Fotbolti.net - podcast cover

Fotbolti.net

Fotbolti.netfotbolti.net
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Útvarpsþátturinn - Á ferð og flugi um verslunarmannahelgina

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net í verslunarmannahelgargírnum laugardaginn 5. ágúst. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas taka púlsinn á fólki um allt land og erlendis líka, skoða umferðina með Palla og ræða um fótbolta. Evrópuleikirnir, Besta deildin, Lengjudeildin, Fótbolti.net bikarinn, enski boltinn og fleira. Arnar Laufdal gefur skýrslu úr brekkunni. Hvaða leikmenn eru í Eyjum? Unnar Ari Hansson, fyrirliði KFA, er á línunni frá Akureyri og Birgir Baldvinsson, leikmaður KA, í beinni frá Belfa...

Aug 05, 2023

Enski boltinn - Gunni Birgis og Jón Kári ganga um í draumalandi Arteta

Við á Fótbolti.net höldum áfram með upphitun okkar fyrir ensku úrvalsdeildina sem hefst um þarnæstu helgi. Í dag er komið að því að ræða Arsenal og fengum við því tvo af þeirra ástríðufyllstu stuðningsmönnum til þess að ræða málin, þá Gunnar Birgisson og Jón Kára Eldon. Farið er yfir síðasta tímabil þar sem liðið endaði í öðru sæti, leikmannagluggann áhugaverða í sumar og væntingarnar fyrir tímabilið sem er framundan er. Það er óhætt að mæla með þessu spjalli fyrir Arsenal stuðningsmenn, sem og ...

Aug 03, 2023

Innkastið - Valur rústaði KR aftur og Hemmi fer stoltur á Þjóðhátíð

Guðmundur Aðalsteinn, Sæbjörn Steinke og Andri Már Eggertsson, betur þekktur sem Nablinn, eru saman í Innkasti vikunnar. Valur er hefur unnið KR samanlagt 9-0 í tveimur leikjum á þessu tímabili, FH fékk þrjá nýja leikmenn, þjálfari ÍBV var stoltur þrátt fyrir stórt tap og Breiðablik missir af titilbaráttunni. Þá var rætt um þjálfaraleitir hjá Fram og Grindavík, og aðeins um síðustu umferð í Lengjudeildinni.

Aug 01, 2023

Enski boltinn - Aldrei venjuleg vika hjá Tottenham

Það styttist í að enska úrvalsdeildin fari af stað en hún hefst ekki um næstu helgi, heldur þar næstu. Við á Fótbolti.net erum byrjuð að hita upp fyrir tímabilið sem er framundan. Spáin hófst fyrr í dag en við ætlum líka að fá stuðningsmenn 'topp sex' liðanna í Thule stúdíóið til að fara yfir málin. Við byrjum á Tottenham en Hörður Ágústsson og Ingimar Helgi Finnsson, lita flugvélin, komu við á skrifstofunni í dag til þess að ræða um Spurs. Síðasta tímabil var ansi litríkt hjá Tottenham og það v...

Jul 31, 2023

Útvarpsþátturinn - Lausir úr banni og brottrekstur í Úlfarsárdal

Útvarpsþátturinn 29. júlí. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar, Bestu deildina og Davíð Þór Viðarsson er á línunni en búið er að aflétta félagaskiptabanni FH. Stefán Pálsson ræðir um þjálfaraskiptin hjá Fram og Kristján Atli ræðir um Liverpool gluggann og nýja tíma í Sádi-Arabíu.

Jul 29, 2023

Hlynur Atli: Þungbært, maður vill ekki upplifa svona

Fótbolti.net ræddi við Hlyn Atla Magnússon, fyrirliða Fram, og spurði hann út í tíðindi gærdagsins þegar tilkynnt var að Jón Sveinsson hefði verið látinn fara sem þjálfari liðsins. Hlynur ræddi tíðindin og gengi Fram í síðustu leikjum. Tekur maður það mikið inn á sig að þjálfari sé látinn fara? Fram er í næstneðsta sæti Bestu deildarinnar eftir sautján spilaða leiki. Næsti leikur Fram er eftir tæpar tvær vikur gegn Fylki sem er í 10. sæti með tveggja stiga forskot á Fram. Hlynur var staddur á Re...

Jul 28, 2023

Tiltalið: Sindri Kristinn Ólafsson

Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er markvörður FH í Bestu deild karla Sindri Kristinn Ólafsson. Við ræddum við hannum hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.

