Þóra Björnsdóttir er viðmælandi í 38. þætti mannfræðihlaðvarpsins Raddir margbreytileikans. Þóra er fædd 1986 í Reykjavík. Hún lauk BA námi í mannfræði frá Háskóla Íslands árið 2009, MA gráðu í þróunarfræðum frá sama skóla 2011 og doktorsprófi frá HÍ 2023 sem fjallar um börn í Ghana sem ferðast frá norðurhluta landsins til höfuðborgarinnar í leit að betra lífi. Doktorsrannsókn Þóru varpar ljósi á líf barna sem flytja að heiman á eigin vegum fyrir átján ára aldur í Ghana og flutningsferli þeirra ...
Jun 22, 2023•1 hr 3 min
Mannfræðingurinn Marco Solimene er viðmælandi í 37. þætti Röddum margbreytileikans. Marco er ítalskrar ættar, fæddur í Róm árið 1976 en hefur búið á Íslandi um langt skeið. Marco er með MA-gráðu í félagsfræði frá La Sapienza háskólanum í Róm og doktorsgráðu í mannfræði frá Háskóla Íslands. Rannsóknir hans hafa snúist um rómafólk frá Bosníu í Róm sem og á Balkanskaga og í Rúmeníu. Marco er nýráðinn sem lektor í mannfræði við HÍ. Í þessum þætti er rætt um yfirstandandi rannsókn Marco á stöðu rómaf...
Jun 13, 2023•1 hr 13 min
Gestur vikunnar er Helga Björg Ragnarsdóttir, framkvæmdarstýra Jafnlaunastofu. Helga Björg er með BA-próf í félagsfræði og MS-próf í viðskiptafræði með áherslu á stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands. Jafnlaunastofa er sameignarfélag í eigu Sambands íslenskra sveitafélaga og Reykjavíkurborgar og hefur það hlutverk að stuðla að launajafnrétti starfsfólks sveitarfélaga og veita stjórnendum stuðning við að framfylgja slíku jafnrétti. Aðferðafræði sveitafélaganna er að leggja áherslu á virðism...
Jun 13, 2023•44 min
Gestur vikunnar er Viktor Orri Valgarðsson, nýdoktor í stjórnmálafræði við háskólann í Southampton í Bretlandi. Viktor lauk doktorsprófi frá sama háskóla en í doktorsverkefni sínu skoðaði hann hvers vegna kosningaþátttaka hefur minnkað í mörgum þróuðum lýðræðisríkjum, með sérstaka áherslu á hvort og hvernig stjórnmálalegt sinnuleysi og firring geti útskýrt þessa þróun. Þessa stundina tekur hann þátt í alþjóðlegu rannsóknarverkefni, TrustGov, en það skoðar eðli, orsakir, afleiðingar og mynstur st...
Jun 05, 2023•54 min
Í fyrsta hlaðvarpinu eftir langt hlé fær Sigrún til sín þau Sunnu Símonardóttur aðjúnkt og nýdoktor í félagsfræði og Ara Klæng Jónsson, nýdoktor. Þau stýra stóru rannsóknarverkefni, sem fékk öndvegisstyrk frá Rannís árið 2022. Verkefnið skoðar áhrif stefnumótunar og foreldramenningar á barneignir á Íslandi. Í stóra samhenginu hefur fæðingartíðni löngum verið há á Íslandi í en hún hefur þó farið hríðlækkandi síðastliðinn áratug. Þau Sunna og Ari sem leiða verkefnið ásamt Ásdísi Arnalds forstöðuma...
May 30, 2023•49 min
Helga Ögmundardóttir fæddist í Neskaupstað árið 1965. Hún lauk Fil.kand. prófi 1992 frá Stokkhólmsháskóla, ásamt námi í heimspeki, vísindaheimspeki og -sögu, siðfræði, rökfræði, o.fl. frá sama skóla. Einnig lagði Helga stund á nám í lífvísindum við Háskóla Íslands og í Kaupmannahöfn, sem og garðyrkjufræði við Garðyrkjuskólann í Ölfusi. Helga lauk MA prófi 2002 í mannfræði frá Háskóla Íslands og doktorsprófi í mannfræði 2011 frá Háskólanum í Uppsölum. Megin rannsóknaráherslur Helgu eru umhverfis-...
Apr 25, 2023•1 hr 11 min
Flugur.is hjálpuðu okkur að gera þennan þátt að veruleika. Svikapóstar sem eru ekki frá ríkislögreglustjóra, endurhlaðanlegar rafhlöður, páskaegg og ný OnePlus spjaldtölva eru meðal umræðu dagsins. Einnig segja þáttastjórnendur frá því hvaða áskriftir þeir eru með þessa dagana með að streymisveitum. Umsjónarmenn þáttarins eru Andri Valur, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir Sverrisson.
