Jóga nidra með Auði Bjarnadóttur
Auður Jónsdóttir rithöfundur hitti Auði Bjarnadóttur, eiganda Jógasetursins, sem leiðir lesendur Kjarnans í gegnum Jóga nidra hugleiðslu til að ná djúpslökun.

Auður Jónsdóttir rithöfundur hitti Auði Bjarnadóttur, eiganda Jógasetursins, sem leiðir lesendur Kjarnans í gegnum Jóga nidra hugleiðslu til að ná djúpslökun.
Emil og Bryndís eru komin langleiðina í lestri á Harry Potter og blendingsprinsinum og eru orðin vægast sagt spennt fyrir því að ræða lok bókarinnar. En það gerist í næsta þætti. Í þessum þætti eru kaflar 24-26 til umræðu. Annars vegar blómstrar þar ástin. Hins vegar eiga taugatrekkjandi átök sér stað. Harry eignast nýja kærustu áður en hann notar ramman svartagaldur gegn Draco og er refsað fyrir vikið. Galdurinn lærði hann af blendingsprinsinum og við færumst æ nær því að vita hver hann er. Dum...
Tæknivarpið er komið í fjarvinnu í þetta skiptið, ásamt Apple sem hætti við WWDC viðburðinn í ár. Fjarvinna kom ekki í veg fyrir þátt þessa vikuna, né stoppaði það Apple sem er að koma með fullt af nýjum tækjum sem við ræðum í þaula. Stjórnendur þáttar 227 eru Atli Stefán, Gunnlaugur Reynir og Sverrir Björgvinsson.
Samkomubann, faðmflótti, sóttkví og smithætta. Allt eru þetta orð sem dynja á okkur daginn út og inn. Orð sem við varla þekktum áður. Og við þessar aðstæður er eðlilegt að finna fyrir kvíða. En við þessar aðstæður er einnig gríðarlega mikilvægt að temja sér æðruleysi, að hlúa að þeim sem eldri eru og veikir, og muna að lífið er hér og nú – þrátt fyrir allt. Sunna Ósk Logadóttir, blaðamaður á Kjarnanum, er umsjónarmaður hlaðvarpsþáttarins Kvikunnar að þessu sinni. Þar ræðir hún við Huldu Jónsdótt...
Tæknivarpið kafar ofan í fjarvinnu í flensutíð og gefur góð ráð til að halda aga. Samsung Galaxy S20 dómar eru komnir í hús en fyrstu tækin lenda á Íslandi í vikunni. Atli heldur áfram að fjalla um úrlausn Nova, og breytingarnar við að skipta úr Apple yfir í Samsung. Stjórnendur þáttarins eru Atli Stefán, Bjarni Ben og Gunnlaugur Reynir.
Félagsfræði Háskóla Íslands tekur á móti tugum nemenda á hverju hausti, sem flest ljúka B.A.-námi eftir þrjú ár og sum halda jafnvel áfram í framhaldsnám hjá okkur. Í hlaðvarpi vikunnar spjallar Sigrún við nemendur sem stunda nám í félagsfræði á mismunandi stigum. Fyrst talar hún við Elsu Dögg Lárusdóttur en hún kláraði B.A.-námið vorið 2019 og er núna í M.A. námi í félagsfræði við HÍ. Elsa hlaut verðlaun Félagsfræðingafélag Íslands fyrir framúrskarandi ritgerð sína „Margbreytileiki vændis og ga...
Í hlaðvarpi vikunnar fær Sigrún til sín Sjöfn Vilhelmsdóttur en hún varði nýlega doktorsritgerð sína í stjórnmálafræði. Ritgerðin ber heitið Pólitískt traust á Íslandi: Helstu áhrifaþættir og þróun frá 1983-2018. Þar skoðar Sjöfn þróun á pólitísku trausti hér á landi yfir tíma en ber traust hérlendis einnig saman við traust almennings í Evrópu. Sjöfn hefur verið forstöðumaður Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála síðan 2015 en mun á árinu flytja sig um set og hefja störf sem forstöðumaður Lan...
Nú fáum við afar góðan hlaðvarpsgest. Rithöfundurinn, leikarinn og þáttastjórnandinn Ævar Þór Benediktsson heimsækir Pottersen-systkinin, svarar laufléttum Potter-spurningum og segir okkur meðal annars frá því hver uppáhaldspersónan hans er, í hvaða heimavist hann ætti best heima, hvaða dýr hann myndi vilja geta breytt sér í, hvaða galdramátt hann vildi hafa og margt fleira. Stórskemmtilegt spjall!
eSim er loksins komið til Íslands og er Nova farið að bjóða upp á eSim stuðning fyrir Samsung snjallúr. Atli er líka kominn til Íslands frá Suðaustur Asíu. The Verge tæknilífstílsvefurinn keypti sína eigin Mac Pro tölvu ásamt Pro Display XDR skjá og gaf upp sína dóma sem við ræddum. Google býr til 3D touch eiginleika einungis með hugbúnaði, en hvað þýðir það? Stjórnendur eru Andri Valur, Atli Stefán, Mosi og Gunnlaugur Reynir.
