Hlaðvarp Heimildarinnar - podcast cover

Hlaðvarp Heimildarinnar

Heimildinheimildin.is
Í hlaðvarpi Heimildarinnar, áður Kjarnans, má finna fjölbreytta þætti um allt frá pólitík til heiðarlegs skyndibita eða nýjustu græjunnar.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Í austurvegi - Land drekans

Kína er oft og tíðum nefnt land drekans. Teikningar af kínverska drekanum hafa sín sérkenni þar sem hann hlykkjast langur og skrautlegur um himinhvolfið. Segja má að í Kína sé bókstaflega allt tengt drekanum, landið, hafið, náttúruöflin og þjóðin. Því er ekki um einn dreka að ræða, heldur marga, og þeir skiptast í mismunandi flokka. Þannig finnast tilvísanir milli raunverulegra aðstæðna og eiginleika þessara dreka hvarvetna. Höfundur pistilsins er Steingrímur Þorbjarnarson sem einnig les upp.

Nov 17, 202230 min

Eitt og annað: 762 Bækur - 25. sepetember 2021

Útlendingar, svertingjar, framandi, sígaunar. Stela, hóta, svíkja, lemja. Vesalingar og ómerkilegir aumingjar. Þetta orðfæri þykir ekki góð latína í dag, en konan sem notaði þessi orð er einn mest lesni höfundur sögunnar. Enid Blyton. Borgþór Arngrímsson les pistil sinn um rithöfundinn sem birtist fyrst á Kjarnanum í september 2021.

Nov 15, 202212 min

Samtal við samfélagið – Bandaríkin sem stórveldi: Nýlendu-og síðnýlendustefna

Gestur þáttarins að þessu sinni er Julian Go, prófessor í félagsfræði við háskólann í Chicago í Bandaríkjum en Julian var hér á landi í ágúst síðastliðnum sem einn lykilfyrirlesari á ráðstefnu Norræna félagsfræðingafélagsins. Í erindi sínu fjallaði hann um hvernig kenningar í félagsvísindum mótuðust af hugmyndum þeirra sem fengu að hafa rödd í samfélaginu og vísar þá fyrst og fremst til hvítra, vestrænna karlmanna. Hann sýnir fram á að aðrar raddir voru þaggaðar, svo sem raddir kvenna og þeirra ...

Nov 14, 202254 min

Tæknivarpið - Sýndarveruleiki með Hilmari Gunnarssyni frá Arkio

Þessi þáttur á sér varla stoð í raunveruleikanum og við ferðumst um sýndarheima með Hilmari Gunnarssyni, framkvæmdastjóra Arkio. Arkio vakti athygli á heimsvísu á kynningu Meta um daginn, þar sem var farið yfir framtíðarsýn Metu í sýndarveruleika og gagnbættum veruleika. Arkio er sköpunartól fyrir arkitekta og getur hannað alls konar rými og landslag. Arkio virkar bæði í sýndarveruleika og gagnbættum veruleika. Arkio og Meta eru í þróunarsamstarfi og sýndi Hilmar okkur nýja Quest Pro höfuðtólið....

Nov 11, 202256 min

Raddir margbreytileikans – „Andstæð sjónarmið skapa óvissu kringum rannsóknarstarf safna“

Raddir margbreytileikans – 32. þáttur: „Andstæð sjónarmið skapa óvissu kringum rannsóknarstarf safna“ Ólöf Gerður Sigfúsdóttir fæddist 13. desember 1975 á Sauðárkróki. Hún lauk BA prófi í mannfræði frá Háskóla Íslands árið 2000 og MA í sömu grein árið 2002 frá Chicago háskóla og lauk síðan doktorsprófi í safnafræði frá Háskóla Íslands í október 2022. Í þessum þætti er rætt um doktorsritgerð Ólafar Gerðar, sem og mannfræðirannsóknir hennar. Doktorsritgerð Ólafar Gerðar beinir sjónum að rannsóknah...

