Hlaðvarp Heimildarinnar - podcast cover

Hlaðvarp Heimildarinnar

Heimildinheimildin.is
Í hlaðvarpi Heimildarinnar, áður Kjarnans, má finna fjölbreytta þætti um allt frá pólitík til heiðarlegs skyndibita eða nýjustu græjunnar.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Samtal við samfélagið – Hvað er skaðaminnkun?

Í hlaðvarpi vikunnar spjallar Sigrún við Svölu Ragnheiðar Jóhannesardóttur, sérfræðing í Skaðaminnkun. Svala er með BA-próf í félagsfræði frá Háskóla Íslands og starfar í dag sem sérfræðingur hjá Heilshugar sem er batamiðað rými með skaðaminnkandi áherslum. Þar býður Svala meðal annars upp á einstaklingmeðferð fyrir fólk sem glímir við vímuefnavanda, skaðaminnkandi ráðgjöf fyrir fólk á öllum stigum vímuefnarófsins og fræðslu og námskeið fyrir starfsfólk og almenning. Hún hefur starfað með fólki ...

Mar 07, 20221 hr 7 min

Í austurvegi – Siðstjórnarhyggja heimspekingsins Xunzi

Af konfúsískum heimspekingum fornaldar eru þrír taldir mestir. Þar ber hæst að sjálfsögðu Konfúsíus sjálfur sem lifði á öndverðum Vor og Haust tíma eða ca. 551–479 f.kr., næstur fer Mensíus sem uppi var hartnær 2 öldum síðar eða 372–289 f.kr. Xunzi er kallaður sá sem rekur lestina. Nafnið Xunzi er líkt og Kongzi (þ.e. Konfúsíus), Laozi, Zhuangzi og mörg fleiri, ættarnafn með viðskeitinu zi sem þýðir meistari eða eitthvað á þann veg. Xunzi hafði eiginnafnið Kuang og er því einnig réttilega kallað...

Mar 02, 202234 min

Þjóðhættir - Galdrabrennur, lækningajurtir, þjóðfræði og ritstörf

Doktor Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir hefur komið víða við í gegnum tíðina. Lengi vel kenndi hún þjóðfræði í Háskóla Íslands og í ritstörfum sínum hefur hún fengist við þjóðfræðilegt efni. Ólína hefur meðal annars gefið út bækur um galdra, lækningajurtir og nú síðast bókina Ilmreyr. Í þættinum ræðir Dagrún Ósk við Ólínu um þjóðfræði og ritstörfin. Ólína hefur rannsakað brennuöldina á Íslandi, galdra og galdratrú. Í rannsókninni studdist Ólína bæði við dómsskjöl og þjóðsögur og segir hún frá hvern...

Mar 01, 202238 min

Samtal við Samfélagið – Staða og mikilvægi fjölmiðla í nútímasamfélagi

Í fyrsta þætti ársins fær Sigrún til sín Jón Gunnar Ólafsson, nýdoktor í fjölmiðlafræði við Háskóla Íslands. Jón Gunnar lauk doktorsprófi í fjölmiðlafræði frá Goldsmiths háskólanum í London árið 2019 en megináherslur hans voru stjórnmál, fjölmiðlar og samfélagsmiðlar. Hann segir Sigrúnu frá doktorsverkefninu sínu en þar skoðaði hann samskipti fjölmiðlafólks og stjórnmálafólks á Íslandi, meðal annars hvernig þau fara fram í gegnum samskiptamiðla og hvernig smæð Íslands mótar samskiptin. Þau ræða ...

Feb 28, 202259 min

Tæknivarpið - Ekkert bólar á HBO Max á Íslandi

HBO Max var að bæta við fimmtán Evrópulöndum en Ísland er því miður ekki eitt þeirra sem eru sorgarfréttir. Það þarf greinilega að hitna enn frekar í streymistríðinu til þess.. Riot Games ætlar að halda risastórt rafíþróttamót á árinu og verður keppt í Valorant (sem er samruni Overwatch og Counter-Strike). Windows 11 er komið með nýja verkefnastiku sem hentar betur spjaldtölvum, en enginn af okkur er kominn á Windows 11. Talið er að næsta útgáfa af örgjörvum Apple verði M2 og fari í alla vega fj...

