Skoðanabræður - podcast cover

Skoðanabræður

Bergþór Másson podcasters.spotify.com
www.patreon.com/skodanabraedur Fremsta hlaðvarp landsins síðan 2019. Skoðanabræðralagið er samfélag sem sigrar saman. Bergþór Másson stýrir ferðinni og kynnir hlustendur fyrir cutting edge hugmyndum sem bæta líf þeirra. Viðtöl við sigurvegara, snillinga og sérfræðinga sem hugsa frjálst. Umfjöllunarefni eru: Menning, stjórmál, listir, viðskipti, heilsa. Ekkert er okkur óviðkomandi. 5 þættir í mánuði. Fylgstu með á IG/X/Tiktok: @bm1995amorfati Ber er hver að baki nema sér bróður eigi.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

#50 Skoðanir Sönnu Magdalenu Mörtudóttur

04:30 Sanna mætir í stúdíóið 05:43 Samstöðin 08:18 fyrstu skrefin í pólitík 11:30 félagslega íbúðakerfi Reykjavíkur 14:20 rándýrt að vera fátækur 16:40 langtímaveikindi 18:30 hvernig er að vinna í borginni 20:30 íslenskir flokkar búnir að missa rætur sínar 22:40 kynslóðamunur sósíalista 24:04 hvað er sósíalismi? 27:27 afhverju á ríka fólkið á Íslandi svona mikinn pening? 30:20 Black Lives Matter 36:00 „looting“ og „riots“ 37:41 erum við að sjá allsherjar byltingu í Bandaríkjunum? 41:20 rasismi á...

Jun 05, 20201 hr 4 min

#49 Skoðanir Agnesar biskups

Er maðurinn syndugur? Hefur orðið siðrof? Er kannabis meiri synd en áfengi? Refsar Guð mannfólkinu? Það er ýmislegt sem maður getur leitt hugann að svona í sturtunni á morgnana, en enn betra er að ráðfæra sig við æðsta yfirmann Íslensku þjóðkirkjunnar, Agnesi M. Sigurðardóttur biskup. Hún er karlmaður vikunnar, komin til að kenna bræðralaginu lexíu og minna okkur á upprunann. Það er í kristinni kirkju. www.patreon.com/skodanabraedur

May 29, 20201 hr 11 min

#48 Teaser (kitla, kv. Snorri) Rauða pillan hans Elon Musk

Ber er hver að baki nema sér bróður eigi, spakmæli sem hafa enga sérstaka merkingu þessa stundina frekar en fyrri daginn. En Skoðanabræður halda úti góðri veislu: Elon Musk, samkynhneigð, skáldskapinn, handritin, stuldinn á ofurtölvunum og Guð veit hvað fleira. Og Guð! Á þeim nótum sagt frá karlmanni vikunnar í næstu viku, sem er söguleg epík. Skellið ykkur inn á www.patreon.com/skodanabraedur.

May 26, 20201 hr 8 min

#47 Skoðanir Þórðar Snæs ritstjóra Kjarnans

www.patreon.com/skodanabraedur Björgólfur Thor og Róbert Wessmann. Þegar þeir fara í fýlu út í hvor annan gerist ýmislegt fyndið. Hvað eru 800 milljónir á milli mjög ríkra óvina? Þær eru rekstur DV í örfá ár. Þórður Snær Júlíusson, alvarlegur kóngur, varpar ljósi á það sem annað. Loksins, loksins, segði einhver: Fjölmiðlaumræða í Skoðananabræðrum! Þó sneitt hjá henni eftir föngum, enda margþvælt og margsagt margt af því sem segja má. Mikilvægt þó að segja sannleikann, það rætt. Þessi lýsing síða...

