Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.
May 29, 2023
Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Sérfræðingur: Kristján Atli. Í fyrri hluta þáttarins er fjallað um Bestu deildina og Lengjudeildina. Í seinni hlutanum er enska hringborðið dregið fram, úrvalsdeildin gerð upp og hitað upp fyrir fallbaráttuna.
May 27, 2023
Coventry City, líkt og Luton Town, er einum leik frá því að komast upp í ensku úrvalsdeildina. Gummi og Steinke fengu Arnar Sæberg Jónsson, sem sumir þekkja sem Hemúlinn, í spjall um Coventry í dag. Hann hefur lengi verið stuðningsmaður liðsins. Í þættinum ræðir hann um það hvernig áhugi sinn á Coventry kviknaði og sorglega tíma hjá félaginu síðustu árin. Þetta hefur verið skrautlegt lengi vel en núna er sólin farin að skína. Á morgun gæti liðið svo tryggt sér sæti í deild þeirra bestu, en Arnar...
May 26, 2023
Það eru tíu ár síðan Luton Town lék í ensku fimmtu deildinni, en á laugardaginn getur liðið tryggt sér sæti í ensku úrvalsdeildinni. Gummi og Steinke fengu sagnfræðinginn Stefán Pálsson til að ræða Luton í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag. Stefán hefur verið stuðningsmaður Luton í að verða 40 ár. Þetta er mikil öskubuskusaga en liðið frá flugvallarborginni gæti leikið í deild þeirra bestu á næsta tímabili ef liðið leggur Coventry að velli á laugardaginn. Hvað hefur valdið þessum mikla uppgangi? V...
May 23, 2023
Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas í Innkastinu eftir 8. umferð Bestu deildarinnar. Lengjudeildin er einnig skoðuð en þar er dómgæslan áberandi í umræðunni. Víkingar áfram með fullt hús, menn ráða ekki við Gísla Eyjólfs, Valsmönnum tókst ekki að skora gegn Keflavík, yfirlýsingagleðin mikla í Hafnarfirðinum, laskað lið FH vann mikilvægan sigur og fleira.
May 23, 2023
Sverrir Mar og Gylfi Tryggva mættu á heimahaga, í .net stúdíóið, og fóru yfir 3.umferð í ástríðudeildunum. Félagarnir voru mjög ósammála um margt, báðir fóru í fýlu en samt vinir að lokum.Ástríðan er í samstarfi við Jako Sport, Bola léttöl, Unbroken og ICE nikotínlausa púða.
May 23, 2023
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður Breiðabliks og landsliðskonan Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir. Við ræddum við hana um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
May 22, 2023
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 20. maí. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið yfir fréttir vikunnar, bikarleikina og næstu umferð Bestu deildarinnar skoðuð. Gestur þáttarins er Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliði. Rætt er við hann um lífið í Katar, landsliðið og fleira.
May 20, 2023
Gummi og Steinke komu sér vel fyrir Thule stúdíóinu til þess aðallega að ræða leik Manchester City og Real Madrid í Meistaradeildinni. Frammistaðan hjá City í leiknum var hreint út sagt mögnuð. Halldór Árnason, aðstoðarþjálfari Breiðabliks, var á línunni og fór yfir leikinn frá sjónarhorni þjálfarans. Pep Guardiola er búinn að smíða magnað fótboltalið, það verður að segjast. Þá ræddu Gummi og Steinke einnig undanúrslitin í öðrum Evrópukeppnum og fóru yfir komandi umferð í ensku úrvalsdeildinni. ...
May 19, 2023
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni var fyrirliði Íslandsmeistara Breiðabliks, Höskuldur Gunnlaugsson. Við ræddum við hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
May 18, 2023
Fjórðu umferð fjörugrar Bestu deildar var að ljúka og þau Jón Stefán Jónsson og Lilja Dögg Valþórsdóttir hentu sér beint í upptöku á Heimavellinum ásamt Mist Rúnarsdóttur eftir að leikir kvöldsins voru flautaðir af.
