Fotbolti.net - podcast cover

Fotbolti.net

Fotbolti.netfotbolti.net
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Útvarpsþátturinn - Ruglið í kringum FH - KR, Biggi Jó og Gaui Lýðs

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 29. apríl. Tómas Þór Þórðarson og Benedikt Bóas Hinriksson stýrðu þættinum í dag en Elvar Geir er í pílagrímaferð til fótboltaborgarinnar Munchen í Þýskalandi. Þeir fóru yfir fréttir vikunnar í fótboltanum, ræddu við Birgi Jóhannsson framkvæmdastjóra ÍTF um dramað í kringum leik FH og KR auk útsendinga frá Lengjudeild karla. Guðjón Pétur Lýðsson leikmaður Grindavíkur var á línunni en liðið hefur leik í Lengjudeildinni á Akranesi næstkomandi föstu...

Apr 30, 2023

Enski boltinn - Ekkert lið í heiminum hefði ráðið við City þarna

Gummi og Steinke hringdu til Svíþjóðar og heyrðu í Einari Guðnasyni, fyrrum aðstoðarþjálfara Víkings og miklum Arsenal stuðningsmanni. Hann gerði upp stórleikinn gegn Manchester City sem fór fram á miðvikudagskvöld. Einar segir að City sé best þjálfaða lið sem hann hefur séð en það er óhætt að segja að lærisveinar Pep Guardiola hafi farið allverulega í bílstjórasætið um enska meistaratitilinn með sigrinum gegn Arsenal í stórleiknum. Yfirburðir Man City voru gríðarlegir í leiknum en þeir eru ansi...

Apr 28, 2023

Tiltalið: Adam Ægir Pálsson

Tiltalið er ný hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa.Í fyrsta þættinum fengum við til okkar Adam Ægi Pálsson, leikmann Vals í „tiltal".

Apr 27, 2023

Heimavöllurinn: Lokaspá og upphitunarfjör fyrir Lengjudeildina!

Lengjudeildin hefst þann 1. maí næstkomandi og komið að því að Heimavöllurinn opinberi lokaspá sína og hiti upp fyrir fjörið sem er framundan. Þau Guðrún Jóna Kristjánsdóttir og Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson eru gestir þáttarins en besti leikmaður Lengjudeildarinnar í fyrra, Sísí Lára Garðarsdóttir, var veðurteppt í íslenska vorveðrinu, og var á línunni. Þátturinn er í boði Dominos og Orku Náttúrunnar.

Apr 27, 2023

Heimavöllurinn: Besta deildin og versta veðrið

Fyrstu umferð Bestu deildarinnar var að ljúka og það er nóg að ræða. Á Heimavöllinn mæta þau Jón Stefán Jónsson og Lilja Dögg Valþórsdóttir og fara yfir umferðina ásamt Mist Rúnarsdóttur.

Apr 26, 2023

Innkastið - Víkingur bauð KR upp á raunveruleikatékk

Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Óskar Smári í Innkastinu eftir 3. umferð Bestu deildarinnar.Víkingur svo miklu betri en KR, Breiðablik tapaði óvænt í Vestmannaeyjum, Fylkir skellti FH, Stjarnan vann handboltaleikinn gegn HK, Valur vann Fram og markalaust var fyrir norðan.

Apr 24, 2023

Enski boltinn - Sálfræðihernaður, titilbaráttan og bless Stellini

Útvarpsmaðurinn Orri Freyr Rúnarsson er gestur í Enski boltinn í dag en það er nóg að ræða að venju. Manchester United og Manchester City mætast í úrslitum enska bikarsins en undanúrslitin voru spiluð í gær. United hafði betur gegn Brighton í gær þar sem David de Gea og Wout Weghorst spiluðu stórt hlutverk í vítaspyrnukeppninni. Þá var einnig leikið í ensku úrvalsdeildinni um helgina þar sem mikla athygli vakti að Newcastle vann 6-1 sigur á Tottenham. Búið er að reka Christian Stellini sem stýrð...

Apr 24, 2023

Heimavöllurinn: U19 á EM - Metnaður, liðsheild og óbilandi trú

U19 ára landsliðskonurnar Katla Tryggvadóttir og Sædís Rún Heiðarsdóttir eru gestir Heimavallarins. Þær eru hluti af mögnuðu U19 ára landsliði sem nýverið tryggði sér sæti í lokakeppni EM. Þær eru líka tvær af okkar allra efnilegustu leikmönnum og ætla sér stóra hluti í Bestu deildinni sem hefst á morgun.