Nov 10, 20221 hr 14 min

Eitt og annað: Að breyta svínakótilettu Ií nautasteik - 3. apríl 2016

Á und­an­förnum árum hafa margoft, víða um heim, komið upp mál sem tengj­ast svikum og prettum með mat­væli. Starf­semi af því tagi teng­ist nær und­an­tekn­ing­ar­laust þeirri áráttu, sem fylgt hefur mann­kyn­inu frá upp­hafi, að fá meira fyrir minna. Græða. Borgþór Arngrímsson les pistil sinn um svikamál á sviði matvæla. Pistillinn birtist fyrst í Kjarnanum 3. apríl 2016

Nov 08, 202210 min

Þjóðhættir – Galdurinn við súrdeigsbakstur

Í þættinum ræða Dagrún og Vilhelmína við Ragnheiði Maísól Sturludóttur, meistaranema í þjóðfræði. Ragnheiður Maísól er menntuð í myndlist en stundar nú meistaranám í þjóðfræði við Háskóla Íslands. Rannsókn hennar snýr að súrdeigsbakstri á Íslandi. Ragnheiður bakar sjálf súrdeigsbrauð og hefur verið virk í samfélagi súrdeigsbakara en hún stjórnar stórum Facebook-hópi um bakstur af þessu tagi og heldur úti bloggsíðu. Það má því segja að hún hafi gert áhugamál sitt og ástríðu að rannsóknarverkefni....

Nov 07, 202242 min

Tæknvarpið - Ísland slugsar í netöryggi

Nýsköpunarráðherra Íslands boðar aðgerðir í netöryggismálum landsins. Ný fjölmiðlalög eru á leiðinni til að skerpa á því efni sem nær augum barna á streymiveitum. VanMoof kynnir tvö ný rafhjól sem styðja Find My og bætta þjófavörn. Sega ætlar að búa til tvær mini-leikjatölvur: Genesis mini 2 og Astro Mini City V (sem lítur út eins og leikjakassi) með retro-tölvuleikjum. Netflix er búið að afhjúpa verð á áskrift með auglýsingum en ekki fyrir Íslendinga. Samsung Odyssey Ark fær hræðilega dóma og e...

Nov 05, 202254 min

Í austurvegi – Refur fær mátt tígurs að láni 狐假虎威

Fyrir þennan málshátt þurfum við að ferðast aftur á tímabil hinna stríðandi ríkja, á 4. öld fyrir okkar tímatal. Heimildin sem þessi málsháttur er tekin upp úr er Zhànguócè《战国策》eða Strategíur hinna stríðandi ríkja, sem er ein af fáum upprunalegum heimildum frá þessum tíma. Þetta er sagan um refinn og tígurinn. Þátturinn er þýddur og birtur með leyfi Lazlo Montgomery hjá ©Teacup Media.

Nov 03, 202210 min

Eitt og annað: Góða útilyktin í handklæðunum - 26. júlí 2020

Þeim sem þurrka þvott sinn á snúrum finnst fátt jafnast á við lyktina af þvotti sem þornað hefur í sól og golu. Snúruaðdáendur gefa lítið fyrir þurrkaralykt, vísindamenn segjast hafa fundið skýringuna á góðu útisnúrulyktinni. Borgþór Arngrímsson les pistil sinn um góðu útilyktina í handklæðunum sem var birtur á Kjarnanum sumarið 2020. Í þáttunum Eitt og annað ... einkum danskt les Borgþór pistla sína sem notið hafa vinsællda á Kjarnanum í gegnum tíðina.

Nov 01, 20226 min

Þjóðhættir – Ábyrg ferðaþjónusta í Grímsey

Það má sannarlega segja að dýralæknirinn Laufey Haraldsdóttir hafi undið sínu kvæði í kross þegar hún ákvað að læra þjóðfræði. Í þættinum ræða Dagrún og Vilhelmína við Laufeyju Laufey starfar nú sem lektor við ferðamáladeild Háskólans á Hólum. Laufey segir frá náminu við ferðamáladeildina en þar eru allar námsleiðir í boði í fjarnámi. Laufey segir einnig frá rannsóknum sínum á sviði ferðamálafræða, meðal annars áhugaverðri rannsókn um ferðamennsku í Grímsey. Í rannsókninni voru spurningaskrár la...

