Hlaðvarp Heimildarinnar - podcast cover

Hlaðvarp Heimildarinnar

Heimildinheimildin.is
Í hlaðvarpi Heimildarinnar, áður Kjarnans, má finna fjölbreytta þætti um allt frá pólitík til heiðarlegs skyndibita eða nýjustu græjunnar.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Í austurvegi – Samskiptasaga Kína og Íslands

Viðmælandi þáttarins að þessu sinni er Þorgerður Anna Björnsdóttir kínverskufræðingur en hún vinnur nú að því að skrifa samskiptasögu Íslands og Kína. Frá því að fyrsti Íslendingurinn sem vitað er um að hafi komið til Kína, með dönsku kaupfari á 18. öld, steig þar á land hafa Íslendingar farið þangað í ýmsum erindagjörðum gegnum tíðina. Margt áhugavert hefur komið upp úr kafinu þegar þessi saga hefur verið skoðuð og leynast þræðir á milli landanna víðar en mann grunar. Í viðtalinu fer Þorgerður ...

Dec 08, 202155 min

Raddir margbreytileikans – „Líkaminn er raunverulegur skynjandi“

Í þessum þætti er rætt við mannfræðinginn Svein Eggertsson um rannsókn hans meðal Kwermin-fólksins á Nýju-Gíneu, rannsóknir á Páskaeyjum og fleira. Meginrannsóknaráherslur Sveins hafa snúið að efnismenningu, mannfræði skynjunar og lista út frá sjónarhóli fyrirbærafræði, sem og samskiptum manna og dýra. Rannsókn Sveins meðal Kwermin fjallaði einkum um þekkingu og skinn, um húð sem þekkingarbera og tjáningu menningarlegra þátta. Sveinn hefur einnig skoðað veggjalist (graffití) út frá mannfræði lis...

Dec 07, 20211 hr 16 min

Þjóðhættir – Bráðum koma blessuð jólin

Í sérstökum jólaþætti bregða Dagrún og Vilhelmína undir sig betri fætinum og ræða við þjóðfræðinga um ýmislegt sem tilheyrir jólunum. Jólabókaflóðið er ómissandi í aðdraganda jóla og segja Dagrún og Vilhelmína frá þjóðfræðingum sem taka þátt í flóðinu í ár með nýjum og spennandi bókum. Þær ræða við Benný Sif Ísleifsdóttir þjóðfræðing og rithöfund sem segir frá nýjustu skáldsögu sinni Djúpinu. Sagan gerist kvennaárið 1975 og segir frá tveimur ungum stúlkum sem ráða sig í sumarvinnu vestur á firði...

Dec 07, 202157 min

Samtal við samfélagið – Á að skylda fólk á eftirlaun?

Í hlaðvarpi vikunnar spjallar Sigrún við Jan Fritz en hún er prófessor í félagsfræði við Háskólann í Cincinatti í Bandaríkjunum og rannsóknarfræðimaður við Setur um félagsfræðilegar rannsóknir við Háskólann í Johannesburg í Suður Afríku. Jan dvaldi hér á landi í haust sem Fulbright styrkþegi þar sem hún beindi sjónum að því hvort það að skylda fólk á eftirlaun á ákveðnum aldri sé mismunun sem byggir á aldri. Jan hefur einnig talað mikið fyrir klínískri félagsfræði en í henni eru kenningar og aðf...

Dec 06, 202158 min

Tæknivarpið – Break frá Fractal 5 og jólagjafir

Fractal 5 gaf út sitt fyrsta app á Slush nýsköpunarhátíðinni í vikunni: Break. Break er samfélagsmiðill sem ætlar að skipuleggja tækisfærishittinga fyrir fólk. Macland opnar nýja verslun í Kringlunni í dag(3.des)! Við rennum yfir jólabækling Elko og rekum augum í fótanuddtækið sem virðist aldrei ætla deyja. Nýja ríkisstjórnin ætlar að opna sína eigin streymisveitu til að miðla íslensku efni geymt hjá Kvikmyndamiðstöðinni. Er það sniðugt eða á bara að upphala þessu á YouTube? SpaceX er víst á lei...

