Í fjórða þætti er rætt við Kolbrúnu Baldursdóttur oddvita Flokks fólksins. Með orðum oddvitanna eru viðtalsþættir þar sem efsti frambjóðandi hvers lista í Reykjavík er tekinn tali. Þættirnir verða alls ellefu.
May 07, 2022•45 min
Í þriðja þætti er rætt við Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur oddvita Viðreisnar. Með orðum oddvitanna eru viðtalsþættir þar sem efsti frambjóðandi hvers lista í Reykjavík er tekinn tali. Þættirnir verða alls ellefu.
May 07, 2022•37 min
Í öðrum þætti er rætt við Gunnar H. Gunnarsson oddvita framboðsins Reykjavík - Besta borgin. Með orðum oddvitanna eru viðtalsþættir þar sem efsti frambjóðandi hvers lista í Reykjavík er tekinn tali. Þættirnir verða alls ellefu.
May 06, 2022•37 min
Oddvitar þeirra ellefu framboðslista sem verða á kjörseðlinum í borgarstjórnarkosningum í Reykjavík 14. maí sitja fyrir svörum og skýra út stefnumálin í hlaðvarpi Kjarnans. Með orðum oddvitanna eru viðtalsþættir þar sem efsti frambjóðandi hvers lista er tekinn tali. Í þættinum er rætt við Líf Magneudóttur oddvita Vinstri grænna í Reykjavík. Spyrill er Eyrún Magnúsdóttir.
May 06, 2022•26 min
ESB ætlar að gera það sem er ólöglegt í raunheimum einnig ólöglegt á netinu. Ríkið býður út tvo ljósleiðaraþræði í Nato-strengnum. Elon Musk klárar að fjármagna kaup á Twitter og mun að öllum líkindum eignast fyrirtækið innan skamms. Twitter oftaldi notendur í þrjú ár, en fattaði það sjálft og leiðrétti á uppgjörsfundi. Snap býr til drónamyndavél með tveimur linsum. Apple átti frábæran fjórðung og Mac-vörulínunni gengur mjög vel. ESB vill að Apple opni aðgang að NFC eiginleikum iPhone svo aðrar ...
Apr 29, 2022•1 hr 6 min
Þetta sinn hefur bókin Shanhai Jing 山海經 eða Bók láðs og laga orðið fyrir valinu til umfjöllunar. Þessi er afskaplega skrítin, sennilega leitun að jafn furðulegri bók. Hún er uppfull af upptalningum á fjöllum og ám, og flóru og fánu fjarlægra landa, en allt er það lygasögu líkast og harla ævintýralegt. Dýrin í upptalningunni eru gjarnan samansett úr líkamshlutum þekktra dýra, eðlur með vængi, tígrar með fuglsklær og einnig oft með mannshöfuð eða ásjónu. Jurtirnar og tréin hafa einatt ýmsa yfirnát...
Apr 28, 2022•29 min
Í þessum þætti er rætt við Eyrúnu Eyþórsdóttur mannfræðing og lögreglufræðing um rannsóknir hennar og störf og ýmis mál sem komið hafa upp nýlega á Íslandi þar sem rasísk ummæli og atferli hefur verið ofarlega á baugi upp á síðkastið og vakið mikla opinbera athygli og gremju. Tengt þessu hafa meginrannsóknaráherslur Eyrúnar verið hlutverk löggæslu í fjölbreyttu samfélagi og hvernig lögreglan þarf að laga sig að síbreytilegum aðstæðum í íslensku samfélagi. Þetta tengist m.a. rannsóknum á hatursor...
Apr 27, 2022•1 hr 20 min
Nýtt íslenskt bílatryggingarfélag lítur dagsins ljós: Verna. Félagið ætlar að nýta sér snjalltæki til að lækka ábyrgðir. Steam Deck dokkan er ekki einu sinni komin út en það er búið að uppfæra hana. Playdate leikjatölvan er komin út og það rigna inn umfjallanir. Verður þetta fimmtándi vettvangurinn sem Gulli kaupir sér GTA5? Magsafe rafhlaðan fær uppfærslu og hleður nú hraðar! Homepod hátalarar hækka í verði eftir að framleiðslu var hætt. Netflix áskrifendur fækkar í fyrsta sinn og það er komin ...
Apr 26, 2022•1 hr 27 min
Berglind Hólm Ragnarsdóttir, lektor í félagsfræði við Háskólann á Akureyri (HA), fer fyrir rannsóknarhópi sem rannsakar um þessar mundir stöðu láglaunakvenna á Íslandi. Verkefnið ber yfirskriftina „Working Class Women, Well-being and the Welfare State: New Evidence from the Icelandic Context“ sem útleggst á íslensku sem „Láglaunakonur, vellíðan og velferðarkerfið í íslensku samhengi.“ Með Berglindi í rannsóknarhópnum eru þær Andrea Hjálmsdóttir, lektor við HA, Bergljót Þrastardóttir, lektor við ...
