Emil og Bryndís halda áfram umræðum um 7. bókina, Harry Potter og dauðadjásnin. Í 5.-7. kafla erum við stödd í Hreysinu, heimili Weasley-fjölskyldunnar, þar sem meðlimir Fönixreglunnar safnast saman eftir hrottalega árás Voldemorts og drápara hans. Einn meðlimur reglunnar er fallinn, George hefur misst annað eyrað, Harry á bráðum afmæli, Hermione hefur komist yfir bækur um helkrossa og galdramálaráðherrann Rufus Skrimgur mætir á svæðið og afhendir Harry, Ron og Hermione muni sem Dumbledore arfle...
May 08, 2020•1 hr 11 min
Í þessum nýju hlaðvarpsþáttum er fjallað um umhverfismál, endurvinnslu, sjálfbærni og sorplausan lífsstíl. Umsjónarmenn eru Freyr Eyjólfsson og Þóra Margrét Þorgeirsdóttir. Þóra Margrét hefur vakið athygli fyrir erindi sín um flokkun, endurvinnslu og sorplausan lífstíl en hún þýddi bókin Zero Waste Home – Engin Sóun eftir Bea Johnson sem kom út í byrjun árs. Freyr Eyjólfsson hefur unnið við útvarp og fjölmiðla í ein 20 ár en starfar nú sem samskiptastjóri Terra. Terra kostar þáttinn.
May 08, 2020•40 min
Árið 1877 kom bandaríski líffræðingurinn Edward S. Morse til Japans í leit að armfætlum og öðrum skeldýrum en hann endaði á því að uppgötva leifar fornrar siðmenningar sem var löngu horfin. En eru Japanir afkomendur þessa fólks eða bronsaldarfólksins sem kom síðar frá meginlandi Asíu? Úr því var skorið með mjög sérkennilegri rannsókn árið 2009 sem fól í sér mikið af eyrnamerg.
May 07, 2020•28 min
„Maður er að reyna að skrifa ekki næstu COVID-19 mynd, maður heldur sig frá því ... reynir frekar að einbeita sér að einhverju skemmtilegra sem kannski hressir fólk,“ sagði Ottó Geir Borg, aðspurður hvaða áhrif faraldurinn hefði á störf handritshöfunds. Ottó Geir hefur unnið við handritsskrif, ráðgjöf og kennslu í um 20 ár. Það tók 7 ár að koma fyrsta handritinu á hvíta tjaldið, en myndin sló í gegn og Ottó hefur ekki stoppað síðan.
May 06, 2020•1 hr 8 min
Það er bara fullt að frétta í tækniheiminum, meira að segja hér á Íslandi. Nova er komið með 5G leyfi út árið 2021 og ætlar að fara að skrúfa frá hraðanum í þéttbýlum. Vodafone kemur út úr skápnum með slappa þjónustu og lofar öllu fögru með nýrri markaðsherferð sem ber titillinn „Nýtt upphaf”. Það er sjaldséð í auglýsingabransanum að viðurkenna mistök og spennandi að sjá hvort góðvinur (mögulega fyrrum) Tæknivarpsins, markaðsstjóri Vodafone Magnús Hafliða, nái árangri með herferðinni. iPhone SE ...
May 06, 2020•1 hr 10 min
Það hlaut að koma að því að Myrka Ísland fjallaði um mál málanna; pestina sem heimsótti okkur fyrir rúmum 100 árum og bar það villandi nafn, spænska veikin. Hún gerði mikinn usla á mjög skömmum tíma og eymdin í Reykjavík og öðrum kaupstöðum varð fólki minnisstæð lengi á eftir. Þetta er áhugavert að skoða í ljósi nútímans, ekki til að hræða heldur til að fræða og jafnvel til að velta fyrir okkur hvað við höfum lært af þessu öllu saman.
May 05, 2020•1 hr 10 min
Ísland eignaðist á dögunum nýjan doktor í félagsfræði en þann 24. apríl varði Hildur Fjóla Antonsdóttir doktorsritgerð sína „Decentring Criminal Law: Understandings of Justice by Victim-Survivors of Sexual Violance and its Implications for Different Justice Strategies“ frá Háskólanum í Lundi. Hildur Fjóla spjallaði við Sigrúnu um námið og rannsóknir hennar og þá sérstaklega hvernig réttarstaða þolenda er mismunandi á milli Svíþjóðar og Finnlands annars vegar og Íslands, Noregs og Danmerkur hins ...