Feb 25, 20221 hr 7 min

Í austurvegi - Markaðssetning íslenskrar ferðaþjónustu í Kína

Að þessu sinni fengum við Ársæl Harðarson í spjall en hann er svæðisstjóri yfir fjarmörkuðum hjá Icelandair og hefur lengi komið að markaðsetningu íslenskrar ferðaþjónustu í Kína. Við ræddum um kínverska ferðamarkaðinn og starfsemi Icelandair í Kína sem og framtíðina, m.a. hugsanlegt beint flug til Kína. Í lok viðtalsins fór Ársæll yfir starfsemi Íslensk-kínverska viðskiptaráðsins en Ársæll er fyrrverandi formaður þess og núverandi varaformaður.

Feb 24, 202251 min

Raddir margbreytileikans – 18. þáttur: Heimurinn, geimurinn og dauðinn: mannfræði á skjánum.

Að þessu sinni heyrum við í sjónræna mannfræðingnum og heimildarmyndagerðamanninum Jóni Bjarka Magnússyni. Jón Bjarki segir okkur frá sinni sýn á mannfræðina og ferlinu á bakvið tvær heimildarmyndir sínar, annars vegar Even Asteroids Are Not Alone sem hlaut stuttmyndaverðlaun hinnar konunglegu mannfræðistofnunarinnar í Bretlandi (RAI) árið 2019 og hinsvegar Hálfur Álfur sem m.a. hlaut dómnefndarverðlaun Skjaldborgarhátíðarinnar 2020. Jón Bjarki er fæddur 1984 á Siglufirði og uppalinn þar. Hann n...

Feb 22, 202252 min

Tæknivarpið - TVíK kennir íslensku og Indó fær leyfi

TVíK hreppti víst fyrsta sætið í Gullegginu með spjallmenni sem kennir þér íslensku á nýjum stað á lærdómskúrvunni. Fjarskiptastofa setur fram áætlun um að hætta nota 2G og 3G senda í farsímanetum landsins. Indó fær starfsleyfi en hvað er Indó? Spotify heldur áfram að kaupa fyrirtæki tengd hlaðvörpum og Joe Rogan málið heldur áfram. Þessi þáttur er í boði Macland sem er með fullt af Konudagstilboðum 👩👩👩 Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir.

Feb 20, 202258 min

Tæknivarpið – Samsung Galaxy S22 og Meta hrynur í verði

Sigurvegari Gulleggsins þetta skiptið er app fyrir þolendur ofbeldis sem geta haldið utan um sögu þess. Appið heitir Lilja og er nú verið að sækjast eftir fjármagni til að koma því í gagnið. Óvinsæli vafrinn Microsoft Edge býður nú upp á íslenskan talgervil sem getur lesið upp texta af vefsíðum. Smáforritið heitir Guðrún (Gudrun) og er í boði núna. Icelandic Gaming Industry spáir því að störf hjá öðrum í CCP í bransanum nái loks meirihluta á næsta ári. Samsung hélt Galaxy Unpacked kynningu í vik...

Feb 14, 20221 hr 5 min

Í austurvegi – Sagan um Múlan

Sagan um Múlan er ein sú þekktasta sem komið hefur frá Kína. Margar kvikmyndir og sjónvarpsþættir hafa verið framleiddir út frá sögunni og hefur hún verið vinsæl meðal fólks í mörg hundruð ár. Í hlaðvarpsþætti vikunnar rennum við yfir ljóðið gamla sem inniheldur söguna um stríðshetjuna Múlan og ræðum menningarleg áhrif þess. Pistill: Þorgerður Anna Björnsdóttir

Feb 09, 202227 min

Raddir margbreytileikans – 17. þáttur: „Allt fólk á sér áhugaverða sögu að segja“

Í þessum þætti er spjallað við Unni Dís Skaptadóttur, prófessor í mannfræði við HÍ, um yfirstandandi rannsókn hennar og Önnu Wojtynska og Pamelu Innes um gagnkvæm viðhorf og samskipti innflytjenda og heimafólks á mismunandi stöðum á Íslandi. Um er að ræða víðtæka og umfangsmikla langtíma vettvangsrannsókn þar sem farið er djúpt í samskipti og samlíf ólíkra hópa á ólíkum stöðum á landinu. Þetta spjall fjallar að miklu leyti um það að stunda vettvangsrannsókn – þó svo kórónuveiran hafi blandað sér...

