Á eftir níu ára stríði, sem tók tólf ár, fylgdi þriggja ára stríð sem tók sex ár í norðurhluta japanska keisaradæmisins. En þegar norðrið sameinaðist undir stjórn Fujiwara no Kiyohira varð til nærri sjálfstætt konungdæmi sem entist fjórar kynslóðir og reisti sér bækistöðvar sem jöfnuðust á við sjálfa höfuðborgina í suðri.
Nov 26, 2020•36 min
Í þætti vikunnar fara Axel og Bjarni yfir fyrstu reynslu sína af PS5. Allt um nýju Dualsense fjarstýringuna, fjármögnun með bland braski, fjarspilun með PS5 remote play og nýja og gamla leiki. Ef þú náðir náðir ekki að forpanta eintak ertu í vondum málum, því við fengum staðfest frá Óla Jóels hjá Senu að það koma sennilega ekki fleiri eintök af PS5 á þessu ári, þrátt fyrir loforð Sony um fleiri vélar. Í öðrum fréttum förum við yfir Svartan föstudag (eða svarta viku eins og Íslendingar hafa tilei...
Nov 26, 2020•1 hr 24 min
Atli fjallar um iPhone 12 mini og Watch SE með LTE-sambandi sem hann hefur verið að prófa. Síminn er með talsvert lakari rafhlöðuendingu en hinir símarnir sem voru að koma út og munu ekki henta kröfuhörðum. Apple Watch SE með LTE er nokkuð góður díll þannig séð þar sem það sem þú færð ekki hefur ekki það mikil áhrif á upplifun. Axel undirbýr sig fyrir jólin, því þau koma snemma í ár þar sem Playstation 5 afhendist í vikunni. Nokkrir í hópnum náðu að forpanta og ætla að sökkva sér í spilun um hel...
Nov 19, 2020•1 hr 10 min
Storytel hefur gefið út sitt eigið lesbretti og kostar það 18.990 krónur stykkið. Brettið er háð áskrift frá Storytel og er einungis hægt að nýta sér bækur þaðan. Brettið er 200 grömm og með baklýstan skjá með rafbleki. Apple breytti heiminum á þriðjudaginn og kynnti nýjar Mac-tölvur með ARM örgjörvum. Tæknivarpið fer yfir allt um Mac-viðburðinn 10. nóvember! Stjórnendur í þætti 255 eru Andri Valur, Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir.
Nov 12, 2020•1 hr 5 min
Gunnar Logi Guðrúnarson er 11 ára Akureyringur. Hann er Pottersérfræðingur, hann hefur lesið bækurnar margsinnis og hlustað á alla Pottersen-þættina. Emil og Bryndís spjölluðu við hann á Skype um áhuga hans og þau fræddust um leið, því Gunnar er að vonum margfróður um heiminn. Á meðan á spjallinu stóð var ákveðið að næst skyldu Pottersen-systkinin lesa og ræða leikritið Harry Potter og bölvun barnsins. Pottersen þakkar Gunnari Loga kærlega fyrir skemmtilegt spjall.
Nov 06, 2020•35 min
Apple Watch snjallúrið fær loksins farsímasamband á Íslandi í nóvember og ríður Nova fyrst á vaðið. Nova fór af stað með látum og bjó til augýsingu fyrir úrið þar sem allir fara úr fötunum. Hin stóru fjarskiptafélögin segjast öll vera að vinna að LTE-stuðningi. Sýn kynnti nýtt uppgjör og fer inn á mögulega sölu óvirkra innviða. Nova er einnig í viðræðum um sölu á innviðum. Sýn er tvístígandi í 5G út af mögulegu banni á notkun búnaðar frá Huawei, sem er áhugavert því bæði Nova og Sýn eru að setja...