Apr 12, 2023•1 hr 14 min
Gestir hlaðvarpsins að þessu sinni eru í fleirtölu, þær Kristín Harðardóttir og Hulda Proppé. Hulda er fædd 23. janúar 1971 í Reykjavík en alin upp í Hafnarfirði. Auk þess hefur hún búið í Champaign-Urbana í Illinois (USA), Minneapolis (Minnesota USA), New York (New York, USA), Cambridge (Massachusets (SA), Cambridge (Bretland) og býr nú í Reykjavík. Hulda lauk BA prófi í mannfræði 1997 og MA prófi í mannfræði 2002 við Háskóla Íslands en hluti af framhaldsnáminu var ár við University of Minnesot...
Apr 11, 2023•53 min
Gestur hlaðvarpsins er Stella Samúelsdóttir. Stella er fædd 27. febrúar 1975 í Reykjavík en hefur auk þess búið í Ísrael, Ítalíu, Malaví og í New York og New Orleans í Bandaríkjunum. Hún lauk BA prófi í mannfræði frá Háskóla Íslands 1999. Árið 2003 útskrifaðist hún með Post Graduate Diploma í alþjóðasamskiptum frá The Johns Hopkins Unversity og 2004 með Post Graduate Diploma í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. Einnig hefur hún D-vottun í verkefnastjórnun Endurmenntun HÍ (verkefnastjórnu...
Mar 15, 2023•56 min
Nú þann 22. janúar gengur nýtt ár kanínunnar í garð samkvæmt hinu kínverska dagatali. Þau Anna og Magnús staldra því við og líta um öxl á ár tígursins sem reyndist nokkuð viðburðaríkt. Í hlaðvarpsþætti dagsins eru meðal annars rifjuð upp viðtöl við góða gesti og spiluð brot af því besta sem á boðstólum var.
Jan 19, 2023•57 min
Mun gervigreind þvinga íslenska skóla til að endurskoða námshögun? Apple gæti mögulega gefið út sýndaveruleikagræju í ár, eða hvað? CES hátíðin er nýafstaðin og við gerðum upp nýtt og spennandi þaðan. Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir.
Jan 11, 2023•1 hr 18 min
Við erum komnir úr jólafríi! Tæknivarpið fjölmennti og fór yfir árið 2022 í tækni. Stjórnendur: Andri Valur, Atli Stefán, Elmar Torfa, Gunnlaugur Reynir, Kristján Thors, Vöggur Mar og Sverrir Björgvins.
Jan 08, 2023•2 hr 38 min
Saga þessa málsháttar er frá tímum Song-veldisins sem frægt var fyrir öflug viðskipti og efnahag, menningarlíf, matargerðarlist og fjölmargt fleira. En þrátt fyrir þetta mikla blómaskeið var Song-veldi raunar umkringt óvinum. Við fylgjumst með viðbrögðum Zhēnzōng keisara og ráðgjafa hans þegar Khitanar úr Liao-veldi norðursins gera innrás, sumarið 1004. Þátturinn er þýddur og birtur með leyfi Lazlo Montgomery hjá ©Teacup Media.
Jan 05, 2023•10 min
Lína Guðlaug Atladóttir, viðskiptafræðingur og Austur-Asíufræðingur, segir okkur frá bók sinni Rót sem hún gaf sjálf nýverið út. Bókin er uppfull af spennandi fróðleik um Kína og þá ævintýralega nútímavæðingu sem þar hefur átt sér stað, skrifuð á léttum og persónulegum nótum. Lína hóf Kínavegferð sína árið 2003 þegar hún fór til Kína að sækja dóttur til ættleiðingar og hefur æ síðan haldið áfram að kafa dýpra inn í þennan menningarheim.
Dec 22, 2022•49 min
Borgþór Arngrímsson les valda pistla úr Kjarnanum í hlaðvarpinu Eitt og annað ... einkum danskt. Pistlar hans njóta mikilla vinsælda á Kjarnanum og í þeim sem hér birtist fjallar hann um það að heil öld er liðin frá því Danir fengu sinn fyrsta pylsuvagn.
