Hlaðvarp Heimildarinnar - podcast cover

Hlaðvarp Heimildarinnar

Heimildinheimildin.is
Í hlaðvarpi Heimildarinnar, áður Kjarnans, má finna fjölbreytta þætti um allt frá pólitík til heiðarlegs skyndibita eða nýjustu græjunnar.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Tæknivarpið – Google I/O, Pixel 6 lekar og hágæða tónlist

Google hélt loksins I/O tækniráðstefnuna sína og streymdi aðalkynningu í beinni í vikunni. Þar var farið um víðan völl enda lausna- og vöruframboð Google orðið víðfemt. Þar var fjallað um framtíðina í Android, á fjarfundum og í persónuvernd á netinu. Pixel 6 lekarnir eru byrjaðir og Atli er spenntur fyrir nýrri hönnun. Á sama tíma grætur eini Pixel-notandinn í hópnum myndavélrassinn á bakinu. Apple þurfti að pína sig í að kynna nýja þjónustu fyrr en áætlað útaf lekum og hefur afhjúpað taplausa t...

May 21, 20211 hr 24 min

Samtal við samfélagið – Samfélagslegar áskoranir og lýðræðislegt hlutverk háskóla

Háskólar gegna margþættu hlutverki í samfélaginu og nær það langt út fyrir þau efnahagsleg áhrif, tækni og nýsköpun sem fólki er gjarnan tíðrætt um. Háskólar eru einnig drifkraftar lýðræðis, en þessi grundvallarhugmynd var kveikjan að vel heppnaðri ráðstefnu sem fram fór á dögunum við Háskólann á Akureyri undir yfirskriftinni „The Role of Universities in Addressing Societal Challenges and Fostering Democracy: Inclusion, Migration, and Education for Citizenship“. Anna Ólafsdóttir, dósent í mennta...

May 18, 202157 min

Tæknivarpið – Aur lumar á góðri lífslausn

Þáttur 277 er fullur af íslenskum fréttum og rövli yfir Epic vs. Apple: Rakning C19 appið hefur uppfært og getur nú nýtt sér nafnlausa Bluetooth smitrakningu snjallsíma, sem kemur auðvitað á besta tíma 🔚 Mestallt net Hringdu datt út í þrjá tíma og við íhugum að skipta um kostunaraðilar. Við kryfjum stóra netleysið algerlega hlutlaust 👼 Aur lumar á góðri lífslausn (“life hack”) sem unga kynslóðin hefur lengi þekkt og hann Steinar Linked-In áhrifavaldur benti okkur miðaldra á. Axel GDPR var ekki...

May 14, 20211 hr 13 min

Saga Japans – 37. þáttur: Hugleiðingar kotbúans

Fljótið streymir endalaust, en vatnið er aldrei hið sama. Árið 1212 settist gamall einbúi niður í kofa sínum og byrjaði að rita niður hugleiðingar sínar. Þökk sé þessum einbúa eigum við lýsingar frá sjónarvotti af Kyoto á tímum borgarastríðsins 1180-1185, þegar ótal hörmungar dundu á japönsku þjóðinni. Í þættinum í dag munum við staldra við nokkrar af þessum lýsingum og ræða þennan mann sem reyndi að fanga fegurðina í hverfulleika lífsins.

May 13, 202140 min

Saga Japans – 36. þáttur: Nunnusjóguninn II

Árið er 1183 og ekki bara ríkir borgarastyrjöld í Japan heldur líka stríð milli hjónanna Yoritomo og Masako. Í þessum þætti er fjallað um kvenkyns samúræja, sem sjaldan rötuðu í sögubækur en fornleifarannsóknir benda til að gætu hafa verið mun algengari en við ímyndum okkur í dag, og við kynnumst tveimur slíkum stríðskonum sem voru samtímakonur Masako, þeim Tomoe og Hangaku.

