Hlaðvarp Heimildarinnar - podcast cover

Hlaðvarp Heimildarinnar

Heimildinheimildin.is
Í hlaðvarpi Heimildarinnar, áður Kjarnans, má finna fjölbreytta þætti um allt frá pólitík til heiðarlegs skyndibita eða nýjustu græjunnar.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Tæknivarpið S06E01 – Epic pönkast í risum

Velkomin í sjöttu þáttaröð Tæknivarpsins! Það er búið að vera fullt af tæknifréttum í sumar. Vodafone og Nova héldu kynningu á því sem 5G getur gert í svokölluðum 5G trukki frá Huawei þar sem við fengum að fikta í framtíðargræjum. Epic er að rugga bátnum í sölulíkani app-verslana og vill helst ekki borga nein umboðslaun. Samsung dældi út nýjum símum: Note20 og Z Fold 2 samanbrjótanlega símanum, sem er á leið til landsins og mun brjóta banka. Nvidia hélt eldhúspartý í vikunni og kynnti sjóðheit s...

Sep 03, 20201 hr 29 min

Saga Japans – 17. þáttur: Ris Fujiwara-ættarinnar

Ein ætt drottnaði yfir öllum öðrum um miðbik Heian-tímabilsins og það var ekki keisaraættin, heldur þeirra nánustu samstarfsmenn og ráðgjafar, Fujiwara-ættin. Í raun og veru má segja að Fujiwara-ættinni hafi tekist að gera sjálfa sig að hinni raunverulegu konungsætt á tímabili – ætt sem fór með fullt forræði yfir landinu fyrir hönd keisaraættarinnar í gegnum titla sem erfðust einvörðungu innan Fujiwara-ættarinnar. En hvernig gerðist þetta? Eins og svo margar sögur hefst þessi á boltaleik.

Sep 03, 202031 min

Pottersen – 41. þáttur: Átök í Hogwarts

Emil og Bryndís ræða kafla 29-31 í Harry Potter og dauðadjásnunum. Það er allt að verða vitlaust. Miklir endurfundir verða í Hogwarts þegar Harry, Ron og Hermione laumast þangað til þess að finna helkross, en það kemst upp. Voldemort er á leiðinni, hann mun gera allt til að stöðva galdradrenginn. McGonagall hrindir af stað varnaráætlunum því heljarinnar bardagi er í uppsiglingu. Allir leggja sitt af mörkum svo Harry takist ætlunarverkið, en það kostar sitt. Góðkunnar persónur eru byrjaðar að fal...

Aug 28, 202057 min

Saga Japans – 16. þáttur: Ber er hver að baki sem bróður á

Í þessum þætti kynnumst við nánar borginni Heian sem Heian-tímabilið er kennt við, bræðrunum Heizei, Saga og Junna sem allir urðu keisarar á þessum fyrsta helmingi níundu aldar. Keisarar geta fáum treyst, allra síst eigin holdi og blóði, og af öllum ættmennum sínum getur ríkjandi keisari allra minnst treyst yngri bræðrum sínum.

Aug 27, 202044 min

Saga Japans – 15. þáttur: Maðurinn sem breytti sér í múmíu II

Árið 806 sneri munkurinn Kukai aftur úr námi í Kína með þekkingu í farteskinu sem átti eftir að umbreyta búddisma í Japan. Á næstu áratugum átti hann eftir að kynnast pólitík við hirðina, umbreyta trúarlegu landslagi Japans, reisa stíflur, vegi og hof á eyjunni sem hann hafði alist upp á, og stofna klaustur við Koya-fjall, sem stendur enn þann dag í dag og er upphafspunktur árlegrar pílagrímsferðar fylgjenda hans. Þessi þáttur er annar af tveimur um ævi Kukai.

Aug 20, 202050 min

Pottersen – 40. þáttur: Kapphlaup við tímann

Pottersen snýr aftur eftir sumarfrí! Systkinin Emil og Bryndís setjast niður á ný og halda áfram þar sem frá var horfið í Harry Potter og dauðadjásnunum. Í köflum 24-28 er ekkert skafið af spennunni. Eftir dauða Dobbys er lagt á ráðin fyrir það sem koma skal. Harry, Ron og Hermione stelast inn í Gringottbanka ásamt svartálfinum Griphook. Það hefur afdrifaríkar afleiðingar og þau sleppa naumlega ‒ enn á ný ‒ á undraverðan hátt. Nú veit Voldemort að Harry leitar helkrossanna og söguhetjurnar eru í...