Nov 06, 2020•1 hr 23 min
Hinu langa friðartímabili Heian er í þann mund að ljúka. Í þessum þætti verður ris og fall einnar samúræja-ættar skoðað, en örlög Abe-ættarinnar er þó einungis forleikurinn af því sem koma skal þegar samúræjarnir láta sér ekki lengur duga að vera þjónar og útsendarar heldur ákveða að gerast virkir þátttakendur í valdataflinu.
Nov 05, 2020•47 min
Póst- og fjarskiptastofnun framkvæmdi neytendakönnun á íslenskum fjarskiptamarkaði og gaf út niðurstöðurnar í vikunni. Við rennum snögglega yfir niðurstöður sem eru mjög viðamiklar. Tæknivarpið fór í útvarpsviðtal og var skemmtilega sakað um að vera falin auglýsing í Facebook grúppunni Markaðsnördar 🤓 AMD svarar NVidia fullum hálsi með nýjum skjákortum sem gefa nýju RTX línunni ekkert eftir: RX6000 línunni. Cyberpunk 2077 hefur verið seinkað, aftur, og kemur út 10. desember. Önnur kynslóð Motor...
Oct 30, 2020•1 hr 19 min
Risavaxnar köngulær sem geta umbreytt sér í fagrar konur og blóðþyrstir marglita risar með horn á höfði eru umfjöllunarefni þáttarins þessa viku. Enda styttist í hrekkjavöku og aldrei að vita nema einhver þessara skrímsla sem koma fyrir í þættinum verði innblástur búninga. Í kringum árið þúsund ferðaðist stríðsmaðurinn Minamoto no Yorimitsu (einnig þekktur sem Minamoto no Raiko) um Japan og barðist við drauga og ófreskjur ef marka má sögurnar af honum. En hvaðan komu þessi skrímsli og hversu rau...
Oct 29, 2020•49 min
Í þætti vikunnar förum við yfir verðleysi á iPhone í forpöntunum á Íslandi (sem var að detta inn), nýju snjallhátalarana frá Google og Amazon sem eru að fá fanta dóma. Einnig er fjallað um umfjöllun um umfjöllun á iPhone 12, 12 Pro, Pixel 5 og 4a 5G og við syrgjum dauða Quibi og Google Play Music. Umsjónarmenn þáttarins eru Axel Paul, Gunnlaugur Reynir og Kristján Thors.
Oct 23, 2020•1 hr 1 min
Í kringum árið 1000 háðu tvær keisaraynjur kalt stríð við hirðina í Heian og afleiðingar þess eru tvö stærstu bókmenntaverk Japanssögunnar. Ævintýrið um Genji sem skrifað var af Murasaki Shikibu, hirðkonu í þjónustu Fujiwara-ættarinnar, þykir enn þann dag í dag með því besta sem skrifað hefur verið á japönsku, en verkið er líka ráðgáta. Hvernig gat miðaldakona skrifað jafn nútímalega skáldsögu?
Oct 22, 2020•50 min
Hvernig geta afleiðingar loftslagsbreytinga leitt til ófriðar og átaka? Hvernig getur almenningur og grasrótarhreyfingar unnið gegn loftslagsbreytingum og þeim ófriði sem þeim getur fylgt? Erum við að gera nóg? Í þessum þætti ræðir Margrét Marteinsdóttir við Hafdísi Hönnu Ægisdóttur, verkefnastjóra hjá Stofnun Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun, Þorgerði Maríu Þorbjarnardóttur, formann Ungra umhverfissinna og Atla Viðar Thorstensen, sviðsstjóra hjálpar- og mannúðarsviðs hjá Rauða krossi Íslands u...
Oct 16, 2020•35 min
Ef Sei Shonagon hefði verið uppi í dag væri hún hugsanlega tískubloggari, pistlahöfundur eða hugsanlega bara fyndin á Twitter – en þessi hirðkona við hirð Ichijo keisara náði að skemmta lesendum sínum með skörpum athugasemdum, hárbeittu háði, safaríku slúðri og stundum opinberandi einlægni. Með því að glugga í Koddabókina sem hún skrifaði í kringum aldamótin 1000 getum við komist að því hvernig það var að vera kona við hirðina í Heian og um leið uppgötvað hvað þessi tiltekna kona elskaði, hataði...