Oct 31, 202234 min

Tæknivarpið - Elon Musk kaupir Twitter og vangaveltur um nýja iPad

Kaupin á Twitter gengu í gegn í vikunni og fyrsta verk Elon Musk var að reka nokkra stjórnendur. En hvers vegna var hann að kaupa Twitter? Gulli er handviss um að 10 kynslóð af iPad sé grunntýpan. Við ræddum til hvers fólk kaupir iPad og hvaða týpu þú átt að velja. Þátturinn er í boði KFC sem selur B.O.S.S. Bacon máltíð. Stjórnendur eru Andri Valur, Bjarni Ben, Gunnlaugur Reynir, Kristján Thors og Valtýr Bjarki.

Oct 30, 20221 hr 17 min

Í austurvegi – Sigurður Guðmundsson myndlistamaður – listsköpun í Kína

Í mjög áhugaverðu viðtali segir Sigurður Guðmundsson myndlistamaður okkur frá dvöl sinni og störfum í kínversku borginni Xiamen síðastliðin 25 ár. Þar hefur hann, ásamt konu sinni Ineke Guðmundsson, sett á stofn listamiðstöðina China European Art Center (CEAC) til að tengja saman kínverska og erlenda listamenn. Í viðtalinu fer Sigurður yfir starfsemi miðstöðvarinnar og fjallar um kynni sín af Kína og Kínverjum. Sigurður liggur ekki á skoðunum sínum um hin ýmsu mál og gaman að heyra hans sjónarho...

Oct 28, 202248 min

Eitt og annað: Starfslokasamningur fílanna - 7. Júní 2020

Danska ríkið greiddi fyrir nokkru jafnvirði 222 milljóna íslenskra króna vegna starfsloka fjögurra fíla sem ekki þurfa lengur að „vinna“. Dvalarheimili fílanna á Lálandi er 140 þúsund fermetrar að stærð. BorgþórArngrímsson les pistil sinn um fílana sem fengu starfslokasamning, en pistillinn birtist fyrst á Kjarnanum sumarrið 2020.

Oct 25, 202210 min

Þjóðhættir – Sjálfbærni og sköpun á Hallormsstað

Í þættinum ræðir Vilhelmína við Sigrúnu Hönnu Þorgrímsdóttur þjóðfræðing en hún starfar sem fagstjóri náms í sjálfbærni og sköpun við Hallormsstaðaskóla. Sigrún Hanna segir frá náminu í Hallormsstaðaskóla. Skólinn er staðsettur í miðjum Hallormsstaðaskógi, í afar fallegu og reisulegu húsi sem áður hýsti Hússtjórnarskólann á Hallormsstað. Námið byggir því á sterkum grunni en í 90 ár hefur kennsla á Hallormsstað einkennst af áherslum á nýtingarmöguleika og sjálfbærni. Námsumhverfið er einstakt og ...

Oct 24, 202250 min

Í austurvegi - Hanagól og hundsþjófur

Málsháttur dagsins á sér göfugar rætur þar sem uppruni hans er í sjálfu Shǐjì (史记), eða Skrám stórsagnfræðingsins, magnum opus sagnaritarans Sīmǎ Qiān. Sagan er frá Tímabili hinna stríðandi ríkja, sem varði á síðari helmingi Austur-Zhou-veldisins. Þetta var blóðugt tímabil og í Gulafljótsdalnum finnast enn stríðsminjar þess í jörðu. Hún gerist á tímum konungsins Zhāoxiāng af Qín, á 3. öld fyrir Krist. Hann var langafi Qín Shǐhuáng, fyrsta Kínakeisara, og var með stórtæk plön rétt eins og barnaba...

Oct 21, 202213 min

Nýjar spjaldtölvur frá Apple og þráðlaus símtöl

Apple kynnti nýjan iPad (10), uppfærða iPad Pro (M2) og uppfært AppleTV (USB-C fjarstýring!!) með látlausri fréttatilkynningu og myndböndum. Miðeind samhæfir raddgreiningartólin sín við snjallheimilið þannig nú getur Embla slökkt ljósin. Síminn Sjónvarp býður nú upp á prófíla og vefviðmót. Gulli heldur því einnig fram að myndgæðum hafi farið fram, en það er enn óstaðfest. Vegagerðin opnaði nýjan færðarvef, en Gulli vill bara hringja í þau. Nova sendi okkur tæknimann (Aron Heiðar Steinsson) eftir...

