Í þessum þætti er fjallað um hið stutta tímabil þegar Fukuhara, betur þekkt sem upprunastaður Kobe nautakjötsins, var höfuðborg Japans í aðeins eitt ár. Þegar Kiyomori tekst að fá upp á móti sér voldugustu hof og klaustur Japans stefnir hann öllum afkomendum sínum, og arfleið sinni í hættu – hinum átta ára Antoku keisara þar með töldum. Í Heike-sögu, kvæðabálk frá þrettándu öld, er fall ættar hans rakið til skapgerðarbresta í þessum hrokafulla stríðsmanni, en bakvið áróðurinn glittir mögulega í ...
Feb 11, 2021•57 min
Um allan heim er margvísleg þjóðtrú um fugla. Í þjóðtrú hérlendis er hrafninn til dæmis oft talinn slæmur fyrirboði. Í nokkrum þjóðsögnum birtist hrafninn þó sem bjargvættur þegar hann bjargar þeim sem hafa gert honum vel frá skriðuföllum. Sigurður Ægisson er sóknarprestur á Siglufirði og þjóðfræðingur. Í lok síðasta árs kom út bók eftir Sigurð sem nefnist Íslensku fuglarnir og þjóðtrúin. Bókin er vegleg og mikil að vöxtum enda var hún 25 ár í smíðum. Þá prýða hana fjöldi mynda og korta sem sýna...
Feb 09, 2021•42 min
Fátt hefur haft meiri áhrif á daglegt líf okkar Vesturlandabúa í seinni tíð en stafræna byltingin svokallaða. Stafrænni tækni hefur fleygt fram og meðal annars fært okkur internetið, snjallsíma og samfélagsmiðla. Samhliða hefur tæknin aukið aðgengi og flæði upplýsinga, breytt því hvernig við eigum samskipti, hvernig við leitum að upplýsingum, hvernig skólahaldi er háttað, hvernig við neytum menningarefnis og hvernig fólk hagar sér í tilhugalífinu. Þá er fíkniefnamarkaðurinn er gjörbreyttur með t...
Feb 09, 2021•1 hr 13 min
Safnastarf er víða frjótt og blómlegt. Minjasafn Austurlands á Egilsstöðum er engin undantekning frá því. Safnið stendur fyrir fjölbreyttri og áhugaverðri starfsemi en hefur í verkefnum sínum þurft að aðlaga sig að Covid-heimsfaraldri. Safnið hefur lagt mikla áherslu á þjónustu við nærsamfélagið og sérstaka rækt við yngri kynslóðina. Í þættinum ræða Dagrún og Vilhelmína við Elsu Guðnýju Björgvinsdóttur safnstjóra Minjasafns Austurlands. Hún segir frá fjölbreyttri starfsemi safnsins og skemmtileg...
Feb 02, 2021•42 min
Hlaðvarp félagsfræðinnar snýr loksins aftur og er fyrsti þátturinn ekki af verri endanum. Í honum spjallar Sigrún við Rashawn Ray, prófessor í félagsfræði við Háskólann í Maryland í Bandaríkjunum. Undanfarið ár hefur Rashawn líka verið með rannsóknarstöðustyrk frá Brookings stofnuninni, en markmið hennar er að vinna að rannsóknum sem leiða til nýrra hugmynda um hvernig hægt er að leysa ýmis vandamál samfélagins. Í rannsóknum sínum hefur Rashawn sérstaklega lagt áherslu á ójöfnuð tengdan kynþætti...
Feb 01, 2021•56 min
Eftir skammvinna borgarastyrjöld, þar sem Go-Shirakawa hrekur burt her bróður síns Sutoku á flótta, telur nýi keisarinn sig hafa öll völd í hendi sér. En þau öfl sem stríðið hefur leyst úr læðingi eru ekki svo auðveldlega aftur bundin, og innan skamms brjótast aftur út átök milli stríðandi fylkinga samúræja, til að útkljá hvernig Japan skuli framvegis stýrt. Í þessum fyrri þætti af tveimur er sagt frá pólitíkusnum og samúræjanum Taira no Kiyomori sem reis hærra heldur en nokkur úr stríðsmannasté...
