Í þætti dagsins spjallar Baldur við Albert Jónsson fyrrverandi sendiherra og Piu Hansson forstöðumann Alþjóðamálastofnunar um samskipti Íslands og Bandaríkjanna. Í Völundarhúsi utanríksmála Íslands verða rannsóknir Baldur Þórhallsson prófessors í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands til umræðu. Baldur hefur unnið að rannsóknum í stjórnmálafræði í hart nær þrjá áratugi og sérhæft sig í rannsóknum á stöðu smáríki í Evrópu og utanríkisstefnu Íslands. Markmiðið með ...
Sep 16, 2021•1 hr 7 min
Song Meiling var eitt sinn þekkt fyrir að vera moldrík, gullfalleg og einstaklega valdamikil. Hún var eiginkona herforingjans og einræðisherrans Chiang Kai Shek og gegndi hún mikilvægu hlutverki við hlið hans sem túlkur kínversku þjóðarinnar á tímum seinni heimstyrjaldarinnar. Sumir sagnfræðingar benda á að hún hafi verið ein valdamesta konan 20. aldarinnar og í þessari viku rennum við yfir líf hennar og afrek. Í austurvegi er hlaðvarpsþáttur á Kjarnanum sem fjallar um Kína og mennin...
Sep 15, 2021•25 min
Í þessum þætti er rætt við Helgu Ögmundardóttur, lektor við félagsfræði-, mannfræði-, og þjóðfræðideild Háskóla Íslands og kennir meðal annars áfanga í umhverfismannfræði og rannsóknaraðferðum en er í rannsóknarleyfi núna. Helga er fædd í Neskaupstað árið 1965. Rannsóknir Helgu snúast um umhverfið og umhverfismannfræði en hún hefur unnið mikið í skógrækt og garðyrkju. Í þættinum ræðum við leið hennar í mannfræði, áhrif hamfarahlýnunar á Íslandi, hversu skemmtilegt það er að tala við blómin sín o...
Sep 14, 2021•1 hr 10 min
Það hefur sjálfsagt ekki farið framhjá mörgum að kosningar eru á næsta leyti og af því tilefni fengum við til okkar einn helsta sérfræðing landsins í kosningum og kosningarannsóknum, Evu H. Önnudóttur, prófessor í stjórnmálafræði í heimsókn í Hlaðvarpið. Eva stýrir íslensku kosningarannsókninni en það er könnun sem hefur verið gerð í kringum kosningar allt síðan árið 1983 og núna eru gerðar kannanir á meðal kjósenda bæði fyrir og eftir kosningar en einnig eru kannanir lagðar fyrir frambjóðendur....
Sep 13, 2021•55 min
Strætó er komið með nýtt greiðslukerfi sem heitir Klapp, en hvernig virkar það? HBO Max kemur til Íslands von bráðar, en hvenær? Er hleðsluvandi fyrir rafbíla á Íslandi? Síminn tengdi fyrsta heimilið í gegnum kerfi Gagnaveitu Reykjavíkur eftir eins árs innleiðingu. PT Capital kaupir restina af Nova frá Björgólfi Thor og er þá orðið 100% Alaskan. Windows 11 kemur út , sem átti aldrei að koma út. Ný Bose Quiet Comfort heyrnatól: QC45 sem taka við af QC35 II. Svo rennum við yfir alla orðróma fyrir ...
Sep 09, 2021•1 hr 16 min
Baldur ræðir í þætti dagsins við Boga Ágústsson fréttamann á RÚV og fyrrverandi formann Norrænafélagsins og Stefán Ólafsson prófessor í félagsfræði um samskipti Íslands við Norðurlöndin. Í þessum þáttum verða rannsóknir Baldur Þórhallsson prófessors í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands til umræðu. Baldur hefur unnið að rannsóknum í stjórnmálafræði í hart nær þrjá áratugi og sérhæft sig í rannsóknum á stöðu smáríki í Evrópu og utanríkisstefnu Íslands. Þættirnir eru hluti af sa...
