Hlaðvarp Heimildarinnar - podcast cover

Hlaðvarp Heimildarinnar

Heimildinheimildin.is
Í hlaðvarpi Heimildarinnar, áður Kjarnans, má finna fjölbreytta þætti um allt frá pólitík til heiðarlegs skyndibita eða nýjustu græjunnar.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Þjóðhættir – Hættið þessu fikti strákar!

Í þættinum ræða Dagrún og Vilhelmína við Særúnu Lísu Birgisdóttur þjóðfræðing. Særún Lísa segir frá nýrri bók sinni sem nefnist Hættið þessu fikti strákar! Bókin fjallar um homma í íslensku samfélagi og menningu, frá tímum Íslendingasagnanna og fram yfir hernám. Áhugann á efninu fékk Særún strax í þjóðfræðinámi sínu, upphaflega í námskeiðinu Söfnun þjóðfræða, en svo þróaðist áhuginn, efnið og rannsóknin og hún vann úr því bæði í BA-ritgerð sinni og meistararitgerð. Í rannsókninni byggir hún meða...

Sep 26, 202231 min

Tæknivarpið - Google Analytics bann og GTA6 myndbroti lekið

Það er þéttur þáttur hjá okkur þetta skiptið. Tækniskólinn var hakkaður illa og flest allt nettengd datt í gólfið. Neytendastofa kallar eftir því að banna Google Analytics á Íslandi í kjölfarið úrskurða annarra Evrópulanda. The Verge endurhannar vefsíðu sína og það eru allir í Tæknivarpinu brjálaðir. Google Pixelbook vörulínan hefur verið fryst og ekki fleiri fartölvur í bígerð þar. The Verge dómar fyrir Apple þrennuna eru komnir út og þeir eru ekkert sérstakir. Apple kynnti ekki stærstu breytin...

Sep 23, 20221 hr 21 min

Í austurvegi - Deng Xiaoping - fyrri hluti 邓小平 上半

Þetta er fyrri þáttur af tveim um lífshlaup eins mikilvægasta stjórnmálamanns Kína á 20. öldinni, Deng Xiaoping. Lífshlaup Dengs er einstaklega áhugavert, sagan af sveitapilti úr Sichuan-héraði sem komst til æðstu metorða í Kommúnistaflokki Kína.

Sep 22, 202227 min

Eitt og annað: Sænska Bolluinnrásin - 14.02.2021

Danir hafa sjaldnast litið upp til Svía þegar kemur að matargerð. Þess vegna kemur það kannski mörgum spánskt fyrir sjónir að sænskar bolludagsbollur eiga vaxandi vinsældum að fagna meðal Dana. Tíundi þátturinn af völdum pistlum Borgþórs Arngrímssonar.

Sep 20, 20229 min

Þjóðhættir — Farskóli safnafólks á Hallormsstað

Farskóli FÍSOS, Félags íslenskra safna og safnmanna, fer fram á Hótel Hallormsstað dagana 21.-23. september. Farskólinn er árleg fagráðstefna safnafólks á Íslandi og í ár er yfirskrift hans Söfn á tímamótum. Farskólinn, sem var fyrst haldinn árið 1989, er mikilvægur vettvangur endurmenntunar og samstarfs meðal íslenskra safna. Á hverju hausti hittist safnafólk, ber saman bækur sínar, kynnist því sem verið er að gera í safnastarfi víða um land og styrkir um leið tengslanet sitt. Farskólinn er jaf...

Sep 19, 202234 min

Í austurvegi – Héðinn Svarfdal: Að ferðast til Kína

Eftir að hafa farið 25 sinnum til Kína og þar af fjölmörg skipti með íslenska ferðamenn með sér segir Héðinn Svarfdal okkur frá áhugaverðum stöðum til að heimsækja. Eins spjölluðum við um að hverju þurfi að huga við undirbúning fyrir ferðalag til Kína og hvers ferðalangar megi búast við þar austur frá