May 06, 202144 min

Saga Japans – 35. þáttur: Nunnusjóguninn I

Þegar Hojo Masako strauk að heiman með útlaga sáu fáir fyrir að þessi viljasterka dóttir sveitasamúræja ætti dag einn eftir að verða einn valdamesti einstaklingur í Japan. Í þessum fyrsta þætti af þremur reynum við að setja okkur inn í líf þessarar slóttugu stjórnmálakonu, sem átti stóran þátt í að breyta Japan úr miðstýrðu og óstöðugu keisaradæmi yfir í vel skipulagt lénsveldi. (Mynd kemur úr bíómynd Mizoguchi Kenji, Shin Heike Monogatari frá 1955)

Apr 22, 202151 min

Tæknivarpið - Apple viðburður í næstu viku og betri kort

Hopp er að stækka þjónustusvæðið sitt og nú er hægt að leigja frá þeim rafhlaupahjól í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði. Vegagerðin er farin að skila rauntímagögnum um ástand vega inn í kortagrunna hjá Google Maps og Here. Rakning C19 appið fer að fá uppfærslu til að nýta sér Bluetooth til að átta sig betur á því hver voru í kringum smitandi aðila. Apple hefur sent út boðskort fyrir viðburð þriðjudaginn 20. apríl klukkan 17:00 (hér)! Talið er að einhverjar nýjar tölvur verði kynntar, mögulega iM...

Apr 16, 20211 hr 2 min

Tæknivarpið - Tugþúsund Íslendinga í Facebook leka

Sýn er búið að selja óvirka innviði og fær fyrir það 6,1 ma. ISK en skuldbindur sig til að leigja búnað til 20 ára á móti. Þetta virðist vera góð sala en hvaða áhrif gæti þetta haft á verð og gæði í framtíðinni? Origo kaupir upplýsingatækniöryggisfyrirtæki Syndis af eigendum þess og sameinar núverandi deild við Syndis teymið. Gögn úr Facebook-hakki frá árinu 2019 skaut upp kolli í vikunni og þar er að finna tugþúsundir Íslendinga og í heild yfir 500 milljón færslur um notendur. Þarna er hægt oft...

Apr 09, 20211 hr 5 min

Tæknivarpið - Ný stefna hjá Intel og Grid úr beta

Það er eldgos og tæknin spilar smá hlutverk þar enda snertir það flesta anga lífs okkar. Björn Steinbekk náði ótrúlegu drónamyndband með DJI FPV drónanum þar sem hann fer í gegnum eldgosagusu á ógnarhraða. Myndbandið Lava Surfing! er að finna á Youtube ásamt fleiri skotum og endaði á The Verge tæknifréttasíðunni https://www.theverge.com/tldr/2021/3/22/22344113/iceland-volcano-eruption-drone-footage-fagradalsfjall. Íslenska ríkið kynnti nýja stafræna stefnu sem við erum mjög spenntir fyrir, en en...

Mar 27, 20211 hr 18 min

Þjóðhættir – Að kryfja froskinn: Húmor og hamfarir

Hvers vegna eru fasteignasalar hættir að horfa út um gluggann fyrir hádegi? Hvað segir húmor okkur um samfélagið? Má gera grín að öllu? Er yfir höfuð hægt að rannsaka húmor? Í þættinum ræða Dagrún og Vilhelmína við Kristinn Schram dósent í þjóðfræði við Háskóla Íslands. Kristinn hefur stundað fjölbreyttar rannsóknir í þjóðfræði en í þættinum segir hann frá rannsóknum sínum á húmor, meðal annars hvernig húmor var notaður í hruninu og nú á tímum heimsfaraldurs. Rannsóknir á húmor gefa forvitnilega...

Mar 23, 202138 min

Samtal við samfélagið – Kynjuð valdaorðræða á Íslandi og afleiðingar hennar

Gestur vikunnar er Annadís Gréta Rúdólfsdóttir, en hún er dósent í aðferðafræði rannsókna við Deild Menntunnar og Margbreytileika við Háskóla Íslands. Annadís lauk doktorsprófi í félagssálfræði frá London School of Economics and Political Science árið 1997 og hefur gengt stöðum bæði innan breska og íslenska háskólakerfisins. Rannsóknir hennar hafa einkum verið innan kynjafræði, þar sem hún hefur meðal annars skoðað sjúkdómsvæðingu meðgöngu og fæðingar, #free-the nipple byltinguna á Íslandi, og h...