„Samanburðarfélagsfræði er ekki ákveðin tegund félagsfræði; það er félagsfræðin sjálf,“ skrifaði félagsfræðingurinn Emile Durkheim árið 1895. Það má segja að hugmyndafræði alþjóðlegra kannanna endurspegli þessa sýn eins þess fræðimanns sem byrjaði að skoða samfélagið með félagsfræðilegum gleraugum. Slíkar samanburðarrannsóknir leyfa okkur nefnilega að skoða tengsl samfélags og einstaklings og að spyrja okkur stærri spurninga, eins og til dæmis hvernig skipulagning velferðarkerfisins hefur áhrif ...
Stefán Eiríksson, sem tekur við starfi útvarpsstjóra RÚV eftir helgi, segir að hann hafi ekki neinar áhyggjur af því að RÚV sé í betri rekstrarstöðu en samkeppnisaðilar þess. Í þætti vikunnar spjallar Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, við nýjan útvarpsstjóra. „Ég upplifi það ekki þannig að RÚV sé of stórt í vissum skilningi, en það er vissulega stórt. Hlutverkið sem að Ríkisútvarpinu er ætlað lögum samkvæmt og samkvæmt þjónustusamningi hefur mjög víðtæku og fjölbreyttu hlutverki í samfé...
Galaxy S20 Ultra fær misjafna dóma, OZ kynnir VAR lausn og Apple óttast ESB. Þetta og margt fleira í Tæknivarpi vikunnar. Umsjón: Gunnlaugur Reynir, Bjarni Ben og Axel Paul.
Í þessum þætti spjalla systkinin Emil og Bryndís um kafla 20-23 í Harry Potter og blendingsprinsinum. Nú er farið að síga á seinni hluta bókarinnar og spennan magnast. Harry er með Draco Malfoy á heilanum, Hagrid syrgir köngulóna Aragog, Hermione og Ron eru byrjuð að tala aftur saman og Dumbledore þykir ekkert mikilvægara en að Harry nái minningu Slughorns um hinn unga Voldemort og helkrossa.
Í Tæknivarpi vikunnar er farið yfir Samsung Unpacked viðburðinn sem fór fram í síðustu viku. Einnig er farið yfir áhrif COVID-2019 á tækniheiminn, skyldu Evrópusambandsins að 30% alls efni þurfi að vera frá Evrópu og ýmsar aðrar tæknifréttir. Umsjón: Gunnlaugur Reynir, Bjarni Ben, Andri Valur og Elmar Torfason.
Tæknivarpið fer allsvakalega út af sporinu í þætti vikunnar og fjallar um flest annað en nýju Samsung símana sem kynntir voru í vikunni. Kattaeigendur í þáttastjórnarteymi taka yfir þáttinn með skelfilegum afleiðingum. Umsjón: Gunnlaugur Reynir, Bjarni Ben, Mosi, Axel Paul og Daníel Ingólfs.
Í Tæknivarpi vikunnar er farið yfir helstu tæknifréttir síðustu daga. 10 ár eru liðin síðan Steve Jobs kynnti fyrstu iPad tölvuna. Tæki sem átti að fylla upp í bilið á milli síma og fartölvu. Er iPad frábær græja eða flopp? Einnig var farið yfir stafræn ökuskírteini, eSim frá Símanum, Samsung viðburðinn sem fer fram í næstu viku og áhrif Corona vírusinns á tæknigeirans. Umsjón: Gunnlaugur Reynir, Andri Valur, Bjarni Ben, Mosi.
Emil og Bryndís spjalla um kafla 16-19 í Harry Potter og blendingsprinsinum. Nýi galdramálaráðherrann reynir að sleikja Harry upp, Ron og Hermione talast ekki við, skyggnst er æ dýpra í minningar um hinn unga Voldemort, Draco sést ekki á Ræningjakortinu ‒ sem er afar dularfullt ‒ og fyrir slysni drekkur Ron eitur sem virðist hafa verið ætlað Dumbledore …
Þessa vikuna er Tæknivarpið með sérstakan þátt um snjallheimili ásamt honum Marinó Fannari Pálssyni sem stofnaði Facebook hópinn „Snjallheimili“ (sjá hér https://www.facebook.com/groups/2195304140727880/) og Simon.is tæknibloggið. Stjórnendur eru Andri Valur, Atli Stefán, Axel Paul og Gunnlaugur Reynir.
Snjóhríð geisar, bæði hjá Harry Potter og fyrir utan gluggann hjá Emil og Bryndísi á meðan upptökum stendur. Í köflum 11-15 í Harry Potter og blendingsprinsinum flækjast og skýrast hlutir í senn. Galdrastrákurinn ‒ afsakið, unglingurinn ‒ er sannfærður um að Draco standi á bakvið flest sem aflaga fer innan Hogwarts, en enginn tekur mark á honum. Prófessor Slughorn sniglast um ganga í leit að efnilegum nemendum til að sleikja upp. Quidditch er einkar áberandi og svo byrjar ástin að blómstra … eða...