Dec 06, 20211 hr 5 min

Í austurvegi – Fyrsta sendiráð Íslands í Asíu

Viðmælandi okkar að þessu sinni er Hjálmar W. Hannesson fyrrverandi sendiherra og fyrsti sendiherra Íslands með aðsetur í Kína. Hjálmar var fenginn til að koma á fót fyrsta íslenska sendiráðinu í Kína, og raunar allri Asíu, og segir hér frá þessum áhugaverðum tímum í samskiptum landanna og því flugi sem þau fóru á í kjölfarið. Íslenska sendiráðið í Peking hóf starfsemi sína á hótelherbergi á Hilton en átti eftir að marka tímamót í samskiptum landanna. Í viðtalinu fer Hjálmar yfir fyrstu ár sendi...

Dec 01, 202153 min

Þjóðhættir – Að sjá hið ósýnilega og þekkja hið hversdagslega

Bryndís Björgvinsdóttir er þjóðfræðingur, rithöfundur og dósent við hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands. Á ferli sínum hefur hún komið víða við í rannsóknum og ritstörfum og hefur hið yfirnáttúrulega verið henni hugleikið. Í þættinum ræða Dagrún og Vilhelmína við Bryndísi um rannsóknir hennar á álfum og álfabyggðum en hún segir frá því hvernig hún fékk áhuga á álfum í tengslum við náttúruna og umhverfisvernd. Árið 2018 kom út bók hennar, og Svölu Ragnarsdóttur, Krossgötur – álfatrú...

Nov 30, 202143 min

Samtal við samfélagið – Íslenska heilbrigðiskerfið: Áskoranir og framtíðin

Íslenska heilbrigðiskerfið hefur verið í sviðsljósinu undanfarin misseri í skugga COVID-19 heimsfaraldursins, þar sem meðal annars hefur verið rætt um of mikið álag á kerfið, undirmönnun og undirfjármögnun þess og burði kerfisins til að takast á við heimsfaraldur samhliða öðrum áskorunum. Til að ræða stöðu íslenska heilbrigðiskerfisins fékk Sigrún til sín Rúnar Vilhjálmsson, professor í félagsfræði við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands en hann er einn helsti sérfræðingur landsins í heilbrigðis...

Nov 29, 20211 hr 8 min

Tæknivarpið – Rafræn skilríki fyrir klám

Á dögunum fór hátt í fjölmiðlum umræða um klámnotkun barna og hvort hægt væri að krefjast innskráningar með rafrænum skilríkjum til að skoða klám. Um þetta er fjallað í þætti dagsins og hvort þetta sé raunhæf leið og líkleg til árangurs. Einnig ræddu þáttastjórnendur um sölu innviða fjarskiptafyrirtækja, Svartan fössara í Elko, tískustrauma unga fólksins, Pixel 6a leka og ónothæfa Tesla bíla. Að síðustu var rætt um nýjasta snjalllásinn á heimilum þáttastjórnenda. Þessi þáttur er í boði Elko og M...

Nov 26, 20211 hr 17 min

Í austurvegi – Valdatíð Mansjúa á tímum Qing-keisaraveldisins

Qing keisaraveldið var eitt farsælasta keisaraveldi menningarsögunnar en flest málefni utanríkismála Kína í dag snúast um sögulega atburði og samninga sem voru undirritaðir á tímum Qing. Það þýðir einfaldlega að ef það er sérstaklega eitt keisaraveldi sem gott er að hafa víðtæka þekkingu á, þá er það Qing keisaraveldið.

Nov 25, 202136 min

Raddir margbreytileikans – 13. þáttur: Það er alltaf fólk reiðubúið að hjálpa manni

Í þessum þætti er rætt við mannfræðinginn Kristján Þór Sigurðsson, einn að þáttastjórnendum hlaðvarpsins, um feril hans í mannfræðinni. Kristján segir hlustendum frá ákvörðun sinni að hefja nám í mannfræði, mastersrannsókn hans í Ghana og hvernig það kom til þess að hann byrjaði að rannsaka líf múslíma á Íslandi. Rætt er um fordóma og staðalmyndir og í því samhengi vald orðræðu og ábyrgðarhlutverk fjölmiðla. Kristján Þór Sigurðsson er aðjúnkt í Mannfræði við Háskóla Íslands og kennsla hans hefur...

Nov 24, 20211 hr 10 min

Þjóðhættir – Sorp og saur: Umhverfismál og þjóðfræði

Þjóðfræði fæst við rannsóknir á hversdagsmenningu í fortíð og samtíð og er fátt, ef nokkuð, óviðkomandi. Oftar en ekki eru viðfangsefnin hið daglega líf og þættir þess sem virðast svo hversdagslegir að nær óþarft sé að veita þeim athygli, meðal annars hvernig fólk flokkar rusl og losar sig við úrgang. Slíkar rannsóknir gefa engu að síður mikilvæga vitneskju um hvernig fólk tekst á við líf sitt og geta leitt til lausna sem leiða til aukinnar sjálfbærni og eru betri fyrir umhverfið. Í þættinum ræð...

