Hjördís Sigursteinsdóttir, doktor í félagsfræði og dósent í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri (HA), hefur unnið mjög áhugaverðar og hagnýtar rannsóknir á heilsu og líðan starfsfólks sveitarfélaga (s.s. starfsfólk leik- og grunnskóla, elliheimila og sambýla) síðustu tíu ár. Niðurstöður rannsókna Hjördísar varpa m.a. mikilvægu ljósi á langvarandi áhrif hrunsins 2008 á þætti á borð við álag og veikindi sem og einelti, áreitni og ofbeldi á vinnustað. Gögn rannsókna Hjördísar koma annars vegar ...
Jun 15, 2020•51 min
Emil og Bryndís eru tæplega hálfnuð með 7. bókina um galdraunglinginn, Harry Potter og dauðadjásnin. Í köflum 12-15 hægist ögn á sögunni og það er ljóst að lokaátökin eru í uppsiglingu. Harry, Ron og Hermione laumast inn í galdramálaráðuneytið í leit að nistinu, helkrossinum, sem engin önnur en Umbridge á að hafa undir höndum. Við illan leik tilflytjast þau þaðan yfir í fjarlægan skóg og eiga ekki afturkvæmt í Hroðagerði. Ron særist illa og útlegð þríeykisins hefst fyrir alvöru. Þau þurfa að haf...
Jun 12, 2020•1 hr 1 min
Hér ert þú stærsta hluta dagsins. Hérna borðar þú, hérna hugsar þú og framkvæmir. Þú ert það sem þú gerir. Hafðu áhrif. Breyttu vinnustaðnum þínum í grænan, vænan reit og breyttu heiminum. Umsjónarmenn eru Freyr Eyjólfsson og Þóra Margrét Þorgeirsdóttir.
Jun 12, 2020•34 min
Sýn er farið í verðstríð og býður nú (einnig Nova) Enska boltann á 1.000 kr. sem er niðurgreitt samkvæmt forstjóra Símans. Apple WWDC lekar eru komnir í fullan snúning og talið er að nýir örgjörvar fyrir Mac byggðir á hönnun ARM verði kynntir. Einnig er annar orðrómur um að það sé ný hönnun á leiðinni fyrir iMac (mynd fengin að láni frá Macrumours.com). Atli talar svo um nýja Magic lyklaborðið fyrir iPad Pro 11 sem Macland lánaði okkar. Þátturinn er ekki kostaður af Hringdu.
Jun 10, 2020•1 hr 8 min
Í hlaðvarpi dagsins ræðir Sigrún við Ashley Mears, dósent í félagsfræði við Boston háskólann í Bandaríkjunum. Sérsvið Ashley eru félagsfræði menningar, kyn og efnahagsfélagsfræði og hún hefur sérstaklega beint sjónum að heimi hinna ríku og frægu sem flest okkar hafa ekki aðgang að. Fyrsta bókin hennar byggði á þátttökuathugun þar sem hún vann sem fyrirsæta í New York og London, og nýlega kom út önnur bók hennar hjá Princeton University Press, en hún ber heitið Very Important People: Status and B...
Jun 08, 2020•59 min
Á tímabilinu milli 250 til 500 voru reistir um það bil 160.000 grafhýsi fyrir ýmsa smákonunga í Japan. Stærstu grafhýsin risu þar sem í dag má finna borgina Osaka, og á nærliggjandi svæðum þar í kring. Um þetta tímabil er fátt vitað með vissu, en fjölmargar goðsögur og þjóðsögur sem eiga að gerast á tímabilinu má finna í fornritum á borð við Nihon Shoki og Kojiki sem skrifuð voru við upphaf miðalda í Japan.
Jun 07, 2020•41 min
Hvað eiga kvikmyndirnar Men in Black, Kona fer í stríð og Mamma Gógó sameiginlegt? Jú, Christof Wehmeier hefur komið að kynningu og markaðssetningu þeirra ásamt fjölda annarra kvikmynda. Christof hefur komið víða við, meðal annars unnið fyrir Stjörnubíó og Sambíóin en síðastliðin 13 ár hefur hann verið kynningarstjóri hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands. Við fórum yfir allt þetta í okkar spjalli og komum auðvitað líka inn á stöðu kvikmyndahátíða á tímum veirufaraldurs.
