#34 Femínistaperrar og spilltar löggur - podcast episode cover

#34 Femínistaperrar og spilltar löggur

Mar 31, 202056 min
--:--
--:--
Download Metacast podcast app
Listen to this episode in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episode description

(Bræðralagsþáttur) 


Tvær fjarskyldar tegundir í íslenskri náttúru: femínistaperrar og spilltar löggur. Eina sem Skoðanabræður biðja um er að menn gangist við eðli sínu.

Svo mörg voru þau orð, og þau eru fleiri. Bergur og Snorri ráða ráðum sínum landshluta, rétt eins og um væri að ræða samgöngubann, þegar slíkt er vitaskuld ekki í gildi, heldur aðeins samkomubann, þó að auglýsingabæklingurinn Fréttablaðið hafi reynt að æsa annað viðhorf upp í fólki á dögunum. Víði er hlýtt í hvívetna en honum er ekki treyst um of, enda er hann lögregla, og hlutverk lögreglu er að beita ofbeldi fyrir hönd ríkisvaldsins. Það væri hálfundarlegt að gjalda ekki varhug við því, þó að ýmis heilaþveginn gjaldi varhug við goldnum varhug, og bendi á hið augljósa, að lögreglumenn séu líka fólk, eins og það hafi einhvern tímann verið spurningin.

Skoðanabræður lesa þá upp þá göfugu menn sem hafa lagt lykkju á leið sína til þess að styðja við frjálsa fjölmiðlun. Sumir æskja þess að nafni þeirra sé leynt. Við því er orðið. Aðrir gera ekki slíka kröfu. Þá er sett virðing á þeirra nöfn því sem nemur. Hliðstæða er dregin upp með styrkjendum og þeim Íslendingum í Bandaríkjunum sem tóku sig til á dögunum og sendu virðingu heim í formi öndunarvéla, gjaldmiðli sem hlýtur að þynnast mjög um leið og kórónaveiran hjaðnar, eins og vitur maður benti á á dögunum, sá sami og kallaði Nancy Pelosi “sick puppy.”

For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android