Nov 23, 202141 min

Samtal við samfélagið – Viðbrögð samfélagsins við kynferðisbrotum

Óhætt er að segja að mikil umræða hafi átt sér stað í samfélaginu í kjölfar tveggja nýlegra Kveiksþátta þar sem rædd voru hugtök eins og þolendaskömm, gerendameðvirkni og slaufunarmenning. Til að skilja betur hvað hvað er átt við með þessum hugtökum og til að setja umræðuna í stærra félagsfræðilegt samhengi fær Sigrún til sín þær Margréti Valdimarsdóttur dósent í lögreglufræðum við Háskólann á Akureyri og Sunnu Símonardóttur nýdoktor og aðjúnkt í félagsfræði við Háskóla Íslands. Þær fara yfir um...

Nov 22, 202154 min

Tæknivarpið – Icelandverse, Tiro talgreinir og Spotify íhugar hljóðbækur

Íslandsstofa sló í gegn með Icelandverse markaðsaðgerðinni í síðustu viku og fór um víðan völl. En hvað fannst Mosa? Tiro er talgreinir sem skilur íslensku og virðist svínvirka. Apple svignar undan þrýstingi og opnar á tól sín fyrir viðgerðir einstaklinga, sem hafa verið fram að þessu einungis í boði fyrir vottuð verkstæði eins og Macland. Youtube ætlar að fela „dislike“-teljarann en heldur áfram að taka á móti þeim og Atli klórar sér bara í hausnum. Spotify fikrar sig í önnur viðskiptatækifæri ...

Nov 19, 20211 hr 18 min

Í austurvegi – Ferðalög og nám í Kína á níunda áratugnum

Viðmælandi vikunnar er Steingrímur Þorbjarnarson kínverskufræðingur. Í þættinum fer Steingrímur yfir áhugaverð námsár sín í Kína á níunda áratug síðustu aldar þegar Kína var að vakna til lífsins. Við spjölluðum jafnframt um kínverskunámið sem tekið var föstum tökum, ferðalög vítt og breitt um Kína sem og margskonar kynni Steingríms af kínversku þjóðinni á áhugaverðum tímum.

Nov 17, 20211 hr 4 min

Þjóðhættir – Alþýðuhefðir og grasalækningar á Íslandi

Í þættinum ræða Dagrún og Vilhelmína við Elsu Ósk Alfreðsdóttur þjóðfræðing. Elsa starfaði um árabil sem kennari við námsbraut í þjóðfræði og kenndi meðal annars námskeið um alþýðulækningar og hátíðir og leiki. Hún hefur alltaf haft brennandi áhuga á þjóðfræði, náttúrunni, jurtum og framandi menningu. Elsa segir frá yfirgripsmikilli rannsókn sinni á grasalækningum á Íslandi. Hún segir frá alþýðuhefðum í tengslum við lækningajurtir og hvernig sú hefð getur fylgt ákveðnum fjölskyldum. Elsa tók við...

Nov 16, 202142 min

Samtal við samfélagið – Löggæsla og samfélagið

Afbrotavarnir vísa til aðferða til að draga úr afbrotum og áhrifum þeirra á samfélagið. Hérlendis vantar heildstæða stefnumörkun stjórnvalda í þessum málaflokki en rannsóknir sýna að ábyrgar afbrotavarnir draga úr afbrotum, auka öryggiskennd íbúa og draga úr samfélagslegum kostnaði. Afbrotavarnir voru þema ráðstefnunnar Löggæsla og samfélagið sem námsbraut í lögreglufræði við Háskólann á Akureyri hélt í fjórða sinn 6. október síðastliðinn. Ráðstefnan er vettvangur þar sem fagfólk og fræðimenn re...

Nov 15, 202148 min

Tæknivarpið – Steam Deck seinkar og Pixel 6 Pro er lentur

Mannvirkjaskrá kemst á netið og verður stafræn. Sýn fer í færsluhirðingu eða posaleigu. Húsasmiðjan bjó til app og er með einhverja útgáfu af „skannað & skundað“. Steam Deck leikjatölvunni hefur verið seinkað sem kemur ekkert sérlega á óvart. Microsoft býr til Chromebook „killer“ til að komast inn í skólastofurnar í Bandaríkjunum. Næstu örgjörvar Apple halda áfram að leka. Elmar fjallar um sín fyrstu viðbrögð við Pixel 6 Pro símanum. Þessi þáttur er í boði Elko, Macland, og Bruggstofunnar + ...

