2. deild kvenna hefur farið skemmtilega af stað og það er ansi stutt á milli liðanna sem ætla sér upp um deild. Þeir Arnar Páll Garðarsson og Óskar Smári Haraldsson sem hafa báðir þjálfað í deildinni mættu á Heimavöllinn og fóru yfir málin með Mist Rúnarsdóttur - Í boði Dominos og Orku Náttúrunnar.
Jun 26, 2023
Innkastið á mánudegi eftir að 12. umferð Bestu deildarinnar kláraðist um helgina. Farið yfir leikina og Lengjudeildin einnig skoðuð. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn í Thule stúdíóinu og Hafliði Breiðfjörð kemur með ferðasögu frá Vestmannaeyjum þar sem hann sá Val vinna 3-0 sigur um helgina. KR vann KA og Víkingur er enn í góðum málum á toppnum eftir sigur gegn Stjörnunni.
Jun 26, 2023
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður Njarðvíkur, Alex Bergmann Arnarsson. Við ræddum við hann um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
Jun 26, 2023
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 24. júní. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Hörður Björgvin Magnússon landsliðsmaður og leikmaður Panathinaikos er gestur þáttarins. Svo er farið yfir Bestu deildina og fréttirnar í íslenska fótboltanum. Stefán Marteinn kemur með skýrslu úr Kórnum þar sem HK vann Breiðablik öðru sinni og Sverrir Örn segir frá leik Keflavíkur og Fylkis. Þá er Hannes Þ. Sigurðsson, þjálfari þýska liðsins Wacker Burghausen, á línunni og segir frá lífinu í Bæjaralandi...
Jun 24, 2023
Níundu umferð Bestu deildar kvenna er lokið og þar með fyrri helmingi fyrri hluta mótsins. Í nýjasta þætti Heimavallarins er fjörið til þessa gert upp - í boði Dominos og Orku Náttúrunnar. Gestir þáttarins að þessu sinni eru Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson og Lilja Dögg Valþórsdóttir.
Jun 23, 2023
Ástríðan og Innkastið sameinuðu krafta sína í dag til þess að blanda saman umfjöllun um 8. umferð í ástríðudeildinum og fotbolti.net bikarinn sem fór fram í vikunni. Sverrir Mar, Baldvin Már, Elvar Geir og Sæbjörn Steinke á hringborðinu.Allt í samstarfi við Bola léttöl, Unbroken, Jakosport og ICE nikotínlausra púða.
Jun 22, 2023
Landsliðs-Innkast eftir óþolandi tap gegn Portúgal á Laugardalsvelli. Cristiano Ronaldo skoraði sigurmarkið í lok leiksins en Ísland hafði þá misst Willum Þór Willumsson af velli með rautt spjald. Elvar Geir, Guðmundur Aðalsteinn og nýjasti besti vinur Ronaldo, Sæbjörn Steinke, gerðu upp leikinn og rýndu í stöðuna.
Jun 21, 2023
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er Þýskalandsmeistarinn og landsliðskonan Karólína Lea Vilhjálmsdóttir. Við ræddum við hannum hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
Jun 19, 2023
Ísland tapaði fyrir Slóvakíu á Laugardalsvelli, slök færanýting varð Íslandi hvað helst að falli í leiknum og draumurinn um að komast á EM í Þýskalandi er orðinn afskaplega fjarlægur. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn gerðu leikinn upp í Innkastinu og rýndu í framhaldið.
Jun 18, 2023
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á þjóðhátíðardeginum, 17. júní. Elvar Geir og Benedikt Bóas hita upp fyrir landsleik Íslands og Slóvakíu með góðum gestum. Tómas Þór er í beinni frá Spáni. Svenni, Friðgeir og Joey Drummer úr Tólfunni kíkja í heimsókn og einnig Palli vallarþulur, Röddin sjálf. Þó landsliðið eigi sviðið gefst einnig tími til að renna yfir leiki vikunnar í Lengjudeildinni og opinbera val á besta leikmanni Bestu deildarinnar hingað til.
Jun 17, 2023
Á mánudag fer Fótbolti.net bikarinn, bikarkeppni neðri deilda, af stað. Keppnin er haldin í fyrsta skipti en lið í 2., 3. og 4. deild taka þátt. 31 félag er skráð í keppnina í ár, en úrslitaleikur hennar fer fram á Laugardalsvelli. Fjallað verður vel um keppnina á Fótbolta.net og er hluti af því sérstakt hlaðvarp í kringum keppnina, en þetta er fyrsti þátturinn. Í þættinum ræddu Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke við Arnar Laufdal, leikmann Augnabliks og fréttaritara á Fótbolta.net, um ...