Sep 16, 202253 min

Tæknivarpið - Nýr iPhone, Watch Ultra og Airpods Pro 2

Apple hélt kynningu á miðvikudaginn, eins og svo oft áður á þessu tíma árs, og kynnti nýjasta nýtt í Apple þrennunni: iPhone, Watch og Airpods. Þessi þáttur er í boði Macland, sem selur einmitt þessa svakalegu þrennu. Stjórnendur eru Andri Valur, Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir.1

Sep 16, 20221 hr 42 min

Raddir margbreytileikans – Kvikspuni, kakkalakkar og svissneskir vasahnífar

Viðmælandi hlaðvarpsins að þessu sinni er Unnur Helga Möller en hún er fædd á Akureyri 8. janúar 1985. Unnur Helga lauk BA prófi í mannfræði frá Háskóla Íslands 2013 og MA prófi frá sama skóla 2015. Í lokaverkefnum sínum hefur hún tekist á við aðdáendasamfélög á netinu og kvikspuna á Norðurlöndum. Unnur Helga hefur búið í Austurríki, Þýskalandi, Bretlandi og Svíþjóð en er nú búsett í Hafnarfirði. Áhugasvið hennar tengjast öllum almennum nördaskap, tónlist, sviðslistum, þjóðbúningum og öllu sem e...

Sep 14, 202245 min

Eitt og annað - Margrétarskálin 14.04.2015

Í níunda þætti af Eitt og annað ... einkum danskt fjallar Borgþór Arngrímsson um Margrétarskálina. Pistlar Borgþórs njóta mikilla vinsælda á Kjarnanum og í hlaðvarpinu les höfundur valda pistla síðustu ára.

Sep 13, 20225 min

Í austurvegi – Bragðast eins og kjúklingarif 味如鸡肋

Þáttur dagsins færir okkur bæði skemmtilegan og nærandi kínverskan málshátt. Hér er á ferð sígildur málsháttur frá síðustu árum Austur-Han-veldisins. Það er svo ekki hægt að ræða um lok Austur-Han-veldisins án þess að Cáo Cāo komi við sögu. Sagan gerist á 3. öld í Shǎnxi-héraði, í kringum borgina Hànzhōng. Hànzhōng varð bitbein erkifjendanna Cáo Cāo og Liú Bèi sem báðir voru öflugir herforingjar og leiðtogar. Þátturinn er þýddur og birtur með leyfi Lazlo Montgomery hjá ©Teacup Media.

Sep 08, 202211 min

Ekon – Hálfu ári síðar: Efnahagsþvinganir sem vopn gegn Rússlandi

Emil Dagsson ræðir við Dr. Ásgeir Brynjar Torfason. Fjallað er um fjármagnsflæði og hvað gerist þegar settar eru skorður á slíkt flæði, eða þá efnahagsþvinganir. Viðmælandinn Ásgeir Brynjar er doktor í fjármálum frá Gautaborgarháskóla. Áhersla þáttarins er efnahagsþvinganirnar sem Vesturlönd hafa sett á Rússland í kjölfar innrásar Pútíns í Úkraínu.

Sep 07, 202248 min

Í austurvegi – Kristín Ketilsdóttir - hjólandi ein um Kína og keppt í þríþraut

Kristín Ketilsdóttir fór snemma til Kína, heillaðist af hjólreiðum og kynntist ýmsum afskekktum svæðum Kína hjólandi ein síns liðs. Í viðtali dagsins segir hún okkur ótrúlegar ferðasögur um Kína á hjólinu sínu. Seinna fór hún að keppa í þríþraut vítt og breytt um Kína og segir okkur af því. Reynslan í Kína hefur gefið Kristínu ótrúlega innsýn í þetta stóra og fjölbreytta land sem fáir Íslendingar hafa upplifað.

Sep 01, 202252 min

Raddir margbreytileikans – 28. þáttur

Eyrún Ólöf Sigurðardóttir er fædd 1982 í Reykjavík og alin upp í Hveragerði. Hún starfaði í barnastarfi Reykjavíkurborgar í nokkur ár (og þannig lenti hún í tómstundafræðinni) og hefur líka unnið mikið með öldruðum, bæði við aðhlynningu og sem tómstundafræðingur. Eyrún kom stuttlega við í unglingastarfi hjá borginni og hefur verið í grasrótarverkefninu Stelpur rokka! frá 2015 (hún skrifaði einmitt BA um kynjaskipt frítímastarf). Svo hefur hún verið talsvert á flakki um heiminn, var í fjarnámi fy...