Apr 24, 2023

Heimavöllurinn: Upphitunarpartý og spá fyrir 2. deild

Það er rúm vika í að keppni í 2. deild hefjist og Heimavöllurinn hitar upp fyrir fjörið. Til leiks mæta þjálfararnir Aníta Lísa Svansdóttir og Pétur Rögnvaldsson en þau fóru upp úr 2. deild með sín lið, Fram og Gróttu í fyrra, og þekkja því vel til. Þau spá í spilin ásamt Mist Rúnarsdóttur, fara yfir liðin og leikmenn sem gætu gert það gott í sumar.

Apr 22, 2023

Útvarpsþátturinn - Besta, KR og landsliðsmál

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 22. apríl. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir fréttir vikunnar, bikarleikina, hita upp fyrir komandi umferð í Bestu deildinni og Theodór Elmar Bjarnason, leikmaður KR, er á línunni. Gestur þáttarins er Jörundur Áki Sveinsson, yfirmaður fótboltamála hjá KSÍ, en hann var einn þeirra þriggja sem leiddu ráðningu á nýjum landsliðsþjálfara, Age Hareide.

Apr 22, 2023

Kári Árnason - Hareide, KR og Gunnar Vatnhamar

Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi, er einn af tíu Íslendingum sem nýi landsliðsþjálfarinn Age Hareide hefur þjálfað á sínum ferli. Þeir unnu saman hjá Malmö í Svíþjóð. Kári ræddi um hans kynni af norska þjálfaranum. Hann fór einnig yfir þá ákvörðun að víxla á heimaleikjum við KR. Víkingur spilar heimaleik við KR á mánudag en sá leikur átti upprunalega að fara fram í Vesturbænum. Loks var hann spurður út í kaupin á varnarmanninum Gunnari Vatnhamar í upphafi mánaðar. Skiptir máli að...

Apr 22, 2023

Heimavöllurinn: Lokaspá og upphitun fyrir Bestu

Besta deild kvenna hefst á þriðjudag og í dag er komið að því að opinbera lokaspá Heimavallarins fyrir sumarið og hita upp fyrir veisluna sem þetta Íslandsmót verður! Þau Jón Stefán Jónsson og Lilja Dögg Valþórsdóttir eru gestir þáttarins.

Apr 21, 2023

Enski boltinn - Er hausinn farinn hjá toppliðinu?

Hallur Flosason, fyrrum leikmaður Aftureldingar og ÍA, er gestur í þættinum þennan þriðjudaginn. Hallur er mikill stuðningsmaður Arsenal, eins og nokkrir aðrir góðir menn af Akranesi. Í þættinum fer Hallur yfir stöðuna hjá sínum mönnum eftir að liðið missti frá sér tveggja marka forskot annan leikinn í röð. Er hausinn farinn hjá toppliðinu? Einnig er rætt um allt það helsta sem gerðist í ensku úrvalsdeildinni um liðna helgi.

Apr 18, 2023

Innkastið - Græn gleði og gulur völlur

Innkastið eftir 2. umferð Bestu deildarinnar kemur beint frá Hlíðarenda, eftir flott svar Breiðabliks og 2-0 útisigur gegn Val. Leikir umferðarinnar eru skoðaðir en veður og vallaraðstæður höfðu mikið að segja.Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Benedikt Bóas fara eftir málin en Benni er lítill í sér eftir tapið gegn Blikum.Víkingar afskaplega sannfærandi, jafntefli í Kórnum, serbneska blómið blómstrar, KA með upprúllun, Eyjamenn fáliðaðir og með markmannsþjálfarann á bekknum og það borgar sig ekki a...

Apr 16, 2023

Útvarpsþátturinn - Sá norski mættur, Gylfi laus og enski

Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir stærstu fréttir vikunnar. Norðmaðurinn Age Hareide er tekinn við íslenska landsliðinu og Gylfi Þór Sigurðsson er laus allra mála. Þá er hitað upp fyrir 2. umferð Bestu deildarinnar og Kristján Atli Ragnarsson mætir við enska hringborðið en óhætt er að segja að spennandi lokakafli sé framundan.

Apr 15, 2023

Margrét Magnúsdóttir - Draumurinn sem við ætluðum að stefna á

U19 landslið kvenna náði því magnaða afreki að enda í efsta sæti í sínum riðli í annarri umferð undankeppni Evrópumótsins 2023. Liðið tekur því þátt í lokakeppninni í sumar. Þetta verður í annað sinn þar sem U19 landslið kvenna tekur þátt í lokakeppni Evrópumótsins. Liðið var í mjög erfiðum riðli í milliriðlunum með Danmörku, Svíþjóð og Úkraínu. Íslensku stelpurnar lögðu bæði Dani og Svía á leið sinni á lokakeppnina. Margrét Magnúsdóttir, þjálfari U19 landsliðsins, mætti á skrifstofu .net í spja...

