nýjar kosningar. Forsætisráðherra sagði tillöguna ýta undir glundroða. Þúsundir mótmælenda hafa safnast saman dag eftir dag í höfuðborg Georgíu til að mótmæla lögum sem óttast er að verði beitt til að þagga niður í gagnrýni sjálfstæðra fjölmiðla og frjálsra félagasamtaka. Forseti Íslands hefur ýmsar formlegar skyldur en þegar þeim sleppir ...
Apr 17, 2024•20 min•Ep. 291
Dómur Mannréttindadómstóls Evrópu um að íslenska ríkið hafi gerst brotlegt krefst viðbragða en mögulega án þess að breyta stjórnarskrá segir fyrrverandi dómari við dómstólínn. Aðhald eða bókhaldsbrellur - sýn stjórnmálamanna á nýbirta fjármálaáætlun veltur á því hvaðan er horft. Børsen, hin fjögurhundruðára gamla kauphöll Dana brann í dag, næstum til grunna. Guðjón Friðriksson sagnfræðingur segir að skaðinn sé gríðarlegur fyrir Dani. Húsið komi heilmikið við sögu Íslands.
Apr 16, 2024•20 min•Ep. 290
15. apríl 2024 Bankasýslan skilaði á föstudag skýrslu um kaup Landsbankans á tryggingafélaginu TM. Bankasýslan finnur kaupunum og aðdraganda þeirra flest til foráttu og undrast að valin hafi verið eina leiðin sem hvorki kallaði á aðkomu né samþykki hluthafa. Kaupin hafa dregið dilk á eftir sér og sýnist sitt hverjum, eins og Freyr Gígja Gunnarsson fer yfir í umfjöllun sinni um málið. Við heyrum í Helgu Björk Eiríksdóttur, fráfarandi bankaráðsformanni Landsbankans, Tryggva Pálssyni, stjórnarforma...
Apr 15, 2024•20 min•Ep. 289
Í þættinum verður rætt við formann BSRB um kjarasamninga, þar sem meginverkefnið er að hemja verðbólgu og vexti. Einnig þurfi að leiðrétta það sem rangt var gefið í upphafi. Líka verður fjallað um OJ Simpson, sem lést í gær. Fyrst er það þó nýr fjármálaráðherra sem boðar ekki niðurskurð í fjármálaáætlun, ætlar að halda áfram að selja hlut ríkisins í Íslandsbanka og segir sitthvað um kaup Landsbankans á TM.
Apr 12, 2024•20 min•Ep. 288
11. apríl 2024 Tveir sænskir sérfræðingar hafa verið fengnir til að vinna álit á krufningarskýrslu sem unnin var hér á landi vegna andláts konu á Selfossi fyrir ári síðan. Samstarf og stuðningur Evrópusambandsins við ríki þaðan sem flóttafólk og innflytjendur koma til Evrópu verður aukinn, til að draga úr þeim fjölda fólks sem sækist eftir hæli og dvalarleyfi í aðildaríkjum ESB. Félag íslenskra bókaútgefenda, FÍBÚT, fagnar þeim yfirgripsmiklu og metnaðarfullu áformum stjórnvalda sem birtast í þi...
Apr 11, 2024•20 min•Ep. 287
Nýr forsætisráðherra flutti Alþingi yfirlýsingu ríkisstjórnar sinnar þar sem honum var tíðrætt um pólitískan og efnahagslegan stöðugleika. Stjórnarandstaðan gaf lítið fyrir nýtt andlit ríkisstjórnarinnar, kallaði hana hræðslubandalag og raunveruleikasjónvarp og fannst andrúmsloftið minna á búsáhaldarbyltinguna. Jafnlaunavottun er alls ekki gagnslaus í baráttu við launamisrétti en nýlegt dæmi af Landspítalanum staðfestir að ekki má sofna á verðinum og treysta á að hún tryggi sömu laun fyrir sömu ...
Apr 10, 2024•20 min•Ep. 286
Það verður rýnt í ríkisstjórnarsamstarfið og hvað ráðherraskipti dagsins þýða með tveimur stjórnmálafræðingum, þeim Evu H. Önnudóttur og Eiríki Bergmann. Það verður líka horft um öxl og hvernig stjórnarsamstarfið hefur þróast og rætt við fréttamann RÚV á Bessastöðum þar sem haldnir voru tveir ríkisráðsfundir.
Apr 09, 2024•20 min•Ep. 285
8. apríl 2024 Hvað getur starfsstjórn gert? Forsætisráðherra hefur beðist lausnar fyrir ráðuneyti sitt til að bjóða sig fram til forseta, hvaða kostir blasa þá við og hver er staða forseteaembættisins. Norðmenn ætla að stækka her sinn og verja miklu fé til varnarmála á næstunni til að geta brugðist við mögulegri sókn Rússa. Skynúrlausnarvandi er tiltölulega algengur, bæði hjá fullorðnum og börnum en samt skortir nokkuð á skilning aðstandenda að mati Júlíu Margrétar Birgisdóttur stuðningsfulltrúa...