Jun 06, 2020•29 min
Elhúsið er hjarta heimilsins – sameiginlegt rými. Maturinn leiðir okkur saman; við eldum í því, við borðum, drekkum, vinnum saman, spjöllum saman og vinnum í eldhúsinu. Maturinn er eldaður í eldhúsinu og við erum aldrei merkilegri en maturinn sem við borðum. Þú ert það sem þú borðar og þú ert það sem þú flokkar og endurvinnur. Eldhúsið er aðaluppspretta úrgangs og óreiðu á heimilinu. Í sorplausum lífstíl þarf því að læra upp á nýtt að nota eldhúsið. Umsjónarmenn eru Freyr Eyjólfs...
Jun 05, 2020•25 min
Síminn var sektaður um 500 milljónir fyrir brot á samkeppnissátt yfirvalda. Twitter merkir færslur forseta Bandaríkjanna ef hún inniheldur staðreyndarvillu, og auðvitað annarra. Elmar fékk Google Pixelbuds í hendurnar og segir okkur frá fyrstu hughrifum. Nýja sjónvarpið hans Gulla var ekki rætt. Stjórnendur í þætti 239 eru Atli Stefán, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir.
Jun 03, 2020•1 hr 2 min
Enn bætast við doktorar innan íslenska félagsfræðisamfélagsins en nýlega varði Margrét Valdimarsdóttir doktorsritgerð sína í afbrotafræði við City háskólann í New York. Í ritgerðinni skoðaði hún sérstaklega áhrif kynþáttar á afleiðingar þess að ungu fólki væri refsað fyrir sambærilegt afbrot eða hegðun og síðan hverjar langtímaafleiðingar slíkrar refsingar væru bæði eftir kyni og kynþætti. Þar komst hún meðal annars að því að á meðan það að vera vísað úr skóla hafði ekki áhrif á hvíta unga dreng...
Jun 01, 2020•46 min
Kaflar 8-11 í Harry Potter og dauðadjásnunum eru til umræðu. Spennan magnast enn á ný og uppi verður fótur og fit í brúðkaupinu í Hreysinu þegar dráparar Voldemorts birtast. Galdramálaráðuneytið er fallið. Harry, Hermione og Ron komast naumlega undan og eru nú á flótta og í felum. Harry fær efasemdir um Dumbledore, við komumst að því hver R.A.B. er og sjáum aðra hlið á húsálfinum Kreacher. Emil og Bryndís taka sinn tíma í að ræða síðustu bókina enda mætast þar allir þræðir bókaflokksins.
May 29, 2020•1 hr 3 min
Moltugerð er vísindi og list; hringrás lífsins. Fylgstu með þegar gulrót verður aftur að gulrót. Af jörðu ertu kominn – að jörðu skaltu aftur verða. Heimajarðgerð er nýja súrdeigið. Það hefur gripið um sig moltuæði og hér í þessum þætti getur þú heyrt allt um heimajarðgerð. Umsjónarmenn eru Freyr Eyjólfsson og Þóra Margrét Þorgeirsdóttir.
May 29, 2020•34 min
Apple ætlar að umturna gleraugnamarkaðinum á næstunni og er fyrirtækið víst að þróa gleraugu með viðbættum veruleika (e. augmented reality). Það er ekki staðfest en slatti af orðrómum komnir á kreik sem við förum vel yfir. HBO bætir við þriðju streymiveituþjónustunni sem enginn getur keypt á Íslandi: HBO Max. Facebook kynnir nýja fjarfundalausn eða fjarspjallslausn sem heitir CatchUp sem vonandi enginn mun nota. Stjórnendur í þætti 238 eru Atli Stefán, Kristján Thors, Gunnlaugur Reynir.
May 28, 2020•1 hr 15 min
Konfúsíus er að öllum líkindum áhrifamesti fræðimaður allra tíma, en í tvö þúsund ár var börnum elítunnar kennd heimspeki hans, með það að marki að gera þau að hæfum stjórnendum og góðum manneskjum. En í hverju felst konfúsíanismi, er hann trúarbrögð, stjórnmálastefna, lífsspeki eða uppeldisfræði? Og hvernig í ósköpunum tókst lágt settum embættismanni að verða að goði – tilbeðnu um alla Austur-Asíu fyrir visku sína? Í þessum þætti verður reynt að svara þessum spurningum en fókusinn verður aðalle...