Jan 28, 2021•58 min
Í Bandaríkjunum er unnið að spennandi verkefni sem nefnist 100 ára stjarnflugsáætlun. Verkefnið gengur út á að árið 2112 sé hægt að senda stóran hóp fólks út úr sólkerfinu til þess að búa í geimnum. Það er að mörgu að huga í svo stóru verkefni og þjóðfræðin getur svo sannarlega lagt sitt af mörkum. Í þættinum ræða Dagrún og Vilhelmína við þjóðfræðinginn Karl Aspelund sem er dósent og deildarforseti við deild tísku, markaðsfræði og hönnunar við háskólann í Rhode Island í Bandaríkjunum. Karl segir...
Jan 26, 2021•50 min
Emil og Bryndís ræða þátt þrjú í leikritinu Harry Potter og bölvun barnsins. Scorpius Malfoy er staddur í versta galdraheimi sem hægt er að hugsa sér. Tímaflakk hans og Albusar Potters fór algjörlega úr böndunum. Scorpius leitar aðstoðar Hermione, Rons og Snapes, en hann er á lífi í þessum heimi. Þrátt fyrir að þeim takist að leiðrétta mistökin hrannast vandamálin upp að nýju. Við komumst meðal annars að því að Delphi Diggory hefur stýrt atburðarásinni og er víst alls ekki Diggory. En hver er hú...
Jan 22, 2021•45 min
Sutoku varð ungur að árum keisari og ef ekki hefði verið fyrir að faðir hans og bræður plottuðu gegn honum hefði hann átt dag einn að stýra Japan í eigin nafni. Hann endaði ævi sína í útlegð eftir skammvinna borgarastyrjöld, en er þó í dag mun þekktari sem draugurinn Sutoku – einn af máttugustu og hættulegustu draugum Japans. Í þessum þætti kynnumst við þjóðsagnapersónunni og hinum raunverulega keisara og veltum vöngum yfir hvað sé hæft í orðrómum og samsæriskenningum um þennan umdeilda keisara....
Jan 21, 2021•56 min
Nú er loksins komið að því. Þáttur ársins er mættur, aðeins seinna en vanalega út af sottlu. Þar fer næstum allur hópurinn bak við Tæknivarpið (og Simon.is) yfir það sem var mest spennandi í nýrri tækni og tækjum á árinu sem var að líða. Flokkarnir eru eftirfarandi: * Græja ársins * Sími ársins * Kaup ársins * Leikur ársins * Farleikur ársins * App/forrit ársins * Kvikmynd ársins * Sjónvarp ársins * Hlaðvarp ársins * Stærsta tæknifrétt ársins Við þökkum kærlega fyrir innsend svör hlusten...
Jan 21, 2021•2 hr 9 min
Íslendingar vilja gjarnan líta á sig sem bókmenntaþjóð þar sem lestur er í hávegum hafður. Mikil opinber umræða á sér stað um bækur, lestur, læsi og fleira. Þetta sést til dæmis þegar niðurstöður Pisa-kannana eru birtar en þá gýs gjarnan upp mikil og stundum heit umræða um lestur og lesskilning barna og ungmenna. Stjórnvöld hafa brugðist við með ýmsum hætti og mótað opinbera stefnu, meðal annars til að hvetja til aukins lestur og betri lesskilnings. Er lestur ekki öllum bestur? Í þættinum ræða D...
Jan 19, 2021•42 min
Matur er mannsins megin og öll þurfum við að borða. Við komumst ekki af án matar og verjum gríðarlega tíma á hverjum degi í að hugsa um mat, meðhöndla mat og auðvitað borða mat. Matarmenning og matarhættir eru frjótt og öflugt rannsóknarsvið innan þjóðfræði, en breytingar í samfélaginu endurspeglast meðal annars í því hvernig við nálgumst mat og hvernig og hvað við borðum. Í þættinum ræða Dagrún og Vilhelmína við Jón Þór Pétursson sem lauk doktorsprófi í þjóðfræði frá Háskóla Íslands í maí 2020....
