Í sumar munum við endurflytja 5 þætti um kínverska tónlist sem Arnþór Helgason gerði fyrir Ríkisútvarpið fyrir um 20 árum síðan. Við fengum góðfúslegt leyfi Arnþórs og Ríkisútvarpsins til að endurflytja þessa þætti og þökkum við kærlega fyrir það. Þáttastjórnenda þarf vart að kynna fyrir þeim sem þekkja eitthvað til Kína. Arnþór Helgason varð snemma hugfanginn af kínverskri tónlist og án efa má fullyrða að hann sé sá Íslendingur sem þekkir best til tónlistar þar austur frá.
Jul 06, 2022•36 min
Kínverski málsháttur dagsins er mikið notaður og í uppáhaldi hjá mörgum. Sagan á bakvið hann hefst fyrir rétt tæpum 1400 árum síðan. Sjöunda öldin var upphaf hins mikilfenglega Tang-veldis og kemur keisarinn sjálfur við sögu en aðalhetjan var embættismaður frá svæði sem var í kringum Yunnan og Búrma samtímans. Þessum embættismanni var falið af konungi sínum að koma sér í mjúkinn hjá Tang-keisaranum og votta honum virðingu sína með því að koma með gjafir og hneigja sig fyrir honum. En ekki fór al...
Jun 30, 2022•11 min
Viðmælandi þessa þáttar er Árdís Kristín Ingvars, félags- og mannfræðingur, sem er aðjúnkt í félagsfræði við Háskóla Íslands. Árdís fæddist í Reykjavík árið 1970. Hún lauk BA prófi árið 2010 í mannfræði við Háskóla Íslands og diplómu í hnattrænum tengslum, fólksflutningum og fjölmenningarfræðum árið 2013, frá HÍ. Árdís lauk MA námi í mannfræði við HÍ ári seinna. Árið 2019 lauk Árdís doktorsprófi í félagsfræði frá HÍ. Árdís hefur einkum rannsakað málefni flóttafólks, en einnig stöðu fatlaðra og a...
Jun 29, 2022•1 hr 6 min
Árið er 1961. Ung sænsk kona stígur um borð í fullpakkaðan strætisvagn í miðborg Peking. Allir eru klæddir bláum, víðum, fóðruðum jökkum og buxum í stíl. Hún er eini útlendingurinn í vagninum, þar sem fólk þarf að troðast til að stíga frá og um borð – og henni er slétt ekki sama. Í fanginu heldur hún á þúsund ára gömlu strengjahljóðfæri, guqin, frá tímum Song-keisaraveldisins. Þetta sjö strengja hljóðfæri er um 120 cm á lengd, aðeins lengra en rafmagnsgítar, og hún er með það vafið inn í fóðraða...
Jun 22, 2022•39 min
Við erum ekki dauðir úr öllum æðum og bættum við okkur allavega einum þætti í viðbót þetta sumar. Enda er líka fullt að frétta: Landspítalinn þróar app. Myndlyklar eru ennþá fáránlega vinsælir. Stór uppfærsla fyrir Vivaldi með pósti, dagatali og RSS lesara. Encroapp-„hakk“ frönsku löggunar nælir í íslenska bófa. Apple kaupir sýningarétt MLS (BNA fótboltadeild). Google-gervigreind öðlast sál, samkvæmt dulrænum presti sem starfar hjá Google. Ford innkallar bíla en byrjar að afhenda F150 Lightning....
Jun 21, 2022•1 hr 16 min
Emil Dagsson ræðir við Ástu Dís Óladóttur, dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, um hvernig hægt sé að bregðast við kynjahalla í ráðningum forstjóra skráðra félaga á íslenskum markaði. Ásta Dís hefur rannsakað slík ráðningarferli og hún er einn meðhöfunda greinar um efnið sem kom út í fyrra og ber heitið Forstjóraráðningar í þjóðhagslega mikilvægum fyrirtækjum: Kynjahalli, útilokun og ófagleg ráningarferli? Að baki greinarinnar liggja viðtöl helming þeirra kvenna sem sitja í stjórnum s...
