Eftir að maður lítur um öxl er hollt að staldra við, og líta um öxl. Magnús Jochum Pálsson, Maggi Sushi, helsti Skoðanabræðrafræðingur á Íslandi, kemur hér að máli við Skoðanabræður og fer yfir farinn veg. Við erum að tala um excel-skjal, við erum að tala um styrkleikaröð, við erum að tala um sannferðuga lýsingu á veröldinni. Það má enn styrkja Skoðanabræður í númerið 661-4648 á KASS eða AUR og þó styrkirnir verði lesnir upp seint, verður það aldrei um síðir. Snorri Másson er nú blaðam., bús. í ...
Aug 30, 2019•2 hr 7 min
Velkomin í Live Fílalag! Í dag fílum við göndulinn á Jakobi Birgissyni í beinni á Port 9, þátturinn afrakstur þeirrar kynlegu iðju. En fyrst: Svívirðum þá sem melduðu sig en mættu ekki, tóku þannig pláss frá þeim sem raunverulega vildu koma, þeim sem raunverulega eru meðlimir í Skoðanabræðralaginu, þeim sem setja virðingu á annarra manna nöfn. Þessi þáttur er einn af tveimur bónusþáttum Skoðanabræðra, sem þeir láta ókeypis í té hlustendum sínum eftir þrálátar óskir um meira efni, meiri Skoðanabr...
Aug 28, 2019•1 hr 23 min
Lífið er veisla, segir höfundur þess frasa, Ma King, blóðbróðir Skoðanabræðra, sem forðum var dæmdur til ævarandi hippadóms. En það er næs og ráðstöfunin sver sig ekki í ætt við örlög Sýsifosar, hún er jákvæð, eins og rætt er í þessum þætti. Líklega öllu betri en líf ritstjóra Skoðanabræðra. Þessi þáttur er einn af tveimur bónusþáttum Skoðanabræðra, sem þeir láta ókeypis í té hlustendum sínum eftir þrálátar óskir um meira efni, meiri Skoðanabræður, meiri veislu. Kalli þeirra er svarað. Kalli Sko...
Aug 28, 2019•1 hr 23 min
Núvitund, það er að eyða miklum pening! Einkum ef þú ert heimskur rappari. Skoðanabræður hafa hingað til aðeins rætt þá hlið persónuleika Flóna, hvursu hann eyðir. En það er auðvitað meira í hann spunnið en bara það. Það er ást, það er virðing og það er von um betri heim. Þess skal getið hér strax, að um ræðir næstsíðasta þátt í fyrstu seríu af Skoðanabræðrum. Þeir sem eiga eftir að launa þeim erfiðið skulu aura þá eða kassa í síma 661-4648. Flóni er ekki eini karlmaður vikunnar, þótt hann dygði...
Aug 23, 2019•1 hr 55 min
–Nærbuxur, skyrtur, dósir, bollar, diskar, handklæði, sokkar. Allt á gólfinu á víð og dreif um íbúðina. Bergþór kemur heim, sópar þessu öllu saman og hrúgar í rúmið hans Snorra. Illa vegið að góðum manni – ófagleg vinnubrögð. –En þeir eru vel upp aldir af móður sinni, sem hér er mætt í Skoðanabræður, Skoðanamóðirin! Hún fæddi þessa menn og auðvitað vinda menn sér umsvifalaust í þá umræðu: Hvað er að eiga barn? Er það sjúkdómur eða er það lífrænt ferli? Því svarað, að vonum. Má fæða börn heima? –...
Aug 16, 2019•1 hr 48 min
Hlustaðu til að heyra hvort Katrín Jakobsdóttir drekki fimm eða tíu vínglös á viku! –Karlmaður vikunnar. Þetta finnst feminískum forsætisráðherra gott grín. Og hann, hún, reynir að standa undir nafni! –Sú tilraun ber árangur. –They sitja eftir með sárt ennið. Ein valdamesta persóna á Íslandi í viðtali hjá Skoðanabræðrum. Hver hefði haldið. Hún var nörruð í þennan þátt... á fölskum forsendum, segir hún… ekki satt! Forsætisráðherra var öllu heldur ljúft og skylt að koma til skyldmenna sinna, Skoða...
Aug 09, 2019•1 hr 9 min
–Free The Nipple? Feit pæling sem gekk ekki upp. –Og ert þú að horfa á midget shemale klám? Þetta er þátturinn fyrir þig. –Hér fáið þið Gamla-Mola! Aron Mola endurfæddist eitthvað í kringum 2016, minnir þann sem hér veldur fjöður. Það var stór breyting. He Changed. A Lot. He’s A Nice Guy. I Like Him. Enskan er óræð vísun sem verður ræð við hlustun þáttar. –Karlmaður vikunnar er beinlínis móðurriðill. –Þetta er Verslunarmannahelgarþátturinn, með greini. Þess vegna er hann extra langur, rétt eins ...