Aug 31, 20221 hr 10 min

Í austurvegi – Að klífa tré til fiskveiða

Saga þessa málsháttar á upptök sín alla leið aftur á Tímabili hinna stríðandi ríkja, í hinu langlífa Zhou-veldi. Langfrægastur allra frá þessu tímabili var Konfúsíus og þekktasti fylgismaður Konfúsíusar var Mensíus sem Kínverjar kalla Mèngzǐ. Mèngzǐ var frá Qí-veldi, þar sem í dag er Shandong-hérað, og var hann oft boðaður á fund stórhuga konungsins í höllinni til ráðlegginga. Málsháttur dagsins er beint úr samnefndri bók hans sem kallast Mèngzǐ. Þátturinn er þýddur og birtur með leyfi Lazlo Mon...

Aug 24, 20229 min

Eitt og annað ... einkum danskt – Endurkoma smurbrauðsins – 25.07.2021

Borg­þór Arn­gríms­son hefur skrifað pistla fyrir Kjarn­ann frá árdögum mið­ils­ins. Pistlar hans njóta mik­illa vin­sælda hjá les­endum, fjallað er um eitt og annað og oftar en ekki hefur efni­við­ur­inn ein­hverja teng­ingu við Dan­mörku. Borg­þór hefur nú lesið valda pistla sem birtir verða sem hlað­varps­þættir í Hlað­varpi Kjarn­ans undir yfir­skrift­inni Eitt og annað ...einkum danskt. Sjötti þátturinn fjallar um endurkomu smurbrauðsins.

Aug 23, 20228 min

Tæknivarpið - Nýr íslenskur "banki"

Í þættinum er meðal annars rætt um glóðvolga niðurstöðu Samsung Galaxy Unpacked, seinkun á komu HBO Max, breytt plön hjá hinu íslenska Netflix, fyrstu viðbrögð við beta-prófunum Indó bankaþjónustunnar og rafbíla. Sem fyrr fer umræðan um víðan völl og stundum út fyrir efnið. Tæknivarpið er í boði Macland. Stjórnendur þáttarins eru Andri Valur, Elmar, Gunnlaugur Reynir og Marinó Fannar.

Aug 23, 20221 hr 7 min

Tæknivarpið - Húðtóna heyrnatól frá Kardashian

Við förum um víða völl í þættinum, allt frá húðtóna heyrnatólum og að himnum. Kim Kardashian og Beats (Apple) þróa húðtónalituð heyrnatól frá Beats Fit Pro. Aha er víst byrjað að bjóða upp á drónaheimsendingar undir nafninu "Himnasending" en bara þegar veður leyfir. John Deere traktorar geta keyrt Doom, þrátt fyrir svæsið burn-in á skjánum. Android 13 er komið út, aðeins á undan áætlun. Samsung Galaxy Watch 5 er komið með dóma og þeir eru ekkert spes. En Samsung hittir í mark með 55" tölvuleikja...

Aug 23, 20221 hr 19 min

Í austurvegi – Ping Pong Diplomacy 乒乓外交

Sumir kannast við enska hugtakið Ping Pong Diplomacy og geta tengt það við ákveðin tímamót í samskiptasögu Bandaríkjanna og Alþýðulýðveldisins Kína. Flestir hafa kannski heyrt á það minnst en þekkja ekki beint söguna að baki þess. Í þessum þætti rennum við aðeins yfir þessa áhugaverðu sögu og sjáum hvernig borðtennis breytti heimssögunni.

Aug 22, 202220 min

Eitt og annað ... einkum danskt – Hygge - 08.10.2017

Valdir pistlar Borgþórs Arngrímssonar sem birst hafa á Kjarnanum koma nú út sem hlaðvarpsþættir. Í fjórða þættinum les Borgþór afar vinsælan pistil frá árinu 2017 sem fjallar um hugtakið hygge. Borgþór skrifar jafnan um eitt og annað sem tengist Danmörku.