Aug 19, 20201 hr 4 min

Saga Japans – 14. þáttur: Maðurinn sem breytti sér í múmíu

Árið 835 fastaði og hugleiddi munkur við klaustrið á Koya-fjalli þar til hann umbreyttist í múmíu og er þar enn þann dag í dag í sömu hugleiðslustöðu að bíða komu Maitreya (Búdda framtíðarinnar). Þessi munkur, maður sem gengur undir ýmsum nöfnum en er best þekktur sem Kukai, hafði gífurleg áhrif á japanskt samfélag og menningu. Honum er þökkuð uppfinning Kana-stafrófsins sem japanska er skrifuð með í dag, udon-núðlusúpunnar og innflutningur búddískra hugmynda sem stuðluðu að samruna Shinto og bú...

Aug 13, 202048 min

Saga Japans – 13. þáttur: Naratímabilið 2 – Keisaraynjan ósigrandi

Faðir hennar gerði ríkið gjaldþrota með trúarofsa sínum, en Abe prinsessa sem bæði var þekkt sem Koken eða Shotoku keisaraynja eftir því á hvaða hluta valdaskeiðs hennar hún stýrði Japan, skeytti lítið um þunglamaleg lögmál búddismans í fyrstu og kaus frekar veisluhald í hinum hverfula heimi þar sem hún átti marga félaga og ótal elskhuga. Þessi „Katrín Mikla“ þeirra Japana bældi niður tvær byltingartilraunir og skipaði ráðherra sem ekki tilheyrðu hinum hefðbundnu valdaættum, og óvíst er hvort no...

Aug 06, 202028 min

Saga Japans – 12. þáttur: Naratímabilið – Þó gras grói yfir bein mín

Árið 710 færði Genmei höfuðborgina til Nara þar sem hún átti eftir að vera í nærri heila öld. Á þessum tíma varð Japan að miðstýrðu keisaradæmi sem þrátt fyrir þó nokkrar uppreisnartilraunir, hrikalegar farsóttir og efnahagskreppur, hélt velli, og náði jafnvel að skilja eftir sig opinber ljóðasöfn og það sem enn þann dag í dag telst vera stærsta viðarbygging í heimi.

Jul 30, 202037 min

Skiljum ekkert eftir – Framkvæmdir

Ef þú ert að taka húsið í gegn, ef þú ert að byggja – hvernig er þá hægt að takmarka mengun og sóun? Mann­kynið hefur aldrei gengið jafn hratt og mikið á auð­lindir jarð­ar. Um 100,6 millj­arðar tonna af ýmis­konar jarð­efnum og elds­neyti hafa verið not­aðir á einu ári. Lítið ber á sjálf­bærni og end­ur­vinnsla minnk­ar.

Jul 17, 202025 min

Saga Japans – 11. þáttur: Jinshin byltingin – Ættarmótið sem breyttist í borgarastríð

Árið 673 tókust á tveir menn um völdin í Japan. Sonur Tenji keisara, Otomo prins og bróðir hins nýlátna Oama prins. Oama var giftur systur Otomos og þar með mágur hans, en Otomo var giftur dóttur þeirra og hann því ekki bara í stríði við systur sína og föðurbróður heldur líka tengdaforeldra sína. Ættarmót meðal kóngafólks á sjöundu öld voru eflaust að einhverju leyti einfaldari, en þau gátu líka endað með ósköpum, eins og Otomo átti síðar eftir að komast að.

Jul 16, 202023 min

180° Reglan – Spjallað við Herdísi Stefánsdóttur

Herdís Stefánsdóttir er kvikmyndatónskáld með annan fótinn í LA og hinn á Íslandi. Ferill hennar sem kvikmyndatónskáld er tiltölulega nýbyrjaður en er samt kominn á fullt skrið. Hún hefur samið tónlist við fjölda stuttmynda, tvær bandarískar kvikmyndir í fullri lengd, eina HBO þáttaröð og næst á dagskrá er íslenska spennuþáttaröðin Verbúðin.

Jul 14, 202036 min

Pottersen – 39. þáttur: Naumlega sloppið!

Nú byrjar allt að gerast. Í köflum 20-23 í Harry Potter og dauðadjásnunum lýkur útlegð þríeykisins með miklum hasar. Harry og félagar sleppa naumlega frá heimili Xenophiliusar Lovegood, Harry fær þráhyggju fyrir dauðadjásnunum, þau heyra kunnuglegar raddir og þegar vonarneistinn lætur aftur á sér kræla lenda þau í klóm Grábaks og gómara hans. Á heimili Malfoy-fjölskyldunnar fer af stað mikil atburðarás sem endar á sorglegan hátt. Þetta er aðeins upphafið að endinum. Pottersen snýr aftur um miðja...

Jul 10, 20201 hr 1 min

Skiljum ekkert eftir – Börnin

Svo læra börnin sem fyrir þeim er haft. Börn leiða umhverfisbaráttu í heiminum og það eru börnin sem eru að fara að erfa jörð sem er hreinlega í hættu. Grænt uppeldi og græn börn.