Nov 12, 20211 hr 12 min

Í austurvegi – Ævintýrasagan Vesturferðin og skáldsagnir á tímum Ming

Bókmenntaverkið Vesturferðin 西游记 fjallar um búddamunkinn Xuanzang, hulduverurnar Apakónginn, Svínka og Sveinka og ferð þeirra vestur frá Changan, sem var þá höfuðborg Tang keisaraveldisins alla leið til Indlands til að ná í helgar búddískar sútrur og ferðast með þær aftur til Kína til þess að þýða þær yfir á kínverskt alþýðumál. Enn þann dag í dag eru búnar til hundruð kvikmynda og sjónvarpsþátta út frá sögupersónum verksins og hafa vinsældir þeirra ekkert nema aukist með tímanum.

Nov 10, 202123 min

Raddir margbreytileikans – 12. þáttur: „To boldly go where no one has gone before“

Gestur vikunnar í mannfræðihlaðvarpinu Raddir margbreytileikans er Sveinn Guðmundsson. Sveinn er fæddur í Reykjavík árið 1979. Hann er jafnréttisfulltrúi við HÍ, stundakennari í Mannfræði við HÍ og umboðsmaður doktorsnema. Við spjölluðum við Svein um menningarfyrirbærið Star Trek og aðdáendur þess en hann kenndi sumaráfanga sumarið 2021 um efnið.

Nov 10, 20211 hr

Þjóðhættir – Hver kynslóð verður að uppgötva sagnaarfinn: bókmenntir, galdra og varúlfa

Aðalheiður Guðmundsdóttir er prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda við íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Áður var Aðalheiður dósent við þjóðfræðideild HÍ og kenndi meðal annars kúrsa um ævintýri, galdra og þjóðsagnafræði. Í þættinum ræða Dagrún og Vilhelmína við Aðalheiði um rannsóknir hennar á miðaldabókmenntum og fornaldasögum. Aðalheiður hefur rannsakað hvernig fornaldasagnahefðin birtist í Evrópu og ákveðnar sögur eða sögubrot sjást til dæmis á mynd- og rúnasteinum, í kvæðum...

Nov 09, 202147 min

Samtal við samfélagið – Örverur, menn og sundlaugarmenning: Innsýn frá þjóðfræðinni

Í hlaðvarpi dagsins spjallar Sigrún við Valdimar Hafstein, prófessor í þjóðfræði við Háskóla Íslands. Valdimar hefur komið víða við í rannsóknum sínum og meðal annars skoðað hvernig höfundaréttur verður til, samlíf manna og örvera og sundlaugarmenningu. Hann hefur oft á tíðum beitt óhefðbundnum aðferðum við að koma rannsóknarniðurstöðum á framfæri, meðal annars í formi heimildarmyndarinnar, The Flight of the Condor, þar sem hann skoðaði ferð þjóðlags frá Suður-Ameríku yfir í lag í flutningi þeir...

Nov 08, 202159 min

Tæknivarpið – Facebook verður Meta og Airpods 3

Hopp fær styrk til að fara í útrás, Sýn skilar fínum afgangi, Gagnaveita Reykjavíkur heitir nú Ljósleiðarinn, Facebook fyrirtækið fer í ásýndarbreytingu, Netflix býður nú einnig upp á tölvuleiki, Gulli prófar Surface Laptop Go fartölvuna frá Mowo.is og við fjöllum um fyrstu prófanir Atla og Sverris á Apple Airpods 3. Þessi þáttur af Tæknivarpinu er í boði Elko og Bruggstofunnar Honkítonk BBQ á Snorrabraut. Stjórnendur eru: Atli Stefán, Gunnlaugur Reynir og Sverrir Björgvinsson.

Nov 08, 20211 hr 23 min

Í austurvegi – Viðskipti, nám og ferðalög í Kína

Í vikunni fengum við hann Einar Rúnar Magnússon í viðtal til okkar. Hann hefur viðamikla reynslu af viðskiptum í Kína og lærði áður viðskiptafræði með sérhæfingu í kínverskum markaði og í Asíu.

