Í austurvegi - Land drekans
Nov 17, 2022•30 min
Episode description
Kína er oft og tíðum nefnt land drekans. Teikningar af kínverska drekanum hafa sín sérkenni þar sem hann hlykkjast langur og skrautlegur um himinhvolfið. Segja má að í Kína sé bókstaflega allt tengt drekanum, landið, hafið, náttúruöflin og þjóðin. Því er ekki um einn dreka að ræða, heldur marga, og þeir skiptast í mismunandi flokka. Þannig finnast tilvísanir milli raunverulegra aðstæðna og eiginleika þessara dreka hvarvetna.
Höfundur pistilsins er Steingrímur Þorbjarnarson sem einnig les upp.
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android