Mar 22, 202158 min

Tæknivarpið - Nýr Nest Hub, Homepod deyr og NFT

Google er búið að uppfæra Nest Hub, myndarammann sinn, og Gulli ætlar að kaupa nokkra. Apple er að hætta með Homepod, en ekki Homepod mini, sem gengur víst mjög vel. Þýðir það að Apple sé að tékka sig út úr hátölurum? Svo förum við yfir NFT (non-fungible token) eða nýja gullæðið sem er að tröllríða netheimum. Stjórnendur eru Andri Valur, Atli Stefán, Elmar Torfa og Gunnlaugur Reynir.

Mar 18, 20211 hr 10 min

Þjóðhættir – Miðborg Reykjavíkur: Gömul hús og ný

Í miðborg Reykjavíkur er að finna fjölbreyttan húsakost með nýjum og gömlum húsum í bland við hús sem hafa verið flutt um stað, gerð upp eða þau rifin. Sitt sýnist hverjum enda skoðanir og viðhorf fólks ólík. Í þættinum ræða Dagrún og Vilhelmína við Snjólaugu G. Jóhannesdóttur þjóðfræðing um nýlega rannsókn hennar á miðborg Reykjavíkur. Snjólaug gekk með viðmælendum um miðborgina þar sem þau sögðu henni frá viðhorfum sínum til umhverfisins, minningum og sögum úr fortíðinni. Minningar, staðarteng...

Mar 16, 202142 min

Samtal við samfélagið – Staða kynjanna á íslenskum vinnumarkaði

estur hlaðvarpsins í dag er Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, prófessor í félagsfræði og aðstoðarrektor vísinda við Háskóla Íslands. Hún lauk doktorsprófi í félagsfræði frá Háskólanum í Lundi og hefur síðan átt langan og farsælan ferli í rannsóknum, kennslu og stjórnun. Hún hefur verið leiðandi í rannsóknum á kynjamun á vinnumarkaði Íslandi. Þar hefur hún meðal annars beint sjónum að verkalýðshreyfingunni, æðstu stjórnun fyrirtækja og stofnana og vinnutengdri heilsu karla og kvenna. Þær Sigrún ræða um...

Mar 15, 202156 min

Tæknivarpið - Clubhouse, Elko verðsaga og Ökuvísir

Elko er búið að bæta við verðsögu allra vara á vefverslun sinni. Er það til að vinna inn traust viðskiptavina? VÍS er búið að opna á Ökuvísinn: app og kubbur til að meta ökuhæfni fólks með það markmið að lækka kostnað trygginga. Er það sniðugt eða brot á friðhelgi? Clubhouse er að tröllríða hinum vestræna heimi og flykkist fólk þangað til að prófa. Clubhouse er einhvers konar lifandi hlaðvarpsmiðill eða Discord með umræðuherbergjum. Íslendingar eru byrjaðir að nýta sér þetta og við fjöllum um sn...

Mar 13, 20211 hr 4 min

Þjóðhættir – Huldufólk, fyrirboðar og draumráðningar

Er huldufólk raunverulegt? Er eitthvað að marka drauma? Hvað með öll táknin og fyrirboðana? Að minnsta kosti eru enn sagðar sögur af huldufólki, fólk ræður í drauma og tákn og margir telja vissara að ganga ekki undir stiga og fara sérstaklega varlega á föstudaginn þrettánda. Símon Jón Jóhannsson er manna fróðastur um huldufólk, fyrirboða og tákn en hann er afkastamikill í útgáfu á þjóðlegum fróðleik. Í þættinum ræða Dagrún og Vilhelmína við Símon Jón um nýjustu bók hans Hulduheimar, þar sem sagt...

Mar 09, 202141 min

Samtal við samfélagið – Skiptir máli hvernig fæðingarorlofi er háttað?

estur okkar þessa vikuna er Ásdís Arnalds en hún lauk doktorsprófi í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands í nóvember 2020. Ritgerðin hennar ber heitið „Fjölskyldustefna og foreldrahlutverk: Áhrif íslensku fæðingarorlofslöggjafarinnar á atvinnuþátttöku foreldra og umönnun barna“, en áður en Ásdís hóf doktorspróf í félagsráðgjöf kláraði hún BA- og MA-gráðu í félagsfræði frá Háskóla Íslands. Ásdís starfar sem verkefnastjóri á Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands og mun á næstunni hefja störf sem nýdok...

