Hlaðvarp Heimildarinnar - podcast cover

Hlaðvarp Heimildarinnar

Heimildinheimildin.is
Í hlaðvarpi Heimildarinnar, áður Kjarnans, má finna fjölbreytta þætti um allt frá pólitík til heiðarlegs skyndibita eða nýjustu græjunnar.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Þjóðlegir þræðir – Jötubandið

Í þessum síðasta þætti í annarri seríu sitjum við á jötubandinu og spjöllum um allt milli himins og jarðar. Lesinn er fjárhúslestur upp úr uppáhaldsbók landsmanna, Jónasi Jónassyni frá Hrafnagili. Þjóðlegir þræðir óska landsmönnum öllum gleðilegra jóla. Meira um ævintýri Önnu og Sigrúnar má lesa um á www.kvikvi.is.

Jan 06, 20201 hr 1 min

Tæknivarpið - Þáttur ársins 2019

Tæknivarpið lýkur árinu með stæl í þætti 217 og farið var yfir helstu atriði og græjur ársins. Stjórnendur þetta skiptið eru Andri Valur, Atli Stefán, Axel Paul, Gunnlaugur Reynir, Kristján Thors, Mosi, Sverrir Björgvins.

Jan 04, 20202 hr 25 min

Punktur Punktur – Nr. 8 - Guðný Björk Pálmadóttir

Stofnandi og eigandi Fabia Design, Guðný Björk Pálmadóttir, gaf sér tíma í notalegt spjall stuttu fyrir jól. Guðný er ákveðin kona með plön og drauma og hún sagði mér meðal annars frá áhugaverðu námi sem hún fór í í Danmörku, hvaðan hún fær sinn innblástur og hvernig lífið sem sjálfstæður atvinnurekandi getur haft sína ljósu og dökku hliðar.

Dec 30, 201939 min

Tæknivarpið - Höskuldar-viðvörun: Star Wars Special

Þáttur 216 er sérstakur Star Wars þáttur og við fáum frábæra gesti í heimsókn til að ræða kvikmyndina The Rise of Skywalker. Gestirnir eru Gísli í Nexus og Þórarinn Þórarins. Stjórnendur eru Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir.

Dec 23, 20191 hr 33 min

Klikkið – Áramótaannáli

Auður Axelsdóttir og Svava Arnardóttir settust niður og ræddu árið sem leið. Klikkið óskar landsmönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.

Dec 21, 201954 min

Þjóðlegir þræðir – Steinar

Hvort er betra að höggva menn í herðar niður eða skjóta af boga með heimagerðum örvum? Við heimsækjum Akranes í þessum þætti og finnum þar handverksmanninn Guðmund Steinar sem leyfir okkur líka að kíkja í kistilinn þar sem hann hefur spunnið svolítið hrosshár og fleira. Meira um ævintýri Önnu og Sigrúnar má lesa á www.kvikvi.is.

Dec 19, 201948 min

Tæknivarpið - Mac pro, ljótir Tesla bílar og lausfrystar ýsur

Í þætti 215 af Tæknivarpinu kíkir Elmar Torfason (Google Fanboy) í heimsókn og talar reynslu sína af Stadia frá Google, við hraunum bandarísku félögin Boeing og Tesla og leiðréttum svo misskilning okkar um lausfrystar ýsur. Stjórnendur eru Atli Stefán, Axel Paul og Gunnlaugur Reynir.

Dec 18, 201955 min

Tæknivarpið - Ný Xbox afhjúpuð og vinnuöpp með Andrési Jóns

Tæknivarpið (214) er ekki af verri endanum og fáum við Andrés Jóns til að renna yfir tæknifréttir vikunnar, og tökum spjall um tæki og tól til að auðvelda vinnu eða nám. Stjórnendur þáttarins eru Atli Stefán, Axel Paul og Mosi.

Dec 17, 20191 hr 31 min

Kvikan – Sameining DV og Fréttablaðsins, stórsigur Borisar og vendingar í Samherjamálinu

Í þætti vikunnar er farið yfir stórsigur breska Íhaldsflokksins, sameiningu DV og Fréttablaðsins, vendingar í Samherjamálinu og þinglok. Íhalds­flokk­urinn sigraði með afgerandi hætti í bresku þingkosningunum í síðustu viku. Flokk­ur­inn hlaut 365 þing­menn og hef­ur 80 þing­manna meiri­hluta, þann mesta sem flokk­ur­inn hef­ur haft frá þriðju kosn­ing­um Margaret Thatcher árið 1987. Að sama skapi hlaut Verka­manna­flokk­ur­inn sína verstu út­reið í ára­tugi. Greint var frá því í síðustu viku að...

Dec 17, 201943 min

Pottersen 26. þáttur: Harry hangir með Dumbledore

Pottersen er komið úr stuttri pásu, Emil er fluttur heim til Íslands og Bryndís er búin að redda hljóðnema. Nú skeggræða systkinin Harry Potter-bækurnar í sama rými! Og nú er á dagskrá 6. bókin, Harry Potter og blendingsprinsinn. Í þættinum eru kaflar 1-5 ræddir, en það er augljóst að margt og mikið er í uppsiglingu. Muggaheiminum stafar ógn af Voldemort, nýr galdramálaráðherra hefur tekið til starfa, Snape leikur tveimur skjöldum, Dumbledore heldur engu leyndu lengur, Harry hittir vini sína á n...