May 16, 2023
Titilbaráttan í ensku úrvalsdeildinni er búin þó að staðfest sviginn sé ekki mættur. Gummi, Steinke og Hlynur Valsson fóru yfir leiki helgarinnar í Enski boltinn hlaðvarpinu. Arsenal tapaði stórt gegn Brighton á heimavelli um helgina á meðan Manchester City fór illa með Everton. City hefur verið óstöðvandi síðustu vikur og eru að sanna sig sem eitt besta lið í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Á meðan er Brighton eitt skemmtilegasta lið deildarinnar. Kannski var það blessun í dulargervi fyrir félag...
May 16, 2023
Sverrir Mar og Gylfi Tryggva fara yfir 2. umferð í ástríðudeildunum.Allt saman í boði Bola, Jakosport og Unbroken.
May 16, 2023
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni var Guðmundur Magnússon leikmaður Fram og jafnmarkahæsti leikmaður Bestu deildarinnar 2022. Við ræddum við hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
May 15, 2023
Innkastið eftir 7. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og sérstakur gestur er Magnús Þórir Matthíasson. Víkingar áfram með fullt hús, Kjartan Henry stálheppinn, Fylkismenn með gríðarlega mikilvægan sigur, Eiður Aron missti hausinn, útlitið dökkt hjá Keflavík, Valur lék sér að KA, draumabyrjun Jökuls og Lengjudeildarhornið.
May 14, 2023
Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke fara yfir málin. Lengjudeildin er til umfjöllunar og umtalað atvik þegar dómari dæmdi vítaspyrnu en hætti við eftir mótmæli. Hitað er upp fyrir komandi umferð í Bestu deildinni og rætt um þjálfaraskiptin í Garðabænum. Þá er Adam Ægir Pálsson á línunni.
May 13, 2023
Ágúst Gylfason var í gær látinn fara sem þjálfari Stjörnunnar, aðstoðarmaður hans, Jökull Elísabetarson, var á sama tilkynntur sem aðalþjálfari. Ágúst fékk Jökul með sér í Stjörnuna þegar hann sjálfur var ráðinn til félagsins eftir tímabilið 2021. Jökull ræddi um breytinguna í viðtali í dag. Hvað hefur vantað upp á hjá Stjörnunni? Hversu miklu hefur Jökull fengið að ráða til þessa?
May 11, 2023
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni var hún Jasmín Erla Ingadóttir, leikmaður Stjörnunnar úr Bestu deild kvenna og ræddum við hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
May 11, 2023
Þriðju umferð Bestu deildarinnar var að ljúka og það er nóg að ræða á Heimavellinum. Orka Náttúrunnar og Dominos bjóða upp á þáttinn en gestir Heimavallarins að þessu sinni eru þeir Jón Stefán Jónsson og Stefán Marteinn Ólafsson. Þáttastýra er Mist Rúnarsdóttir.
May 11, 2023
Elvar, Gummi og Steinke í Innkastinu eftir 6. umferð Bestu deildarinnar. Nóg að ræða. Draumurinn um fjögurra liða titilbaráttu, Óskar Hrafn ósáttur við spilamennskuna, dómarinn bað Eyjamenn afsökunar, Valsmenn vængjum þöndum, staða Rúnars Kristins, Maradona mark Ásgeirs, Soft Stjörnumenn, Framarar mættir á ballið, Keflavík gaf FH leik og í Lengjudeildarhorninu förum við í Bogann.
May 09, 2023
Sverrir Mar og Gylfi Tryggva settust niður og fóru yfir fyrstu umferðina í 2.- og 3.deild karla í fótbolta.Ástríðan er í boði Bola, Jakosport og Unbroken.