Feb 08, 20221 hr 5 min

Tæknivarpið – Spotify í klandri vegna Joe Rogan

Íslenskir menntasprotar vekja athygli vestanhafs en íslensku fyrirtækin Beedle og Mussila eru komin í hóp 200 efnilegustu sprota í menntatækni í heiminum. Spotify er í klandri vegna Joe Rogan. Alda Music var selt til Universal Music, sem þýðir að margar íslenskar tónlistarperlur eru nú í eigu erlendra aðila. Intel kynnir Alder Lake örgjörva, sem hefur stundum betur en M1 Max örgjörvi Apple, en með smá fyrirvara. Svo keypti Gulli sér svo síma á Bland. Þessi þáttur er í boði Macland og Elko sem se...

Feb 04, 20221 hr 22 min

Í austurvegi – Hanar ræða ár uxans á nýju ári tígursins

Nú er ár tígursins gengið í garð og því ber að fagna. Í hlaðvarpsþætti vikunnar ræða félagarnir þeir Magnús og Daníel um hvað stóð upp úr á seinasta ári. Hanarnir tveir kafa ofan í gamla þætti, fleytt verður ofan af rjómanum og ræða þeir hinar ýmsu uppákomur sem áttu sér stað á liðnu ári uxans. Gleðilega vorhátíð! 新春快乐!

Feb 03, 20221 hr 13 min

Í austurvegi – Breytingaritningin, yin og yang og undirstaða kínverskrar heimspeki

Breytingaritningin á sér rætur aftur í gráa forneskju og á sér sögu sem er nánast jafnlöng sögu kínaveldis sjálfs. Hún hefur verið svo stór hluti af kínverskri menningu í vel yfir 2000 ár að saga ritningarinnar og saga Kínaveldis eru samtvinnuð. Í tímans rás hafa flestir kínverskir andans menn haft eitthvað um hana að segja og skrifað um hana ritskýringar og viðbætur.

Jan 28, 202237 min

Tæknivarpið – Persónuvernd og tækni

Gleðilegan alþjóðlegan persónuverndardag! Í tilefni dagsins fáum við til okkar hana Vigdísi Evu Líndal frá Persónuvernd til að ræða persónuvernd í tækni. Að því loknu förum við yfir tæknifréttir vikunnar. Er markaðshrun Netflix og Peleton vísir að stærra hruni eða gekk bara aðeins of vel hjá þessum fyrirtækjum? Intel er að reisa 20 milljarða dollara verksmiðjur í Ohio en til hvers? Samsung Unpacked lak eiginlega í heild sinni út og við fáum að sjá alla næstu síma Samsung áður en þeir eru kynntir...

Jan 28, 20221 hr 23 min

Raddir margbreytileikans – 16. þáttur: Áfangastaðir eru hreyfanlegir – eru verðandi félagslegt ferli

Í þessum þætti er rætt við mannfræðingana Gunnar Þór Jóhannesson og Katrínu Önnu Lund um nýútkomna bók þeirra, sem ber titilinn Áfangastaðir. Bókin fjallar um ferðamennsku og áfangastaði út frá marglaga fræðilegum sjónarhornum og byggir einkum á rannsókn þeirra á Galdrasetrinu á Ströndum. Áður hefur verið rætt við þau bæði, í sínu hvoru lagi, í fyrri hlaðvörpum. Gunnar Þór Jóhannesson fæddist 1976 á Blönduósi. Hann er með BA gráðu í mannfræði frá HÍ (1999), MA í mannfræði frá HÍ (2003) og doktor...

Jan 25, 20221 hr 14 min

Raddir margbreytileikans – 16. þáttur: Áfangastaðir eru hreyfanlegir – eru verðandi félagslegt ferli

Í þessum þætti er rætt við mannfræðingana Gunnar Þór Jóhannesson og Katrínu Önnu Lund um nýútkomna bók þeirra, sem ber titilinn Áfangastaðir. Bókin fjallar um ferðamennsku og áfangastaði út frá marglaga fræðilegum sjónarhornum og byggir einkum á rannsókn þeirra á Galdrasetrinu á Ströndum. Áður hefur verið rætt við þau bæði, í sínu hvoru lagi, í fyrri hlaðvörpum. Gunnar Þór Jóhannesson fæddist 1976 á Blönduósi. Hann er með BA gráðu í mannfræði frá HÍ (1999), MA í mannfræði frá HÍ (2003) og doktor...