May 04, 2020•54 min
Fáir staðir hafa jafn skemmtilega, heillandi og dramatíska sögu eins og Japan. Það er í það minnsta skoðun Snæbjörns Brynjarssonar, rithöfundar, sem lengi hefur verið heillaður af landinu, en hann lærði japönsku við Háskóla Íslands og Waseda í Tokyo. Í þessu hlaðvarpi verður kafað ofan í sögu landsins – og uppruni goðsagna og menningarlegra fyrirbrigða rannsakaður. Hvaðan komu Japanir? Var landið alltaf lokað þar til á 19. öld? Var japanska efnahagsundrið á 20. öld afleiðing einstakrar menningar...
Apr 30, 2020•27 min
Við búum á undarlegum tímum, okkar lífstíl hefur verið raskað og atvinnulífið er í mjög sérkennilegri stöðu. Fullorðnir hafa um margt að hugsa þessa dagana, en það má hinsvegar ekki gleymast að ungt skólafólk er einnig með margt á sinni könnu. Til að veita okkur innsýn í daglegt líf námsmanns á tímum Covid-19 og samkomubanns fengum við til okkar Emmu Lind Þórsdóttur, framhaldsskólanema, og Ólaf Hálfdán Þórarinsson, gagnfræðiskólanemanda.
Apr 29, 2020•43 min
Það er létt yfir Sigrúnu og Önnu og efninu að þessu sinni þegar þær fara yfir nokkrar þekktar og minna þekktar fylgjur. Sumar þeirra eru jafnvel nokkuð skondnar. Hvernig voru hugmyndir fólks um fylgju nýfædds barns tengdar gæfu þess í lífinu áður fyrr? Og hvenær snerist sú hugmynd upp í andhverfu sína með ættarfylgjunum?
Apr 28, 2020•1 hr 4 min
Sjöunda bókin, Harry Potter og dauðadjásnin, liggur fyrir. Emil og Bryndís ræða fyrstu fjóra kaflana og strax er af nógu að taka. Við fylgjumst með Voldemort níðast á þjónum sínum, Harry kveður Runnaflöt og Dursley-fjölskylduna, Fönixreglan og vinir Harrys halda hlífiskildi yfir honum, en það reynist ekki nóg. Bókin er varla byrjuð og hasarinn er á háu stigi, í háloftunum. Það er ljóst að þetta verður svakaleg bók. En verður allt í lagi með Hagrid … ? Pottersen-systkinin geta varla beðið eftir þ...
Apr 24, 2020•57 min
Tæknivarpið fer yfir fréttir vikunnar, og auðvitað er mikið að frétta af Apple sem virðist ekkert ætla að hægja á sér í C19. Apple Music er komið til Íslands, iPad Magic lyklaborðið og iPhone SE (2) fá dóma frá kollegum okkar og við tökum púlsinn á streymiveitustríðinu. Stjórnendur eru Andri Valur, Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir.
Apr 23, 2020•1 hr 25 min
Þann 15. september 1936 fórst hið fræga franska rannsóknarskip Pourqoui Pas? með manni og mús. Eða næstum því. Sagan hefur allt sem prýða þarf gott drama: Óveður, brim, mannfall, langa líkfylgd og máf. Þetta er frásögn sem varla er hægt að verða leiður á!
Apr 21, 2020•1 hr 22 min
Það er fullt að frétta þessa vikuna í tækniheimum. Apple lætur ekki deigan síga þó geisi heimsfaraldur og kynnti nýjan síma í vikunni: iPhone SE. Það mun vera fyrsti síminn frá Apple sem endurnýtir vörunafn (þetta er samt „iPhone 8s“). Einhver grúskari náði að grafa upp úr iOS14 betunni mynd af næsta iPhone sem virðist vera eitthvað breyttur og við köfum djúpt í næsta orðróma um næsta iPhone. Ming-Chi Kuo náði líka að finna einhverja brauðmola um nýja Homepod-hátalara sem er á leiðinni. Svo fjöl...
Apr 17, 2020•1 hr 10 min
Í nýjasta þætti Klikksins ræðir gestur okkar, Thelma Ásdísardóttir, auknar líkur á heimilisofbeldi á tímum COVID-19 og mikilvægi þess að við sem samfélag bregðumst við þeim vanda. Hún fer yfir áherslur og bendir á leiðir sem við öll þurfum að hafa í huga þegar svona erfiðleikar steðja að. Börn eru sérstaklega viðkvæmur hópur sem við verðum öll að huga sérstaklega að í aðstæðum sem þessum og Thelma ræðir einnig mikilvægi þess að við látum okkur varða og tökum ábyrgð. Thelma er starfskona Drekasló...