May 22, 20202 hr 4 min

#46 Tobba Marinós ritstjóri DV, hrun Bandaríkjanna og „dagbækur Hitlers“

www.patreon.com/skodanabraedur . BDSM-róla í kjallarahvelfingu. Það er allt eðlilegt við það. Það er líka allt eðlilegt við að Tobba Marinós, ritstjóri DV með meiru, nefni ámóta kjallara sem það fyrsta sem henni detti í hug þegar hún nær sambandi við Skoðanabræður. Eða hún nær sambandi við er ekki nákvæmt orðalag. Þeir ná sambandi við hana, sem er gleðiefni, enda ekki auðsótt hjá uppteknum ritstjóra sem lofar því þó að hann sé ekki á leið hraðbyri inn í kulnun, eða Burnout eins og Þjóðverjinn ka...

May 15, 20201 hr 36 min

#44 RISASTÓR TILKYNNING! Nýir tímar og sigur á Zuckerberg

Nýir Bræðralagsþættir; auglýsinga- og styrkjaupptalningalausir, stútfullir af hágæða gasi nú aðgengilegir inni á Patreon! Fyrir nýja Bræðralagsþáttinn: www.patreon.com/skodanabraedur . Fyrir klink geturðu gerst áskrifandi að Bræðralagsþáttum og fengið aðra venjulega þætti degi fyrr en aðrir hlustendur. Skoðið síðuna og komið um borð í veisluna. Framtíðin er núna.

May 12, 202024 min

#45 Teaser (kitla, kv. Snorri): Flugvallargangbang

Hvað gerist þegar maður stendur í röð fyrir flugvél á vegum Wizz Air og einn er leiddur afsíðis af því að hann er að væla yfir aukagjöldum sem eru tilkynnt viðskiptavinum á óheppilegasta tíma í heimi? Lærðu meira með því að ýta á play, og svo enn meira með því að gerast áskrifandi að Skoðanabræðrum á www.patreon.com/skodanabraedur.

May 12, 202056 min

#43 Skoðanir Gísla Marteins

Gísli Marteinn Baldursson.. hvernig er að vera frægur! Grundvallarspurning blaðamennskunnar. Réttast væri að láta þar við sitja. (Sjá skiptingu á efni þáttarins neðst) Því miður getur maður ekki látið eina spurningu nægja þegar maður fær eins stóran lax í hljóðver, og því er farið yfir nokkur önnur atriði. Skoðanabræður spyrja um skoðanir, en ekki hvað, og þar þarf fyrst að kanna þá heimild, eða forréttindi, sem hver einstaklingur hefur til að yfirleitt hafa annað eins, sem sé skoðun. Gísli er o...

May 08, 20201 hr 51 min

#42 Sólveig Anna formaður Eflingar, móðursýki auðvaldsins, tilgangur lífsins og framtíð íslensks rapps

03:00 Áslaug Arna eyðileggur Child 04:23 viðtal við Sólveigu Önnu Jónsdóttur formann Eflingar 33:50 mikilvægi sannleikans 35:30 Instagram story afmæliskveðjur 38:20 ólík samskipti við ólíkt fólk 40:33 fjórtán ára stelpa í viðtali við Liberal Media 44:00 ADHD fjárglæpamaðurinn 51:00 Evran og saga Evrópusambands 58:00 músík sem verður til þegar allt er að hrynja 59:30 þróun íslensks rapps 01:11 Travis Scott og ógeðslegir átta ára strákar 01:15 Drake og textaþjófnaður 01:18:37 Larry David og Trump ...

May 01, 20201 hr 50 min

#41 Sannleikurinn um Lamestream Media og sagan um píkuna og dýrið

Bræðralag! Við reiðum okkur á ykkur. Og þó. AUR eða KASS í síma 661-4648. Maggi sushi er gestur þáttarins, sá eini sem hefur fengið að ganga í bræðralagið í beinni. Sjálfsagt að setja virðingu á hans nefnd, svo sem vér og vænumst eftir því af ykkur að þið gerið það við okkur. En allur fjandinn ræddur, samanber fyrirsögn, og ýmislegt endurtekið, orðræða mannsins enda ekki nema samfelld árétting þess sem áður hefur komið fram.

