Spegillinn - podcast cover

Spegillinn

RÚVwww.ruv.is
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Ópíóíðavandinn, rammaáætlun og leiðtogar ESB um stríðsátök

Í þættinum verður fjallað um rammaáætlun og af hverju framkvæmdastjóri Samorku telur hana vera barn síns tíma. Spegillinn verður líka á leiðtogafundi Evrópusambandsins í Brussel með Birni Malmquist og heldur áfram umfjöllun sinni um ópíóíðavandann.

Mar 21, 202420 minEp. 275

Ópíóíðafaraldur og framtíð rammaáætlunar

Heilbrigðisráðherra segir góðar ábendingar í nýrri úttekt ríkisendurskoðunar um ópíóíðavandann sem beri að taka alvarlega. Stjórnvöld verði að gera betur í þessum málaflokki í heild og ráðuneytið gangist við því að vera í forystuhlutverki í baráttunni við fíknivandann. Pétur Magnússon ræðir við Willum Þór Þórsson um úttektina og hvað stjórnvöld eru að gera. Vinna er hafin við fimmta áfanga - eða fjórðu endurskoðun - verndar- og orkunýtingaráætlunar, sem í daglegu tali kallast rammaáætlun. Umhver...

Mar 20, 202420 minEp. 274

Ríkisbanki kaupir tryggingafélag og hungur á Gaza

Má banki í ríkiseigu kaupa tryggingafélag? Ætti banki í ríkiseigu að kaupa tryggingarfélag? Þessi umræða hefur vaknað eftir að Landsbankinn tilkynnti að hann hefði gert Kviku skuldbindandi tilboð í tryggingafélagið TM. Bankasýsla ríkisins hefur gagnrýnt kaupin harðlega og beðið um skýringar og stjórnarandstaðan hefur krafið ríkisstjórnina svara. Hungur sverfur að íbúum á Gaza, tugir barna hafa dáið þar úr þorsta eða hungri undanfarnar vikur og ástandið versnar sífellt.

Mar 19, 202420 minEp. 273

Réttarhöld v. skotárásar, Grindavík, kosningar í Rússlandi

18. mars 2024 Réttarhöld vegna skotárásar í Úlfarsárdal í nóvember á síðasta ári hófust í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Árásin vakti bæði athygli og óhug en hana virðist mega rekja til hefndar fyrir rán. Sá eini sem særðist í árásinni gaf þó lítið upp um mögulegar ástæður þess að hann var skotinn og sagðist hvorki vita neitt né muna. Freyr Gígja Gunnarsson segir frá. Neyðarstigi almannavarna var lýst yfir þegar enn fór að gjósa í Sundhnúksgígum og hefur um sex ferkílómetra hraun komið upp. Hraun...

Mar 18, 202420 minEp. 272

Mansalsmál á Íslandi, húsnæðismál á Akureyri, forsetakosningar í Rússlandi

Áttatíu til níutíu mansalsmál hafa komið inn á borð Bjarkarhlíðar, miðstöðvar fyrir þolendur ofbeldis, segir Jenný Kristín Valbergsdóttir, teymisstjóri. Ragnhildur Hrefna Thorlacius ræddi við hana. Allt of fáar íbúðir hafa verið byggðar á Akureyri undanfarin ár og eftirspurnin á aðeins eftir að aukast, samkvæmt spá húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Halla Björn Reynisdóttir, forseti bæjarstjórnar, segir þau treysta á að jafnvægi náist í efnahagsmálum. Ólöf Rún Erlendsdóttir ræddi við hana. Þriggj...

Mar 15, 202420 minEp. 271

Kjarasamningar, verkbann og verkföll, skjálftavirkni færist vestar og stjórnarmyndun í Hollandi

Verkalýðsfélög virðast fljótari en áður að grípa í verkfallsvopnið og atvinnurekendur svara því með samhverfunni verkbanni segir vinnumarkaðsfræðingur. Jarðskjálftavirkni við Grindavík hefur færst dálítið til vesturs. Hvað telur Halldór Geirsson jarðeðlisfræðingur að það þýði. Frelsisflokkur þjóðernisöfgamannsins Geerts Wilders vann stórsigur, ríflega tvöfaldaði þingmannafjölda sinn í kosningum í fyrra en Wilders verður ekki forsætisráðherra þótt flokkur hans komist í sjtórn.