Apr 15, 2020•37 min
Við höldum áfram með galdrafárið á Íslandi á 17.öld og förum yfir þekktustu galdramálin; Kirkjubólsmálið og Selárdalsmálið. Hvað var það sem varð til þess að Vestfirði skáru sig svo úr í galdraofsóknum og hvað getum við mögulega lært af sögunni?
Apr 14, 2020•57 min
Hver er Alma í Tæknivarpinu? Þökk sé Buzzfeed þá komumst við að því í þætti #230. Tæknivarpið fer yfir fréttir vikunnar, rakning C19 appið, skammar Zoom, skoðar nýja Playstation fjarstýringu (Dualsense) og fer yfir nýtt útlit Facebook. Stjórnendur eru Atli Stefán, Bjarni Ben og Gunnlaugur Reynir.
Apr 10, 2020•1 hr 20 min
Covid-19 hefur haft áhrif á alla heimsbyggðina, og síðastliðinn mánuð höfum við Íslendingar fundið fyrir því svo um munar. Kvikmyndageirinn hefur ekki farið varhluta af þeim áhrifum, og þá sérstaklega þeir sem eru sjálfstæðir verktakar. Freyja vildi ræða ástandið nánar og sló á þráðinn til formanna WIFT og FK, en það eru þær Anna Sæunn Ólafsdóttir og Sigríður Rósa Bjarnadóttir.
Apr 09, 2020•48 min
Héðinn Unnsteinsson kom til okkar nýverið og ræddi geðheilbrigðismál við Auði Axelsdóttur. Héðinn er stefnumótunarsérfræðingur með meistargráðu í alþjóðlegri stefnumótun og stefnugreiningu frá Háskólanum í Bath á Englandi. Hann starfaði sem stefnumótunarsérfæðingur í forsætisráðuneytinu 2010 til 2018 og var formaður stefnuráðs Stjórnarráðsins. Héðinn starfði áður hjá heilbrigðisráðuneytinu og Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni. Hann hefur undanfarin 25 ár verið frumkvöðull í geðheilbrigðismálum....
Apr 07, 2020•59 min
Hvað er betra en að ylja sér við dálítinn varðeld? Sennilega fátt nema ef varðeldurinn er gerður til að brenna manneskju fyrir galdra. Í landi þar sem erfitt er að vinna efni í lítinn bálköst, enduðu samt furðu margar ólánssamar sálir líf sitt einmitt þar. Ísland náði að taka þátt í brennufárinu sem barst frá Evrópu. Efnið er það viðamikið að þættinum verður skipt í tvennt.
Apr 07, 2020•57 min
Í hlaðvarpi vikunnar spjallar Sigrún við Antonio Maturo en hann er dósent í félagsfræði við háskólann í Bologna á Ítalíu. Eins og allir vita hefur Ítalía orðið hvað verst úti í þeim faraldri sem nú geisar og ræða þau um hvernig staðan er á Ítalíu þessa stundina, hvernig hún hefur þróast og hvernig félagsfræðin getur hjálpað okkur að skilja hvað er að gerast í samfélaginu. Antonio er heilsufélagsfræðingur en rannsóknir hans hafa tengst skipulagningu heilbrigðiskerfisins, reynslu sjúklinga af krón...
Apr 06, 2020•47 min
Emil og Bryndís hafa lokið lestri og umræðum um 6. bók, Harry Potter og blendingsprinsinn, og eru að vonum í öngum sínum. Hvílíkur endir, hvílík bók. Andlát stórrar persónu, Blendingsprinsinn er afhjúpaður og Harry er reiðubúinn til að taka lokaslaginn. Hann er reiðubúinn til að hefja leit að helkrossunum.
Apr 03, 2020•1 hr 4 min
180⁰ Reglan er spjallþáttur í umsjón Freyju Kristinsdóttur. Í þættinum ræðir Freyja við fólk sem starfar á ólíkum vettvangi í kvikmyndageiranum á Íslandi, fær innsýn í feril viðmælenda og þeirra sýn á bransann hér á landi. Viðmælendur eru úr öllum áttum, en reglan er sú að hafa jafnt kynjahlutfall viðmælenda í þættinum. Í þessum þætti er rætt við Birtu Rán Björgvinsdóttur sem skaut á dögunum tónlistarmyndband sem hefur fengið 2 milljónir áhorfa á einungis 3 vikum. Birta hefur skotið fjöldan alla...