Jan 25, 20221 hr 14 min

Tæknivarpið – Microsoft kaupir Blizzard og frábær CES

Þá er Tæknivarpið loksins komið í rútínu og við fáum fyrsta fréttaþáttinn. Orion Sentry er eitt fyrsta íslenska Mac-appið sem kemur út í langan tíma en í því er reynt að koma í veg fyrir þjófnað á tölvum. Fjarskiptastofa vinnur í því að gera háhraðanet á þjóðvegum að kröfu. Vivaldi vafrinn er nú í boði á Astro Slide 5G nördasímanum. Það var brotist inn í tölvukerfi Strætó og þau ákváðu að borga ekki lausnargjald fyrir gögnin. CS:GO úrvalsdeild RÍSÍ heitir núna Ljósleiðaradeildinn. CES sýningin v...

Jan 22, 202255 min

Í austurvegi – Kínverska fjárfestinga- og innviðaverkefnið Belti og braut

Viðmælandi þáttarins að þessu sinni er Guðbjörg Ríkey Th. Hauksdóttir doktorsnemi. Guðbjörg Ríkey hefur rannsakað kínverska fjárfestinga- og innviðaverkefnið Belti og braut í gegnum meistaranám sitt og núna doktorsnám. Hún segir okkur sögu þess og um hvað það snýst. Belti og braut er hugtak sem gjarnan er í umræðunni þegar kemur að utanríkisstefnu Kína en þekking á því er lítil sem engin á Íslandi og er viðtalið því kærkomin bragabót á því.

Jan 21, 202241 min

Saga Japans – 47. þáttur: Síðasta Heian-skáldið

Árið 1183 lagði samúræinn Tadanori líf sitt í hættu til að koma ljóðum sínum í réttar hendur. Í miðri orrustu laumaði hann sér yfir víglínur óvinarins svo hann gæti afhent lærimeistara sínum Shunzei allt ljóðasafn sitt. Í þessum þætti ræðum við ævi Shunzei og kynnum til sögunnar son hans Teika sem er mögulega eitt áhrifamesta skáld Japanssögunnar.

Jan 20, 202245 min

Tæknivarpið – Þáttur ársins 2021

Nú er loksins komið að því. Þáttur ársins er mættur, aðeins seinna en vanalega út af sottlu. Þar fer næstum allur hópurinn á bak við Tæknivarpið (og Simon.is) yfir það sem var mest spennandi í nýrri tækni og tækjum á árinu sem var að líða. Flokkarnir eru eftirfarandi: Græja ársins Sími ársins Kaup ársins Leikur ársins Farleikur ársins App/forrit ársins Kvikmynd ársins Sjónvarp ársins Hlaðvarp ársins Vonbrigði ársins Klúður ársins Stærsta tæknifrétt ársins Við þökkum kærlega fyrir innsend svör hl...

Jan 16, 20223 hr 18 min

Í austurvegi – Pu Songling og kínverskar furðusögur

Frægt rit sem heitir Liaozhaizhiyi er eitt stórmerkilegasta furðusagnarit Kína. Safnarinn heitir Pu Songling en hann skrifaði niður í þetta rit hinar ýmsu flökkusögur sem hann heyrði yfir ævina. Ekki er vitað hver er upprunalegur höfundur flestra furðusagnanna enda hafa þær bara flakkað um í þágu afþreyingar og þróast með tímanum þar til þær voru loks skrifaðar niður. Þúsundir kvikmynda og sjónvarpsþátta hafa verið framleiddir út frá kínverskum furðusögum og út um alla Asíu má finna sér útgáfu a...

Jan 12, 202227 min

Raddir margbreytileikans – 15. þáttur: Kóranskólar, COVID-19 og bólusetningarátök

Gestur vikunnar í mannfræðihlaðvarpinu Raddir Margbreytileikans er Geir Gunnlaugsson. Hann er fæddur árið 1951 í Gautaborg í Svíþjóð og lauk námi við læknadeild Háskóla Íslands árið 1978. Hann fluttist svo til Stokkhólms þar sem hann lauk doktorsprófi í barnalæknisfræði árið 1993 og meistaraprófi við lýðheilsufræði árið 1997 í Karolinska háskólanum. Geir hefur gegnt ýmsum störfum en hann var landlæknir á árunum 2010 til 2015, barnalæknir á barnadeild Karolinska Sankt Göran sjúkrahússins, sem í d...