Jun 18, 2022•44 min
Gestur hlaðvarpsins er Sanna Magdalena Mörtudóttir, mannfræðingur og borgarfulltrúi. Sanna fæddist í Reykjavík 3. maí 1992 og hefur búið víða um höfuðborgarsvæðið og hér og þar í London Englandi. Hún lauk BA-prófi í mannfræði árið 2015 við Háskóla Íslands og meistaraprófi í mannfræði árið 2018 við sama skóla. Rannsóknarsvið Sönnu snúa að margbreytileika, kynþáttafordómum og kynþáttahyggju en lokaritgerð hennar í meistaranáminu er um upplifun brúnna Íslendinga á því að tilheyra íslensku samfélagi...
Jun 15, 2022•45 min
Apple hélt lykilræðu á WWDC-tækniráðstefnunni á mánudaginn og kynnti fullt af uppfærslum fyrir stýrikerfin (en talaði ekkert um tvOS) og eitthvað af vélbúnaði. Nýr Apple örgjörvi M2, ný Macbook Air og „ný” Macbook Pro 13” og fullt af sniðugu fyrir iPadOS. Við rennum yfir það sem var kynnt mjög ítarlega ásamt Sigurði Flygenring. Þessi þáttur er í boði Macland. Macland.is selur Apple-tæki.
Jun 10, 2022•1 hr 32 min
Viðmælandi þáttarins að þessu sinni er Sigurður Ingi Friðleifsson, sviðstjóri orkuskipta og loftslagsmála hjá Orkustofnun. Við spjölluðum um orkumál heimsins og Kína sérstaklega í því samhengi og var þar sannarlega af nógu að taka. Í spjalli okkar kom m.a. fram að grænar lausnir eru orðnar samkeppnishæfar og sífellt umfangsmeiri á heimsvísu og sérstaklega í Kína. Má segja að Kínverjar séu leiðandi afl í þeirri byltingu sem nú er að eiga sér stað á leið okkar yfir í endurnýjanlega orku.
Jun 08, 2022•48 min
Emil Dagsson ræðir við David Cook um nýjan mælikvarða á efnahagslegri velferð fyrir Ísland í nýjasta þætti af Ekon. Mælikvarðinn sem er til umfjöllunar nefnist framfarastuðull (e. Genuine Progress Indicator, GPI) og tekur hann tillit til annarra þátta en hagvaxtar. Álíka mælikvarðar eru til fyrir önnur lönd en þau Brynhildur Davíðsdóttir og David Cook aðlöguðu mælikvarðann að íslensku hagkerfi og gerðu grein fyrir þróun hans fyrir árin 2000 til 2019.
Jun 08, 2022•36 min
Síðasti gestur fyrir sumarfrí er Vigdís Fríða Þorvaldsdóttir en hún lauk BA-gráðu í félagsfræði frá HÍ árið 2017 og MA-gráðu í opinberri stjórnsýslu með áherslu á fjölmiðla og boðskipta árið 2020. Síðan hún útskrifaðist hefur Vigdís nýtt félagsfræðigráðuna sína á ýmsan hátt, en hún hefur meðal annars starfað hjá Umboðsmanni barna sem starfsmaður ungmennaráðs, komið að skuggakosningum framhaldsskólanna, gefið út handbók fyrir ungmennaráð sveitafélaga og skýrslu um hvað það er sem fær ungt fólk ti...
Jun 07, 2022•40 min
Það hefur óvenju mikið verið að frétta hér af Íslandi síðustu vikur: Nova er á leið í opið útboð, forsetinn fór út til Bandaríkjanna til að berjast fyrir íslensku ásamt flottu föruneyti, Sýn vill ekki eiga innviði en vill byggja upp sæstrængjainnviði og CERT-IS varar við gömlum útrunnum lénum sem eru notuð til að hakka fólk (plís kveikið á tveggja þátta auðkenningum!). Google bakkar með að rukka Workspace fyrir þá einstaklinga sem nota sitt eigið lén til einkanota, Google Drive fær (loksins) afr...
Jun 02, 2022•1 hr 20 min
Málsháttur dagsins er ævagamall. Til þess að fræðast nánar um uppruna hans þurfum við að ferðast aftur um rúmlega 23 aldir eða til ársins 316 fyrir okkar tímatal. Málshátturinn rekur sögu sína alla leið aftur til konungsins Huìwén af Qin. Huìwén var forfaðir Qin-keisarans sem sameinaði Kína og lét byggja hið gríðarstóra grafhýsi við Xi’an sem frægt er fyrir alla leirhermennina og hestana. Í sögunni heyrum við af hinum fávísa stjórnanda hins forna Shǔ-ríkis og hvernig skammsýni hans hefur skráð h...