Sep 09, 2021•1 hr 18 min
Í vikunni fengum við Þorvald Gylfason, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, til að ræða við okkur um efnahagsþróun í Kína, fortíð og til framtíðar. Margt bar á góma í áhugaverðu spjalli: Ástæður velgengni efnahagsumbótaáætlunar Deng Xiaoping 邓小平, samanburður á hagþróun í Kína og öðrum Asíuríkjum, Kína í alþjóðavæddum heimi og einnig ræddum við framtíð Kína þar sem Þorvaldur spáir að Kínverjum muni farnast vel ef lýðræðisbrestir verði leystir farsællega.
Sep 08, 2021•39 min
Song-keisaraveldið var við völd á miðöldum í Kína en þá mátti sá miklar framfarir í efnahagssögu kínversku keisaraveldanna. Þetta var mikil blómatíð bæði í listum og iðnaði ásamt því að fólk fór að safna meiri auð en það í raun þurfti til þess að lifa af frá degi til dags. Út af þeirri ástæðu hafði almenningur meiri tíma til þess að hugsa um aðra hluti eins og að njóta matlistargerðar, hlusta á tónlist, fylgja tískubylgjum, mála málverk og yrkja ljóð svo dæmi séu nefnd. Í austurvegi fjallar um...
Sep 01, 2021•24 min
Nýir þættir hefja nú göngu sína á hlaðvarpi Kjarnans um utanríkismál. Markmiðið er að miðla og ræða niðurstöður rannsókna um utanríkistefnu Íslands. Ætlunin er að leiða hlustendur út úr völundarhúsi umræðunnar um utanríkisstefnu Íslands inn á beina og breiða braut skýrrar umræðu um utanríkismál. Í þessum þáttum verða rannsóknir Baldur Þórhallsson prófessors í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands til umræðu. Baldur hefur unnið að rannsóknum í stjórnmálafræði í hart nær þrjá á...
Aug 31, 2021•1 hr 12 min
Í þessum þætti er rætt við mannfræðinginn Katrínu Önnu Lund um að ganga, gönguleiðir og göngutúra, útfrá mannfræðilegu og fyrirbærafræðilegu sjónarhorni. Pælt er í hreyfanleika og frásögnum í samhengi við landslag, um „fótaför“ manna um landið og leiðina. Skil náttúru og menningar verða óljós í þessum pælingum, þar sem efnisleg náttúra skarast við félagslega hegðun manna og menningarlegar hugmyndir. Í takt við umræðuefnið er farið út um víðan völl í þessu spjalli. Katrín Anna Lund er fædd 1964 í...
Aug 31, 2021•1 hr 16 min
Afsakið biðina en sería 7 er hafin og rennum við yfir tæknifréttir sumarsins! Það gerðist alveg hellingur í sumar: Ný tæki frá Samsung sem er hægt brjóta saman, ný Android Wear úr, Pixel 5a, Pixel 6 og 6 pro, Sonos vinnur áfanga í lögsókn sinni gegn Apple, Apple fer að skanna iCloud myndefni fyrir barnaklámi og Atli fékk að prófa Airpods Max-heyrnatólin. Stjórnendur eru Andri Valur, Atli Stefán og Elmar Torfason.
Aug 27, 2021•1 hr 24 min
Í austurvegi er nýr hlaðvarpsþáttur á Kjarnanum en hann fjallar um Kína og menningu landsins. Í þáttunum eru helstu sérfræðingar landsins þegar það kemur að málefnum Kína og Íslands fengnir til viðtals. Einnig birtast pistlar um sagnfræði, menningu Kína og hina ýmsu áhugaverðu einstaklinga sem koma þaðan. Umsjón með hlaðvarpinu hafa Magnús Björnsson og Daníel Bergmann. Í þætti vikunnar var Gunnar Snorra Gunnarsson fráfarandi sendiherra Íslands í Peking fenginn í viðtal. Gunnar Snorri hefur tvisv...