Nov 03, 20211 hr 4 min

Þjóðhættir – Þjóðhættir fyrr og nú

Frá því um 1960 hefur Þjóðminjasafn Íslands safnað skipulega heimildum um lífshætti á Íslandi með því að semja spurningaskrár og senda út til fólks. Þannig hafa fengist umfangsmiklar heimildir um líf landsmanna í gegnum árin. Í upphafi voru spurningaskrárnar sendar bréfleiðis til heimildarmanna safnsins en í seinni tíð eru þær einnig aðgengilegar á netinu fyrir fólk til að svara. Nú er þjóðháttasafn Þjóðminjasafnsins aðgengilegt á vefnum sarpur.is (https://sarpur.is/Spurningaskrar.aspx?View=smal...

Nov 02, 202139 min

Samtal við samfélagið – Vertu Úlfur og staða geðheilbrigðismála á Íslandi

Gestur vikunnar er Héðinn Unnsteinsson, formaður Geðhjálpar og stefnumótunarsérfræðingur hjá Forsætisráðuneytinu. Hann hefur lagt mikið til umræðu og stefnumótunar í geðheilbrigðismálum undanfarna áratugi og byggir það m.a. á eigin reynslu af geðheilbrigðiskerfinu. Árið 2015 kom út bók Héðinns Vertu Úlfur en hún fjallar um reynslu hans af því að greinast með geðsjúkdóm og ferðalagið í gegnum kerfið og samfélagið almennt. Sú bók var tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2015. Saga hans...

Nov 01, 202154 min

Tæknivarpið – Rafbílavæðing Íslands og framtíð orkuskipta

Við förum yfir tæknifréttir vikunnar og fáum góðan gest í þáttinn til að ræða rafbílavæðingu Íslands, hann Kolbein Marteinsson. Fyrsta íslenska frétt vikunnar er einmitt rafbílafrétt því Tesla opnaði í vikunni ofurhleðslustöðvar á Akureyri. HR var hakkað og krefst óprúttinn aðili lausnargjalds fyrir gögn sem hann heldur í gíslingu. En ætlar HR að borga lausnargjaldið? Þagnarbindi tækniumfjallara rofnuðu og fyrstu umsagnir Macbook Pro fartölva og Airpods 3 fylltu Youtube strauminn hans Atla. Macb...

Oct 29, 20211 hr 24 min

Í austurvegi – Búddamunkurinn sem varð að keisara

明 keisaraveldið var veldi sem reis upp úr rústum mongólska heimsveldisins en um stutta stund hafði Kína verið undir stjórn mongólskra yfirráða úr norðri. 元 keisaraveldið svokallað var gríðarstórt og náði alveg frá Kóreu til Póllands um skeið og eftir hnignum þess margbrotna veldis áttu hinir ýmsu herforingjar í stríði sín á milli. Undir lokin stóð ein herdeild eftir og setti á fót 明 keisaraveldið með höfuðborg sína í Nanking borg. Leiðtogi þess hét Zhu Yuanzhang og hóf feril sinn sem bláfátækur ...

Oct 28, 202127 min

Raddir margbreytileikans – 11. þáttur: „Leið inn í heim iðandi ofurlífveru“

Í þessum þætti er rætt við Sigurjón Baldur Hafsteinsson, mannfræðing og safnafræðing um rannsókn hans á sjónvarpstöð frumbyggja í Kanada, pælingar varðandi dauða og sorg, og um undralífheima torfhúsa. Sigurjón Baldur Hafsteinsson lauk BA prófi mannfræði frá HÍ, MA gráðu í mannfræði frá Temple háskólanum í Fíladelfíuborg í USA, og doktorsprófi í mannfræði frá sömu stofnun. Megin viðfangsefni Sigurjóns Baldurs eru sjónrænir miðlar, dauði og sorg, og safnastarf. Raddir marg­breyt­i­­­­leik­ans er m...

Oct 26, 20211 hr 29 min

Þjóðhættir – Gamla höfnin í Reykjavík, örverur, kombucha og súrdeig

Hvað eiga gamla höfnin í Reykjavík, kombucha, súrdeig og örverur sameiginlegt? Jú, þetta eru allt viðfangsefni sama þjóðfræðingsins. Í þættinum ræða Dagrún og Vilhelmína við Áka Guðna Karlsson doktorsnema í þjóðfræði og verkefnisstjóra. Áki segir frá nýlegri rannsókn sinni á gömlu höfninni í Reykjavík. Á undanförnum árum hafa orðið gríðarlegar breytingar og uppbygging á höfninni, allt frá Hörpu tónlistarhúsi og út á Granda. Áki segir frá efnismenningu hafnarinnar, hvernig lesa má breytingar í um...

Oct 26, 202147 min
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android