Jun 01, 2022•12 min
Gestur vikunnar er Ingi Rúnar Edvarsson, prófessor í viðskiptafræði við Háskóla Íslands. Hann er félagsfræðingur að mennt en hann kláraði doktorspróf í félagfræði frá Háskólanum í Lundi árið 1992. Rannsóknir Inga Rúnars tengjast meðal annars þekkingarstjórnun í íslenskum fyrirtækum, útvistun í íslenskum þjónustufyrirtækjum og háskóla utan stórborga og áhrif þeirra á nærliggjandi efnahagslíf og samfélag. Hann kom að því að stofna Félagsfræðingafélag Íslands og var fyrsti formaður þess en einnig s...
May 31, 2022•44 min
Pönkið er ekki dautt og fékk nýtt líf í grámyglu Peking-borgar á 9. áratug 20. aldar. Saga pönk tónlistar í Peking er ekki löng. Hún er rétt um 25 ára gömul og á þeim tíma sem þessi áhugaverða tónlistarstefna hefur þróast hafa hundruðir ungra manna og kvenna gengið saman hönd í hönd og búið til óhefðbundna tónlist sem er á útjaðri þeirrar poppmenningar sem kraumar í þessu fjölmennasta ríki heims. En bíddu, var ekki pönktónlist bara vinsæl á 8. áratugnum í Evrópu? Var þetta ekki bara lítill hópur...
May 28, 2022•26 min
Í þetta sinn fengum við til okkar í viðtal hann Magnús Jóhann Hjartarson, Íslandsmeistara í borðtennis. Þar ræddu nafnarnir Magnús og Magnús um æfingaferð sem annar þeirra fór í til Kína og um borðtennis þar í landi sem er jú, þjóðaríþrótt Kínverja. Einnig ræddum við borðtennis hér á landi en það eru fjölmargir iðkendur um heim allan sem spila borðtennis daglega. Þetta er einstaklega skemmtilegt viðtal við Magnús enda íþróttamaður af Guðs náð.
May 26, 2022•32 min
Í þessum þætti er rætt við Pamelu Innes, dósent í mannfræði við Háskólann í Wyoming. Pamela á sér langan feril sem tungumála mannfræðingur og hefur einkum stundað rannsóknir sem tengjast tungumálum og málsamfélögum frumbyggjahópa í Norður Ameríku. Í seinni tíð hefur hún unnið að rannsóknum með íslenskum mannfræðingum og öðru fræðafólki, einkum Unni Dís Skaptadóttur og Önnu Wojtynska, en á núlíðandi misserum hafa þær verið á vettvangi víða um Ísland við rannsóknir á samlífi innflytjenda og heimam...
May 25, 2022•1 hr 12 min
Gestur vikunnar er Maya Staub en hún lauk doktorsprófi í félagsfræði þann 4. febrúar 2022. Doktorsritgerð hennar bar heitið: Starfsferilsþróun doktorsmenntaðra: Rannsókn á kynjuðu samhengi fjölskyldulífs og tekna meðal doktorsmenntaðra á Íslandi, en aðalleiðbeinandi Mayu var Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, prófessor í félagsfræði. Í ritgerðinni sýnir Maya fram á viðvarandi kynbundin launamun á milli þeirra sem lokið hafa doktorspróf á 20 ára tímabili og er það óháð námssviði eða starfsvettvangi. Ein...
May 23, 2022•51 min
Þáttaröðin „Er Elon Musk búinn að kaupa Twitter“ heldur áfram ... er Elon Musk búinn að kaupa Twitter? er spurt. Apple hættir framleiðslu iPod eftir 21 ár. Google kynnti fullt af nýjum tækjum og tækni á Google I/O og Elmar er orðinn staurblankur. Þessi þáttur er í boði Macland, Kringlunni. Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir.
May 16, 2022•1 hr 2 min
Í þessum þætti fáum við að kynnast kínverskum málshætti eða „chéngyǔ“ eins og sagt er á mandarín-kínversku. Það má í raun ýmist þýða sem málshátt, orðatiltæki eða orðtak. Til eru þúsundir kínverskra málshátta en margir þeirra geta verið frekar óljósir án samhengis. Þessir þættir um kínverska málshætti verða stutt og laggóð viðbót við pistlana og viðtölin í hlaðvarpi okkar og eru unnir upp úr hlaðvarpi mikils Kínafræðings að nafni Lazlo Montgomery. Lazlo heldur úti vefsíðunni Teacup Media og hefu...