Oct 15, 2020•51 min
Apple hélt viðburð á þriðjudaginn og kynnti því miður ekki 120 riða skjá. Apple kynnti hinsvegar fjóra nýja iPhone síma, lítinn snjallhátalara og endurkomu Magsafe hleðslutækja. Homepod mini var kynntur fyrst og er nýr lítill snjallhátalari sem kostar 99USD og á að geta fyllt herbergi þrátt fyrir smæð. Apple bætir líka við nýjum streymiveitum í flóru Homepod, en því miður er Spotify ekki ein þeirra. Ef þú setur tvo Homepod mini í sama herbergi, munu þeir sjálfkrafa bjóða upp á víðóma hljóð. Snið...
Oct 15, 2020•1 hr 18 min
Hefur Ísland rödd á alþjóðavettvangi? Getur Ísland haft áhrif í alþjóðakerfinu þegar kemur að því að sporna gegn ofbeldi og stuðla að friði á heimsvísu? Í þessum þætti ræðir Margrét Marteinsdóttir við Piu Hansson, forstöðumann Höfða friðarseturs og Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, um stærstu áskoranirnar sem framundan eru í friðarmálum og möguleika smáríkja til áhrifa á alþjóðavettvangi, Davíð Loga Sigurðsson, deildarstjóra á Alþjóða- og Þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins, um ...
Oct 15, 2020•56 min
Ríkir friður inni á heimilum barna á Íslandi? Hvaða úrræði eru fyrir börn sem búa við óöryggi, ofbeldi eða vanrækslu? Hvaða áhrif hefur COVID-19 haft á öryggi barna á Íslandi? Hvernig getur fólk hjálpað? Í þessum þætti ræðir Margrét Marteinsdóttir við Birnu Þórarinsdóttur, framkvæmdastjóra UNICEF á Íslandi, Hlín Sæþórsdóttur, félagsráðgjafa hjá barnavernd Reykjavíkur, Heiðu Björgu Pálmadóttur forstjóra Barnaverndarstofu, Önnu Elísabetu Ólafsdóttur, verkefnastjóra innleiðingar Barnasáttmálans og ...
Oct 14, 2020•44 min
Hverjar eru birtingarmyndir kynbundins ofbeldis? Hverjir eru gerendur og hvernig er hægt að stuðla að opinskárri umræðu við þá? Ríkir friður inni á íslenskum heimilum? Í þessum þætti ræðir Margrét Marteinsdóttir við Stellu Samúelsdóttur, framkvæmdastýru UN Women á Íslandi, Örnu Hauksdóttur og Unni Valdimarsdóttur, prófessora við Háskóla Íslands og rannsakendur Áfallasögu kvenna og Drífu Jónasdóttur, afbrotafræðing og doktorsnema við Læknadeild Háskóla Íslands. Í lok þáttar heyrum við brot úr pis...
Oct 13, 2020•49 min
Hvað er friður? Hvernig tengist hugtakið okkur sem einstaklingum og hvaða merkingu leggjum við í það hér á Íslandi? Hvernig tengist friður umræðu um ofbeldi og mismunun? Í þessum þætti ræðir Margrét Marteinsdóttir við Guðrúnu Sif Friðriksdóttur, doktor í mannfræði, Stefán Pálsson, sagnfræðing og Jökul Inga Þorvaldsson, ungmennafulltrúa Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði barna og ungmenna, um frið og ófrið hér heima og að heiman. Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í alþjóðasamskiptum, flytur p...