Mar 14, 202420 minEp. 270

Mansal, breytingar á stjórnarskrá og mannrán í Nígeríu

12. mars 2024 Sex manns eru í gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn lögreglu á meintum brotum Quangs Lé, öðru nafni Davíðs Viðarssonar, sem grunaður er um peningaþvætti, skipulagða glæpastarfsemi og vinnumansal. Búið var að rannsaka málið í langan tíma í samvinnu fjölmargra aðila, áður en lögreglan lét til skarar skríða á 25 stöðum um land allt. Karl Steinar Valsson yfirlögregluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra segir vinnumansal líklega útbreiddara á Íslandi en flestir telja og rannsóknir á mansals...

Mar 13, 202420 minEp. 269

Harður hnútur í deilu VR og SA, sögulegur dómur í hryðjuverkamáli og afsögn á Haítí

Stjórn Samtaka atvinnulífsins samþykkti í dag að efna til allsherjaratkvæðagreiðslu um verkbann á tugi þúsunda skrifstofumanna í VR. Ástæðan er yfirstandandi atkvæðagreiðsla um verkfall á annað hundrað VR-félaga í farþega- og hleðsluþjónustu á Keflavíkurflugvelli, segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA. Ofsafengið og óvænt viðbragð segir Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR. Tveir voru dæmdir fyrir fyrir vopnalagabrot en sýknaðir af ákæru um tilraun og til hryðjuverks og hlutdeild í...

Mar 12, 202420 minEp. 268

Hver á eyjarnar við landið? Kílómetragjaldið vekur athygli, erfiðar stjórnarmyndunarviðræður framundan í Portúgal

Mörgum brá þegar ríkið gerði tilkall til Vestmannaeyja, Hvítserks og flestallra eyjanna á Breiðafirði á grundvelli þjóðlendulaga, ekki síst þeim landeigendum sem töldu sig eiga eyjarnar. Nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokks hafa lagt til að eyjar og sker verði undanskildar meðferð Óbyggðanefndar en lögfræðingar segja eitt þurfa yfir alla að ganga. Sigurvegari þingkosninganna í Portúgal í gær Mið-hægriflokkurinn Lýðræðisbandalagið AD undir forystu Luís Montenegro á fá möguleika á að mynda stjórn. P...

Mar 11, 202420 minEp. 267

72 flóttamenn til Íslands, Ítalskar konur krefjast mannréttinda, grænlenskar konur og lykkjan

Yfir 70 palestínskir flóttamenn frá Gaza lentu á Keflavíkurflugvelli upp úr hádegi í dag. Reykjavíkurborg tekur á móti stórum hluta þeirra. Fólkinu býðst að koma í skóla- og fjölskyldumiðstöð sem koma á - á laggirnar í Reykjavík á næstu vikum. Þannig á að gefa fólki færi á að kynnast í lífinu í landinu. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Sögu Stephensen og Dagbjörtu Ásbjörnsdóttur, verkefnisstjóra fjölmenningar í leik- og grunnskólum Reykjavíkurborgar. Konur komu saman í dag, á alþjóðlegum baráttud...

Mar 08, 202420 minEp. 266

Kjarasamningur, Gaza og hergagnaframleiðsla í Evrópu

7. mars 2024 Fulltrúar Eflingar, Samiðnar og Starfsgreinasambandsins undirrituðu í dag kjarasamning við Samtök atvinnulífsins, fyrir hönd um það bil 70.000 félaga í hreyfingunum þremur. Samningurinn gildir í fjögur ár og nefnist Stöðugleika- og velferðarsamningur. Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir þetta tímamótasamning og er sannfærður um að hann verði samþykktur af yfirgnæfandi meirihluta félagsmanna. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Vilhjálm. Vonir eru að engu orðnar um...

Mar 07, 202420 minEp. 265

Vinnumansal og starf Solaris og sjálfboðaliða í Egyptalandi og Gaza

6. mars 2024 Það er ekki alltaf hagur þolenda vinnumansals að greina frá því, bendir Halldór Oddsson lögfræðingur ASÍ á. Atvinnu- og dvalarleyfi fólksins sé oft bundið kvalaranum og það hefur eytt aleigunni í leiti að betra lífi. Halldór stingur upp á að þolendur sem ljóstri upp um mansal fái aukna vernd, atvinnu- og dvalarleyfi hér á landi. Ragnhildur Thorlacius ræðir við hann. Sjálfboðaliðar á vegum hjálparsamtakanna Solaris hafa þegar komið um tuttugu Palestínumönnum frá Gaza til ættingja sin...