Apr 03, 2020•50 min
Viaplay er búið að opna fyrir áskriftir á Íslandi og við spörkuðum í dekkin á öppunum þeirra. Viaplay er ný streymiveita frá Skandinavíu sem býður nú upp á tvær áskriftarleiðir hér á Íslandi með íslensku efni og íslenskum texta. Við förum einnig yfir það sem komið hefur komið fram um smitrakningarapp Landlæknis sem er von á næstu dögum. Stjórnendur þáttar 229 eru Andri Valur, Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir.
Apr 02, 2020•1 hr 6 min
Klikkið snýr aftur eftir langt hlé og mun þátturinn fjalla um starfsemi Hugarafls í samkomubanni. Hugarafl hefur þurft að loka dyrum sínum eins og mörg önnur úrræði en þrátt fyrir það liggur starfsemin ekki niðri. Auður Axelsdóttir, framkvæmdarstjóri Hugarafls, kom til okkar og kynnti þær margvíslegu leiðir sem Hugarafl notar til að halda starfsemi gangandi.
Apr 01, 2020•29 min
Í einni af Íslendingasögunum leynist frægasti miðaldadraugur sem sögur fara af, hann er jafnvel frægur út fyrir landssteinana. Hvern getur verið um að ræða? Jú, það hlýtur að vera hann Glámur sem er örlagavaldur í lífi Grettis Ásmundarsonar í samnefndri sögu. Við köfum í sálarástand og myrkfælni eins aðaltöffara Íslandssögunnar.
Mar 31, 2020•46 min
Það er um fátt annað talað á Íslandi, eða rauninni í heiminum, heldur en Covid-19. Hin líffræðilega ógn er augljós, heilsu og lífi fólks er ógnað, en heimsfaraldrar eins og þessi hafa einnig djúpar samfélagslegar, stjórnmálalegar og efnahagslegar afleiðingar. Þar sem fátt annað er í boði á þessum fordæmalausu tímum notar Sigrún tæknina í hlaðvarpi vikunnar og spjallar við Alexandre White, lektor í félagsfræði og sögu læknavísindanna við John Hopkins háskólann í Baltimore. Hann lauk doktorsnámi f...
Mar 30, 2020•50 min
Tæknivarpið er búið að prófa mús á iPad Pro þökk sé iPadOS 13.4 uppfærslunni sem var að koma út í vikunni. Við tölum um appsmíði COVID19 teymisins og Axel GDPR kafar ofan í persónuverndarsjónarmiðin tengd því. Viaplay er efnisstreymiveita sem er víst á leiðinni til Íslands með fullt af sjónvarpsefni og við ræðum möguleg áhrif. Stjórnendur þáttar númer 228 eru Atli Stefán, Axel Paul og Gunnlaugur Reynir.
Mar 27, 2020•1 hr 5 min
Myrka Ísland er nýr hlaðvarpsþáttur þar sem fjallað verður um myrka atburði Íslandssögunnar. Af nægu er að taka því við eigum fjöldann allan af þjóðsögum um draugagang og kynjaskepnur. Eins mun verða fjallað um slys, glæpi, náttúruhamfarir eða hvað annað spennandi sem leynist í myrkum afkimum sögu okkar. Umsjónarmenn Myrka Íslands eru þær Sigrún Elíasdóttir og Anna Dröfn Sigurjónsdóttir, en þær hafa einnig gert hlaðvarpsþættina Þjóðlegir þræðir sem nutu töluverðra vinsælda. Í þessum fyrsta þætti...
Mar 24, 2020•48 min
Þessa vikuna spjallar Sigrún við Þorgerði Einarsdóttur, félagsfræðing og prófessor í kynjafræði við Háskóla Ísland. Þorgerður er frumkvöðull í rannsóknum á kynjamisrétti en ásamt því að sinna rannsóknum var hún fyrsti lektorinn sem ráðinn var í kynjafræði við íslenskan háskóla. Hún hefur meðal annars stýrt stórum rannsóknarverkefnum þar sem skoðuð er staða kvenna á íslenskum vinnumarkaði sem og innan akademíunnar. Þær Sigrún ræða helstu rannsóknir hennar frá doktorsverkefni hennar um kynjað val ...
Mar 23, 2020•56 min