Tæknivarpið fer yfir fréttir vikunnar: Íslenska fyrirtækið Genki fór á CES í ár með Halo hringinn, Tim Apple fjárfestir í sturtuhaus, andslitsgreiningarfélagið Clearview verður enn skæðara og FBI vill fá bakdyr að öllum iPhone símum ... aftur. Svo fylgjum við á eftir umfjöllun okkar um hleðslumottuna Ikea Livboj (höskuldarviðvörun: hún er léleg). Stjórnendur í þætti 220 eru Andri Valur, Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir.
Í þætti vikunnar er fjallað um brot Seðlabankans á jafnréttislögum, peningaþvætti og spillingu, og þær stórfréttir sem nú heyrast frá Bretlandseyjum eða réttara sagt Megxit. Í vikunni sem leið var birt niðurstaða kærunefndar jafnréttismála í máli þar sem Seðlabankinn er talinn hafa sniðgengið mjög hæfa konu fyrir mun minna hæfan karl, en bankinn hefur þrívegis brotið gegn jafnréttislögum frá árinu 2012. En hvað felst í þessari niðurstöðu kærunefndar jafnréttismála? Harry Bretaprins komst í heims...
Sigrún Halla Unnarsdóttir og Estrid Þorvaldsdótir komu til okkar á dögunum og kynntu fyrir okkur námskeið sem er á döfinni. Námskeiðið heitir Handan fíknar, Jógísk leið til bata. Námskeiðið hentar vel fyrir fólk í bata frá áföllum og fíknum, heilbrigðisstarfsfólk, jógakennara og alla sem leita jákvæðra breytinga og leiðbeininga við að þróa andlega iðkun. Á námskeiðinu munt þú meðal annars læra að: - Nota Kundalini jóga og hugleiðslu til að endurnýja líkama, huga og sál. - Nota jógíska tækni til ...
Ævorman langaði eiginlega bara að gera eitt í Berlín. Hann án djóks talaði eiginlega ekki um annað; Fara í bíó með Hulkleiki til að horfa á Cats. Og síðan að tala um það. Tala rosalega mikið um það vegna þess að það er furðulega mikið til að tala um. Þessi mynd? Þessi mynd!
Tæknivarpið fjallar um tæknifréttir vikunnar: Samsung Galaxy S20 lekar, MacOS "Pro Mode" og stöðlun hleðslutækja innan Evrópusambandsins. Stjórnendur eru Atli Stefán, Axel Paul, Bjarni Ben og Gunnlaugur Reynir.
Í þætti vikunnar er fjallað um þriðja áfanga rammaáætlunar, kræfa elda í Ástralíu, bið eftir kvótaþakstillögum ríkisstjórnarinnar og rannsóknir á WOW air. Þingsályktunartillaga um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, þriðji áfangi rammaáætlunar, verður lögð fram á Alþingi í febrúar næstkomandi. Um óbreytta tillögu er að ræða frá því að hún var fyrst lögð fram þingveturinn 2015 til 2016 og síðar aftur 2016 til 2017. Um er að ræða umdeilda rammaáætlun. Skiptastjórar WOW air hafa vísað nokkru...
Skywalker sagan skráði sinn hinsta kafla samkvæmt Disney um jólin og Hefnendurnir okkar kíktu í bíó eins og öllum sönnum lærisveinum máttarins er ljúft og skylt. En hvað þýða ljúfsár endalokin um framhaldið? The force is dead and no one cares. If there is a mustafar I’ll see you there.
Í þessum þætti eru kaflar 6-10 í Blendingsprinsinum ræddir. Sökum ástandsins í galdrasamfélaginu er lífið í Skástræti orðið heldur dapurlegt. Þar og í Hogwarts-lestinni kemst Harry á snoðir um illar ráðagerðir Dracos, nýi kennarinn Slughorn sleikir upp efnilega nemendur, Dumbledore sýnir hver bakgrunnur Voldemorts er og Harry fær í hendurnar útkrotaða uppskriftabók um töfradrykki sem gagnast býsna vel …
Hulkleikur og Ævorman eru búnir að vera seinir allt ár. Svo seinir að þeir koma með uppáhaldsmyndirnar sínar á síðasta ári tuttugu árum of seint í þessum marglofaða 1999 besta kvikmyndaár allra tíma™ þætti.
Við rennum yfir það sem hefur verið kynnt á tækni-vörukynningar-hátíðinni CES í Las Vegas. Ótrúlegir hlutir hafa verið kynntir eins og NFC snjalllás sem er með alvöru lykil, sömu Samsung sjónvörpin og í fyrra og baðvigt sem er líka baðmotta. Svo förum við yfir heilablóðfallið sem átti sér stað á Sony kynningunni. Stjórnendur eru Atli Stefán, Bjarni Ben og Gunnlaugur Reynir.
Í fyrsta þætti Mola á árinu 2020 er fjallað um árið 2019, og hvernig það var á verðbréfamörkuðum. Fjallað er um það, hvaða sjóður íslenskur sýndi bestu ávöxtun á árinu 2019. Hvaða sjóður ætli það sé? Þá kemur vaxandi spenna milli Bandaríkjanna og Írans við sögu, og að sjálfsögðu olíulindir líka. Eðlilega.