Dec 13, 201957 min

Vitundarvarpið – Handan fíknar

Sigrún Halla og Estrid komu i Vitundarvarpið til að ræða námskeið sem haldið verður á næsta ári: Handan fíknar eða Beyond Addiction sem er byggt upp m.a. af Gabor Maté. Námskeiðið er byggt á ýmsum þáttum meðal annars jógískri Kundalini nálgun. Á námskeiðinu ferðu dýpra, undir yfirborði og lærir að vera nærri þér.

Dec 13, 20191 hr 21 min

Molar - 2020 verði ár tollastríðsins

Molum er fjallað um spár fyrir árið 2020, og hvað geti verið stærstu málin á hinu pólitíska sviði á því ári. Þá er fjallað um stöðu mála í Evróp, Afríku og eins og venjulega, er einnig fjallað um tollastríð Bandaríkjanna og Kína.

Dec 11, 201914 min

Kvikan – Samþjöppun í sjávarútvegi, næsti útvarpsstjóri RÚV og hnignun fjórflokksins

Í þætti dagsins er farið yfir hnignun fjórflokksins, samþjöppun í sjávarútvegi og vangaveltur um útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins. Fylgi fjórflokksins svokallaðs hefur dregist hratt saman á skömmum tíma. Í síðustu þremur kosningum hefur fylgið minnkað umtalsvert og kannanir sýna að sú þróun virðist ekki á undanhaldi. Hvaðan kemur þetta hugtak fjórflokkurinn? Í síðustu viku lögðu þingmenn úr þremur stjórnarandstöðuflokkum fram nýtt frumvarp um nýtingarrétt á fiskauðlindinni. Verði nýtt frumvarp að l...

Dec 10, 201940 min

Þjóðlegir þræðir – Giljagaur

Það er loksins komið að því að við stöndum við stóru orðin og heimsækjum hæfileikakonuna Josefinu Morell að Giljum í Hálsasveit í Borgarfirði. Hún vill læra allt sem viðkemur handverki og gengur bara vel að klára þann lista. Ef hún er í vafa, þá er alltaf hægt að gúggla og byrja svo bara.

Dec 10, 201949 min

Klikkið - Óhefðbundnar upplifanir

Í þessum þætti segja Fanney Björk Ingólfsdóttir og Svava Arnardóttir frá nýlegri ferð til Kanada, þar sem þær fóru á heimsþing Hearing Voices hreyfingarinnar. Fanney og Svava sitja í stjórn Hearing Voices Iceland og leiða raddhópa í Hugarafli. Hearing Voices er hópur fyrir fólk sem heyrir raddir, sér sýnir eða lifir með öðrum óhefðbundnum upplifunum, ásamt áhugahópi þess efnis.

Dec 07, 201949 min

Tæknivarpið – Google Stadia mun floppa og allt um bestu tölvuleiki ársins

Leikjavarpið yfirtekur Tæknivarpið og fjallar þáttur 213 einungis um tölvuleiki. Hverjir voru bestu leikir ársins? Á Google Stadia sér einhverja framtíð? Mun Half Life bjarga VR? Daníel Rósinkrans er gestur þáttarins og stjórnendur eru Atli Stefán, Bjarni Ben og Gunnlaugur Reynir.

Dec 04, 20191 hr 19 min

Kvikan – Staða Samherjamálsins, banki á breytingaskeiði og umdeilt fjölmiðlafrumvarp

Í þætti vikunnar er fjallað um banka á breytingaskeiði, stöðu Samherjamálsins hér á landi, sem og í Namibíu, og hið marg­fræga fjöl­miðla­frum­varp. Arion banki stendur um þessar mundir í umfangsmikilli endurskipulagningu á rekstri sínum og er bankinn að draga verulega úr umsvifum sínum. Í því felst að takmarka verulega útlán sín, fækka starfsfólki hratt og borga út eins mikið af eigin fé sínu til eigenda og hann kemst upp með, á sem skemmstum tíma. Greint var frá því í gær að fyrr­ver­andi sjáv...

Dec 03, 201943 min

Molar – Spilling, sænskir milljarðamæringar og sólarorka

Í Molum vikunnar er horft í norður, suður, austur og vestur. Sænskir milljarðarmæringar - og vinsældir þeirra í heimalandinu - koma við sögu, ásamt vígbúnaðarkapphlaupi á norðurslóðum og spillingu í Mexíkó og Nígeríu.

Dec 02, 201914 min

Samtal við Samfélagið – Hvernig upplifum við ójöfnuð?

Í þessu síðasta hlaðvarpi fyrir jólafrí erum við enn í Þýskalandi en dvöl Sigrúnar þar lauk í Norður-Þýskalandi. Þar hitti hún Patrick Sachweh, prófessor í félagsfræði við Háskólann í Bremen. Hans helsta viðfangsefni í rannsóknum er ójöfnuður. Hann hefur bæði skoðað ójöfnuð innan Þýsklands og á milli landa með megindlegum aðferðum og notað rýnihópa til að skilja upplifanir almennings á ójöfnuði. Hann beinir sjónum að mismunandi hópum í samfélaginu, t.d. þeim efnameiri, millistéttarfólki eða öryr...

Dec 02, 201955 min
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android