Dec 20, 2022•10 min
Síðasti gestur okkar fyrir jól er Eva Björg Ægisdóttir rithöfundur. Hún vakti fyrst athygli fyrir fyrstu bók sína, Marrið í stiganum, en fyrir hana hlaut hún Svartfuglinn, verðlaun sem eru veitt höfundi fyrir handrit af sinni fyrstu glæpasögu sem kemur út í kjölfarið. Síðan hefur Eva verið mjög afkastamikil og gefið út fimm bækur, þar á meðal Strákar sem meiða núna fyrir jólin og er hún tilnefnd til Blóðdropans en það eru verðlaun sem veitt eru fyrir bestu glæpasöguna ár hvert. Bækur Evu hafa ve...
Dec 19, 2022•46 min
Í laufléttum og skemmtilegum jólaþætti fá Dagrún og Vilhelmína til sín góða gesti. Eiríkur Valdimarsson þjóðfræðingur hjá Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Ströndum – þjóðfræðistofu, segir fréttir af starfseminni. Í haust stóð Rannsóknasetrið fyrir athyglisverðu námskeiði fyrir almenning um ritun endurminninga. Námskeiðið var vel sótt og tókst með eindæmum vel. Þá segir Eiríkur frá nýrri bók sem kom út nú í desember og nefnist Myndir og minningar frá Ströndum. Bókin er samstarfsverkefni Rannsókna...
Dec 16, 2022•46 min
Bók Sigríðar Víðis Jónsdóttur, Vegabréf íslenskt, hefur vakið verðskuldaða athygli síðan hún kom út og var nýlega tilnefnd til Fjöruverðlaunanna í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis. Í bókinni býður Sigríður lesandanum með sér í ferðalag um lönd sem mörg okkar vita lítið um og notar sjónarhorn og reynslu einstaklinga til að hjálpa okkur að skilja sumar af þeim brýnustu samfélgslegu áskorunum sem við stöndum frammi fyrir, t.d. fátækt, ójöfnuð og viðvarandi stríðsástand. Sigríður var lykilfyri...
Dec 12, 2022•47 min
Í þættinum er fjallað um kínverska læknislist, og hvers vegna hún er að ýmsu leyti jafn hátt skrifuð og hin vestrænu læknavísindi í Kína. Á kínverskum sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum finnast tvenns konar lyfjageymslur, bæði fyrir vestræn lyf og kínversk. Þar ríkir ekki sama skipting og við eigum að venjast í hefðbundnar og óhefðbundnar lækningar. Kínversku jurtalækningarnar, taiji-æfingar, nuddmeðferðir og nálastunga hafa sinn sess sem annar af tveimur helstu möguleikum fyrir meðferðir á hvers...
Dec 08, 2022•30 min
Í áratugi hafa gengið sögur um að á hafsbotni norðan við Helsingjaborg í Svíþjóð liggi stærðar steypuhlunkur sem átti að vera hluti eins þekktasta hótels á Norðurlöndum. En skyldi þetta nú vera rétt? Borgþór Arngrímsson les pistil sinn um hótellið á hafsbotni sem birtist fyrst á Kjarnanum í maí 2021.
Dec 06, 2022•9 min
Í hlaðvarpi vikunnar spjallar Sigrún við Mary Waters en hún er John Loeb Prófessor í félagsfræði og PVK prófessor í listum og vísindum við Harvard-háskólann í Bandaríkjunum. Í rannsóknum sínum hefur hún meðal annars beint sjónum sínum að því hvernig innflytjendur og börn þeirra samlagast samfélaginu, stefnumótun í innflytjendamálum, og hamförum og afleiðingum þeirra. Mary var einn af lykilfyrirlesurum á ráðstefnu Norrænna Félagsfræðinga sem fór fram í Reykjavík í ágúst síðastliðnum. Í þætti dags...
Dec 05, 2022•55 min
Sagan með málshætti dagsins er frá Vor- og haust tímabilinu, á 6. öld fyrir okkar tímatal. Þegar Dìng konungi af Zhèng bárust fregnir af yfirvofandi árás frá Wú-ríki varð hann skelfingu lostinn. Wú-herinn var þekktur fyrir styrk sinn og sömuleiðis Wǔ hershöfðingi sem leiddi herinn og var persónulegur vinur Sunzi (sem ritið Hernaðarlistin er eignað). Wǔ hershöfðingi hélt að þeirra biði auðveldur sigur en annað kom á daginn. Þátturinn er þýddur og birtur með leyfi Lazlo Montgomery hjá ©Teacup Medi...
Dec 01, 2022•11 min
Ríkið ætlar að fjarlægja fjöldakvóta fyrir niðurgreiðslur rafbíla á næsta ári, en minnka aðeins niðurgreiðsluna. Samsung ætlar að kynna S23 í febrúar. Twitter lak út 5,4 milljón aðgöngum ásamt símanúmerum. Corning er að búa til nýtt högghelt gler fyrir snjallsíma sem þolir 1 metra fall á steypu. Eufy lendir í alvarlegum öryggisgalla, sem var tilkynntur og gerði ekkert. Við förum svo í gegnum spurningar af Twitter og ræðum eSim og rafræn skilríki. Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Torfason og Gu...