Apr 28, 202044 min

#39 VIÐTAL VIÐ GOONS: Stormur Kormákur og Patti, þunglyndi, kvíði og skagfirski kvenpeningurinn

02:00 Viljinn kominn út - 06:26 Þú Skuldar spilað til þeirra sem svíkjast undan - 09:30 gas um covid19 - 10:30 Skoðanabræður ræða eigin þunglyndi og kvíða - 17:20 virðing á Lönu Del Rey - 19:10 gaurar sem virkilega hata lögguna - 21:20 kvíðaköst - 22:30 get out the game - 27:00 Þórólfur með of mikil völd - 30:10 fólk í showbiz með sjálft sig á heilanum - 35:40 Stormur og Patti goonkings viðtal 58:24 - afmælisþáttur ræddur 60:20 - Kanye West kóngur heimsins - 65:00 Nýja Ísland - 69:42 grasreyking...

Apr 28, 20201 hr 26 min

#40 Skoðanir Magga sushi, skoðanabræðrafræðings II.

Ég myndi aldrei kalla hann annað en Magga sushi, en get skrifað hér að Magnús Jochum Pálsson er gestur afmælisþáttar Skoðanabræðra. 1 ár af fremsta hlaðvarpi landsins og megi þau vera þúsund enn, en það er ekk ekki von nema spurt sé hvert sé orðið okkar starf í sex hundruð sumur: Höfum við gengið til góðs götuna fram eftir veg? Stefnan er að ræða það, en það fer náttúrulega út í aðra sálma, því aðrir sálmar eru það eina sem við kyrjum.

Apr 24, 20201 hr 16 min

#38 Samið um gasgjaldið við Sindra Jensson í Húrra, graffað á grunnskóla og rúllað eins og Ísland fyrir þúsund árum

Fyrirtæki! Skoðanabræður hafa snúist á sveif með auðvaldinu í heimsfaraldrinum, enda ljóst að einhver þarf að rækta landið og hann gerir það ekki nema fá eitthvað fyrir sinn snúð. Og skemmtu þér vel við að fá eitthvað fyrir þinn snúð, þ.e. verða ríkur, með því að opna fatabúð, segir Sindri Jensson stofnandi Húrra, hálfpartinn augljóslega að grínast, enda ekki neitt gríðarlega hagkvæmt aktívitet sá rekstur. Það er menningin sem menn eru að horfa til og ekki verra að geta lifað á því um leið. Hann...

Apr 17, 20201 hr 33 min

#37 Kvíði, Kórónu Víri og samtalið sem vegurinn inn í ljósið

(Bræðralagsþáttur) Ber er hver að baki nema sér bróður eigi og ber er hver Skoðanabræðrahlaðvarpsþáttur að baki nema sér skoðanabræðralag eigi, eins og við eigum á Facebook og á AUR og á KASS, það er að skilja, sumir sjá sóma sinn í að leggja sitt af mörkum til frjálsrar fjölmiðlunar, aðrir hírast í þögninni, reyna að gefa ekki frá sér múkk, allt í von um að ekki heyrist til þeirra, því þá verður afhjúpun aldarinnar: Það fer að verða komið ár af því að þessir púkar hlusti á Skoðanabræður án þess...

Apr 14, 20201 hr 2 min

#36 DJ Dóra Júlía, ljósir punktar í faraldrinum og úrkynjuð unglingsgerpi á Instagram

1:18 fara aftur í menntaskóla og unglingalíkamar 07:30 styrkjakóngurinn kynntur inn 10:00 skoða gömul skilaboð á Messenger 13:40 Snorri mætir í mataboð yfirnáttúrulega þunglyndur 17:30 sumarbústaðabann 24:00 Joe Biden elliær 27:20 Þjóðhátíð og FM95BLÖ 41:30 nýja Drake lagið svívirt 45:45 Dóra Júlía 01:10:50 Hildur Lilliendahl,feministar og fjölmiðlar 01:22:40 Talented Mr. Ripley, Matt Damon og Gwyneth Paltrow 01:42:15 íslenskir tónlistar ópólitískir Aurið eða Kassið í símanúmer 661-4648 – Skoðan...