Aug 02, 2019•2 hr 18 min
–Lífið er erfið veisla! Eða lífið er veisla en það mæta nokkrir óboðnir gestir. –Eins og til dæmis eiturlyfjafíkn. Karlmaður vikunnar hefur kynnst því. Og hann virðist jafnframt hafa sigrast á því. Af hverju ertu að spyrja mig, af hverju, á hverju ertu, eða hvað sem í fjandanum er sagt í þessu lagi. En Birnir er ekki á neinu, það er punkturinn. –(Skoðanabræður má og á að styrkja í síma 661-4648 á Kass eða Aur) –Birnir gekk í öndverðu með drauma í eistunum, hann tjáði þá við karlmenn í portinu á ...
Jul 26, 2019•1 hr 46 min
•„Þetta er svo viðbjóðslegt og rótgróið stéttahatur,“ segir Snorri. „Svona Facebook-hópar á Íslandi eru bara viðbjóðslegir,“ segir Bergþór. „Þetta er ekki fyndinn hópur,“ segir Þóra. Þetta eru ekki góðar umsagnir. Hlustið áfram til að vita hvaða hóp ræðir um. •Þóra Tómasdóttir blaðamaður og almennur kóngur er Karlmaður vikunnar í vikunni, sá elsti til þessa. Og sennilega sá greindasti, yfirvegaðasti og áhugaverðasti að öllum öðrum ekkert það mikið löstuðum. Þóra þekkir Skoðanabræður persónulega ...
Jul 19, 2019•1 hr 45 min
„Var bara einhver sem reið 16 ára gellu og því var bara leyft að slæda?“ er spurt. Hverjum tvítið glymur, er spurt. YFN Lucci er með 7 árum yngri gellu. Og það er dóttir Lil Wayne. •Upplýsingaóreiða, þetta er þekkt vandamál. Karlmaður vikunnar skrifaði BS-ritgerð um FAKE NEWS. Og niðurstaðan var þessi: *****. Það kemur fram í þættinum. Karlmaður umræddur er enginn annar en Siffi G. •Siffi G. keypti ekki baðvatn af asískri cosplay gellu á Instagram. En hann fylgdist með. Hann kannaði. •Hann er en...
Jul 12, 2019•1 hr 47 min
•Í draumi sérhvers manns er fall hans falið, sagði skáldið, en Skoðanabræður kafa bókstaflega dýpra: Í eista sérhvers karlmanns er draumur hans falinn. Og Hitler missti annað eistað og það var ekki draumaeistað, því ljóst var að hann dreymdi allt fram á hinsta dag. Hið sama gildir um hinn meðalhvíta unga karl sem þarf ekki nema sopa af bjór til að fara að tala um næstu sigra. •Þetta eru hásálfræðilegar vangaveltur, það liggur svo sem fyrir að ekkert er Skoðanabræðrum óviðkomandi, en þeir njóta h...
Jul 05, 2019•1 hr 46 min
Þú ert afi íslensk rapps. Þú bjóst til þennan leik. Þú varst getinn í Afríku. Og þú varst tekinn með keisaraskurð. Þetta er borðleggjandi: Þú heitir Sesar A. –En þú heitir ekki Danni Deluxe, sem hlýtur að teljast öllu betra. Daníel Ólafsson athafnaskáld er karlmaður vikunnar og er sá sem upplýsir um það sem kemur fram hér í upphafi. Sjúki fanturinn sem hann er upplýsir líka um allan fjandann annan, um Keflavík, um markaðinn, um pólitíkina, um lífið, um sigrana og um ósigrana. –Hræðileg lýsing á ...
Jun 28, 2019•1 hr 54 min
–Það er hverjum hollt að staldra við endrum og eins, líta um öxl og allt að því horfa yfir farinn veg. Skoðanabræður þekkja mikilvægi þessa. Eftir stormasama 7. þætti, taka þeir áttunda í að leggja mat á hvert vegferðin hingað til hefur leitt þá. –(Til þess að styðja frjálsa fjölmiðlun sendið styrk á Aur eða Kass í númerið 661-4648) –Einmitt. Tveir gaurar með podcast. Leitað aftur í ræturnar. Snorri sjálfur, ritstjóri Skoðanabræðra, er karlmaður vikunnar. Bergþór aðstoðarritstjóri er aðstoðarkar...
Jun 21, 2019•1 hr 25 min
„Hvernig finnst þér ég?“ spyr Snorri. Berglind Festival hefur skilning á vangaveltum Skoðanabræðra. En hún er orðin 30 ára. Hún er farin að linast. Hún er karlmaður vikunnar að þessu sinni. Um Skoðanabræður: „Þetta er bara mjög ferskt konsept,“ segir hún. „Nei, djók.“ Kuldahlátur. Svívirðingar. Tveir gaurar með podcast. En hlýja! Fram kemur að ef Berglind festival væri á fótboltamóti í boði álvers og væri að gista í tjaldi myndi hún anga af áfengi, þrátt fyrir börnin. Hún er 30 ára og lítur á so...
