Hlaðvarp Heimildarinnar - podcast cover

Hlaðvarp Heimildarinnar

Heimildinheimildin.is
Í hlaðvarpi Heimildarinnar, áður Kjarnans, má finna fjölbreytta þætti um allt frá pólitík til heiðarlegs skyndibita eða nýjustu græjunnar.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Samtal við samfélagið – Staða ungs fólks á Íslandi

Gestur vikunnar er Ársæll Már Arnarson, prófessor við Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Ársæll hefur stundað rannsóknir á ungu fólki, meðal annars varðandi heilsu þeirra og líðan, einelti og útiveru. Hann stýrir tveimur stórum alþjóðlegum rannsóknum sem beina sjónum að ungu fólki, annars vegar European School Survey Project on Alcohol and Other Drugs (ESPAD) og hins vegar Health Behavior in School-Aged Children (HBSC). Þau Sigrún fara yfir rannsókna...

Oct 25, 202157 min

Tæknivarpið – Nýjar Macbook Pro og Pixel símar

Apple og Google héldu bæði kynningu í vikunni og það er hátíð hjá okkur! Apple kynnti nýja liti fyrir Homepod mini, þannig að hann virðist vera að seljast eitthvað. Airpods 3 ný, endurhönnuð og með Spatial Audio á sama verði. Tvær nýjar Macbook Pro tölvur: 14” og 16” með M1 Pro og M1 Max kubbasettum/örgjörvum. En hvaða raufar eru á þeim? Google hélt flotta kynningu og það eru tveir nýir Pixel símar: 6 og 6 Pro. Hvorn Pixel pantaði Elmar? Stjórnendur eru: Atli Stefán, Elmar Torfason, Gunnlaugur R...

Oct 23, 20211 hr 29 min

Saga Japans – 44. þáttur: Drukkni sjóguninn

Hann var sjógun, en langaði mun frekar til að vera skáld. Einungis tólf ára að aldri var Sanetomo gerður að sjógun, æðsta stríðsmanni í landinu. Þrátt fyrir þennan skjóta frama átti hinn ungi maður aldrei eftir að hafa nein raunveruleg pólitísk áhrif. Hins vegar átti hann eftir að hafa töluverð menningarleg áhrif. Sanetomo átti stóran þátt í því að gera Zen-búddisma vinsælan og sumir segja að hann hafi líka verið fyrsti maðurinn til að stunda tedrykkju í Japan.

Oct 22, 202145 min

Í austurvegi – Aukin samskipti Íslands við Kína: Skjól eða gildra?

Í þætti vikunnar fengum við í viðtal til okkar þau Dr. Baldur Þórhallsson prófessor í stjórnmálafræði og Snæfríði Grímsdóttur aðjúnkt í kínverskum fræðum. Baldur og Snæ­fríður unnu að ítar­legri rann­sókn um sam­skipti Íslands og Kína á árunum 1995-2021. Við ræddum rannsóknina við þau.

Oct 20, 20211 hr 1 min

Þjóðhættir – Íslenskir fjárhundar og endurvinnsla textíls

Á ári hverju úthlutar Nýsköpunarsjóður námsmanna styrkjum til spennandi verkefna. Síðasta sumar styrkti sjóðurinn hvorki fleiri né færri en 13 nemendur við námsbraut í þjóðfræði og safnafræði til að vinna að fjölbreyttum verkefnum. Í þættinum verður fjallað um tvö þessara verkefna, annars vegar verkefnið Hundgá og hins vegar verkefnið Endurofið. Bæði verkefnin sýna svo ekki verður um villst hvernig þjóðfræðiefni og þjóðfræðirannsóknir geta orðið uppspretta nýsköpunar og menningarmiðlunar. Viðmæl...

Oct 19, 202142 min

Samtal við samfélagið – Hvernig stöndum við vörð um lýðræðið?

Gestur vikunnar er Kristinn Már Ársælsson en hann lauk nýlega doktorsprófi í félagsfræði frá Háskólanum í Wisconsin, Madison. Kristinn lauk BA-námi í heimspeki frá Háskóla Íslands og MA-gráðu í félagsfræði frá sama skóla áður en hann flutti sig yfir til Bandaríkjanna í doktorsnám. Helstu áherslurnar í rannsóknum hans er stjórnmálafélagsfræði með sérstaka áherslu á þær áskoranir sem lýðræðið stendur frammi fyrir og hvernig við bregðumst við þeim. Titillinn á doktorsritgerð hans endurspeglar þessa...