Oct 20, 20221 hr 12 min

Raddir margbreytileikans 31.þáttur. Pétur Waldorff

Pétur Skúlason Waldorff er viðmælandi vikunnar. Pétur er fæddur 1. júlí 1979 í Reykjavík en hefur búið á Íslandi, í Angóla, Svíþjóð, Frakklandi og Kanada og dvalið hér og þar við rannsóknir m.a. í Malaví, Mósambík, og Tansaníu. Hann lauk BA námi í mannfræði við Háskóla Íslands árið 2003, MA prófi í mannfræði frá McGill University í Montreal í Kanada 2006 og svo doktorsnámi í mannfræði frá sama skóla 2015. Áhugasvið Péturs eru heimsmálin, fallegt og spennandi umhverfi, veiði og ferðalög. Hann hef...

Oct 20, 202238 min

Eitt og annað: Þekkt en þó óþekkt - 29. ágúst 2021

Flestir kann­ast við Einar Áskel, bursta­klippta strák­inn sem býr með pabba sín­um. Færri þekkja hins­vegar nafn höf­und­ar­ins sem skrif­aði sög­urnar og teikn­aði mynd­irn­ar. Gun­illa Bergström er lát­in, hún lést á síðasta ári og í þættinum les Borgþór Arngrímsson pistil sinn um höfundinn.

Oct 18, 202210 min

Þjóðhættir - Völuspá og himinhvolfið

Gísli Sigurðsson starfar sem rannsóknarprófessor á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og hefur um árabil sinnt farsælum rannsóknum á íslenskum fræðum og þjóðfræði. Í þættinum ræða Dagrún og Vilhelmína við Gísla um rannsóknir hans á munnlegri hefð og minnisfræðum. Gísli segir frá námsárum sínum og dvöl á Íslendingaslóðum í Kanada. Þar tók hann meðal annars viðtöl við Vestur-Íslendinga og hljóðritaði frásagnir þeirra. Þá segir Gísli frá rannsóknum sínum á fornbókmenntum, hvernig frásagnir...

Oct 17, 202248 min

Í austurvegi – Sérstaða kínverskunnar

Hér er fjallað um kínverska tungu og sérstöðu hennar. Jafnframt er fjallað um nokkur vafaatriði og jafnvel misskilning sem vart verður í umfjöllun um þetta tungumál. Kína er svo stórt, fjölmennt og margbreytilegt land, að erfitt er að segja til um hversu mörg mál eru töluð þar. Á hinn bóginn er hið opinbera mál sem við nefnum mandarínsku vel skilgreint. Höfundur pistilsins er Steingrímur Þorbjarnarson sem einnig les upp.

Oct 13, 202236 min

Tæknivarpið - Google leggur Stadia og gott Tempo hjá Origo

Farið er yfir tæknifréttir vikunnar; sala Origo á Tempo, nýr forstjóri Sýnar og USB-C reglur Evrópusambandsins. Elmar búinn að panta nýjan Pixel síma sem Google kynnti í vikunni og Sverrir segir frá bestu leiðinni fyrir gagnamagn í Bandaríkjunum. Þessi þáttur er í boði Macland og KFC. Macland.is selur Apple tæki og KFC er með B.O.S.S. BACON máltíð . Stjórnendur eru Andri Valur, Elmar Torfason og Sverrir Björgvinsson

Oct 10, 20221 hr 7 min

Þjóðhættir – Fjallkonur, harmonikur og gömlu dansarnir

Á ári hverju úthlutar Nýsköpunarsjóður námsmanna styrkjum til spennandi verkefna. Síðasta sumar styrkti sjóðurinn fjölbreytt verkefni nemenda við námsbraut í þjóðfræði og safnafræði. Í þættinum verður fjallað um tvö þessara verkefna, annars vegar verkefnið Viðhorf almennings til fjallkonunnar og 17. júní og hins vegar verkefnið Gömlu dansarnir á nýjum tímum. Í fyrri hluta þáttarins ræða Dagrún og Vilhelmína við Önnu Kareni Unnsteins, meistaranema í þjóðfræði, sem segir frá verkefni sínu um viðho...