May 28, 2020•1 hr 11 min
Móðir mín í kví kví: Eitt af því óhugnalegasta í íslenskum þjóðsögum eru sögur af barnadraugum, svokölluðum útburðum. En það sorglega er að það var oft sannleikskorn í sögnunum. Ýmislegt gerði það að verkum í gamla íslenska bændasamfélaginu að foreldrar sáu enga aðra leið en að bera út nýfædd börn sín. Hvað gæti mögulega rekið fólk út í slíkt?
May 26, 2020•1 hr 8 min
Umhverfismál og loftlagsbreytingar hafa verið eitt af brýnustu málefnum heimsins undanfarin ár og þó að við lítum stundum á heimili þeirra innan raun- og náttúruvísinda, þá skiptir sjónarhorn félagsvísindanna ekki síður máli til að skilja áhrif þeirra á líf einstaklinga og hópa, sem og áhrif okkar á umhverfið. Til að ræða þetta spjallaði Sigrún við Malcolm Fairbrother en hann er prófessor í félagsfræði við Háskólann í Umea í Svíþjóð og gegnir að hluta til sömu stöðu við Háskólann í Graz í Austur...
May 25, 2020•57 min
Sorplaust líf er hugmyndafræði sem miðar að því að forðast alla sorpmyndun og sóun eins og frekast er mögulegt. Þegar kemur að framleiðslufyrirtækjum hvetur hún til hringrásarhagkerfis, en á heimilum fær hún einstaklinga til að sýna ábyrgari neytendahegðun. Umsjónarmenn eru Freyr Eyjólfsson og Þóra Margrét Þorgeirsdóttir.
May 22, 2020•54 min
Í þessum þætti er fjallað um stóra samhengið, hvernig búddhisminn barst um Austur-Asíu og óvæntar tengingar milli Kína og Rómarveldis. En hvað hefur það með Japan að gera í dag? Bon-hátíðina og söguna um hérann sem stökk til Japans á baki hákarla?
May 21, 2020•1 hr 8 min
Ísland er í alvarlegri efnahagskreppu. Fyrirliggjandi er mörg hundruð milljarða króna tap á rekstri ríkissjóðs í ár, tugir þúsunda eru án atvinnu að öllu leyti eða hluta og þúsundir fyrirtækja standa frammi fyrir algjörri óvissu um hvort þau lifi eða deyi. Kjarninn hitti alla þrjá leiðtoga stjórnarflokkanna til að ræða þeirra sýn út úr þeim aðstæðum sem nú blasa við. Síðust í röðinni er Katrín Jakobsdóttir.
May 20, 2020•27 min
Tæknivarpið fer yfir fréttir vikunnar og það er nóg að frétta. Það eru komnar háværarar raddir um að iPhone 12 muni seinka og meðal annars frá Jon Prosser. Síminn kynnir nýja skýjalausn fyrir einstaklinga undir nafninu Ský. John Gruber og Ben Thompson eru komnir með nýtt hlaðvarp og það kostar $5 á mánuði. Er það þess virði? Lenovo Chromebook Duet tölvan fær svo glimrandi dóma að Gulli er kominn með augastað á annarri Chromebook sem hann mun aldrei kaupa. Stjórnendur þetta skiptið eru Andri Valu...
May 20, 2020•1 hr 12 min
Í þessum þætti er komið að sjálfri mér. Af ýmsum ástæðum hafa nýir þættir tafist og ég taldi réttast að kynna mig almennilega. Hlustið á mig tala um það sem ég hef gert síðustu 10 árin, hvernig ég endaði þar sem ég er í dag og hvaða lærdóm ég dreg af þessu öllu saman.
May 20, 2020•30 min
Ísland er í alvarlegri efnahagskreppu. Fyrirliggjandi er mörg hundruð milljarða króna tap á rekstri ríkissjóðs í ár, tugir þúsunda eru án atvinnu að öllu leyti eða hluta og þúsundir fyrirtækja standa frammi fyrir algjörri óvissu um hvort þau lifi eða deyi. Kjarninn hitti alla þrjá leiðtoga stjórnarflokkanna til að ræða þeirra sýn út úr þeim aðstæðum sem nú blasa við. Í dag er rætt við Sigurð Inga Jóhannsson.