Apr 25, 2022•43 min
Dagrún Ósk Jónsdóttir mun í byrjun júní verja doktorsritgerð sína í þjóðfræði sem nefnist Í viðjum hefðarinnar: Konur og kvenleiki í íslenskum þjóðsögum. Af því tilefni er þátturinn með óhefðbundnu sniði. Dagrún Ósk sest í sæti viðmælenda og Vilhelmína ræðir við hana um rannsóknina. Í þættinum segir Dagrún frá rannsókninni en hún vann með og greindi sagnir í íslenskum þjóðsagnasöfnum frá 19. og 20. öld. Dagrún beinir sjónum sínum sérstaklega að óhlýðni, uppreisn og andófi kvenna og ofbeldi gagnv...
Apr 19, 2022•50 min
Gestur vikunnar er Hjálmar Gunnar Sigmarsson. Hjálmar er fæddur 1970 í Reykjavík en ólst upp að miklu leyti í Hong Kong og Lúxemborg en hefur auk þess búið í San Fransisco, Miami, Sarajevó, Utrecht, stundað nám í Budapest og Granada og unnið fyrir UNIFEM í Bosníu. Hjálmar lauk BA gráðu í heimspeki við Háskóla Íslands áður en hann fór í meistaranám í mannfræði við sama skóla. Í mannfræðinámi sínu skrifaði hann um vinnusemi Íslendinga undir leiðsögn dr. Unnar Dísar Skaptadóttur. Seinna kláraði han...
Apr 13, 2022•1 hr 2 min
Í þættinum ræða Dagrún og Vilhelmína við Önnu Sigríði Melsteð sem lauk grunnnámi í þjóðfræði árið 2021 og stundar nú framhaldsnám í þjóðfræði. Anna Sigríður er búsett í Stykkishólmi og hefur stundað námið í fjarnámi og samhliða vinnu. Anna Sigríður segir frá áhugaverðri BA-rannsókn sinni. Þar gerði hún heimabæ sinn, Stykkishólm, að viðfangsefni. Stykkishólmur er þekktur fyrir gömul og vel við haldin timburhús en nýjum húsum hefur einnig verið bætt við bæjarmyndina og stundum greina áhorfendur ek...
Apr 12, 2022•47 min
AtNorth lýsir yfir vilja til að byggja upp gagnaver rétt fyrir utan Akureyri. NFT grúppa hakkar Bjarta Framtíð á Twitter og dælir út auglýsingum. Buzz býður upp á að kveða burt hleðslukvíða með leigu-rafhlöðum fyrir snjallsíma á vel völdum börum. Elon Musk kaupir stóran hlut í Twitter og hvað þýðir það? Twitter íhugar að bjóða upp á edit-takka. Það kemur út nýr Monkey Island tölvuleikur í ár, en sá síðasti kom út árið 2011. Netflix bætir við nýjum flokki eftir hugmynd Pete Davidson: short ass mo...
Apr 08, 2022•1 hr 4 min
Að þessu sinni fengum við í spjall Andra Stefánsson aðalfararstjóra íslenska hópsins á nýafstöðnum vetrarólympíuleikum í Peking. Hann fjallaði um ólympíuleikana út frá ýmsum hliðum sem voru auðvitað mjög sérstakir á covid-tímum. Andri var einnig fararstjóri á sumarólympíuleikunum í Peking 2008 og var gaman að heyra hann bera saman þessa tvo risa viðburði sem haldnir voru í sömu borg með 14 ára millibili.
Apr 06, 2022•44 min
Í þættinum ræða Dagrún og Vilhelmína við Ólöfu Breiðfjörð þjóð- og safnafræðing sem starfar sem menningarfulltrúi Garðabæjar. Í þættinum segir Ólöf frá námsferlinum og starfsferlinum. Ólöf var orðin 37 ára þegar hún ákvað að fara í nám. Hún vildi að námið væri skemmtilegt en jafnframt hagnýtt. Í þættinum segir Ólöf frá grunnnámi sínu í þjóðfræði þar sem hún meðal annars skrifaði áhugaverða BA-ritgerð um hjálækningar óperusöngvara. Hún deilir líka með okkur nokkrum góðum ráðum sem hún rakst á við...
Apr 05, 2022•41 min
Við erum með sneisafullan þátt af tæknifréttum og kaupákvörðunum Atla. Auðkenni hefur verið keypt af ríkinu. Fyrirtæki býr til gervitónlistarfólk inn á Spotify til að græða peninga. Klapp-lausnin frá Strætó er í tómu tjóni, eða hvað? Atli fjallar einnig um Studio Display sem hann skoðaði í verslun Macland Kringlunni. Þessi þáttur er í boði Macland sem selja tækin sem við elskum. Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir.