Aug 26, 2021•53 min
Í nýjasta þætti Radíó Eflingar ræðir Þórunn Hafstað við Eðvald Karl Eðvalds, félagsmann Eflingar til margra ára. Kalli, eins og hann er alltaf kallaður, fékk sína fyrstu vinnu 11 ára, en stendur nú á tímamótum. Hann er nýorðinn 67 ára og er að hætta að vinna. Kalli hefur komið sér upp einum fullkomnasta flughermi landsins heima hjá sér og í þættinum býður hann hlustendum á flug meðan hann ræðir um starfsferilinn í steypunni, frelsið í háloftunum og hvernig hann sjái fyrir sér að verja þeim tíma ...
Aug 25, 2021•23 min
Emil ræðir við Hjördísi Harðardóttur um rannsókn á óáþreyfanlegum kostnaði ofbeldis í nýjasta þætti Ekon. Hjördís telur rannsóknir á borð við þessa gefa stjórnvöldum betri tól til þess að bæta forvarnir í slíkum málaflokkum. Hjördís er þriðji viðmælandi í þáttaröðinni Ekon, þar sem hagfræðingurinn Emil Dagsson fær til sín sérfræðinga úr ýmsum áttum til að fjalla um hagfræðileg málefni ásamt málefnum tengdum íslenskum efnahag. Þættirnir Ekon eru styrktir af Háskóla Íslands, sem styður vísindamenn...
Aug 23, 2021•24 min
Í þessum þætti er rætt við Eyrúnu Eyþórsdóttur sem er lektor á hug- og félagsvísindasviði Háskólans á Akureyri þar sem hún kennir áfanga meðal annars í lögreglufræði. Eyrún er fædd árið 1973 og ólst upp á Höfuðborgarsvæðinu og í Fellabæ á Austurlandi. Hún kláraði BA í mannfræði frá HÍ árið 2003 og MA í félagsfræði, einnig frá HÍ, árið 2008. Hún er að ljúka doktorsprófi frá HÍ í haust undir leiðsögn Kristínar Loftsdóttur en ritgerðin hennar fjallar um afkomendur Íslendinga í Brasilíu. Við spjöllu...
Aug 18, 2021•1 hr 6 min
Borgarastríðið lagði gömlu höfuðborgina Nara í rúst, köld kol og aska lá þar sem elstu og helgustu hof landsins höfðu eitt sinn staðið. En eyðileggingin skapaði líka tækifæri fyrir listamenn sem nú gátu fengið að prufa sig áfram með nýja tækni og fagurfræði. Í þessum þætti kynnumst við listamanninum Unkei, sem stundum hefur verið kallaður Michaelangelo Japans, og ræðum hjúskaparmál samúræja-prinsessunar Ohime, sem varð sjö ára gömul ekkja og næstum því keisaraynja áður en hún lést tvítug að aldr...
Aug 12, 2021•50 min
Í þessum fimmta þætti sem sækir titil sinn til Hávamála er rætt við Gunnar Þór Jóhannesson mannfræðing um menningarlegt og félagslegt samhengi ferðamennsku og ferðaþjónustu. Gunnar Þór Jóhannesson fæddist 1976 á Blönduósi. Hann er með BA gráðu í mannfræði frá HÍ (1999), MA í mannfræði frá HÍ (2003) og doktorsgráðu frá RUC í þverfélagsvísindalegum greinum (mannfræði, landafræði, o.fl.). Gunnar Þór gaf út, ásamt Þórði Kristinssyni, út bókina „Mannfræði fyrir byrjendur“ (2010), sem mun verða endurú...
Aug 03, 2021•1 hr 18 min
Gestur vikunnar er mannfræðingurinn Jónína Einarsdóttir, deildarforseti félags-, mannfræði- og þjóðfræðideildar Háskóla Íslands og prófessor í mannfræði við Háskóla íslands. Jónína lærði þróunarfræði í Uppsalaháskóla og kláraði BA próf og doktorspróf í mannfræði frá Stokkhólmsháskóla. Jónína hefur í gegnum starfsferil sinn lagt mikla áherslu á þróunarstarf, börn og fjölskyldur. Í þessum þætti segir Jónína okkur frá leið sinni í gegnum mannfræðinámið, störfum sínum í Gíneu-Bissaú og rannsóknum sí...