Apr 10, 20201 hr 44 min

#35 Flóni & Joey Christ, snakkpokaát, fitufordómar, skáldskapur og svívirðingar

SÝNDU FRJÁLSU HLAÐVARPI STUÐNING MEÐ AUR/KASS STYRKJUM Í SÍMANÚMER 6614648. 03:40 styrkjakóngur vikunnar kynntur inn 08:00 sóttkví Snorra og Odds 12:00 dvöl Bergþórs á Siglufirði 15:45 spil svívirt 19:00 stafrænt líf 21:30 þegar Snorri var 100+kg og borðaði Lays Cheese and Onion á hverjum degi & Skoðanabræður athuga eigin fitufordóma 26:30 tilraun til að svívirða Snorra Björns 30:35 Flóni & Joey Christ 56:00 strákar sem gera beats svívirtir 01:02:00 pólitísk áhrif covid19 01:05:50 fötlun...

Apr 03, 20201 hr 45 min

#34 Femínistaperrar og spilltar löggur

(Bræðralagsþáttur) Tvær fjarskyldar tegundir í íslenskri náttúru: femínistaperrar og spilltar löggur. Eina sem Skoðanabræður biðja um er að menn gangist við eðli sínu. Svo mörg voru þau orð, og þau eru fleiri. Bergur og Snorri ráða ráðum sínum landshluta, rétt eins og um væri að ræða samgöngubann, þegar slíkt er vitaskuld ekki í gildi, heldur aðeins samkomubann, þó að auglýsingabæklingurinn Fréttablaðið hafi reynt að æsa annað viðhorf upp í fólki á dögunum. Víði er hlýtt í hvívetna en honum er e...

Mar 31, 202056 min

#33 Berglind Festival, dópið í sóttkvínni og ástir samkynhneigðra karlmanna sem eru samt no homo

Það var í gegnum Holland sem Snorri flaug heim frá Þýskalandi til Íslands og það var í gegnum Holland sem hugtakið „no homo“ fann sér aftur leið upp á yfirborðið í Skoðanabræðraþætti dagsins. Þetta hefur ekki verið sagt í um það bil heil fjögur almanaksár en er hér vakið aftur til lífs af ærinni ástæðu, sem heyra má um snemma í þættinum. Mikilvægur atvinnuvegur þessarar þjóðar sem sekkur nú í sæ kemur við sögu, það er, stýrið. Og um leið er sjónarmiðum lýst á þá leið að ofsögum sé sagt að kalla ...

Mar 31, 20201 hr 26 min

#32 Odd Þórða og versta skiptinám sögunnar, sem blessunarlega tekur nú snöggan enda

„Það hefur enginn skiptinemi í mannkynssögunni nýtt tímann verr heldur en ég,“ segir viðmælandi. Odd Þórða var fyrsti Íslendingurinn sem Skoðanabræður fabúleruðu um að væri kominn með Covid-19, þar sem hann dvaldi í ömurlegu skiptinámi í Southampton (sjá þátt #21). Eftir 7 mánuði inni í herbergi er Odd á leið í einkaþotu heim á sunnudaginn, mun fyrr en áætlað var, og því ber að fagna: Dvölinni er lokið, sem hann segir réttast að hann fengi kafla fyrir í heimsmetabók Guinness, nefnilega fyrir „ve...

Mar 20, 20201 hr 50 min

#31 Skoðanabræðralagið – virðing á nafn Sigurðar Stefáns - svívirðing á nafn Björns Þorlákssonar

Þessi var að setja virðingu á nafnið. Og þessi var að setja virðingu á nafnið. Heyrðu, síðan var þessi að setja virðingu á nafnið. Og veistu hver er búinn að vera að hlusta frá vordögum Skoðanabræðra? Björn Þorláksson. Frá honum hafa Skoðanabræður þó ekki séð túmark með gati á. Svívirðing sett á nafn hans þetta skiptið. Skoðanabræður þiggja engan pening frá fjársterkum aðilum sem kynnu að vilja hafa nokkuð um efnistök þeirrar fjölmiðlunar að segja. Þeir þiggja vald sitt einvörðungu frá hlustendu...