Nov 30, 2022•1 hr 12 min
Fyrir nokkru fékk danska ríkisstjórnin snjalla hugmynd sem hún vildi hrinda í framkvæmd. Gallinn var hins vegar sá að fáum öðrum þótti hugmyndin góð. Borgþór Arngrímsson les pistil sinn um hugmynd ráðherra í dönsku ríkisstjórninni um kjötlausa daga, sem var slegin út af borðinu með hraði. Pistillinn birtist fyrst á Kjarnanum í nóvember 2020.
Nov 29, 2022•7 min
Málshátturinn sem við lítum á í dag er frá tímum Tang-veldisins, seint á 7. öld, og við sögu kemur sjálf keisaraynjan Wǔ Zétiān. Þetta er sígildur fjögurra tákna málsháttur sem á yfirborðinu virðist hafa fremur óljósa merkingu en á sér forvitnilega baksögu með frekar svæsinn enda. Þátturinn er þýddur og birtur með leyfi Lazlo Montgomery hjá ©Teacup Media.
Nov 28, 2022•11 min
Gestur þáttarins er Hildur Valdís Guðmundsdóttir. Hildur er fædd 31. október 1959 á Siglufirði en hefur auk þess búið í Húnavantssýslu, Borgarfirði, Reykjavík, Færeyjum, Frakklandi og Fílabeinsströndinni. Hún lauk BA prófi í mannfræði árið 2005 frá Háskóla Íslands og Meistaraprófi í mannfræði 2007 og Diplómanámi í þróunarfræðum 2009 frá sama skóla. Áhugasvið Hildar snúa að mannúðarmálum og að tilheyra. Hildur hefur unnið við sveitastörf, fiskvinnslu, skrifstofustörf, hjá Sameinuðu Þjóðunum, í Fr...
Nov 25, 2022•36 min
Íslenska fyrirtækið Carbon Recycling International hefur komið sterkt inn á alþjóðlegan markað með lausnir til að binda koltvísýring og vinna úr honum metanól. Verksmiðja á vegum fyrirtækisins var nýlega gangsett í Kína og önnur á leiðinni. Í viðtalinu fræðir Ómar Sigurbjörnsson, markaðsstjóri fyrirtækisins, okkur um það einstaka hugvit sem fyrirtækið hefur upp á að bjóða og hefur hlotið heimsathygli fyrir, starfsemina víða um heim sem og verkefni þess í Kína.
Nov 24, 2022•31 min
Hvað á að gera við gamla kirkju sem ekkert er notuð vegna þess að íbúarnir á svæðinu eru fluttir burt? Í Danmörku eru tugir slíkra guðshúsa, flest mjög gömul. Nú eru uppi hugmyndir um að breyta sumum slíkum kirkjum í svokallaðar tækifæriskirkjur. Borgþór Arngrímsson les valda pistla úr Kjarnanum. Pistillinn sem er lesinn í þessum þætti birtist fyrst 26. janúar 2020.
Nov 22, 2022•8 min
Myrkranetið (dark web) samanstendur af vefsíðum og öðru efni sem einungis er hægt að nálgast með sérstökum hugbúnaði, heimildum eða stillingum. Þar sem myrkranetið býður upp á nafnleynd og ýmis skúmaskot hafa hlutar þess orðið vettvangur margskonar glæpastarfsemi. Til að fræðast meira um þennan myrka afkima internetsins fékk Guðmundur Oddsson dósent í félagsfræði við HA hann Christopher Copeland í settið en sá er rannsóknarlektor við Tarleton State University í Texas í Bandaríkjunum. Christopher...
Nov 21, 2022•50 min
Nýjustu fregnir af Twitter sem er auðvitað alelda, en við getum ekki hætt að fylgjast með. Rafeyriskauphöllinn FTX sprakk eftir áhlaup og talið er að 10 milljarðar USD hafi gufað upp. Atli byrjaði að prófa Arc-vafrann en fór svo að gera eitthvað annað af viti. Atli prófar Bose Quiet Comfort Earbuds II sem eru víst best í virkri hljóðeinangrun samkvæmt óháðum aðila. Þessi þáttur er í boði Origo sem er halda opinn fyrirlestur um gagnaöryggi miðvkudaginn 30.nóv. Frítt inn: https://www.origo.is/vidb...
Nov 19, 2022•1 hr 12 min