Jun 15, 2023
Manchester City tryggði sér þrennuna síðastliðið laugardagskvöld með því að leggja Inter frá Ítalíu að velli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. City er núna handhafi ensku úrvalsdeildarinnar, enska bikarsins og Meistaradeildar Evrópu. Magnús Ingvason og Tómas Hallgrímsson, stuðningsmenn Manchester City, komu við í Thule stúdíóinu í dag og fóru yfir úrslitaleikinn gegn Inter og tímabilið í heild sinni. City er annað enska liðið í sögunni sem vinnur þrennuna en nágrannar þeirra í Manchester Unite...
Jun 13, 2023
Sverrir Mar og Gylfi Tryggva hittust til þess að fara yfir 7. umferð í 2. og 3. deild karla í fótbolta. Aðal mál þáttarins var bitið í Akraneshöllinni og fór mikill tími í það enda Sverrir Mar inná vellinum þegar það átti sér stað. Þjálfara og fyrirliða Kormáks/Hvatar var boðið að segja sína hlið í þættinum en báðust undan því.
Jun 13, 2023
Síðasta umferðin fyrir landsleikjaglugga er að baki, ellefu umferðir búnar og allir hafa prófað að spila gegn öllum. Það er því boðið upp á heljarinnar hringborð að þessu sinni. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke, Sverrir Mar og Valur Gunnars fara yfir 11. umferðina í Thule stúdíónu og opinbera val á úrvalsliði Bestu deildarinnar hingað til. Lengjudeildarhornið, landsliðið, bit í 3. deildinni og Fótbolti.net bikarinn koma einnig við sögu.
Jun 12, 2023
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður Vals og er Íslands-og Bikarmeistari með þeim, Arna Sif Ásgrímsdóttir. Við ræddum við hana um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
Jun 12, 2023
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 10. júní. Umsjón: Elvar Geir Magnússon og Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson. Í fyrri hluta þáttarins er farið yfir fótboltafréttir vikunnar; landsliðsvalið, Lengjudeildina, Mjólkurbikarinn og Bestu deildina. Í seinni hlutanum er Age Hareide landsliðsþjálfari Íslands í ítarlegu viðtali. Viðtalið við Hareide hefst á 54:30
Jun 10, 2023
Það var líf og fjör á skrifstofu Fótbolta.net í dag þar sem litla flugvélin Ingimar Helgi Finnsson og fagmaðurinn Tómas Steindórsson mættu í heimsókn til að fara yfir stöðuna. Þeir mynda teymið 'litli og stóri' en þeir eru með útvarpsþátt saman á X-inu 977 á föstudögum milli 9 og 12. Tómas er stuðningsmaður West Ham sem var að tryggja sér sigur í Sambandsdeildinni og Ingimar er stuðningsmaður Tottenham sem var að ráða nýjan stjóra, Ange Postecoglou. Í þættinum var farið yfir úrslitaleikjatörnina...
Jun 09, 2023
Sverrir og Gylfi settust fyrir framan míkrafóna og ræddu umferð vikunnar þar sem 12 leikir fóru fram á miðvikudagskvöldið. Sex umferðum lokið, mikið um dramatík og margt að ræða.Ástríðan er í boði Bola léttöl, Unbroken, Ice nikótínlausra púða og Jako Sport.
Jun 08, 2023
Sjöundu umferð Bestu deildarinnar var að ljúka. Vissulega ekki fjörugasta umferð mótsins til þessa en engu síður nóg að ræða. Elíza Gígja Ómarsdóttir og Jón Stefán Jónsson mæta á Heimavöllinn og fara yfir málin ásamt Mist Rúnarsdóttur. Að sjálfsögðu í boði Dominos og Orku Náttúrunnar.
Jun 07, 2023
„Bara gjörsamlega sturlað," sagði Sævar Atli Magnússon um endann á tímabilinu hjá Lyngby. Liðið hélt sér uppi með frábærri endurkomu, voru á tímapunkti sextán stigum frá öruggu sæti en þegar lokaflautið gall í lokaumferðinni var liðið í öruggu sæti. Liðið hafði verið í fallsæti síðan í ágúst en að lokum var það markatalan sem gerði gæfumuninn því Horsens endaði með jafnmörg stig en verri markatölu og féll. Sæbjörn Steinke fór yfir tímabilið hjá Lyngby með Sævari, fagnaðarlætin, trúna á verkefnið...