Jan 12, 2021•38 min
Það er fullt af íslenskum tæknifréttum á nýju ári. Twitter kaupir Ueno, Matís prentar mat og CERTÍS fær nýjan stjórnanda. Samsung opnar nýja árið með árgerð 2021 af S-línuni sem verður kynnt í næstu viku. Þetta verða þrír nýir snjallsímar: Samsung Galaxy S21, S21 Plus og S21 Ultra. Elmar heldur áfram að leggja Apple í einelti. AirPods Pro og Airpods Max vandamál, AirPods gen 3 á leiðinni á markað? Sjónvörp árið 2021. Hvað eru dimming zones? Svo kaupir Elmar dót.
Jan 09, 2021•1 hr 1 min
Emil og Bryndís ræða þátt tvö í leikritinu Harry Potter og bölvun barnsins. Ólíkt feðrum sínum eru Albus Potter og Scorpious Malfoy orðnir perluvinir, sem Harry líst ekkert á. Hann finnur til í örinu, myrku öflin eru farin að láta á sér kræla á ný og hann telur þau tengjast Malfoy-stráknum. Tvisvar ferðast strákarnir aftur í tímann í von um að bjarga Cedric Diggory frá dauða, en þegar aftur er snúið hefur býsna margt breyst. Þeir hafa umturnað veröldinni og annar þeirra eyddi í raun eigin tilvis...
Jan 08, 2021•54 min
Í þessum þætti er farið víða um völl, við kynnumst bólusóttarguðinum og hyrndum andstæðingi hans, hvernig keisarinn Shirakawa stýrði Japan úr klaustri og hvað Japanir gera til að fagna nýju ári.
Jan 07, 2021•37 min
Öll höfum við okkar hugmyndir um víkinga sem sigldu um úfin höf, könnuðu ókunn lönd, börðust og rændu. Fornleifarannsóknir hafa fært okkur minjar frá víkingatímanum og fræðafólk úr ýmsum greinum hefur velt vöngum yfir lífi og sögu þeirra. Víkingar hafa einnig verið vinsælt þema í ímyndarsköpun, afþreyingariðnaði og markaðsherferðum. En er ímynd víkinga, túlkun og framsetning á söfnum alltaf í samræmi við sögulegar heimildir? Hvað með skuggahliðar víkinga? Í þættinum ræða Dagrún og Vilhelmína við...
Jan 05, 2021•45 min
„Þetta bara núllstillti okkur,“ segir Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum um áhrifin sem COVID-19 hafði á samfélagið í Eyjum. „Ég var til dæmis bókuð 14 helgar í röð, allt í einu tæmdist allt dagatalið mitt. Fjölskyldustundirnar urðu fleiri,“ segir Íris. Jarl Sigurgeirsson, skólastjóri í Tónlistarskólanum í Vestmannaeyjum, segir kennara við skólann hafa lært á mörg fjarfundarforrit og að kennslan hafi gengið vonum framar með óvenjulegum kennsluháttum. Sóley Guðmundsdóttir, meistaran...
Dec 30, 2020•30 min
Hljóðrit úr þjóðfræðisafni Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum eru aðgengileg á vefnum ismus.is. Safnið er mikið að vöxtum og dýrmæt heimild um alþýðumenningu fyrri tíma, m.a. sagnir, kveðskap og fleira. Safnið nýtist fræðimönnum við rannsóknir en er einnig uppspretta og innblástur fyrir ýmsa listamenn. Í þættinum ræða Dagrún og Vilhelmína við Rósu Þorsteinsdóttur rannsóknarlektor hjá Árnastofnun sem leiðir okkur í allan sannleikann um safnið og notkunarmöguleika þess. Hún segir meðal ...