Mar 06, 202420 minEp. 264

Móttaka flóttafólks frá Gaza, nýr bændahöfðingi, óspennandi ofur-þriðjudagur

Flóttafólkið sem væntanlegt er hingað frá Gaza á næstu dögum og vikum hefur búið við meiri og langvinnari hörmungar, ógn og skelfingu en nokkur hópur annar sem hér hefur fengið skjól. Þetta segir Nína Helgadóttir teymisstjóri hjá Rauða krossinum. Trausti Hjálmarsson var kosinn formaður Bændasamtaka Íslands um síðustu helgi með tæplega 66% atkvæða. Trausti Hjálmarsson er sauðfjárbóndi í Austurhlíð í Biskupstungum þar sem jafnframt er stunduð hrossarækt og hestamennska. Hann segir sóknarfærin fram...

Mar 05, 202420 minEp. 263

Umræða um útlendingalög og uppþot á Alþing, vargöld á Haíti og áhrif hormonalyfja foreldra á börn

Hormónalyf mæðra getur haft alvarleg áhrif á börn ef þau komast í snertngu við lyf sem þær bera á sig, innkirtlasérfræðingur. Glæpagengi herja á Haítí, og engin lausn í augsýn.. Dómsmálaráðherra mælti fyrir frumvarpi um breytingar á útlendingalögum síðdegis, en gera þurfti hlé á umræðum þegar mótmælendur gerðu hróp að ráðherra og einn þeirra klifraði yfir handrið á þingpöllum. Sá var handtekinn og eftir það var umræðu haldið áfram eins og ekkert hefði í skorist.

Mar 04, 202420 minEp. 262

Noregskonungur veikur í Malasíu, málefni kvótaflóttamanna, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis

Norðmenn óttast að Haraldur konungur sé alvarlega veikur þar sem hann liggur á sjúkrahúsi í Malasíu. Hann er þar í fríi frá störfum. Búið er að senda sjúkraþotu á vegum hersins og lið lækna á staðinn en alls er óvíst hvenær konungur verður fluttur heim. Gísli Kristjánsson sagði frá. Gerður Gestsdóttir, ormaður flóttamannanefndar, vonar að hægt verði að að taka við kvótaflóttamönnum í ár en það hefur ekki verið gert frá 2020. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hana. Kristín Snorradóttir, teymisst...

Mar 01, 202420 minEp. 261

Kjaramál, orkuöryggi og bágt ástand á Kúbu

Útlit var fyrir að kjarasamningar næðust fljótlega milli breiðfylkingar Alþýðusambandsfélaga og Samtaka atvinnulífsins. Snurða hljóp svo á þráðinn og formaður Eflingar sagði ekkert traust ríkja gagnvart SA, launaliðurinn hefði verið frágenginn en svo tekinn upp í viðræðum við önnur félög. Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, dósent og sérfræðingur í vinnumarkaðsmálum telur að erfiðar viðræður endurspegli flókna samsetningu á vinnumarkaði. Dreifikerfi rafmagns réð ekki við þaðþ þegar hiti fór af byggð á ...

Feb 29, 202420 minEp. 260

Raforkuöryggi og virkjanir, rússneskt fé í aðstoð við Úkraínu og fólksfækkun í S-Kóreu

28. febrúar 2024 Allnokkrar umsagnir bárust í Samráðsgátt stjórnvalda um fyrirhugaðar breytingar á orkulögum, sem miðuðust að því að tryggja forgang heimila og minni raforkunotenda að rafmagni, ef til skömmtunar kæmi, á kostnað stórnotenda. Sumar umsagnir voru jákvæðar, aðrar neikvæðar, en eitt voru nánast allir umsagnaraðilar þó sammála um: Til að tryggja raforkuöryggi og nægt framboð þarf að virkja meira. Því er Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri í sjálfu sér ekki ósammála, en þar með er va...

Feb 28, 202420 minEp. 259

Raforkumál á ís, viðbrögð ráðamanna við hugleiðingum Macron, var Binden of fljótur á sér?

Drög að frumvarpi til breytinga á raforkulögum var kynnt fyrir ári. Markmið þess var að tryggja raforkuöryggi og framboð raforku, enda væri þetta grundvallarþáttur í þjóðaröryggi Íslands. En nú hefur málið verið sett á ís. Emmanuel Macron Frakklandsforseti velti því upp í gær að það væri ekkert útilokað að senda hermenn inn í Úkraínu til að berjast gegn Rússum. Við heyrum af viðbrögðum annarra evrópskra ráðamanna við því. Joe Biden Bandaríkjaforseti var gestur í kvöldþætti NBC-sjónvarpsstöðvarin...