Oct 12, 2020•21 min
Frá árunum 940 til ársins 1000 drottnaði Fujiwara-ættin yfir Japan í gegnum ríkisstjóra og ráðgjafa-embættin Sessho og Kanpaku, en það var ekki alltaf fullkomin sátt um hvaða meðlimur ættarinnar tæki að sér hvaða hlutverk. Bræður tókust á innbyrðis og inn í þessar deilur blönduðust barnakeisarar, mæður þeirra, unnustur og frændfólk. Í þessum þætti kynnumst við pólitíkusunum Fujiwara no Tadahira, Fujiwara no Kaneie og fleiri ættmennum þeirra sem stýrðu bakvið tjöldin, í gegnum oft og tíðum býsna ...
Oct 09, 2020•42 min
Í 250. þætti Tæknivarpsins er farið um víðan völl. Við fjöllum um hrinu netsvindla á Íslandi sem lögreglan varar við, nýjar Surface vélar frá Microsoft, Google rabrandið úr G-Suite í Workspace, nýjungar í Slack spjallkerfinu, innyflin í PS5 þar sem leynist risa kæliplata og vifta á við þotuhreyfil og svo allt sem verður og gæti verið á Apple viðburðinum 13. október (iPhone, iPhone, iPhone, iPhone!). Stjórnendur þáttarins eru Atli Stefán, Axel Paul, Bjarni Ben og Mosi.
Oct 08, 2020•1 hr 10 min
Tæknihaustið er byrjað og fyrirtækin geta ekki hætt að kynna ný tæki og þjónustu. Amazon hélt stutta 30 mínútna vélbúnaðarkynningu en náði samt einhvern megin að kynna 22 tæki. Amazon er með fullt af nýjum kúlulaga Echo snjallhátölurum og öryggisdróna sem vaktar heimilið þitt (og gæti gert gæludýrin þín geðveik). Google kynnti tvo nýja Pixel síma, nýtt Chromecast með fjarstýringu og Google TV sem keyrir á Android TV (já þú last rétt) og Google Nest audio snjallhátalara sem tekur við Google Home ...
Oct 02, 2020•1 hr 19 min
Í þessum þætti kynnumst við þjóðhetju og goðsögn. Í augum sumra er Taira No Masakado eitt af verstu illmennum í sögu Japans, og illur andi hans ennþá eitthvað sem okkur ber að virða og óttast – maður sem gerði uppreisn gegn keisaranum á tíundu öld og náði að hrekja fjármálaráðuneyti Japans úr húsnæði sínu á tuttugustu öld. Aðrir líta á hann sem hetju, nokkurs konar Hróa Hött Japans: Mann sem reis upp gegn elítunni og tapaði öllu. Hver er sannleikurinn? Hver var fyrsti samúræinn? Og hvernig varð ...
Oct 01, 2020•1 hr 7 min
Pottersen-systkinin Emil og Bryndís hafa nú lesið og rætt í þaula allar Harry Potter-bækurnar sjö! Í þessum þætti liggja kaflar 35-36 og eftirmálinn fyrir. Harry hittir Dumbledore á óræðum stað milli lífs og dauða þar sem þeir ræða málin. Þeir kveðjast í hinsta sinn og Harry vaknar aftur í Forboðna skóginum. Lokaátökin eiga sér stað í Hogwarts, enginn er tilbúinn til að gefast upp fyrir Voldemort. Örlög Trevors Delgome eru ráðin. Nítján árum eftir bardagann hittum við söguhetjurnar aftur þar sem...
Sep 25, 2020•1 hr
Í þessum þætti er farið víða um völl. Rædd verður skáldkonan Ono No Komachi sem var dáð fyrir ljóðlist sína í lifandi lífi, en drusluskömmuð af síðari kynslóðum, dagbækur Heian-aðalfólks, bæði kvenna og karla sem þykjast vera konur, og loks ævintýri um börn sem búa inn í risavöxnum melónum, ferskjum og glóandi bambusstilkum. Stuðst er við ljóðaþýðingar Helga Hálfdánarsonar og Péturs Hafsteins Lárussonar í þættinum.