Oct 18, 20211 hr 13 min

Tæknivarpið – Snjallheimilið, ljósaperur, ofnarofar og ryksugur

Eru snjallperur besta inngangan í snjallheimilið? Eða eru það snjallofnarofar? Hvað eru tur- og returofnar? Er eitthvað varið í ryksuguvélmenni? Eiga allir í Tæknivarpinu Dyson ryksugu? Hver er réttur fjöldi Dyson ryksuga til að eiga? N-1? Alexa, Google home eða Siri? Allt þetta með honum Marinó Fannari. Svo er Apple kynning 18. október og Atli fær að renna yfir orðróma: Macbook Pro, Airpods 3 og Mac mini(og kannski iMac Plus). Stjórnendur eru Atli Stefán, Bjarni Ben, Sverrir Björgvinsson og Vög...

Oct 15, 20211 hr 24 min

Saga Japans – 43. þáttur: Nunnusjóguninn III

Eftir langt hlé höldum við áfram með ævisögu Hojo Masako. Samfélag Kamakura tímans ætlaðist ekki til þess að eldri konur eða konur almennt væru virkir þátttakendur í stjórnmálum samtímans, en Masako átti til að gera ekki alltaf það sem var ætlast til af henni.

Oct 14, 202138 min

Í austurvegi – Hvað er kínverska?

Kínversk tungumál eru fjölmörg. Hver staður í Kína á sína eigin tegund af kínversku máli og sumstaðar er munurinn svo mikill að kínverskt fólk á jafnvel í erfiðleikum með að tjá sig á ferðalagi um eigið heimaland. Það er gjarnan grínast með það og sagt að mállýska með sjóher kallist tungumál en restin bara mállýska. Þegar talað er um tungumál og mállýskur í Kína nútímans er hefð fyrir því að mandarín kínverska sé talin vera tungumál á meðan öll hin tungumálin séu mállýskur við hlið þess. Það er ...

Oct 13, 202124 min

Raddir margbreytileikans – „Þetta á eftir að gerast, ég vil vera þarna þegar þetta gerist“

Í þessum þætti er rætt við Árdísi Kristínu Ingvarsdóttur sem skilgreinir sig sem félagsfræðing með mannfræðilegan bakgrunn. Árdís segir frá lífi sínu, hvað leiddi til þess að hún ákvað að hefja mannfræðinám og áföllum sem hún varð fyrir á meðan náminu stóð. Þá segir hún einnig frá upplifun sinni sem mannfræðinemi á vettvangi en hún varði 16 mánuðum í Grikklandi á árunum 2014-2015, auk átta mánaða viðveru árið 2012, fyrir doktorsverkefni sitt í félagsfræði. Raddir marg­breyt­i­­leik­ans er mann­f...

Oct 12, 20211 hr 21 min

Þjóðhættir – Gagnagrunnar, þjóðfræði og framtíðin

Undanfarna áratugi hafa orðið gífurlegar breytingar á aðgengi upplýsinga og gagna af ýmsu tagi. Bylting hefur orðið með internetinu en nú má nálgast ýmis gagnasöfn á stafrænu formi, meðal annars safngögn sem tengjast þjóðfræði. Notkunarmöguleikar slíkra gagnagrunna eru ótrúlega fjölbreyttir og því skiptir miklu máli að til þeirra sé vandað og þeir séu notendavænir. Trausti Dagsson er þjóðfræðingur og starfar sem verkefnisstjóri og forritari hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Hann v...

Oct 12, 202141 min

Samtal við samfélagið – Félagsfræði, heimspeki og samanburður ólíkra menningarheima

Jóhann Páll Árnason hefur lengi verið einn fremsti félagsfræðingur Íslendinga, en hann er nú Prófessor Emeritus við La Trobe háskóla í Melbourne í Ástralíu, þar sem hann kenndi frá árinu 1975 til 2003. Þar á undan kenndi Jóhann við Heidelberg háskóla og Bielefeld háskóla í Þýskalandi og seinna við Karls-háskólann í Prag frá 2007 til 2014. Þá hefur hann jafnframt verið gestaprófessor við ýmsa háskóla og rannsóknastofnanir í Frakklandi, Svíþjóð og Þýskalandi. Jóhann er afkastamikill fræðimaður en ...