May 12, 2022•12 min
Gestur þáttarins er mannfræðinginn Guðrún Margrét Guðmundsdóttir. Guðrún Margrét fæddist árið 1969 í Reykjavík. Hún lauk BA prófi í mannfræði við Háskóla Íslands árið 2000 og MA prófi í mannfræði við sama skóla árið 2004. Guðrún Margrét hefur dvalið víða og meðal annars búið í Doha í Katar, Dubai í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, Kuwaitborg í Kuwait, Sana´a í Jemen og Kairó í Egyptalandi. Rannsóknasvið Guðrúnar Margrétar hafa snúið að ofbeldi á konum og jafnrétti í miðausturlöndum, en einnig h...
May 11, 2022•54 min
Í ellefta og síðasta þætti er rætt við Jóhannes Loftsson oddvita Ábyrgrar framtíðar. Með orðum oddvitanna eru viðtalsþættir þar sem efsti frambjóðandi hvers lista í Reykjavík er tekinn tali.
May 11, 2022•44 min
Í tíunda þætti er rætt við Alexöndru Briem sem skipar annað sætið á lista Pírata.. Með orðum oddvitanna eru viðtalsþættir þar sem efsti frambjóðandi hvers lista í Reykjavík er tekinn tali. Þættirnir verða alls ellefu.
May 10, 2022•36 min
Reykjavík Haus hefur verið samþykkt í borgarráði Reykjavíkur og mun opna sköpunarsetur í efri hæðum Hafnarhússins. Evrópusambandið er að búið að senda ákvörðun á Apple um meinta misnotkun á aðgengi þriðja aðila að NFC-hluta iPhone síma og getur sektað Apple um 10% af heildartekjum. Xbox prik er á leiðinni sem mun bjóða upp á sjónvarpsstreymiapp og leikjastreymispilun, og kemur vonandi út innan 12 mánaða. Fortnite er loksins hægt að spila, en í gegnum Xbox cloud gaming (sem er ekki í boði á Islan...
May 10, 2022•1 hr 28 min
Í níunda þætti er rætt við Ómar Má Jónsson oddvita Miðflokksins. Með orðum oddvitanna eru viðtalsþættir þar sem efsti frambjóðandi hvers lista í Reykjavík er tekinn tali. Þættirnir verða alls ellefu.
May 10, 2022•46 min
Í áttunda þætti er rætt við Sönnu Magdalenu Mörtudóttur oddvita Sósíalistaflokksins. Með orðum oddvitanna eru viðtalsþættir þar sem efsti frambjóðandi hvers lista í Reykjavík er tekinn tali. Þættirnir verða alls ellefu.
May 09, 2022•29 min
Gestur vikunnar er Íris Ellenberger, dósent á menntavísindasviði Háskóla Íslands. Íris lauk doktorsprófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands árið 2013 en í ritgerð sinni beindi hún sjónum að samfélagslegri stöðu danskra innflytjenda á Íslandi 1900-1970 og þá sérstaklega hvernig staða þeirra breytist með sjálfsstæðisbaráttu Íslendinga. Hún hefur einnig skoðað hinsegin sagnfræði á Íslandi og meðal annars skoðað sögu félagsins Íslensk-lesbíska og hinsegir ástir kennslukvenna um 1900. Þær Sigrún spjalla...
May 09, 2022•1 hr 1 min
Í sjöunda þætti er rætt við Dag B. Eggertsson oddvita Samfylkingarinnar. Með orðum oddvitanna eru viðtalsþættir þar sem efsti frambjóðandi hvers lista í Reykjavík er tekinn tali. Þættirnir verða alls ellefu.
May 09, 2022•37 min
Í sjötta þætti er rætt við Hildi Björnsdóttur oddvita Sjálfstæðisflokksins. Með orðum oddvitanna eru viðtalsþættir þar sem efsti frambjóðandi hvers lista í Reykjavík er tekinn tali. Þættirnir verða alls ellefu.
May 08, 2022•31 min
Í fimmta þætti er rætt við Einar Þorsteinsson oddvita Framsóknarflokksins. Með orðum oddvitanna eru viðtalsþættir þar sem efsti frambjóðandi hvers lista í Reykjavík er tekinn tali. Þættirnir verða alls ellefu.
May 08, 2022•33 min