Jul 10, 202031 min

Saga Japans – 10. þáttur: Fall Soga-ættarinnar

Það er heitur sumardagur, þann 10. júlí árið 645 og ungur krónprins er búinn að plana valdarán. Hann hefur líka ýmsar aðrar áætlanir sem snúast um að gera Japan að alvöru stórveldi. En fyrst þarf hann að koma móður sinni frá völdum og sigra hinn valdamikla Soga No Iruka. Sjóðandi heitur þáttur um hatramma baráttu og hefndir sem hentar vel til hlustunnar í heitum og rökum júlíhita.

Jul 10, 202033 min

180° Reglan – Atli og Elías

Atli Óskar Fjalarson og Elías Helgi Kofoed Hansen eru bestu vinir og starfa báðir í kvikmyndagerð. Þeir hófu ferilinn sem ungir leikarar í kvikmyndinni Órói en færðu sig svo yfir í aðra þætti kvikmyndagerðar, Atli sem framleiðandi og Elías sem handritshöfundur. Þeir lærðu kvikmyndagerð í LA en búa og starfa núna á Íslandi og eru einnig með hlaðvarpsþáttinn „Atli og Elías“ sem fjallar um þeirra eigin upplifun af kvikmyndabransanum á Íslandi.

Jul 08, 20201 hr 2 min

Tæknivarpið – Leiðin að stafrænu ökuskírteini

Ný stafræn ökuskírteini eru komin í loftið og Tæknivarpið fær Smart Solutions í viðtal til að ræða aðkomu sína að verkefninu. Gestir okkar eru Þórdís Jóna Jónsdóttir, tæknistjóri og stofnandi, og Edda Konráðsdóttir, viðskiptaþróunarstjóri. Stjórnandi í þætti 244 er Atli Stefán Yngvason.

Jul 08, 202036 min

Samtal við samfélagið – Kerfislægur rasismi

Myndband sem sýnir morð lögreglumannsins, Derek Chauvin, á George Floyd 25. maí síðastliðinn í Minneapolis-borg í Bandaríkjunum hefur leyst úr læðingi mikla samfélagslega ólgu. Umrótið snýst hinsvegar ekki einungis um þetta hrottalega voðaverk heldur er undirrótin aldalöng, kerfislæg mismunun gagnvart einstaklingum af afrískum uppruna og öðrum minnihlutahópum. Mótmælin sem spruttu upp í kjölfar þess að umrætt myndband fór á netið hafa breiðst út víða um heim og hafa neytt fólk til þess að horfas...

Jul 06, 20201 hr 5 min

Skiljum ekkert eftir – Fötin og tískan

Fötin skapa manninn og maðurinn skapar fötin, kaupir þau og hendir þeim síðan. Tískusóun er að kaupa trekk í trekk föt og aðrar tískuvörur sem maður notar sjaldan eða aldrei. Fötin eru orðin einnota, alveg eins og einnota pappadiskar og plast.

Jul 03, 202033 min

Saga Japans – 9. þáttur: Hver gætir þeirra sem gæta vopnanna?

Árið er 538 og búddisminn er á leiðinni til Japans. Ekki í för með trúboðum, heldur opinberum sendimönnum frá örvæntingarfullu smáríki á Kóreuskaganum sem býður þetta hernaðarleyndarmál, þennan helgidóm, í skiptum fyrir aðstoð. Í áraraðir hefur Mononobe ættin tryggt hlutleysi Japans í stríðum kóreuskagans, enda ber ættbálkurinn höfuðábyrgð á vopnaframleiðslu konungrsíkisins og lítur á þetta sem óþarfa aukakostnað að halda út í óþarfa ævintýri í fjarlægu landi. Þar að auki grefur boðskapur búddis...

Jul 03, 202029 min

Tæknivarpið – Framtíð 5G á Íslandi

Tæknivarpið fær til sín góða gesti til að ræða framtíð 5G á Íslandi: Þorleif Jónasson forstöðumann tæknideildar PFS og Benedikt Ragnarsson plötusnúð/tæknistjóra Nova. Hvað er 5G? Af hverju 5G? Hversu hratt er 5G? Er 5G heilsuspillandi? Hvenær er 5G? Allt þetta og svo miklu meira um fimmtu kynslóð farneta. Stjórnendur í þætti 243 eru Atli Stefán og Gulli Sverris.