Oct 11, 202159 min

Tæknivarpið – Facebook með allt niðrum sig

Nýtt af íslensku sjónvarpi: Ófærð fer af stað 17. okt og Stella Blomkvist heillar Gulla. Reykjavík er stútfull af erlendum rafíþróttamönnum og Cloud9 fær að kíkja inn í eldfjall. Strætó ætlar að fjölga rafstrætisvögnum og það er víst allt tilbúið fyrir það. Facebook fór á hliðina og þurfti að spenna upp gagnaver til að komast aftur í gang. Svo hefur Facebook uppljóstrarinn loksins komið fram og fór í viðtal hjá 60 mínútum. En hverju er verið að ljóstra upp? Twitch var illa hakkað en mjög viðkvæm...

Oct 08, 20211 hr 18 min

Völundarhús utanríkismála – Þáttur 6: Tækifæri og áskoranir við mótun framtíðarutanríkisstefnu

Hvernig tryggir Ísland best fram­tíð­ar­hag­muni sína í alþjóða­sam­fé­lag­inu er umfjöll­un­ar­efnið í loka­þætti Völ­und­ar­húss utan­rík­is­mála Íslands. Í þættinum ræðir Baldur við þau Höllu Hrund Logadóttur orkumálastjóra og aðjúnkt við Harvard háskóla og Björn Bjarnason fyrrverandi ráðherra og höfund ítarlegrar skýrslu um utanríkismál Íslands.

Oct 07, 20211 hr 7 min

Í austurvegi – Ættleiðingar, námsdvöl í Ningbo og jarðfræði Kína

Í þætti vikunnar er rætt við Brynhildi Magnúsdóttur, jarð- og Kínafræðing. Brynhildur tengdist Kína fyrst í gegnum ættleiðingu á syni sínum og er í þættinum farið yfir allt það flókna ferli. Einnig ræddum við um námsdvöl hennar í Ningbo-borg í Kína og að lokum áttum við áhugavert spjall um jarðfræði Kína. Í aust­­­­­ur­­­­­vegi er hlað­varps­þáttur sem fjallar um Kína og menn­ingu lands­ins. Í þátt­unum eru helstu sér­­­­­fræð­ingar lands­ins þegar það kemur að mál­efnum Kína og Íslands fengnir ...

Oct 06, 202158 min

Þjóðhættir – „Að fanga þig og tímann“

Ljósmyndir segja oft áhugaverða sögu. Þær eru ákveðinn spegill á samtímann og með tímanum verða þær mikilvægar heimildir um sögu og menningu en líka um persónulegt líf. Í þættinum ræða Dagrún og Vilhelmína við Sigurlaugu Dagsdóttur þjóðfræðing. Sigurlaug lauk meistaranámi í hagnýtri þjóðfræði frá Háskóla Íslands í vor. Lokaverkefni hennar var sýning í Menningarmiðstöð Þingeyinga helguð ljósmyndasöfnum tveggja ljósmyndara, þeirra Sigríðar Ingvarsdóttur og Ragnheiðar Bjarnadóttur. Um ólík söfn er ...

Oct 05, 202147 min

Samtal við samfélagið – Hverjir geta valið mismunandi kosti innan íslenska menntakerfisins?

Í hlaðvarpi dagsins spjallar Sigrún við Auði Magndísi Auðardóttur en hún lauk doktorsprófi í menntavísindum í júní 2021, en ein af hennar megináherslum var félagsfræði menntunnar. Ritgerð Auðar bar heitið Val(þröng) – Endursköpun stétttengdra og kynjaðra valdatengsla með foreldravenjum en þar skoðar hún hvernig foreldrar velja skóla eða hverfi út frá hugsanlegum framtíðarhagsmunum barna sinna. Hún skoðar þetta út frá stétt og kyni, þar sem meðal annars kemur fram að efnahagur ræður miklu varðand...

Oct 04, 202158 min

Tæknivarpið – Framtíð rafíþrótta og Amazon Echo fyrir börn

Krónan er komin með nýjan tæknifídus í appið sitt: Skannað og skundað. Svarmi ætlar að nýta sér Strætó til að hlaða dróna til að taka fullt af myndefni og fleira sniðugt. Sonos Beam hljóðstöngin fékk smá uppfærslu og styður núna Dolby Atmos (eiginlega). Amazon kynnti slatta af nýjum vélbúnaði og þá meðal annars Echo hátalara fyrir börn og Mikka Mús stand fyrir Echo Show. Bose QuietComfort 45 fá góða dóma og halda sínum þægindatitli. Apple Watch virðist geta spottað hjartsláttartruflanir samkvæmt...