Feb 27, 202420 minEp. 258

Samningar í augsýn en mikið veltur á þætti þess opinbera, þurrkar á Spáni og örorkulífeyriskerfið

26. febrúar 2024 Kjarasamningar fyrir stóran hluta vinnumarkaðarins eru í augsýn, launaliðurinn er sagður í höfn og talað um að samið verði til fjögurra ára og tvisvar á þeim tíma verði hægt að segja upp eða endurskoða samninginn ef verðbólga fer fram úr ákveðnum viðmiðum, enn er óvíst hver verður þáttur þess opinbera sem skiptir æ meira máli. Katrín Ólafsdóttir hagfræðingur telur jákvætt að ekki sé rætt um að tengja samninga við vaxtaákvarðanir. Neyðarástand vofir yfir á Spáni vegna þurrka, vat...

Feb 26, 202420 minEp. 257

Varnargrðar við Svartsengi, ónóg þjónusta við heilabilaða, útrýmingarhætta hvítmygluosta

Meðan beðið er eftir næsta eldgosi við Svartsengi, sem jarðeðlisfræðingar búast við að gæti jafnvel orðið í næstu viku, hamast menn við að styrkja varnir og koma í veg fyrir frekara tjón á innviðum. Ari Guðmundsson verkfræðingur fer fyrir þeirri vinnu. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Ara. Hvorki heilabiluðum né aðstandendum þeirra býðst viðunandi þjónusta á Norðurlandi. Þetta segja talsmenn Sólblómsins, félags aðstandenda heilabilaðra á Akureyri, sem sendu bæjarstjórn ákall um úrbætur á dögunum....

Feb 23, 202420 minEp. 256

Þingmenn um útlendingamál og mengun, mold og vatn

22. febrúar 2024 Samkomulag ríkisstjórnarinnar um heildarsýn í útlendingamálum felur í sér aðkomu ekki færri en sjö ráðuneyta. Í því koma fram háleit markmið um að leggja áherslu á mannúð og virðingu og vinna gegn skautun og stéttskiptingu. Rætt við Ingibjörgu Isaksen (B) og Sigmar Guðmundsson (C) um útlendingmál og frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á útlendingalögum. Mikilvægt er að rannsaka mögulega jarðvegsmengun strax og byrjað er að skipuleggja íbúðabyggð þar sem áður var iðnaðarsvæði...

Feb 22, 202420 minEp. 255

Málefni útlendinga, neðansjávargos við Reykjanes, herbátar til Úkraínu

21. febrúar 2024 Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands fagnar mörgu í heildarsýn í málefnum útlendinga og hælisleitenda en setur spurningarmerki til dæmis við breytingar á viðmiðum um fjölskyldusameiningu, styttingu dvalarleyfa og áform um lokuð búsetuúrræði. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við hana. Mikil eldsumbrot hafa verið á Reykjanesskaga síðustu misseri og ár. Eldgos, neðansjávargos, eru líka vel þekkt á hafsbotninum á Reykjaneshrygg, út af skaganum og Reyk...

Feb 21, 202420 minEp. 254

Útlendingamál, Ungverjar samþykkja inngöngu Svía í Atlantshafsbandalagið og orkuskerðingar

20. febrúar 2024 Útlendinga- og hælisleitendamál hafa verið uppspretta núnings og jafnvel beins ágreinings innan ríkisstjórnarinnar um langa hríð. Á fundi hennar í morgun sammæltist stjórnin um aðgerðir í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd, flóttafólks og innflytjenda, takaá utan um þau mál í heild. Ungverska þingið greiðir atkvæði á mánudaginn kemur um hvort það fellst fyrir sitt leyti á að Svíþjóð fái aðild að Atlantshafsbandalaginu, NATÓ. Öll önnur NATÓ-lönd styðja málið, eftir að Tyrkir...

Feb 20, 202420 minEp. 253

Grindavík, smitsjúkdómar og bólusetningar, Ursula von der Leyen

19. febrúar 2024 Lögreglustjórinn á Suðurnesjum tilkynnti í dag að Grindvíkingar mættu frá og með morgundeginum dvelja og starfa í bænum allan sólarhringinn. En þó að aðgangur hafi verið rýmkaður er varla hægt að segja að lögreglustjórinn telji fýsilegt að dvelja í bænum; segir reyndar í tilkynningu að aðstæður sé ekki boðlegar fyrir búsetu í húsum, hann býst ekki við að margir kjósi að dvelja þar næturlangt þó að það sé heimilt. Íbúar og starfsmenn fari inn í bæinn á eigin ábyrgð. Anna Kristín ...