Apr 14, 2023

Innkastið - Tryllt byrjun á deild þeirra Bestu

Innkastið eftir magnaða fyrstu umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Gummi og Sæbjörn Steinke skoða leikina. Sverrir er á línunni. Tryllingur í Kópavogi, Vuk náði í stig fyrir FH í Dal draumanna, endurkomusigrar hjá Val og Keflavík, bikarmeistararnir gerðu góða ferð í Garðabæ og KA og KR skiptu stigunum á milli sín.

Apr 11, 2023

Enski boltinn - Hiti á Anfield, lúði helgarinnar og rán um hábjartan dag

Gummi og Steinke fara yfir stóru málin í enska boltanum eftir skemmtilega páskaumferð. Einn af leikjum tímabilsins fór fram á Anfield í gær þar sem Liverpool kom til baka gegn toppliði Arsenal eftir að hafa lent 2-0 undir. Virgil van Dijk átti ekki sinn besta dag og það átti Mikel Arteta, stjóri Arsenal, ekki heldur. Það var rán um hábjartan dag þegar Totteham lagði Brighton, Frank Lampard byrjaði ekki vel með Chelsea en Man Utd og Newcastle unnu flotta sigra í Meistaradeildarbaráttunni. Roy Hod...

Apr 10, 2023

Útvarpsþátturinn - Besta upphitunin og hringt til Lyngby

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 8. apríl. Elvar Geir og Tómas Þór hita upp fyrir fyrstu umferð Bestu deildarinnar. Með þeim í hljóðveri er Almarr Ormarsson sem lagði skóna á hilluna eftir síðasta tímabil en hann er nú að starfa við íþróttafréttamennsku fyrir RÚV. Í þættinum spjallar Tómas einnig við Frey Alexandersson, þjálfara danska úrvalsdeildarliðsins Lyngby.

Apr 08, 2023

Niðurtalningin - Höfðinginn fer yfir stöðuna hjá Íslandsmeisturunum

Þá er komið að síðasta þættinum í niðurtalningunni fyrir Bestu deild karla þetta árið. Við endum á liðinu sem er spáð sjálfum Íslandsmeistaratitlinum. Breiðablik er ríkjandi meistari og því er spáð af sérfræðingum Fótbolta.net að þeir muni verja titilinn. Kristján Óli Sigurðsson, betur þekktur sem Höfðinginn, kom við á skrifstofu .net í dag og fór yfir stöðuna hjá sínum mönnum. Þá var einnig hringt í Viktor Karl Einarsson, miðjumann Blika, og hann spurður út í síðasta tímabil og sumarið sem er f...

Apr 07, 2023

Niðurtalningin - Síðasta tímabil er gleymt og grafið

Besta deildin byrjar að rúlla eftir helgi og í dag klárast niðurtalningin fyrir mótið. Valsmönnum er spáð öðru sæti deildarinnar eftir mikið vonbrigðartímabil í fyrra. Nýtt upphaf er hjá liðinu undir stjórn Arnars Grétarssonar og Sigurðar Heiðars Höskuldssonar. Benedikt Bóas Hinriksson og Jóhann Alfreð Kristinsson mættu á skrifstofu Fótbolta.net á föstudeginum langa og fóru yfir margt og mikið sem tengist Val. Þeir eru bjartsýnir fyrir komandi tímabili og hafa mikla trú á liðinu. Þá var hringt í...

Apr 07, 2023

Niðurtalningin - Er það besta sem hefur komið fyrir Víking mjög lengi

Besta deildin byrjar að rúlla næsta mánudag og það styttist í annan endann á upphitun okkar fyrir mótið. Víkingum er spáð þriðja sæti deildarinnar. Tómas Guðmundsson, fyrrum leikmaður liðsins, kíkti við á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fór yfir málin í Fossvoginum. Hann lagði skóna á hilluna eftir tímabilið 2021 þegar Víkingar urðu tvöfaldir meistarar. Þá var Viktor Örlygur Andrason, miðjumaður Víkinga, á línunni þar sem hann fór aðeins yfir síðasta tímabil og undirbúningsvinnuna í vetur....