May 19, 2020•28 min
Hugtakið ærsladraugur, eða poltergeist, er frekar nýtt í íslensku og áður voru notuð orð eins og gangári, skarkári, fjandi, djöfull, djöfulgangur eða annað til að lýsa óupplýstum og dularfullum atburðum sem seinna voru flokkaðir sem ærsladraugar. Við skoðum þrjá hressa íslenska ærsladrauga frá 18. og 19. öld sem voru vel skrásettir af samtíðarfólki en engin skýring fannst á þrátt fyrir rannsóknir.
May 19, 2020•49 min
Ísland er í alvarlegri efnahagskreppu. Fyrirliggjandi er mörg hundruð milljarða króna tap á rekstri ríkissjóðs í ár, tugir þúsunda eru án atvinnu að öllu leyti eða hluta og þúsundir fyrirtækja standa frammi fyrir algjörri óvissu um hvort þau lifi eða deyi. Kjarninn hitti alla þrjá leiðtoga stjórnarflokkanna til að ræða þeirra sýn út úr þeim aðstæðum sem nú blasa við. Fyrstur í röðinni er Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra.
May 18, 2020•24 min
Ráðgjafinn og frumkvöðullinn Jökull Sólberg er gestur Tæknivarpsins í þessari viku. Meðal umræðuefna er framtíð örflæðis á höfuðborgarsvæðinu og stiklað er á stóru varðandi úrval rafskúta og rafhjóla og nýja sprotann hans Jökuls, Planitor.io. Umsjónarmenn þáttarins eru Gunnlaugur Reynir og Axel Paul.
May 18, 2020•1 hr 2 min
Þetta skiptið er sérstakur viðtalsþáttur hjá Tæknivarpinu. Atli Stefán og Andri Valur taka viðtal við forstjóra Vivaldi: Jón Von Tetzchner. Vivaldi er íslenskur vafri sem hefur verið í þróun í nokkur ár og kom út ný útgáfa á dögunum. Jón er staddur í Bandaríkjunum og spjallaði við okkur í gegnum Skype.
May 15, 2020•29 min
Hefur maður einhver áhrif? Getum við virkilega breytt heiminum? Já, við trúum því. Allt sem þú gerir skiptir máli. Þú getur haft áhrif. Ekki leggjast í kör og grenja. Brettu upp ermarnar og byrjaðu að flokka. Það hreinsar bæði umhverfið og sálina.
May 15, 2020•53 min
Hvenær byrjuðu Japanir að borða súshí? Af hverju er Japan kallað Japan? Og hver er þessi Himiko, nornadrottning sem kínversk sagnarit skrifa um og drottnar yfir eyjum í austri skammt frá löndum nakta fólksins, dverganna og mannanna með svörtu tennurnar? Þessum spurningum og fleirum verður svarað í þessum þætti sem gerist undir lok Yaoyoi tímabilsins milli 50-300 eftir krist þegar fyrstu rituðu heimildir um mannfólk í Japan eru ritaðar. Persónur og leikendur eru keisarinn af Cao Wei, konungurinn ...
May 14, 2020•35 min
Það er komið að okkar eina sanna raðmorðingja; Axlar-Birni! Hann var víst ekki slæmur í öxlunum, heldur bjó hann á bænum Öxl á Snæfellsnesi fyrir 400 árum. Staðreyndir og sagnir gætu því eitthvað hafa skolast til á leiðinni en sagan er góð þrátt fyrir það.
May 12, 2020•53 min
Valgerður S. Bjarnadóttir, nýdoktor í menntunarfræði við hug- og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri (HA) og Andrea Hjálmsdóttir, lektor í félagsfræði við félagsvísindadeild HA, vinna um þessar mundir að afar áhugaverðri rannsókn undir yfirskriftinni „Lífið á tímum kórónuveirunnar: Breytingar á fjölskyldulífi, atvinnu og ábyrgð“. Tilgangur rannsóknarinnar er annars vegar að fá yfirsýn yfir breytingar á daglegu lífi barnafjölskyldna sökum COVID-19 faraldursins með dagbókarfærslum foreldra og h...
May 11, 2020•52 min