Aug 09, 20228 min

Í austurvegi – Hin þjóðlega hljómsveit útvarpsins í Beijing

Í sumar munum við endurflytja 5 þætti um kínverska tónlist sem Arnþór Helgason gerði fyrir Ríkisútvarpið fyrir um 20 árum síðan. Við fengum góðfúslegt leyfi Arnþórs og Ríkisútvarpsins til að endurflytja þessa þætti og þökkum við kærlega fyrir það. Þáttastjórnenda þarf vart að kynna fyrir þeim sem þekkja eitthvað til Kína. Arnþór Helgason varð snemma hugfanginn af kínverskri tónlist og án efa má fullyrða að hann sé sá Íslendingur sem þekkir best til tónlistar þar austur frá.

Aug 04, 202240 min

Í austurvegi – Erlend tónlist í Kína

Í sumar munum við end­­ur­flytja 5 þætti um kín­verska tón­list sem Arn­þór Helga­­son gerði fyrir Rík­­is­út­­varpið fyrir um 20 árum síð­­­an. Við fengum góð­­fús­­legt leyfi Arn­þórs og Rík­­is­út­­varps­ins til að end­­ur­flytja þessa þætti og þökkum við kær­­lega fyrir það. Þátta­­stjórn­­enda þarf vart að kynna fyrir þeim sem þekkja eitt­hvað til Kína. Arn­þór Helga­­son varð snemma hug­fang­inn af kín­verskri tón­list og án efa má full­yrða að hann sé sá Íslend­ingur sem þekkir best til t...

Jul 28, 202239 min

Í austurvegi – Tónlist smáþjóða í Kína

Í sumar munum við endurflytja 5 þætti um kínverska tónlist sem Arnþór Helgason gerði fyrir Ríkisútvarpið fyrir um 20 árum síðan. Við fengum góðfúslegt leyfi Arnþórs og Ríkisútvarpsins til að endurflytja þessa þætti og þökkum við kærlega fyrir það. Þáttastjórnenda þarf vart að kynna fyrir þeim sem þekkja eitthvað til Kína. Arnþór Helgason varð snemma hugfanginn af kínverskri tónlist og án efa má fullyrða að hann sé sá Íslendingur sem þekkir best til tónlistar þar austur frá.

Jul 19, 202237 min

Í austurvegi – Þróun kínverskrar tónlistar frá 8. til 20. aldar

Í sumar munum við endurflytja 5 þætti um kínverska tónlist sem Arnþór Helgason gerði fyrir Ríkisútvarpið fyrir um 20 árum síðan. Við fengum góðfúslegt leyfi Arnþórs og Ríkisútvarpsins til að endurflytja þessa þætti og þökkum við kærlega fyrir það. Þáttastjórnenda þarf vart að kynna fyrir þeim sem þekkja eitthvað til Kína. Arnþór Helgason varð snemma hugfanginn af kínverskri tónlist og án efa má fullyrða að hann sé sá Íslendingur sem þekkir best til tónlistar þar austur frá.

Jul 14, 202240 min

Raddir margbreytileikans – Frá Bodyshop til Malaví í skotheldu vesti með of stóran hjálm

Gestur þáttarins er mannfræðingurinn Inga Dóra Pétursdóttir. Hún fæddist í Svíþjóð 8. janúar 1980 og ólst upp í Laugarás í Biskupstungum. Á fullorðinsárum hefur hún dvalið víða, meðal annars í Gvatemala, Spàni, Bandaríkjunum, Gana, Malaví og Mosambik. Hún lauk BA prófi í mannfræði árið 2004 við Háskóla Íslands og MA prófi í þróunarfræði árið 2010 við sama skóla. Í náminu beindi hún helst sjónum að heilsutengdri mannfræði með áherslu á Afríku og HIV. Í gegnum tíðina hefur Inga Dóra unnið við ýmis...

Jul 13, 202253 min
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android