Dec 29, 2020•59 min
„Við vissum að veiran myndi koma með Herjólfi,“ segir Páley Borgþórsdóttir, fyrrverandi lögreglustjóri í Vestmannaeyjum, um COVID-19 hópsýkinguna í Vestmannaeyjum í mars. Páley fór fyrir aðgerðarstjórn almannavarna í Vestmannaeyjum í fyrstu bylgju COVID-19 þegar rúmlega 100 manns greindust með veiruna á 37 dögum. Einnig mæddi mikið á Ragnheiði Perlu Hjaltadóttur, hjúkrunarfræðingi sem meðal annars þurfti að flytja út af heimili sínu þegar ung dóttir hennar fór í sóttkví. Sóley Guðmundsdóttir, me...
Dec 28, 2020•30 min
Hver sem er getur reiðst yfir sviknu loforði, en þegar munknum Raigo er synjað um að stækka hofið sem hann elskar af sjálfum keisaranum endar það með ósköpum fyrir alla sem koma nærri. Í þessum þætti er einnig fjallað um fyrri hluta valdatíð keisarans Shirakawa og þróun Tendai búddisma á Heian-tímanum.
Dec 23, 2020•45 min
Það er búið að kynna fullt af nýjum símum. Sími með myndavél undir skjá, fyrsti síminn með Snapdragon 888 örgjörva með innbyggðu 5G, og Oneplus sími með litabreytanlegu baki sem enginn þarf. Solarwinds var hakkað, en hvað þýðir það eiginlega? Lekar um Apple bíl eru komnir af stað aftur eftir að þeir lognuðust af og það virðist vera bíll á leiðinni á árinu 2024. Við rennum svo yfir okkar uppáhalds tæknijólagjafir þetta árið. Spoiler: það eru Apple vörur á listanum. Stjórnendur í þætti 261 eru Atl...
Dec 22, 2020•1 hr 2 min
Viðfangsefni þjóðfræðinnar eru fjölbreytt en hefðir og hátíðir eru gjarnan umfjöllunarefnið. Segja má að jólin séu háannatími hjá mörgum þjóðfræðingum enda eru þeir miklir sérfræðingar þegar kemur að hátíðarhöldum og gleðskap. Í sérstökum jólaþætti bregða Dagrún og Vilhelmína undir sig betri fætinum og ræða við þjóðfræðingana Rósu Þorsteinsdóttur, Jón Jónsson, Eirík Valdimarsson, Áka Guðna Karlsson og Dagnýju Davíðsdóttur sem segja frá jólaminningum og jólahefðum. Í þættinum ríkir sannkölluð jól...
Dec 22, 2020•52 min
Covid19-jól eru handan við hornið og við ætlum að kafa í tölvuleikina. Við fáum til okkar góðan gest, hann Snæbjörn Ragnarsson (einnig kallaður Bibbi), þungarokkara og hlaðvarpsstjórnanda. Við ræðum stærstu leiki ársins og klúður ársins: Cyberpunk 2077. Við færum okkur svo í framtíðina og ræðum mest spennandi leikina sem eru væntanilegir á næsta ári. Stjórnendur eru Bjarni Ben og Gunnlaugur Reynir.
Dec 21, 2020•1 hr 55 min
Háskóli Íslands starfrækir rannsóknasetur víðs vegar um landið. Eitt slíkt hefur verið starfrækt á Ströndum síðan árið 2016 og þar er áherslan á þjóðfræðirannsóknir og miðlun. Í þættinum hitta Dagrún og Vilhelmína verkefnisstjóra setursins á Ströndum, Jón Jónsson þjóðfræðing. Í rannsóknum setursins kennir ýmissa grasa og segir Jón frá þeim fjölbreyttu verkefnum sem þar eru unnin. Við ræðum meðal annars um hvað samfélagið getur lært af sögnum um förufólk og jaðarsetningu og um dagbókarskrif og ti...