Jul 22, 2021•51 min
Guðmundur Kr. er annar viðmælandinn í þáttaröðinni Ekon, þar sem hagfræðingurinn Emil Dagsson fær til sín sérfræðinga úr ýmsum áttum til að fjalla um hagfræðileg málefni ásamt málefnum tengdum íslenskum efnahag. Þættirnir Ekon eru styrktir af Háskóla Íslands, sem styður vísindamenn til virkrar þátttöku í samfélaginu í krafti rannsókna þess og sérþekkingar. Upphafs- og lokastef: Gabríel Ponzi
Jul 19, 2021•38 min
Í þessum þætti er rætt við mannfræðinginn Marco Solimene, sem er ítalskrar ættar, fæddur í Róm árið 1976. Marco hefur búið á Íslandi um langt skeið. Marco er með MA gráðu í félagsfræði frá La Sapienza háskólanum í Róm og doktorsgráðu í mannfræði frá Háskóla Íslands. Rannsóknir Marco hafa snúist um rómafólk frá Bosníu í Róm sem og á Balkanskaga og í Rúmeníu. Rætt er um yfirstandandi rannsókn Marco meðal rómafólks og tengsl þeirra við „gamla landið“, þ.e. Bosníu og fyrrum Júgóslavíu. Hugtök eins o...
Jul 06, 2021•1 hr 25 min
Emil Dagsson ræðir við Arnald Sölva Kristjánsson um hagkvæma skattheimtu í Ekon, nýjum viðtalsþætti um hagfræðileg málefni. Samkvæmt honum er ekki auðséð að viðtekin viðhorf um að skattur á fjármagn sé óhagkvæmur standist í öllum tilvikum. Þættirnir Ekon eru styrktir af Háskóla Íslands, sem styður vísindamenn til virkrar þátttöku í samfélaginu í krafti rannsókna þess og sérþekkingar. Upphafs- og lokastef: Gabríel Ponzi
Jul 05, 2021•26 min
Hefnd Sogabræðranna hefur orðið innblástur í fleiri sögur og leikrit en öll önnur atvik í sögu Japans. Tveir ungir menn, andspænis ofurefli, ana út í dauðann til að verja heiður sinn og sækja hefnda. En hverjir voru þeir og af hverju elskuðu Japanir þessa sögu svo mikið að hún varð að skáldsögum, brúðuleikhúsi, leikritum og bíómyndum, og hafði jafnvel svo djúpstæð áhrif á lagasetningu, að hægt var að sækja um leyfi til þess að fremja blóðhefnd?
Jul 01, 2021•1 hr 5 min
Radíó Efling er þáttur um félagsfólk Eflingar og allt sem viðkemur þeim. Undanfarin ár hefur fólk í Eflingu sagt frá lífi á lægstu launum, farið í verkföll og haldið uppi grunnþjónustu í heimsfaraldri. Í þessum þáttum verður rætt við félaga í Eflingu og ýmsa fulltrúa og fagfólk um hag verkafólks á Íslandi, sögur þeirra og líf í og utan vinnu. Þórunn Hafstað og Benjamín Julian, starfsmenn Eflingar – stéttarfélags, sjá um þáttinn. Í fyrsta þættinum er rætt við Þuríði Hörpu Sigurðardóttur, Þorbjörn...
Jun 25, 2021•29 min
Árið 1193 bauð nýskipaður sjógun Japans sínum helstu bandamönnum í veglega veiðiferð við rætur Fuji-fjalls. Sú veiðiferð átti eftir að verða sögufræg fyrir margar sakir og má segja að hún endurómi enn í menningu Japans. Meðal umræðuefna í þættinum er saga sjóguna-embættisins, nýja stjórnkerfið sem Minamoto kynnti, og keisarinn Go-Shirakawa sem reyndi sitt besta til að hindra framgang Minamoto-ættarinnar.