Oct 10, 202247 min

Raddir margbreytileikans – 30. þáttur – Jónína Einarsdóttir

Jónína Einarsdóttir fæddist 1954 í Reykjavík og ólst upp í Dölunum. Hún lauk BA prófi í mannfræði 1988 frá Stokkhólmsháskóla og doktorsprófi í mannfræði frá sama skóla árið 2000. Auk þess lærði hún spænsku, kennslufræði og efnafræði. Jónína er prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands. Helstu rannsóknarsvið Jónínu hafa verið mannfræði barna og ungmenna, heilsumannfræði og rannsóknir á þróunarsamvinnu. Hún var lengi á vettvangi í Gíneu Bissá, í Vestur Afríku, þar sem hún rannsakaði margbreytilega...

Oct 05, 20221 hr 6 min

Eitt og annað: Tvöfaldur í roðinu - 07.05.2017

Hugo Plaun var lengi ein helsta stríðshetja Dana, og var vel skreyttur hermaður sem hitti fyrirmenni og sagði ótrúlegar sögur sínar víða. Síðar kom í ljós að Plaun laug öllu saman. Borgþór Arngímsson les vinsælan pistil af Kjarnanum frá árinu 2017.

Oct 04, 202212 min

Þjóðhættir – Kvenskörungurinn Jóninna Sigurðardóttir

Í þættinum ræða Dagrún og Vilhelmína við Rannveigu Karlsdóttur þjóðfræðing og kennara við Verkmenntaskóla Akureyrar. Rannveig segir frá starfsemi Sögufélags Eyfirðinga og tímariti félagsins, sem nefnist Súlur. Að auki ræðir Rannveig rannsóknir sínar á Jóninnu Sigurðardóttur (f. 1879 – d. 1962) matreiðslukennara á Akureyri. Eftir að hafa numið meðal annars hússtjórn í Danmörku kom Jóninna heim, ferðaðist um Norðurland og kenndi matreiðslu við miklar vinsældir. Í kjölfarið kom hún að stofnun húsmæ...

Oct 03, 202235 min

Í austurvegi – Deng Xiaoping - seinni hluti 邓小平 下半

Þetta er seinni þáttur af tveimur um lífshlaup eins mikilvægasta stjórnmálamanns Kína á 20. öldinni, Deng Xiaoping. Lífshlaup Dengs er einstaklega áhugavert og í þessum seinni þætti er áfram rakin vegferð hans innan Kommúnistaflokksins og áhrif á stefnu Kína.

Sep 30, 202235 min

Tæknivarpið - Kindle með penna og Pixel lekar

Google er að fara halda viðburð í október og það er eiginlega allt búið að leka. Pixel símarnir fá S-uppfærslu og nýja liti. Nýr netbeinir mögulega á leiðinni. Úrið sem var kynnt í sumar verður kynnt aftur. Gulli vill fá eitthvað bitastætt (left field) en það eru allar líkur á öðru. Amazon hélt sýna Kindle/Echo/Eero kynningu og það kom flóð af tækjum. Þar má helst nefna dagljósalampann Halo Rise (tenging við sjónvarpsþáttinn?) og Kindle Scribe sem er lesbók með e-Ink skjá sem styður penna (Remar...

Sep 29, 20221 hr 24 min

Eitt og annað: Fröken Klukka - 12.12.2021

Eitt og annað ... einkum danskt, ellefti þáttur. Fyrir örfáum áratugum hringdi fólk í Fröken Klukku til að vita nákvæmlega hvað klukkan væri. Þótt nútímatækni hafi tekið við hlutverki Frökenarinnar svarar hún enn hér á Íslandi. Í Danmörku hefur Frøken Klokken lagt á og svarar ekki lengur. Pistill eftir Borgþór Arngrímsson á Kjarnanum.

Sep 27, 20227 min
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android