May 09, 2023
Gummi og Steinke fengu góðan gest í Enska boltann þennan mánudaginn því fjölmiðlamaðurinn Atli Már Steinarsson ákvað að kíkja í heimsókn. Atli er mikill Liverpool-maður en hans lið er á mikilli siglingu þessa stundina. Liverpool er búið að vinna sex leiki í röð og er komið í bullandi Meistaradeildarbaráttu. Ná þeir að skáka erkifjendum sínum í Manchester United í þeirri baráttu? Hvernig endar þetta eiginlega? Það er gríðarlega mikil spenna framundan í ensku úrvalsdeildinni en það var mikið rætt ...
May 08, 2023
Tiltalið er ný hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni var hún Ólöf Sigríður Kristinsdóttir, leikmaður Þróttara úr Bestu deild kvenna og ræddum við hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
May 08, 2023
Það er ekki verið að flækja hlutina í þætti vikunnar. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta sem er í gangi í boltanum. Byrjað er á því að fara yfir fyrstu umferð Lengjudeildarinnar en deildin fer af stað með dramatík og spennu. Þá er hitað upp fyrir áhugaverða 6. umferð Bestu deildarinnar. Enski boltinn, ferðasaga frá Þýskalandi og smá körfubolti koma líka við sögu.
May 06, 2023
Í þessum þætti Innkastsins er 5. umferð Bestu deildarinnar gerð upp og hitað upp fyrir Lengjudeildina með því að skoða spá þjálfara og fyrirliða deildarinnar. Upphitun fyrir Lengjudeildina hefst á 58:00 Elvar Geir og Sæbjörn Steinke sjá um þáttinn og með þeim er Valur Gunnarsson, fyrrum markvörður og markvarðaþjálfari Leiknis.
May 04, 2023
Sverrir Mar og Gylfi Tryggva hittust og spáðu í spilin fyrir komandi átök í 3. deildinni í sumar. Hverjir eru komnir og farnir hjá liðunum? Hverjir eru styrkleikar og veikleikar liðanna? Hvernig gekk á undirbúningstímabilinu? Þátturinn er í boði Bola og er hægt að hlusta á í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.
May 04, 2023
Sverrir Mar og Gylfi Tryggva hittust og spáðu í spilin fyrir komandi átök í 2. deildinni í sumar. Hverjir eru komnir og farnir hjá liðunum? Hverjir eru styrkleikar og veikleikar liðanna? Hvernig gekk á undirbúningstímabilinu? Þátturinn er í boði Bola, Jako og Ice og er hægt að hlusta á í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.
May 04, 2023
Það voru stór tíðindi í morgunsárið því Sam Allardyce er mættur aftur í enska boltann. Hann er tekinn við Leeds og fær erfitt verkefni að bjarga liðinu frá falli. Gummi og Steinke fengu Jóhann Inga Hafþórsson, blaðamann Morgunblaðsins og stuðningsmann Leeds, til að ræða fréttirnar og tímabilið hjá Leeds. Nær Stóri Sam að bjarga Leeds frá falli? Einnig var rætt um aðra leiki síðustu umferðar. Meðal annars var athyglisverð hegðun Jurgen Klopp til umræðu.
May 03, 2023
Tiltalið er ný hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Í þessum þætti fengum við til okkar leikmann bikarmeistara Víkings í tiltal, Birnir Snær Ingason og fórum við yfir ferilinn hjá honum til þessa.
May 02, 2023
Gummi, Steinke og Sverrir Mar fara yfir fjórðu umferð Bestu deildarinnar í Innkastinu. Breiðablik og Valur unnu sigra í algjörum veisluleikjum, HK hafði betur í nýliðaslagnum, ÍBV gerði kaup tímabilsins og fór í góða ferð til Keflavíkur, Víkingar eru meistaralegir á meðan KA er það ekki og Kjartan Henry var í hefndarhug. Þetta var svo sannarlega frábær umferð en miðgrasið í Kaplakrika og allt leikritið í kringum það setti svartan blett á hana.
Apr 30, 2023