Jun 24, 2021•1 hr 1 min
Raddir margbreytileikans er mannfræðihlaðvarp þar sem rætt verður við íslenska mannfræðinga um það sem þeir eru að rannsaka. Einnig verður rætt við erlenda fræðimenn þegar færi gefst. Í öðrum þætti er rætt við Evu Hrönn Árelíusd. Jörgensen, doktorsnema við Háskóla Íslands, um mastersnám hennar erlendis og doktorsrannsókn hennar. Eva Hrönn er með MA próf í heilsumannfræði frá UCL háskóla í London og MA próf í miðjarðarhafsfornleifafræði frá EKPA háskóla í Aþenu. Hún vinnur nú að doktor...
Jun 22, 2021•54 min
Apple heldur sína árlegu tækniráðstefnu í vikunni og byrjaði hana á mánudaginn með upptekinni lykilræðu þar sem starfsfólk rennur yfir það nýjasta í stýrikerfum Apple. Ráðstefnan var sneisafull af hugbúnaðaruppfærslum en ekkert bólaði á nýjum Macbook Pro tölvum sem mörg áttu von á. Einnig var lítið að frétta af öflugum tólum fyrir nýjar iPad Pro tölvur. Stjórnendur eru Andri Valur og Atli Stefán. Við fáum til okkar góðan gest, hann Sigurð Stefán Flygenring frá Macland til að fara yfir þetta með ...
Jun 12, 2021•1 hr 36 min
Raddir margbreytileikans er mannfræðihlaðvarp þar sem rætt verður við íslenska mannfræðinga um það sem þeir eru að rannsaka. Einnig verður rætt við erlenda fræðimenn þegar færi gefst. Í þessum þætti ræðir Kristín Loftsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, um grein sem hún skrifaði eftir að hafa heimsótt safn á Kanaríeyjum þar sem eru geymdar gifsafsteypur og brjóstmyndir frá liðnum tíma. Kristín setur þessa safnmuni í sögulegt og pólitískt samhengi nýlendutímans og sýnir hvernig margvísleg sögu...
Jun 08, 2021•1 hr 25 min
Það er fullt af íslenskum nýsköpunarfréttum: Greenfo er sproti sem hjálpar fyrirtækjum að reikna umhverfisspor sitt með það markmið að ná því niður, Startup Supernova kynnir topp 9 listann sinn eftir að hafa valið úr 82 umsóknum. Ríkið hefur opnað vefinn Vegvísir.is sem gerir upplýsingar um framkvæmdir og aðgerðir á vegum samgönguráðuneytis og sveitarfélaga aðgengilengri. Twitter býður nú upp á áskriftarmöguleika í Kanada og Ástralíu sem heitir Twitter Blue og við rennum yfir kosti áskriftarinna...
Jun 04, 2021•1 hr 7 min
Apple gaf nýverið út nýtt Apple TV, sem styður 4K og HDR með mikilli endurnýjunartíðni (e. /high frame rate/). Tækið kom út á sama tíma út um allan heim, og skartar nýrri fjarstýringu, sem er mun betri en forverinn. WWDC ráðstefnan hjá Apple hefst mánudaginn 7. júní næstkomandi. Svo er íslenska hornið og sporthornið að sjálfsögðu á sínum stað. Stjórnendur í þætti 279 eru Gunnlaugur Reynir, Andri Valur, Sverrir Björgvinsson og Bjarni Ben.
Jun 01, 2021•1 hr 6 min
Árið 577 kom sérkennilegt goð frá meginlandinu til Japans, sem hægt var að biðja til í von um að það myndi bjarga manni úr einu af hinu ótal helvítum sem menn gátu endurfæðst í til að endurgjalda karmískar skuldir. Japanir voru fljótir að umbreyta því í alhliða reddara og sérstakan barnavin, sem í dag nefnist Jizo og hægt er að rekast á hér og þar, með rauðan hatt á höfði, mildilegt bros, og oftar en ekki í fylgd með börnum.
May 27, 2021•39 min