Mar 17, 202027 min

#30 Pétur Sóttkvíernan, tjara og fiður í skólablöðum og NEI við kynfræðslu

Skoðanabræður áskilja sér rétt til þess að ræða ekki undir nokkrum kringumstæðum þá ákvörðun hóps ungra karlmanna að neita sér um að stunda sjálfsfróun og fara í kaldar sturtur. Slík umræða fer fram í öðrum síðri hlaðvörpum, sem þó er erfitt að festa fingur á hver eru nákvæmlega, enda er eftir allt aðeins eitt hlaðvarp til í leiknum: Skoðanabræður. Málið er í sjálfheldu. Annað mál í sjálfheldu er Pétur Sóttkvíernan athafnamaður: Hann er í sóttkví á heimili sínu ásamt allri fjölskyldu sinni og ve...

Mar 13, 20201 hr 40 min

#29 GDRN, Human Centipede skíðayfirstéttarinnar og eiginkonan sem æviráðin hóra

„Skækjan – það er eiginkonan; eiginkonan – það er skækjan. Aðra kaupi ég til samneytis við mig ævilángt … Hina kaupi ég til samneytis við mig eina nótt.“ Skoðanabræður gerast svo djarfir að mótmæla þessari tvígreiningu kvenna sem má lesa um í skáldsögu frá því snemma á 20. öld. Í hvaða bók? spyr sig sá sem gengur svo langt að lesa þetta klór. Upplýsingar þar um finnast inni í miðjum þættinum, sem þýðir að orðin sem þú ert að lesa eru smellibeita. Þú ert ormétinn og úrkynjaður lax úr eldiskví sem...

Mar 06, 20201 hr 32 min

#28 Samtal við Skoðanabræðralagið

Aurið Skoðanabræður í símanúmer 661-4648 og verðið hluti af samfélaginu. Þið getið unnið bolla, bol en fyrst og fremst er samviska ykkar í húfi. Hversu langt gangið þið í baráttunni fyrir frjálsa fjölmiðla? Fyrsti þriðjudagsþátturinn kemur hér í margumrætt hús. Í Bræðralaginu þylja Skoðanabræður upp stuðningsmenn sína, setja virðingu á nafn þeirra sem hafa sett virðingu á nafn þeirra, ef það er ekki of setningafræðilega tormelt fyrir þig, kæri stuðningsmaður, ef þú ert slíkur, það er. Þátturinn ...

Mar 03, 202030 min

#27 Unnsteinn Manúel, follow frá 99 stelpum og langt, einhliða hláturskast

Á ögurstundu verður degi ljósara fyrir hvern Skoðanabræður vinna í raun og veru: Fyrir Skoðanabræðralagið. Tvennt er til marks um það: Þessi þáttur, sem var tekinn upp eftir að annar eyddist vegna mistaka tölvunnar. Til þess að endurtaka leikinn þurfti mikið þrek. Hitt hollustumerki Skoðanabræðra gagnvart hlustendum er sú nýja ráðstöfun að héðan af verða engar auglýsingar. Þeir eru frjálst hlaðvörp, eins og lagt var upp með og er rétt. Unnsteinn bjargar málunum sem strákur vikunnar; tekin staðan...

Feb 28, 20201 hr 25 min

#26 Formaður Samfylkingarinnar í Weedbúðinni og hið vesturíslenska Trust Fund Trap

Allt sem þú segir getur og mun vera notað gegn þér fyrir rétti, segja bandarískir lögreglumenn þegar þeir misþyrma saklausum glæpamönnum. Annað eins mætti vera haft yfir nú þegar formaður næststærsta stjórnmálaflokks landsins samkvæmt könnunum gengur í vatnið, nánar tiltekið í Skoðanabræðralagið. Einsamalt vatnið augun sjá, sem sé gildruna, en glöggskyggn og ósvinnur sér tækifæri öllu heldur: Skoðanabræðralagið er þúsundaþjóð ungra kjósenda. Og hvað þurfa þeir að vita? Eigum við að lögleiða skún...