Mar 08, 202149 min

Tæknivarpið - Risastórt rafíþróttamót og Twitter útibú

Riot games ætlar að halda risastórt rafíþróttamót á Íslandi í sumar og við erum spenntir! Twitter er komið með íslenska kennitölu og ætli það sé til að borga Halla laun? Microsoft hjúfrar sér upp að CarbFix verkefni Orkuveitu Reykjavíkur í von um kolefnisjöfnun. Farice truflar fjarskipti hjá Nova, eða öllum fjarskiptafélögum Íslands. Við erum ekki vissir. Atli er kominn aftur og við fáum loksins Apple lekastöðuna. Stjórnendur eru Andri Valur, Atli Stefán, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir.

Mar 07, 20211 hr 13 min

Saga Japans – 34. Þáttur: Hinn hugdjarfi Yoshitsune

Hvernig nær bastarður, munaðarlaus, sonur þjónustustúlku og samúræja, hent niður í gleymt og afvikið hof hátt í fjöllum meðal Tengúa að rísa upp og verða herforingi og hetja? Í þessum þætti kynnumst við hinum tragíska Minamoto no Yoshitsune, sem leiddi Minamoto ættina til sigurs gegn Taira-ættinni en þurfti svo sjálfur að flýja þegar bróðir hans snerist gegn honum. Honum til halds og traust voru hin ægifagra Shizuka Gozen og hinn fílsterki stríðsmunkur Benkei, en þau þrjú hafa orðið innblástur í...

Mar 04, 202153 min

Þjóðhættir – Öryggisbrögð kvenna í miðborg Reykjavíkur og safnastarf á Dalvík

Í Dalvíkurbyggð er rekin öflug safna- og menningarstarfsemi. Undir sama hatti eru rekin bókasafn, héraðsskjalasafn, Byggðasafnið Hvoll og Menningarhúsið Berg. Í þættinum ræða Dagrún og Vilhelmína við Björk Hólm þjóðfræðing og framkvæmdastjóra, sem stýrir allri þessari fjölbreyttu starfsemi og veitir forstöðu. Björk segir frá því hvernig hún fann sína réttu fjöl í námi í þjóðfræði og hvernig það stækkaði heimsmynd hennar. Í þjóðfræðináminu vann Björk meistararannsókn um upplifun kvenna af öryggi ...

Mar 02, 202154 min

Samtal við samfélagið – Afreksvæðing barnaíþrótta

Nýlega var myndin Hækkum rána sýnd á Sjónvarpi Símans og vakti hún blendin viðbrögð, annars vegar var aðferðum þjálfarans hampað sem valdeflingu stúlkna en hins vegar var rætt um aðferðirnar sem of harðar og gamaldags. Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði, blandaði sér í umræðuna með greinaskrifum á Kjarnanum, þar sem hann lýsti þessum aðferðum sem afreksvæðingu barnaíþrótta sem er í andstöðu við hvernig við þjálfum börn og ungmenni í dag, og reyndar í auknu mæli fullorðna í afreksíþróttum...

Mar 01, 202149 min

Tæknivarpið – Maggi Ragg um framtíð sjónvarps á Íslandi

Magnús Ragnarsson, framkvæmdastjóri afþreyingarmiðla og sölu Símans, mætti í viðtal hjá Tæknivarpinu og spáði í framtíð Sjónvarps Símans, og sjónvarps á Íslandi. Eins og kom fram í síðasta þætti er Síminn kominn með app fyrir Sjónvarp Símans á Apple TV. Stjórnendur eru Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir.

Feb 26, 202156 min

Tæknivarpið – Sjónvarp Símans loksins á Apple TV

Tæknivarpið komið aftur hefðbundinn fréttaþátt, Síminn hefur loksins staðið við gamalt loforð og gefið út app á Apple TV. Elmar hélt áfram að leggja stærsta fyrirtæki í heiminum í einelti og Daníel sagði okkur frá því sem hefur heillað hann undanfarið. Stjórnendur í þætti 266 eru Gunnlaugur Reynir og Elmar Torfason, gestur þáttarins var Daníel Ingólfsson

Feb 23, 20211 hr 16 min

Þjóðhættir – Þjóðbúningar, nafnaval og smáheimssagnir

Þjóðfræði er kennd við Háskóla Íslands, bæði í grunnnámi og á meistarastigi. Námið er fjölbreytt og rannsóknir nemenda endurspegla vissulega þá miklu breidd sem finna má innan fagsins. Þátturinn í dag er því helgaður rannsóknum nemenda í þjóðfræði við Háskóla Íslands. Dagrún og Vilhelmína tóku tali þrjá nýlega útskrifaða þjóðfræðinga sem luku BA-prófi í fyrra og fengu að heyra um rannsóknir þeirra. Í þættinum er því sýnishorn af því spennandi starfi sem fer fram innan námsbrautarinnar. Við fræðu...