Jul 26, 2023

Innkastið - Dýrkeypt mistök og sjóðheitt sæti

Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Gunnars í Innkasti vikunnar. Valur horfði á FCK spila gegn Lyngby um helgina og fylgdi liðinu svo til landsins þar sem dönsku meistararnir unnu Breiðablik 2-0 á Kópavogsvelli. Sá leikur er gerður upp, 16. umferð Bestu deildarinnar að auki og þá hitnaði þjálfarasæti Grindavíkur í Lengjudeildinni umtalsvert í kvöld.

Jul 25, 2023

Heimavöllurinn: Landi og þjóð til sóma í Belgíu

Stelpurnar okkar í U19 voru landi og þjóð til sóma í lokakeppni EM en þær eru því miður úr leik. HM hinum megin á hnettinum er farið af stað og ýmis áhugaverð úrslit hafa litið dagsins ljós. Þá er Besta deildin farin að banka á nýjan leik og framundan gríðarlega spenna. Þau Guðrún Jóna Kristjánsdóttir og Guðmundur Ásgeir Aðalsteinsson mæta á Heimavöllinn og fara yfir málin.

Jul 25, 2023

Enski boltinn - Félagaskipti og undirbúningstímabilið

Það eru rétt tæplega þrjár vikur í að enska úrvalsdeildin fari af stað á nýjan leik. Það er margt búið að gerast í sumar á félagaskiptamarkaðnum. Því ákváðu Gummi og Steinke að setjast niður í Thule hljóðverinu og fara yfir það sem hefur skeð síðustu vikurnar. Declan Rice er dýrasti leikmaður sem enskt félag hefur keypt, Mason Mount er farinn til Manchester United frá Chelsea og Liverpoool keypti argentínskan heimsmeistara. Þetta og margt fleira rætt í þætti dagsins.

Jul 24, 2023

Heimavöllurinn: Áfram Ísland og HM að hefjast

HM hefst í fyrramálið og Adda Baldursdóttir mætir á Heimavöllinn og hitar upp fyrir mótið. Þá er auðvitað einnig rætt um vináttuleikina tvo sem landsliðið okkar var að spila sem og leik U19 ára landsliðsins okkar í lokakeppni EM. Þátturinn er sem fyrr í boði Dominos og Orku Náttúrunnar.

Jul 19, 2023

Innkastið - Setið í súpunni, Parken bíður og bestir í Lengjudeildinni

Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn í Innkasti vikunnar í Thule stúdíóinu. Þorsteinn Haukur kemur með skýrslu úr Vesturbænum. Evrópuleikirnir, 15. umferðin í Bestu og úrvalslið tímabilsins til þessa í Lengjudeildinni. Parken bíður eftir Blikum, KR-ingar sátu í súpunni en unnu samt mikilvægan sigur gegn FH, Kjartan Henry vildi ekki viðurkenningu, gæðaleysi í Árbænum og Eyjum, Stjarnan var miklu betri en Valur, heil umferð í Lengjudeildinni, þjálfaraskipti í Njarðvík og læti í göng...

Jul 19, 2023

Skagamenn gríðarlega stoltir af Hákoni - Hvað verður um peninginn?

Formaður ÍA, Eggert Hjelm Herbertsson, ræddi við Fótbolta.net í dag. Skagamaðurinn Hákon Arnar Haraldsson var í gær seldur frá FC Kaupmannahöfn til Lille í Frakklandi. Fjallað hefur verið um það í fjölmiðlum að ÍA fái um 20% af söluverðinu og að söluverðið hafi verið 17 milljónir evra þegar allar árangurstengdar greiðslur eru reiknaðar með. Ef það er rétt kaupverð er Hákon bæði næstdýrasti leikmaður sem FCK hefur selt og næstdýrasti íslenski leikmaðurinn í sögunni. Ef það er rétt á ÍA von á tæpl...

Jul 18, 2023

Leiðin á Laugardalsvöll - Spjaldaregn í kortunum

Á miðvikudag verða 16-liða úrslit Fótbolti.net bikarsins, bikarkeppni neðri deilda. Í þættinum er hitað upp fyrir leikina. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Arnar Laufdal spá í spilin í Thule stúdíónu og þá er Brynjar Kristmundsson, þjálfari Víkings Ólafsvík, á línunni en Ólsarar tróna á toppi 2. deildarinnar.

Jul 17, 2023

Tiltalið: Eggert Aron Guðmundsson

Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður Stjörnunnar og U-19 landsliðs Íslands, Eggert Aron Guðmundsson. Við ræddum við hannum hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.

Jul 17, 2023

Útvarpsþátturinn - Spennuleikir, heit sæti, slúður og félagaskiptabann

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 15. júlí. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Gunnars sitja við hringborðið og gera upp fótboltavikuna. Íslensk lið í Evrópu, Besta deildin, Lengjudeildin og U19 á EM. Fréttir vikunnar og nóg af slúðri nú þegar félagaskiptaglugginn fer að opna. Einn með öllu.