Apr 04, 2022•1 hr 43 min
Árið 1221 eftir misheppnaða tilraun til að endurheimta völd keisaraættarinnar var keisarinn fyrrverandi Go-Toba sendur í útlegð til Oki-eyja. Í þessum þætti verður fjallað um hann og tvo aðra rammgöldrótta útlaga sem geymdir voru þar og mörkuðu djúp spor í söguna. Einnig í þættinum eru bútar úr kvikmyndinni Jigokumon frá 1953, Meiji-smellurinn Toba no koizuka, og langsótt líking við Disney-myndina Ljónakonunginn.
Mar 31, 2022•54 min
Vegna þessa hörmulegra stríðs sem nú geisar í Úkraínu hafa samskipti Kína og Rússlands verið til umræðu að undanförnu. Þegar Pútin Rússlandsforseti hitti Xi Jinping forseta Kína í Peking rétt fyrir vetrarólympíuleikana í febrúar síðastliðnum urðu forsetarnir sammála um að engin takmörk væru á tengslum landanna – hvað sem það svo sem þýðir. En hafa samskipti þessara miklu grannþjóða alltaf verið svona takmarkalaus eða alltaf á vinarlegum nótum? Við skulum skoða aðeins samskipti þeirra í sögulegu ...
Mar 31, 2022•25 min
Í þessum þætti er rætt við Önnu Wojtynska, pólskættaðan mannfræðing, um rannsóknir hennar á farandfólki og innflytjendum í staðbundnu og hnattrænu samhengi. Þessar rannsóknir fjalla einkum um sögu, stöðu og þróun samfélags Pólverja á Íslandi og þær breytingar sem það hefur gegnið í gegnum. Rannsóknir Önnu hafa að miklu leyti fjallað um tengsl pólskra innflytjenda við íslenskan vinnumarkað, sem og hvernig þeim hefur gengið að setjast að í íslensku þjóðfélagi. Þar er komið inná aðlögun/samlögun, h...
Mar 30, 2022•1 hr 26 min
Í þættinum ræðir Vilhlemína við Jón Jónsson þjóðfræðing og verkefnisstjóra hjá Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Ströndum – þjóðfræðistofu. Í desember á síðasta ári kom út bókin Álagablettir á Ströndum. Höfundar eru feðginin Jón og Dagrún Ósk Jónsdóttir og er útgáfan samstarf milli Rannsóknasetursins og Sauðfjárseturs á Ströndum. Bókin er ríkulega myndskreytt en Jón og Dagrún gengu á alla þá staði sem fjallað er um í bókinni og mynduðu álagabletti. Þau ræddu einnig við heimafólk og staðkunnuga og...
Mar 29, 2022•41 min
Greta Karen Friðriksdóttir lauk nýlega meistaraprófi í þjóðfræði. Meistararitgerð hennar nefnist „Ef ég hlæ ekki að þessu þá mun ég gráta og ég get ekki grátið svona oft” og fjallar um hvernig fólk sem starfar í návígi við dauðann notar húmor sem bjargráð. Í þættinum segir Greta frá rannsókninni. Hún tók viðtöl við fólk úr ýmsum starfsstéttum, eins og hjúkrunarfræðinga, lögreglufólk, presta, sjúkraliða og starfsfólk kirkjugarða, sem starfar í miklu návígi við dauðann og þarf að mæta fólki við vi...
Mar 22, 2022•36 min
Gestur vikunnar er Jón Ingvar Kjaran, prófessor við deild menntunnar- og margbreytileika á menntavísindasviði Háskóla Íslands. Rannsóknir Jón Ingvars eru á sviðum kynjafræði, hinsegin fræða og réttindum samkynhneigðra, en hann beitir þverfaglegu sjónarhorni í sínum rannsóknum en leitar oft í smiðju félagsfræðinnar. Þau Sigrún ræða rannsóknir hans sem að tengjast meðal annars upplifun hinsegin nemenda í íslenska skólakerfinu og ofbeldi, bæði út frá reynslu þolenda og gerenda. Að auki ræða þau ran...
Mar 21, 2022•55 min
Þann fimmta mars síðastliðinn sprakk dularfullur steinn í þjóðgarði í Norður-Japan. Talið er að síðan á tólftu öld hafi þessi baneitraði steinn hýst illan anda sem nú leikur lausum hala. Í þessum þætti könnum við goðsöguna um Tamamo no Mae og kynnumst um leið japanska refinum, og hvers vegna við ættum öll að óttast hann.