Feb 23, 202159 min

Samtal við samfélagið – Framúrskarandi félagsfræðingar

Félagsfræðingafélag Íslands veitir árlega viðurkenningu fyrir framúrskarandi BA- og MA-ritgerð í félagsfræði. Að þessu sinnu voru það þær Adda Guðrún Gylfadóttir og Sóllilja Bjarnadóttir sem hlutu verðlaunin og komu þær í spjall við Sigrúnu. BA-ritgerð Öddu Guðrúnar ber heitið „Harkvinna og varnarleysi á íslenskum vinnumarkaði: Aðstæður pólsks launafólks á Íslandi” en MA-ritgerð Sóllilju sem skrifuð var á ensku kallast „Do people behave as their family and friends? The role of social networks fo...

Feb 22, 202145 min

Þjóðhættir – Hljóðheimur langspilsins

Hvernig er hægt að útskýra eða fanga hljóðheim í orðum? Er kannski eitthvað sem aðeins er hægt að upplifa með öðrum hætti en í gegnum orð? Tónlist hefur margvísleg áhrif á fólk og skapar meðal annars ákveðna stemningu og hughrif. Íslenska langspilið fer kannski ekki hátt í dægurtónlist nútímans en það á sér áhugaverða sögu og er enn notað í tónlistarsköpun. Í þættinum ræða Dagrún og Vilhelmína við Eyjólf Eyjólfsson þjóðfræðing og tónlistarmann en rannsóknarefni hans er hljóð- og undraheimur lang...

Feb 16, 202146 min

Samtal við samfélagið – Fjölskyldulíf á tímum COVID-19

Gestur vikunnar kemur langt að þessa vikunna, en Sigrún spjallaði við Leuh Ruppanner sem er dósent í félagsfræði við Háskólann í Melbourne í Ástralíu. Rannsóknaráherslur hennar eru fjölskyldan, kynjafræði og stefnumótun og skoðar hún þessi efni oft í alþjóðlegu samhengi. Mikið hefur verið rætt um að áhrif COVID-19 séu kynjuð, þar sem konur taka á sig meira álag sem tengist því að líf fjölskyldna hafa farið úr skorðum í faraldrinum. Leah hefur meðal annars skoðað þetta og segir okkur frá helstu n...

Feb 15, 202147 min

Tæknivarpið – Tæknispá með Hjálmari Gíslasyni

Tæknivarpið fær frumkvöðulinn Hjálmar Gíslason frá GRID í heimsókn til að ræða framtíðina. Hjálmar gaf út nýlega árlega tæknispá á Kjarninn.is fréttamiðlinum (sjá hér: https://kjarninn.is/skyring/2021-01-04-taeknispa-2021-thrir-sterkir-straumar/). Stjórnendur eru Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir.

Feb 15, 20211 hr 14 min

Tæknivarpið – Snjallvæðing heimila

Við fáum frábæran gest til að fara yfir snjallvæðingu heimila, hann Marinó Fannar Pálsson, stofnanda Facebook hópsins Snjallheimili. Stjórnendur eru Gunnlaugur Reynir og Elmar Torfason.

Feb 13, 20211 hr 43 min

Pottersen – 48. þáttur: Lokaþáttur

Emil og Bryndís ræða þátt fjögur í leikritinu Harry Potter og bölvun barnsins. Albus og Scorpius eru fastir í Godricsdal árið 1981, skömmu áður en Voldemort myrðir James og Lily Potter. Þeim tekst að koma skilaboðum til nútímans og gamla gengið Harry, Hermione, Ron, Ginny og Draco mæta á staðinn til að stöðva Delphi, dóttur Myrkrahöfðingjans. Pottersen lýkur nú för sinni í gegnum galdraheiminn og kveður með kærri þökk til hlustenda.

Feb 12, 202138 min
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android