Sep 24, 2020•55 min
Þáttur vikunnar er tímamótaþáttur! Það er foreldralaust partý þar sem hvorki Gulli né Atli eru á staðnum. Fyrri helmingur þáttarins inniheldur allt um nýju Pixel 5 og OnePlus 8T lekana, Facebook hótanir um að fara frá Evrópu, Tesla Battery Day og okkar uppáhalds nýjungar í iOS 14. og WatchOS 7. Í seinni helmingi þáttarins förum við yfir allar helstu fréttirnar um PS5 og Xbox One S Series X 1080. Forpantanafíaskó, nýja leiki og nýjasta Bland ævintýri Axels. Umsjónarmenn þáttar 248 eru Axel Paul, ...
Sep 24, 2020•1 hr 9 min
Ariwara No Narihira var afkomandi tveggja keisara en þó einungis minniháttar embættismaður, fylgdarmaður í liði prins sem tapað hafði í valdabaráttunni og yngstur fimm bræðra sem flestir nutu meiri frama en hann. Engu að síður lifa sögurnar um Narihira áfram, enda sumar þeirra mögulega með mestu hneykslismálum síns tíma. Svaf Narihira hjá bæði systur keisarans og eiginkonu, og var hann mögulega hinn raunsanni faðir krónprinsins?
Sep 17, 2020•1 hr 9 min
LG ætlar að búa til tveggja skjáa síma þar sem annar skjárinn snýst og kynningin sló óvart í gegn. Nvidia er að kaupa ARM og við erum ekki alveg vissir hvað það þýðir. Apple hélt stutta kynningu og kynnti allt nema nýja iPhone síma. Sony afhjúpaði verðin á Playstation 5 og sendir geisladiskum puttann. Stjórnendur í þætti 247 eru Andri Valur, Atli Stefán, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir.
Sep 17, 2020•1 hr 30 min
Nú er farið að styttast í sögulok. Emil og Bryndís ræða kafla 32-34 í Harry Potter og dauðadjásnunum. Eftir að góðkunnar persónur falla í bardaganum um Hogwarts vilja Harry og félagar fara beint til Voldemorts og eyðilegga síðasta helkrossinn. Í Draugakofanum fylgjumst við með örlögum Snapes. Harry fær minningar frá honum og loks fáum við að vita hver Snape er í raun og veru. Harry kemst að því hvað honum er raunverulega ætlað að gera. Einsamall mætir hann Voldemort í Forboðna skóginum …
Sep 11, 2020•1 hr 4 min
Frá því Otenmon-hallarhliðið brann til kaldra kola árið 866 hefur Fujiwara-ættin drottnað yfir öðrum, en undir lok níundu aldarinnar mætti á sjónarsviðið embættismaður sem óttaðist engan og elskaði plómur. Hann var hliðhollur ungum keisara sem nefndist Uda og var sá fyrsti í meira en hálfa öld sem ekki átti Fujiwara-móður. En embættismannakerfið er þétt setið með skósveinum Fujiwara-ættarinnar og það reynist þrautinni þyngra að snúa á klæki þeirra.
Sep 10, 2020•45 min
Apple hefur sett viðburð á dagskrá og Tæknivarpið fer yfir ALLA lekana um nýjar græjur. Við tölum ekki bara um Apple (við reyndum en það er fullt af tæknifréttum). Það er búið að setja Doom upp á stafrænni óléttustöng. Microsoft kom öllum á óvart og kynnti nýja Xbox tölvu sem kemur í sölu á sama tíma og Xbox One Series X. Svo er fullt af spennandi símum á leiðinni: nýr Poco sími, LG Wind sími með „flip skjá“ og Razr 2. Við rennum líka hratt yfir tilkynningar af IFA ráðstefnunni. Stjórnendur eru ...
Sep 10, 2020•1 hr 28 min