Mar 17, 2022•1 hr 2 min
Gestur vikunnar í mannfræðihlaðvarpinu Raddir Margbreytileikans er Stephanie Matti. Stephanie var fædd árið 1986 í Sviss en ólst upp í Nýju Suður Wales í Ástralíu. Hún kennir verkefnaáætlanir, eftirfylgni og úttektir við HÍ en hefur einnig haldið fyrirlestra um hættuástand, hörmungar og mannúðarviðbrögð. Hún er doktorsnemi við mannfræðideild HÍ þar sem hún er að rannsaka stóra sprungu fyrir ofan Svínafellsjökul og viðbrögð heimamanna við henni. Leiðbeinandi hennar er Helga Ögmundardóttir. Steph ...
Mar 16, 2022•51 min
Eva Þórdís Ebenezersdóttir er doktorsnemi í þjóðfræði við Háskóla Íslands. Rannsókn hennar er hluti af stóru þverfaglegu verkefni innan háskólans sem ber yfirskriftina Fötlun fyrir tíma fötlunar (Disability before disability). Nýlega kom út bókin Understanding Disability throughout History: Interdisciplinary Perspectives in Iceland from Settlement to 1936, sem er hluti af framangreindu rannsóknarverkefni. Í bókina skrifar Eva Þórdís kafla, ásamt Sólveigu Ólafsdóttur sagnfræðingi, um Sigríði Bene...
Mar 15, 2022•53 min
Gestur vikunnar er Finnborg Salóme Steinþórsdóttir, nýdoktor í kynjafræði við Háskóla Íslands. Finnborg lauk B.A. gráðu í félagsfræði frá Háskóla Íslands og síðan M.A og doktorsgráðu í kynjafræði frá sömu stofnun. Í doktorsverkefninu sínu beindi Finnborg sjónum að kynjuðum fjármálum sem felst í því að skoða hvernig peningum er veitt (eða ekki veitt) á kynjaðan hátt og beindi hún sjónum að háskólaumhverfinu á Íslandi. Rannsóknir hennar sýna að fjármunum er með kerfisbundnum hætti beint til greina...
Mar 14, 2022•48 min
Tæknivarpið rennir yfir það besta úr kynningu Apple sem fór fram í vikunni og til þess fáum við draumaliðið í settið. Pétur Jónsson og Hörður Ágústsson mæta og segja okkur sannleikann um ný tæki frá Apple. Apple kynnti nýja liti fyrir iPhone 13 og 13 Pro, iPhone SE símann, iPad Air spjaldtölvuna, M1 Ultra örgjörvann, Mac Studio borðtölvuna og Studio Display skjáinn. Þessi þáttur er í boði Macland sem mun selja þessi tæki strax og það getur! Stjórnendur eru Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir.
Mar 11, 2022•1 hr 23 min
Viðtal vikunnar er við Þorkel Ólaf Árnason frumkvöðul. Hann hefur ýmsa fjöruna sopið í Kína og komið víða við þegar kemur að viðskiptum við Kína. Meðal annars má nefna kínverskar greiðslumiðlunarlausnir fyrir snjallsíma til að auðvelda kínverskum ferðamönnum að versla á Íslandi. Þorkell er auk þess formaður Kínversk íslenska menningarfélagsins (KÍM). Ræddum við um starfsemi félagsins sem á sér merka sögu og er mikilvægur hlekkur í menningarsamskiptum Íslands og Kína.
Mar 10, 2022•42 min
Certís netöryggissveit Fjarskiptastofu sendir frá sér viðvörun vegna stríðsrekstri Rússa í Úkraínu og biður íslenskt fyrirtæki um að herða ólina. Krónan er að prufukeyra beta útgáfu af vefverslun, en fram að þessu hefur Krónan einungis boðið upp á app. Tesla Model Y keyrði í poll og dó rafhlaðan skömmu síðar. Þola Tesla bílar ekki erfiðar aðstæður hér á Íslandi? Gulli keypti sér töfratæki sem hefur umbylt heimili hans: rafmagnsskæri. Rivian rafbílasprotinn hækkar verð ógætilega og ýtir þeim að f...
Mar 09, 2022•57 min
Í febrúar opnaði sýningin Sund í Hönnunarsafni Íslands í Garðabæ. Sýningarstjórar eru þau Brynhildur Pálsdóttir hönnuður og Valdimar Tr. Hafstein prófessor í þjóðfræði. Í þættinum ræðir Vilhelmína við Valdimar um sýninguna og þær umfangsmiklu rannsóknir þjóðfræðinga og fleiri sérfræðinga sem búa að baki sýningunni. Í sundlaugum landsins eru engir viðskiptavinir, aðeins sundlaugargestir. Þar kemur saman fólk á öllum aldri, með fjölbreyttan bakgrunn og alls konar líkama á sundfötum. Valdimar segir...
Mar 08, 2022•44 min