Feb 21, 20201 hr 33 min

#25 Kynsjúkdómsins Köben, kínverjinn með klinkið og höfnun sem hluti af lífi þínu

Mamma, hvernig verða kynsjúkdómar til? Við viðskiptafræðideildir, bláeyga flón. Skoðanabræður – fæddir um og upp úr miðjum tíunda áratug tuttugustu aldar – þeir þekkja ekki reynsluheim kvenmanns fædds 1999, svo ekki sé talað um það ef kvenmaðurinn hefur framfæri sitt af því að selja blíðu sína, sem er einmitt ekki tilfelli stráks vikunnar, Ísabellu Lenu! Sálfræðinemi, barstarfsmaður, þekkingarmaður leiksins, hefur verið í honum í þónokkur ár og hvað gerist þá: Maður eldist, eldist og eldist og l...

Feb 14, 20201 hr 38 min

#24 Aronmola hættur á samfélagsmiðlum – mikil ánægja

Lífið gengur sinn vanagang, sem er náttúrulega mjög deprímerandi í sjálfu sér, en Skoðanabræður halda sínu striki og biðjast aldrei afsökunar, hvorki innilega né innilegrar. Hér ræða þeir við frægan kóng sem brá út af vananum og hætti á samfélagsmiðlum eftir áramót; þeir höfðu fyllt hausinn hans af nægu eitri, tekið af honum nægar klukkustundirnar af tilgangslausu hangsi og misþyrmt geðheilsunni hans nóg. Hann tók málin í sínar eigin hendur, eins og reyndar er líka sagt sagt þegar samfélagið hró...

Feb 07, 20202 hr 1 min

#23 Strákur vikunnar og útsmogni alþjóðadildóinn

– Ath. látið ekki glepjast af ögn síðri gæðum fyrstu sjö mínúturnar en vera skyldi. Það batnar, rétt eins og orðfærið, eftir því sem líður á þáttinn. – Að vera avókadó eða að vera ekki avókadó, þarna er efinn, enda avókadó lýsingarorð málfræðilega. Í Southampton í Bretlandi er avókadóstigið í sögulegu lágmarki, ekki síst eftir að íslenskur stjórnmálafræðinemi ákvað að flytjast þangað í skiptinám í heilt ár. Sá tók þá ákvörðun grandalaus um að málum yndi fram með þeim hætti sem varð: Oddur Þórðar...

Jan 31, 20201 hr 39 min

#22 Skoðanir Young Nazareth

Sjálfstæðismenn sem gera lyndistákn (á vesturíslensku emoji) á undan hverju orði sem þeir gasa út úr sér á Twitter. Óheillaþróun, sem árvökult auga Skoðanabræðra fer auðvitað ekki á mis við. Hvernig endar þetta? Festur mun slitna, freki renna og að lokum verður byltingarkenndur indie-bragur yfir því að tjá vafasöm pólitísk áform án lyndistákna. Skoðanabræður taka auðvitað ekki afstöðu til einstakra mála, allra síst pólitískra, nema auðvitað þegar mikið ríður á, og einnig að vísu þegar minna ríðu...

Jan 24, 20202 hr 6 min

#21 Skoðanabræður snúa aftur

Landvarðarbrundið! Það er hinn heiðni helgi safi sem grundvallaði þessa þjóð í öndverðu – og heldur áfram að gera það á kojufylleríum í hinum ýmsu þjóðgörðum landsins. Þetta er fólkið sem er ekki á Instagram, en tryggir í gegnum aðrar göfugri boðleiðir framgöngu kynstofns okkar. Að vera ekki á Instagram er svo sem eitthvað fyrir aðra en bara skinhelgar síðhærðar skeggjaðar lopapeysur: Skoðanabræður hoppa um borð í þann vagn, alltént Bergþór. Hann ætlar að hætta á Instagram í febrúar, bylting, se...

Jan 17, 20201 hr 8 min
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android