Jun 06, 2023
Sverrir Mar og Gylfi Tryggva eru orðnir vinir aftur og mættu saman í heimahaga á .net til þess að fara yfir 5. umferð í deildunum tveimur.Allt í boði Unbroken, Jako Sport, ICE nikótínlausra púða og Bola léttöl.
Jun 05, 2023
Lyngby hélt sér uppi í Superliga á laugardaginn með því að fá stig gegn Horsens í lokaumferðinni. Stigið dugði þar sem Álaborg tapaði gegn Silkeborg. Niðurstaðan varð sú að Lyngby og Horsens enduðu með jafnmörg stig en Lyngby var með betri markatölu. Álaborg var svo með stigi minna. Freyr Alexandersson er þjálfari Lyngby og þeir Alfreð Finnbogason, Kolbeinn Birgir Finnsson og Sævar Atli Magnússon eru leikmenn liðsins. Lyngby var í neðsta sæti deildarinnar frá því í ágúst og þar til Silkeborg kom...
Jun 05, 2023
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður Lengjudeildarliðs Grindavíkur Guðjón Pétur Lýðsson. Við ræddum við hannum hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
Jun 05, 2023
Stefán Teitur Þórðarson var í stúkunni þegar Álaborg féll í fyrsta skipti úr dönsku Superliga í gær. Silkeborg, lið Stefáns Teits, vann leikinn 0-1 sem varð til þess að Álaborg endaði í neðsta sæti deildarinnar. Á sama tíma gerði Lyngby markalaust jafntefli við Horsens og dugði það stig til þess að Lyngby hélt sæti sínu í deildinni. Stefán var fjarri góðu gamni í leiknum vegna meiðsla og var því ekki á grasinu á meðan leik stóð. Eftir að leik lauk fór hann í klefann til liðsfélaga sinna og var þ...
Jun 04, 2023
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir það helsta í boltanum. Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari Breiðabliks er gestur eftir þennan rosalega toppslag Breiðabliks og Víkings sem endaði á óhemju dramatískan hátt. Þá mætir Sæbjörn Steinke og farið er yfir aðra leiki, bæði í Bestu deildinni og Lengjudeildinni.
Jun 03, 2023
Innkastið í 10. umferð Bestu deildarinnar er með öðruvísi sniði. Í fyrri hluta þáttarins er talað við einn besta dómara deildarinnar, Pétur Guðmundsson lögregluvarðstjóra. Rætt er um líf og störf dómara Bestu deildarinnar, framkomuna gagnvart þeim og fleira. Seinni hlutinn hefst á 43:30 en þar skoða Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn leiki í Bestu deildinni og Lengjudeildinni.
Jun 02, 2023
Sjöttu umferð Bestu deildarinnar var að ljúka og enn fáum við óvænt úrslit og ýmislegt að ræða. Þau Guðmundur Ásgeir Aðalsteinsson og Lilja Dögg Valþórsdóttir mæta á Heimavöllinn og fara yfir málin ásamt Mist Rúnarsdóttur.
Jun 02, 2023
Sverrir Mar og Gylfi Tryggva fengu til sín góðan gest í Halla Óla sem kom og fór yfir 4. umferð í 2. og 3. deild með þeim.Ástríðan er í boði Bola léttöl, JakoSport, Unbroken og ICE nikótínlausra púða.
May 30, 2023
Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars í Innkastinu eftir 9. umferð Bestu deildarinnar. Dauðafæri fór forgörðum hjá Breiðabliki, Tryggvi Hrafn sá til þess að Víkingur tapaði sínum fyrsta leik, Akureyringum létt eftir sigur gegn Fram, Fylkismenn safna stigum á meðan Eyjamenn eru í frjálsu falli, KR vann heimasigur og FH vann HK í stórskemmtilegum leik.
May 29, 2023
Ensku úrvalsdeildinni 2022/23 er lokið. Því ákváðu Gummi og Steinke að koma sér vel fyrir í Thule hljóðverinu í dag og gera upp skemmtilegt tímabil. Með þeim í dag er Jón Júlíus Karlsson, framkvæmdastjóri Grindavíkur og stuðningsmaður Newcastle. Farið var yfir lokaumferðina og verðlaun veitt fyrir tímabilið. Meðal annars var lið ársins valið, leikmaður ársins, ummæli ársins og margt fleira. Þá var farið létt yfir úrslitaleik umspilsins í Championship-deildinni og ótrúlega lokaumferð í Þýskalandi...
May 29, 2023