Oct 02, 20211 hr 30 min

Samtal við samfélagið – Hennar rödd: Heilsa kvenna af erlendum uppruna

Á morgun fer fram ráðstefna á vegum félagasamtakanna Hennar Rödd þar sem sjónum verður beint að heilsu kvenna af erlendum uppruna. Markmið samtakanna er að auka vitundarvakningu meðal almennings á stöðu kvenna af erlendum uppruna í íslensku samfélagi. Sigrún fékk til sín þær Elínborgu Kolbeinsdóttur og Chanel Björk Sturludóttur, sem stofnuðu samtökin en einnig þær Randi W. Stebbins, Floru Tietgen og Nurashima Abdul Rashid en þær taka þátt í ráðstefnunni. Í spjallinu segja þær Elínborg og Chanel ...

Oct 01, 202157 min

Völundarhús utanríkismála Íslands – Þáttur 5: Aukin samskipti Íslands við Kína: Skjól eða gildra?

Baldur Þórhallsson prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og Snæfríður Grímsdóttir aðjúnkt í kínverskum fræðum unnu að ítarlegri rannsókn um samskipti Íslands og Kína á árunum 1995-2021. Baldur og Snæfríður ræddu við Geir Sigurðsson prófessor í kínverskum fræðum við Háskóla Íslands í nýjasta þætti Völundarhússins, þáttum um utanríkisstefnu Íslands, um samskipi Íslands við Kína og niðurstöður skýrslunnar.

Sep 30, 20211 hr 23 min

Saga Japans – 42. þáttur: Bjallan í Mugen

Í þessum þætti kynnumst við samúræjanum Kajiwara Kagetoki og syni hans Kagesue. Þeir eru aukapersónur, en dyggir stuðningsmenn Minamoto-ættarinnar og hafa birst í ýmsum leikritum og þjóðsögum. Með því að renna yfir ævi Kagetoki sjáum við hvernig persónuleg tryggð gat bæði fleytt samúræja upp til æðstu metorða og líka endað á því að kosta hann lífið. Í lok þáttar er svo forvitnileg þjóðsaga þar sem Kagesue kemur við sögu, auk spegils sem hvorki brotnar né bráðnar.

Sep 30, 20211 hr

Í austurvegi – Uppgangur mongólska heimsveldisins og framrás á tímum Yuan-keisaraveldisins

Yuan-keisaraveldið 元朝 var hluti af hinu gríðarmikla mongólska heimsveldi. Kublai Khan, barnabarn Genghis Khan, stofnaði Yuan-keisaraveldið og setti höfuðborg hins nýja ríkis þar sem nú er Peking og kallaði hana Khanbaliq eða Dadu 大都. Kublai Khan var alþjóðalega sinnaður keisari og leitaðist eftir að nýta það besta sem heimurinn gat boðið upp á þegar kom að því að byggja upp innviði ríkisins. Í þessum þætti fjöllum við um upphaf þess magnaða tímabils og meira.

Sep 29, 202129 min

Raddir margbreytileikans – 9. þáttur: „Íkarus virti ekki viðvörunarorðin og hélt af stað“

Í þessum þætti er rætt við mannfræðinginn Gísla Pálsson um Mannöldina og aldauðann, útrýmingu lífvera og fótspor og fingraför mannsins á plánetuna sem hann byggir ásamt ört hverfandi lífverum, þar á meðal geirfuglinum sáluga sem átti sínar lokastundir á Íslandi. Rætt er um orsakir og afleiðingar en einnig um hvernig hægt er að bregðast við þeirri þróun sem blasir í auknum mæli við okkur öllum. Gísli Pálsson fæddist árið 1949 í Vestmannaeyjum. Hann var sá fyrsti sem útskrifaðist sem mannfræðingur...

Sep 28, 20211 hr 13 min

Þjóðhættir – Siðspillandi ómenning: Um viðtökur jazztónlistar á Íslandi

Jazztónlist nam land hér á landi á 3. áratug síðustu aldar. Ekki voru allir á einu máli um ágæti þessarar nýju tónlistar og þeirra danshreyfinga sem henni fylgdu. Margir stungu niður penna til að vara við siðspillingunni og þeirri ógn sem slíkri tónlist fylgdi, ekki hvað síst fyrir óhörðnuð ungmenni. Þessi orðræða var ekki einskorðuð við Ísland heldur á hún sér hliðstæðu víða um heim, meðal annars í Ástralíu. Í þættinum ræða Dagrún og Vilhelmína við Ólaf Rastrick dósent í þjóðfræði við Háskóla Í...