Jan 11, 20221 hr 6 min

Saga Japans – 46. þáttur: Nunnusjóguninn

Nú er komið að fjórða og síðasta hlutanum um ævi nunnusjógunsins. Í þessum þætti mætast tvær stærstu persónur Japans við upphaf Kamakura-tímans, keisarinn Go-Toba og nunnan Hojo Masako í blóðugri baráttu um framtíð Japans.

Jan 07, 202255 min

Saga Japans – Síðasti Heian-prinsinn

Keisaraætt Japans á sér að minnsta kosti 1600 ára sögu, en í aðeins örfá skipti hefur hún farið nærri því að missa stöðu sína endanlega. Það gerðist þegar keisarinn Go-Toba, síðasti prinsinn sem fæddist á Heian-tímanum, gat ekki unað lengur við að vera í skugga sjógunsins og ákvað að taka málin í eigin hendur.

Dec 30, 202155 min

Radíó Efling – Selma & Mummi

Selma Nótt stendur fyrir utan heimili Imbu, konu sem hún þrífur hjá fyrir heimaþjónustu Reykjavíkurborgar, með stórt pottablóm í fanginu. Hún ætlar að freista þess að Imba sjái um blómið því sjálf er hún að flytja úr landi. Selma ólst upp í Tyrklandi við afar erfiðar aðstæður sem á endanum leiddu hana til Íslands í sjálfboðavinnu. Síðan hún flutti hingað, hefur það kostað hana sleitulausa baráttu og vinnu að fá að búa hér og vinna. Nú þegar hún hefur loksins fengið ríkisborgararétt, hefur Selma ...

Dec 22, 202121 min

Tæknivarpið – Log4j öryggisvá með CERT-IS

Tæknivarpið fær til sín Guðmund Arnar Sigmundsson frá CERT-IS netöryggissveit Fjarskiptastofu. Við ræðum öryggisgallann í Log4j og áhrifin af honum. Þessi þáttur er í Elko og Macland 🙏🏼 Stjórnandi er Atli Stefán Yngvason sem er að finna á Twitter sem atliy.

Dec 21, 202139 min

Í austurvegi – Tencent og kínversku tæknirisarnir

Kína er gríðarstórt land með mismunandi svæði, menningarheima og tungumál á hverju strái þar sem samkeppni er gríðarleg vegna mannfjöldans á hverjum stað. Í Bandaríkjunum eru mörg fyrirtæki sem sinna sínum sviðum innan markaðarins eins og Youtube, Facebook, Discord, Instagram, Netflix og Twitter. Af hverju er bara eitt fyrirtæki í Kína sem sinnir öllum þessum hlutverkum og hefur fengið að vaxa ótrautt áfram í öll þessi ár? Tencent er svoleiðis fyrirtæki eða nokkurs konar samblanda af öllu sem hé...

Dec 15, 202128 min

Samtal við samfélagið – Hvernig getum við tryggt réttlát orkuskipti?

Í þessu síðasta hlaðvarpi fyrir jólafrí spjallar Sigrún við Jason Beckfield, prófessor í félagsfræði við Harvard háskólann í Bandaríkjunum og gestaprófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands. Jason hefur lengi sinnt rannsóknum sem tengjast ójöfnuði og í nýjasta rannsóknarverkefninu sínu skoðar hann hvernig ójöfnuður tengist orkuskiptum. Hann er hluti af þverfaglegu rannsóknarteymi sem kallast Roosevelt verkefnið þar sem sjónum er beytt af áhrifum orkuskipta á einstaklinga og samfélög. Þau Sigrún...

Dec 13, 202156 min

Tæknivarpið – Tómir rafbílar teppa umferð ⚡️

Jólin nálgast og því skelltum við í létta umræðu um jólagjafir árins. Lofsöngvar voru sungnir um nýju ljótu tölvuna hans Mosa og brátt kemur Pixel úrið sem mun gera Elmar að hræsnara. Að lokum ræddum við stærsta vandamálið í Noregi um þessar stundir þar sem rafmagnslausir rafbílar virðast vera að teppa allar götur eftir síðasta kuldakast.

Dec 13, 20211 hr 8 min
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android