Apr 08, 2024•20 min•Ep. 284
Fjallað verður um vaxandi þrýsting á Ísraelsstjórn og hvernig árás á hjálparstarfsmenn virðist hafa verið kornið sem fyllti mælinn hjá jafnvel hörðustu stuðningsmönnum Ísraels. En við byrjum á máli málanna hér heima, forsætisráðherra er hættur því hún ætlar að bjóða sig fram í forsetakosningunum í sumar. Spegillinn ræddi við Katrín Jakobsdóttur í Hörpu í dag en fór líka aðeins yfir stöðuna í stjórnarsamstarfinu sem er breytt eftir brotthvarf forsætisráðherra.
Apr 05, 2024•20 min•Ep. 283
4. apríl 2024 Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra staðfesti í gær að hún hefði íhugað forsetaframboð af mikilli alvöru. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, aflýsti för sinni á 75 ára afmælisfund Atlantshafsbandalagsins í Brussel og Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins frestaði boðuðum fundarhöldum á Austurlandi. Heimildir fréttastofu herma að þeir tveir eigi nú í viðræðum við Guðmund Inga Guðbrandsson, varaformann Vinstri grænna, um framhald ríkisstjórnarsamsta...
Apr 04, 2024•20 min•Ep. 282
Forsætisráðherra íhugar að láta af embætti til að bjóða sig fram í komandi forsetakosningum. Stjórnarandstaðan telur hana þannig viðurkenna að stjórnarsamstarfið gangi ekki lengur upp - hún væri ekki að íhuga slíkt framboð ef veðrið væri gott á stjórnarheimilinu. Ólafur Þ. Harðarson rýnir í stöðuna í Speglinum. Trausti Valsson svarar líka þeirri spurningu af hverju það sé best að ný varaflugvöllur verði í Borgarfirði.
Apr 03, 2024•21 min•Ep. 281
Fer hún fram eða ekki? Hrekkur hún eða stekkur? Hvenær segir hún af eða á? Stjórnmálastéttin og ekki síður þeir sem stefna á forsetaframboð bíða þess í ofvæni að forsætisráðherra tilkynni hvort hún ætlar sjálf fram. Spáð var í spilin með Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur. Magnús Þorkell Bernharðsson, prófessor í nútímasögu Mið-Austurlanda, segir spennuna á svæðinu hafa aukist til muna eftir árás Ísraelshers á ræðismannaskrifstofu Írans í Sýrlandi. Þótt íranskir ráðamenn segi að árásinni verði svarað ...
Apr 02, 2024•20 min•Ep. 280
Hæstiréttur komst í dag að þeirri niðurstöðu að ríkið yrði að standa við samkomulag sem fyrrverandi ríkislögreglustjóri gerði við undirmenn sína. Þó er alveg skýrt að mati Hæstaréttar að ríkislögreglustjóinn fyrrverandi mátti ekki gera samkomulagið. Freyr Gígja Gunnarsson sagði frá. Sjöundi forseti Íslands verður kosinn 1. júní. Forsetakosningar eru sannarlega persónukjör og embættið hefur í gegnum tíðina mótast af þeim sem gegnir því hverju sinni. Því vsr horft um öxl og gripið niður í innsetni...
Mar 27, 2024•20 min•Ep. 279
Orðrómurinn um forsetaframboð forsætisráðherra lifir áfram góðu lífi, rætt verður við Ölmu Möller um offitu og rýnt verður í forsetaembættið með Ragnheiði Kristjánsdóttur, prófessor í sagnfræði.
Mar 26, 2024•20 min•Ep. 278
Enn einu sinni virðast vanhæfni og veikleikar einkenna rússneska stjórnkerfið, segir Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra Íslands í Rússlandi um hryðjuverkið í Moskvu. Ólíklegt er þó að þessi vanhæfni bíti á Vladímír Pútín forseta landsins. Evrópusambandið boðar ítarlega rannsókn á starfsemi nokkurra stærstu netfyrirtækja heimsins. Reynist þau brotleg getur sektin numið tíu prósentum af árlegri veltu þeirra - milljörðum dollara. Ríflega milljarður Jarðarbúa telst of feitur samkvæmt rannsókn se...
Mar 25, 2024•20 min•Ep. 277
Talað er um sírennsli í tengslum við nýjasta eldgosið á Reykjanesskaga, norður af Grindavík. Ævar Örn Jósepsson ræddi við Benedikt Ófeigsson, jarðeðlisfræðing á Veðurstofu Íslands. Umfangsmestu þingkosningar sögunnar standa fyrir dyrum á Indlandi. Kosið verður í 44 daga í 7 áföngum. 2.200 flokkar bjóða fram. Ásgeir Tómasson sagði frá. Sigur Íslands á Ísrael í leik um laust sæti á Evrópumótinu í knattspyrnu í sumar hefur vakið upp ýmsar siðferðilegar spurningar. Freyr Gígja Gunnarsson tók saman o...
Mar 22, 2024•20 min•Ep. 276