Feb 19, 202420 minEp. 252

Uppkaup fasteigna í Grindavík, Brjósta- og leghálsskimun, Alexei Navalní

Töluvert hefur dregið úr þátttöku kvenna í brjósta- og leghálsskimun síðustu ár. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Ölmu Möller landlækni og Ágúst Inga Ágústsson, yfirlækni hjá Samhæfingarmiðstöð krabbameinsskimana. Á fjórða hundrað umsagnir bárust um drög að stjórnarfrumvarpi um uppkaup ríkisins á íbúðarhúsnæði í Grindavík, vegna hamfaranna sem dunið hafa yfir bæinn og enn standa yfir í næsta nágrenni hans. Ævar Örn Jósepsson ræddi við Sigurð Orra Hafþórsson, lögmann Húseigendafélagsins. Rússnes...

Feb 16, 202420 minEp. 251

Ísland og NATO, eldgosataktur og kreppa í Bretlandi

Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra segir það slæm - og röng skilaboð, sem Donald Trump fyrrverandi forseti Bandaríkjanna sendi um helgina, þegar hann sagði að undir sinni stjórn myndu Bandaríkin ekki koma þeim NATO-ríkjum til varnar, sem ekki hefðu varið nægu fé til varnarmála. Þessi umræða var í bakgrunni tveggja daga fundar varnarmálaráðherra NATO sem Bjarni sat fyrir hönd Íslands. Björn Malmquist fréttamaður í Brussel ræddi við Bjarna eftir fundinn. Ef kvika heldur áfram að safnast saman u...

Feb 15, 202420 minEp. 250

Uppkaup húsa í Grindavík, mannshvarf í Dyflinni og kosningar í Indónesíu

Þórkatla skal það heita, eignaumsýslufélagið sem Grindvíkingum býðst að selja íbúðarhúsnæði sitt, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Drög að lögum um þetta voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda. Yfir 300 umsagnir bárust um drögin, nær undantekningarlaust frá Grindvíkingum, sem hafa ýmislegt við þau að athuga. Það á sérstaklega við um fimm atriði og athugasemdir við þau liggja sem rauður þráður í gegnum flestar umsagnirnar. Ævar Örn Jósepsson ræddi þessi atriði við Sigurð Orra Hafþórsson, lögmann H...

Feb 14, 202420 minEp. 249

Reynt að semja um vopnahlé á Gaza, hryðjuverkaógn, ævintýralegt fiskerí

Sendinefndir frá Egyptalandi, Katar, Bandaríkjunum og Ísrael settust í dag að samningaborðinu í Kaíró í Egyptalandi til að reyna enn einu sinni að semja um vopnahlé á Gaza. Meðal þeirra sem voru mættir til að reyna að miðla málum voru yfirmenn bandarísku og ísraelsku leyniþjónustunna CIA og Mossad. Nýlega birti greiningardeild ríkislögreglustjóra árlega skýrslu sína um hryðjuverkaógn á Íslandi. Hún talin að þriðja stigi, aukin ógn. Ógnin er talin meiri en áður því til staðar sé ásetningur eða ge...

Feb 13, 202420 minEp. 248

Andrúmsloft í Ísrael, hungursneyð vofir yfir Eþíópíu og orkan misdýr í landinu

12. febrúar 2024 Stríð hefur geisað í fjóra mánuði fyrir botni Miðjarðarhafs. Tugþúsundir hafa fallið á Gaz, fjöldi gísla er í haldi Hamas og árásum Ísraelshers á Gaza linnir ekki. Íslendingur sem búið hefur í Tel Aviv í fimma ár segir andrúmsloftið í Ísrael þungbært. Hungursneyð vofir yfir íbúum Tigray-héraðs í Eþíópíu. Forsætisráðherra landsins segir engan vera að deyja úr hungri. Allt að þrefaldur munur er á rafmagns- og hitakostnaði heimila eftir því hvar þau eru á landinu. Fjarvarmaveitur o...

Feb 12, 202420 minEp. 247

Heitavatnslögnin frá Svartsengi, heitt vatn er ekki endalaus auðlind, samræði við barn undir 15 ára.

Unnið hefur verið að því hörðum höndum að koma á heitu vatni frá Svartsengi til notenda í byggðakjörnum á Suðurnesjum. Ævar Örn Jósepsson ræddi við Guðlaug H. Sigurjónsson, sviðsstjóra umhverfissviðs í Reykjanesbæ. Ástandið á Reykjanesskaga er fólki áminning um að vissast er að fara sparlega með heita vatnið, ekki síst þegar frost er á bilinu 10-20 stig. Eyþór Björnsson, forstjóri Norðurorku, segir í viðtali við Ágúst Ólafsson að rétt sé að fólk geri sér grein fyrir að heitt vatn sé ekki endalau...

Feb 09, 202420 minEp. 246
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android