Jun 13, 2019•1 hr 44 min
***EINA VIÐTAL CLUBDUB Í KJÖLFAR ÚTGÁFU NÝRRAR TÓNLISTAR*** –Begga (þolfall) langar til Winnipeg. En hverjum er ekki drullusama? ClubDub komu í eina viðtalið sem þeir gefa í tilefni nýrrar plötu. Sem þeir segja samt að sé ekki plata. Þeir kalla sig listamenn. –Allt frá „er hægt að þrá Rolex úr en segjast ekki vera materíalískur?“ til „við tölum ekki um dýraníð í þessum þáttum“. –Og hvaða rusl er ClubDub? –Bílskúr í Grafarvogi. Einbýlishús í 101. Úr hvoru tveggja er víst lárétt boðleið inn í Vers...
Jun 07, 2019•1 hr 28 min
Flóni var á B5 um helgina. Skoðanabræður hafa sagt frá öðru eins og frásögnin væri ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að hún er í frásögur færandi. Flóni straujaði Apple Pay kortið fyrir 200 þúsund kall. En sagan er ekki þar með sögð því annar var aðili að máli. – Sá er enginn annar en sú hin eina sanna, Birgitta Líf Björnsdóttir. Hún er þjóðinni að góðu einu kunn og hana þarf vart að kynna sérstaklega. –(Styrkið Skoðanabræður með Aur eða Kass í síma 661-4648) –Birgitta Líf er karlmaðu...
May 31, 2019•1 hr 45 min
Logi Pedro hefur svo viðbjóðslega mikið af skoðunum að Skoðanabræður héldu varla í við hann. Maðurinn mætir og skellir fyrirvaralaust nokkrum kílóum af gæðaskoðunum á borðið. Hann vinnur vinnuna fyrir bræðurna. –Honum veitir ekki af að fá að læra að vinna, enda vinnur hann vart nokkuð sjálfur, hann er listamaður. –Listamenn! –Í ljós kemur að þessi skoðun stenst ekki alveg, því listamenn þurfa að vinna ansi mikið, og ekki aðeins það, heldur þurfa þeir að færa fórnir á öðrum sviðum til þess að yfi...
May 24, 2019•1 hr 38 min
„Ég held að það séu bara gaurar sem hlusta og þeir eru að fara að skippa yfir nafnið mitt,“ segir Lóa Björk Björnsdóttir, sviðshöfundur og femínisti, áhyggjufull í viðtali við Skoðanabræður. Hún er fyrsti kvenkyns karlmaður vikunnar. Og ber þann titil hróðug. – Karlmaður vikunnar! Hálfbakað konsept, smá eins og léleg list, sem er til þess eins fallin að triggera PC gellur á Twitter. (Það virkar.) Þetta er þó á endanum eitthvað sem Skoðanabræður axla enga ábyrgð á. Þeir vísa þessu til áhorfanda. ...
May 17, 2019•1 hr 32 min
Dóri DNA er búinn að mæta í hvert einasta shitty hlaðvarp á landinu. Hann náði klukkutíma með Skoðanabræðrum áður en hann þurfti að þjóta í það næsta. Hann lofaði samt að það sem kæmi fram í þessum þætti væri exklúsíft einkaefni Skoðanabræðra. Það er viðbúið að Skoðanabræðralagið sperri eyrun… í suðupotti vikunnar malla nokkrar vel sjúkar hugmyndir. Eins og hverjar? Fróður spyr ófróðan: þegar gellur á Twitter segja að einhver gaur hafi hrútskýrt eitthvað fyrir þeim, er það bara til að minna heim...
May 10, 2019•1 hr 7 min
Rapparinn „Flóni“ lenti í verkfalli norska flugfélagsins SAS á dögunum þegar hann tók skyndiákvörðun um að fara til Amsterdam í einn dag að hitta vin. Ákvörðunin kostaði hann 400.000 kall, segir umboðsmaður hans. „Það þarf að svipta hann fjárræði,“ bætir hann við. Þessi umboðsmaður er enginn annar en Pétur Kiernan. Áhrifavaldurinn. Instagram-fígúran. Stjórnmálaskýrandinn. Hin albjarta rassabora veraldar. Honum hlotnast þessi fágæti heiður, að vera fyrsti karlmaður vikunnar hjá Skoðanabræðrum. Og...
May 02, 2019•1 hr 22 min
Fyrsti þátturinn er svo góður að þunglyndir klámfíklar myndu kalla hann byrjendaheppni. Í honum er enginn karlmaður vikunnar, heldur var punkturinn að bræðurnir fyndu út hvers kyns hlaðvarp þetta ætti eiginlega að vera. Spjallið gekk svo langt að það þurfti að klippa hann til. Og það var ekki gert. Þessi djús er á vegum Útvarps 101.
Apr 26, 2019•1 hr 12 min