Jul 02, 202059 min

Pottersen – 38. þáttur: Áhættur og endurfundir

Í þessum þætti ræða Emil og Bryndís kafla 16-19 í Harry Potter og dauðadjásnunum. Ron fór í fússi, Harry og Hermione eru í öngum sínum, tíminn líður í erfiðri útlegðinni, þau ákveða að tilflytjast loks til Godricsdals þar sem Potter-fjölskyldan og Dumbledore-fjölskyldan höfðu haft aðsetur, en það reynist stórhættulegt og dýrkeypt. Harry verður æ svekktari út í gamla skólameistarann og ekki bætir úr skák kaflinn sem hann les í bók Rítu Skeeter. Þegar öll von virðist úti birtist dularfull vera, se...

Jun 26, 202058 min

Skiljum ekkert eftir – Ferðalagið

Ferðalagið. Sorplaus lífstíll utan heimilisins. Gríptu með þér fjölnota kaffibolla á kaffihúsið, fjölnota vatnsbrúsa í gönguferðina, drykkjarmál á lista- eða bæjarhátíðina. Ekki vera lúði – vertu ferðamaðurinn prúði.

Jun 26, 202052 min

Saga Japans – 8. þáttur: Sverðið, spegillinn og eðalsteinninn

Í þessum þætti ræðir Snæbjörn krúnudjásn Japans, helgan fjársjóð með 2000 ára sögu. Þarna eru spegill sem var eitt sinn í eigu sólgyðju, sverð sem fannst ofan í kokinu á dreka og eðalsteinn sem hefur verið í eigu konungsætta síðan á bronsöld. Um þessa gripi eru til ýmsar sögur, sumar goðsagnakenndar, en í öllu falli eru þeir eða í það minnsta eftirmyndir þeirra enn þann dag í dag í notkun þegar nýr keisari tekur við af öðrum, sem gerðist síðast þann fyrsta maí 2019 þegar krónprinsinn Naruhito va...

Jun 25, 202029 min

180° Reglan – Rabbað við Hálfdán Theodórsson aðstoðarleikstjóra

Hálfdán Theodórsson hefur unnið sem aðstoðarleikstjóri í næstum 20 ár og meðal kvikmynda sem hann hefur unnið að má nefna Vonarstræti, Hrútar, Hjartasteinn og Kona fer í stríð. Freyja Krist­ins­dótt­­ir ræðir við Hálfdán. Tónlist: Horizon eftir Hákon Júlíusson

Jun 23, 202052 min

Samtal við samfélagið – Vilja Íslendingar frekar dætur en syni?

Í þessu síðasta hlaðvarpi fyrir sumarfrí ræðir Sigrún við Ara Klæng Jónsson en hann lauk nýlega doktorsprófi í félagsfræði, með áherslu á lýðfræði frá Háskólanum í Stokkhólmi. Í ritgerð sinni skoðar hann frjósemi og fjölskylduhegðun Íslendinga og kemst meðal annars að því að á Íslandi er örlítil, en marktæk, dætrahygli, en það er kannski ólíkt því sem þekkist í sumum samfélögum þar sem frekar er óskað eftir að eignast syni. Ari útskýrir fyrir Sigrúnu hvernig lýðfræðin getur svarað spurningum ein...

Jun 22, 202049 min

Tæknivarpið – Ökuskírteini í síma

Dómsmálaráðherra er búinn að gefa út að ökuskírteini fari í snjallsíma fyrir lok júní og við kryfjum það ásamt öðrum tæknifréttum. Það er líka heill hellingur af orðrómum fyrir WWDC ráðstefnu Apple sem verður í næstu viku. Stjórnendur eru Andri Valur, Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir.

Jun 19, 20201 hr 8 min

Skiljum ekkert eftir – Baðherbergið

Baðherbergið er að jafnaði minnsta herbergi hússins en þaðan kemur næst mesta sorp heimilisins. Þetta litla musteri hreinleikans er oftar en ekki fullt af einhverju drasli sem þú þarfnast ekki. Komdu með okkur inn á klósett að ræða málin! Umsjón­­­­­­ar­­­­­­menn eru Freyr Eyj­­­­­­ólfs­­­­­­son og Þóra Mar­grét Þor­­­­­­geir­s­dótt­­­­­­ir.

Jun 19, 202035 min

Saga Japans – 7. þáttur: Keisaraynjan sem aldrei var

Jingu keisaraynja var fyrsta konan sem rataði á peningaseðil þegar seðlabanki Japans var stofnaður á nítjándu öld. En þessi járnaldardrottning hét ekki Jingu, var ekki keisaraynja og var hugsanlega aldrei til. Eða hvað? Það eru ótal leiðir til að lesa goðsöguna um þessa konu sem kannski var uppi árið 200, 300 eða 400 eftir því hvernig lesið er í ártölin, og sagnfræðingar eru enn ekki sammála um hvort hún leiddi japanskan innrásarher inn í Kóreu eða kóreska innrás í Japan.

Jun 16, 202044 min
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android