Dec 15, 2020•38 min
Meðal þess sem rætt er í þætti vikunnar er óvænt útspil Apple sem kynnti ný heyrnartól yfir eyrun sem kallast AirPods Max. Óhætt er að segja að meðlimir Tæknivarpsins eru misjafnlega spenntir fyrir þeim en sammála um að hönnunin sé falleg. Eða kannski ekki. Þá veltu umsjónarmenn þáttarins því fyrir sér hvernig á því stendur að nýju Macbook Air og Pro tölvurnar með M1 örgjörvanum eru enn ekki komnar í sölu á Íslandi. Allavega ekki opinberlega. Gulli ætlar að vaka fram eftir og spila Cyberpunk 207...
Dec 11, 2020•1 hr 13 min
Pottersen-systkinin Emil og Bryndís hefja lestur á Harry Potter og bölvun barnsins, leikritinu sem gefið var út á bók. Fyrsti þáttur (Act I) er nú til umræðu. Þetta er áttunda sagan um Harry og félaga og hún hefst nítján árum eftir fall Voldemorts. Sagan hverfist samt ekki um Harry, heldur er aðalpersónan yngri sonur hans, Albus Severus Potter. Ólíkt pabba sínum og stóra bróður gengur Albusi illa í Hogwarts, hann er valinn í Slytherin-heimavistina og finnst hann einskis nýtur. Smám saman fjarlæg...
Dec 11, 2020•1 hr 14 min
Kórónuveiran hefur heldur betur valdið usla í samfélaginu með tilheyrandi aðlögun og breytingum á hversdagslífi fólks. Faðmlögum og handabandi hefur nú verið skipt út fyrir sprittbrúsa og andlitsgrímur og óvíst hvort og hvaða breytingar eru komnar til að vera. En hvað getur hversdagsleg menning sagt okkur um samfélagið? Í þættinum ræða Dagrún og Vilhelmína við Valdimar Tr. Hafstein prófessor í þjóðfræði við Háskóla Íslands um hversdagslíf á tímum heimsfaraldurs og sjónarhorn þjóðfræðinnar á þess...
Dec 08, 2020•1 hr 1 min
Í þætti vikunnar ræða Andri Valur, Elmar og Gunnlaugur um allt og ekkert í tæknimálum. Það sem rætt er í þættinum er meðal annars lesbrettið frá Storytel sem við höfum verið með í prufu, vinsælustu íslensku hlaðvörpin, kaup Salesforce á Slack, LG sjónvarpsblæti meðlima Tæknivarpsins og alvarlegur veikleiki í eldri útgáfu af iOS sem var sagt var frá nýlega í fréttum. Og jú dregnar voru til baka fullyrðingar úr síðasta þætti Tæknivarpsins um að ekki kæmu fleiri PS5 vélar til landsins á árinu. Það ...
Dec 04, 2020•1 hr 19 min
Við lítið en heilagt fjall norðan Kyoto er klaustur með ævafornum en óvenjulegum sið. Munkar þar fara út að skokka, tugi kílómetra, hundrað daga í senn. Þessi siður er til að öðlast náð og visku guðsins Fudo Myo, en sumir taka þetta í slíkar öfgar að þeir hætta ekki að hlaupa árum saman og hlaupa sumir og fasta í heil sjö ár.
Dec 03, 2020•55 min
Þjóðhættir er glænýtt hlaðvarp um rannsóknir og miðlun í þjóðfræði. Sjónum verður beint að fólki og hvaða merkingu það leggur í siði og venjur, hluti og umhverfi auk þess sem fjallað verður um ólíkar miðlunarleiðir, söfnun og hagnýtingu þjóðfræðiefnis og margt fleira. Umfjöllunarefnin eru fjölbreytt og spennandi og hafa mörg hver óvænta tengingu við samfélagsumræðuna. Umsjónarkonur eru Dagrún Ósk Jónsdóttir og Vilhelmína Jónsdóttir doktorsnemar í þjóðfræði. Í fyrsta þættinum hitta Dagrún og Vilh...
Dec 01, 2020•57 min