Jul 15, 2023

Heimavöllurinn: Sólstingur og sumarfrí?

13. umferð Bestu deildarinnar er lokið og við tekur pása frá deildinni. Knattspyrnuáhugafólk þarf þó ekki að örvænta því framundan eru meðal annars spennandi landsliðsverkefni. Þau Jón Stefán Jónsson og Lilja Dögg Valþórsdóttir mæta og fara yfir málin í boði Orku Náttúrunnar og Dominos.

Jul 11, 2023

Innkastið - Dýfuæði og hrikaleg mörk að fá á sig

Elvar Geir og Sæbjörn Steinke gera upp leiki helgarinnar og skoða hvað er framundan í vikunni. Með þeim er Runólfur Trausti, fréttamaður á Vísi og markvarðaþjálfari yngri flokka FC Kaupmannahafnar. Farið er yfir Bestu deildina, Lengjudeildina og Evrópuleikina. Þá er hringt í Guðmund Aðalstein Ásgeirsson, fréttamann Fótbolta.net, sem er á Möltu að fylgast með íslenska U19 liðinu á EM.

Jul 10, 2023

Útvarpsþátturinn - Boltavikan, bensín fyrir KA og gluggi Man Utd

Fótboltavikan er gerð upp í útvarpsþættinum Fótbolti.net. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið er yfir leiki síðustu daga með Sverri Erni Einarssyni fréttamanni .Net. Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA er á línunni en Akureyrarliðið vann sigur gegn Breiðabliki í rosalegum undanúrslitaleik í bikarnum og er að fara í Evrópuverkefni. Skoðuð eru stærstu tíðindi félagaskiptagluggans í Evrópu og Tryggvi Páll Tryggvason fréttamaður skoðar stöðu mála hjá Manchester United.

Jul 08, 2023

Ástríðan 10. umferð - Írskir dagar og Ólafsvaka

Sverrir Mar og Gylfi Tryggva mættu og fóru yfir leikinn sem þeir mættust í ásamt öllum hinum leikjunum í 2. og 3.deild.Ástríðan er í boði Bola Léttöl, Unbroken, JakoSport og ICE nikótínlausra púða.

Jul 04, 2023

Tiltalið: Arnór Ingvi Traustason

Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður IFK Norrköping og landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi Traustason. Við ræddum við hann um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.

Jul 03, 2023

Heimavöllurinn: Davíð, Golíat og stöppuð stúka

Eftir dramatíska undanúrslitaleiki er ljóst að Breiðablik og Víkingur munu leika til úrslita í Mjólkurbikarnum þetta árið. Þá eru óvæntar fréttir úr Lengjudeildinni og toppbaráttan í 2. deild rosaleg. Þær Elíza Gígja Ómarsdóttir og Lilja Dögg Valþórsdóttir mæta og fara yfir málin í boði Orku Náttúrunnar og Dominos.

Jul 02, 2023

Útvarpsþátturinn - Tíðindamikil vika í íslenska boltanum

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 1. júlí. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars fara yfir allt það helsta sem er í gangi í íslenska boltanum. Leikir vikunnar í Bestu deildinni og Lengjudeildinni eru gerðir upp og rætt um Evrópuverkefni Breiðabliks. Stefán Ingi er búinn að kveðja Bestu deildina en Aron Elís Þrándarson er er mættur.

Jul 01, 2023

U19 á EM - Tveir lykilmenn í spjalli áður en haldið er til Möltu

Ísland er ein af átta þjóðum sem tekur þátt á Evrópumóti U19 landsliða karla í sumar. Það styttist heldur betur í mótið, sem fer fram á Möltu. Strákarnir halda út á föstudaginn og leika sinn fyrsta leik - gegn Spáni - næsta þriðjudag. Fyrst það er svona stutt í mótið þá fengum við Hlyn Frey Karlsson, leikmann Vals, og Loga Hrafn Róbertsson, leikmann FH, í spjall um vegferð liðsins að lokakeppni Evrópumótsins. Það styttist í stóru stundina og spennan er farin að magnast.

Jun 28, 2023

Heimavöllurinn: Magga Magg og U19 á EM

Margrét Magnúsdóttir, þjálfari U19 ára landslið Íslands, kíkti við á Heimavellinum og tók gott spjall um EM ævintýrið sem er framundan. Margrét tilkynnti leikmannahóp U19 sl. föstudag og það styttist heldur betur í mótið sem fer fram í Belgíu dagana 18.-30. júlí nk.

Jun 27, 2023
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android