Sep 27, 202144 min

Tæknivarpið – Eitt hleðslutæki fyrir alla síma

Gulli vinnur veðmál við Sverri, Kristján lærir muninn á þeir og þeim. Mosi fræðir okkur um GPS kattaól og Elmar kynnir okkur fyrir vel peppaðri kynningu hjá Microsoft. Stjórnendur eru Sverrir, Elmar Torfason, Mosi og Kristján Thors. Þátturinn er í boði Elko sem býður upp á 30 daga verðöryggi. Ef þú kaupir vöru í ELKO og ELKO lækkar verðið innan 30 daga frá kaupum þá geturðu fengið mismuninn endurgreiddan. Sjá meira á https://elko.is/brostrygging

Sep 24, 202154 min

Völundarhús utanríkismála Íslands: Byggir Evrópustefna íslenskra stjórnvalda á áfallastjórnun?

Í fjórða hlaðvarpsþætti Völundarhúss utanríkismála ræðir Baldur Þórhallsson, þáttastjórnandi, við Kristrúnu Heimisdóttur lektor í lögfræði og Gylfa Zoega prófessor í hagfræði við Háskóla um Evrópustefnu íslenskra stjórnvalda. Þau ræða meðal annars hvort Evrópustefna Íslands byggist á áfallastjórnun, þ.e. hvort íslensk stjórnvöld ákveði eingöngu að taka aukinn þátt í samvinnu ríkja Evrópu ef þau standa frammi fyrir áfalli eða krísu. Þætt­irnir eru hluti af sam­­­starfs­verk­efni Háskóla Íslands, ...

Sep 23, 20211 hr 27 min

Í austurvegi – Kínverskar bókmenntir og þýðingar úr fornkínversku

Hjörleifur Sveinbjörnsson er einn af okkar fremstu þýðendum sem þýðir úr fornkínversku yfir á íslensku. Nýlega hefur JPV forlagið gefið út þýðingaverk hans á nokkrum ljóðum frá tímum Tang-keisaraveldisins og spjölluðum við um það verk og fleira í þessum þætti. Í aust­­­­ur­­­­vegi er hlað­varps­þáttur sem fjallar um Kína og menn­ingu lands­ins. Í þátt­unum eru helstu sér­­­­fræð­ingar lands­ins þegar það kemur að mál­efnum Kína og Íslands fengnir til við­tals. Einnig birt­­­­ast pistlar um sagn­...

Sep 22, 202151 min

Þjóðhættir – Konur í raftónlist: „Svo allt í einu er bara stelpa á mixernum“

Undanfarin ár hefur verið áberandi umræða um stöðu kvenna í ýmsum geirum atvinnu- og menningarlífs. Oftar en ekki er staðan sú að konur sem vilja hasla sér völl í karllægum geira glíma við ýmsar áskoranir sem hafa áhrif á hvernig þær nálgast sín verkefni. Í þættinum ræða Dagrún og Vilhelmína við Auði Viðarsdóttur þjóðfræðing og tónlistarkonu. Í vorhefti Skírni birtist grein um rannsókn hennar á konum í raftónlist og þeim áskorunum sem þær standa frammi fyrir. Auður fjallar um efnið meðal annars ...

Sep 21, 202150 min

Samtal við samfélagið – Hegðun Íslendinga í heimsfaraldri

Við fögnum þeim tímamótum að þáttur dagsins er 100 þáttur hlaðvarpsins með því að fá Jón Gunnar Bernburg, prófessor í félagsfræði, til Sigrúnar í spjall um rannsóknir þeirra sem tengjast hegðun og viðhorfum Íslendinga í heimsfaraldri kórónuveirunnar. Þau byrjuðu að safna gögnum, í samstarfi við Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands, Guðbjörgu Andreu Jónsdóttur, forstöðumann hennar og Magnús Þór Torfason, dósent í viðskiptafræði í byrjun apríl 2020 og hafa safnað daglegum gögnum síðan þá. Í rannsó...

Sep 20, 202153 min

Tæknivarpið – Kraftlaus Apple-kynning

Apple hélt kynningu á þriðjudaginn og kynnti nýjar vörur: *iPad (grunnútgáfuna) *iPad Mini (alveg nýr!) *Watch Series 7 (minna uppfært en fólk átti von á) *iPhone 13 og 13 mini *iPhone 13 Pro og 13 Pro Max Við rennum yfir kynninguna í tímaröð með draumaliðinu. Þessi þáttur Tæknivarpsins er í boði Elko. Elko býður upp á 30 daga skilarétt af (næstum því) öllu, engar spurningar og endurgreitt ef þú vilt 💵 Stjórnendur eru Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir. Gestir okkar eru Hörður Ágústsson og Pétur ...

Sep 17, 20211 hr 15 min
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android