Apr 06, 2023

Fjármálaspjall - Sævar Pétursson

Framkvæmdastjóri KA birti tíst í lok síðasta mánaðar þar sem segir: „Innan við tvær vikur í Bestu deildina. Rekstur félaganna verður erfiðari og erfiðari með hverju ári. Niðurstaða 10/12 félaga sem mæta til leiks í sumar er rúmar 230 milljónir í mínus 2022 ef við tökum út fyrir sviga arf sem er ótengdur rekstri. Deildin okkar er ekki sjálfbær." Fréttaritari Fótbolta.net var í heimsókn á Akureyri og þótti tilvalið að ræða við Sævar Pétursson almennt um rekstur félaga, með fókus á knattspyrnudeild...

Apr 06, 2023

Heimavöllurinn: Hættir á toppnum eftir 21 tímabil

Landsliðsmarkvörðurinn Sandra Sigurðardóttir tilkynnti fyrir rétt um mánuði að hanskar og skór væru komnir á hilluna. Sandra mætir á Heimavöllinn og fer yfir ferilinn sem spannar 21 tímabil í efstu deild en hún hættir sem langleikjahæsti leikmaður efstu deildar, tvöfaldur meistari og einn besti leikmaður landsliðsins á síðasta ári.

Apr 05, 2023

Niðurtalningin - Stefnt á Íslandsmeistaratitilinn

Niðurtalningin heldur áfram og nú er komið að fjórða sætinu. KA menn enda þar ef spáin rætist. Til þess að ræða um KA mætti Egill Sigfúson eðlilega í Þorpið og fór yfir það helsta; Evrópuleikir í sumar, síðasta tímabil, nýju leikmennina og hvar hann sér KA enda í sumar. Í seinni hlutanum er rætt við Svein Margeir Hauksson, miðjumann KA, um undirbúningstímabilið, síðasta tímabil, landsliðið, komandi tímabil, Dalvík og ýmislegt annað.

Apr 05, 2023

Niðurtalningin - Allt fyrir neðan fyrsta sæti er vonbrigði

Besta deildin byrjar að rúlla næsta mánudag og upphitun okkar er í fullum gangi. KR er spáð fimmta sæti deildarinnar í spá Fótbolta.net fyrir mótið. Atli Jónasson, fyrrum markvörður KR, var gestur á skrifstofu .net í dag og fór yfir stöðuna hjá félaginu. Árangurinn var ekki góður hjá karlaliði KR í körfuboltanum í vetur og því eru miklar vonir bundnar við fótboltann í sumar. Þá var Aron Þórður Albertsson, leikmaður KR, á línunni eftir æfingaleik liðsins við Fram í kvöld. Það var síðasti undirbún...

Apr 04, 2023

Upphitun Innkastsins - Arnar Grétarsson

Síðasti þátturinn í þríleik Innkastsins fyrir Bestu deildina. Nú er Arnar Grétarsson, þjálfari Vals, gestur. Arnar tók við Val í vetur og ræðir um fyrstu mánuði sína í starfi og hvernig hefur gengið að rétta úr kútnum á Hlíðarenda eftir vonbrigðin á síðasta tímabili. Umsjónarmaður: Elvar Geir Magnússon.

Apr 04, 2023

Niðurtalningin - Framtíðin björt en titilbarátta óraunhæf núna

Besta deildin byrjar að rúlla þar næsta mánudag og upphitun okkar er komin á fullt. Stjörnunni er spáð sjötta sæti deildarinnar í spá Fótbolta.net. Til þess að ræða Stjörnuna þá heyrði Guðmundur Aðalsteinn í fjölmiðlamanninum Þorkeli Mána Péturssyni en hann er Stjörnumaður mikill. Máni er hrifinn af því verkefni sem er í gangi í Garðabænum þessa stundina. Þá var einnig hringt í Jóhann 01, Jóhann Árna Gunnarsson. Hann gekk í raðir Stjörnunnar frá Fjölni fyrir síðasta tímabil og er á leið inn í sí...

Apr 03, 2023

Enski boltinn - Rígheldur í miðann þrátt fyrir gylliboð

Það eru endurfundir í Enska boltanum þessa vikunar þar sem Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz ræða um leiki helgarinnar og rifja upp gamla tíma. Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson er með þeim og er meðal annars rætt um brottrekstra gærdagsins en Leicester og Chelsea tóku fram stígvélið. Daníel er stuðningsmaður Arsenal og á miða á lokaleik tímabilsins, þar sem bikarinn gæti farið á loft.

Apr 03, 2023

Niðurtalningin - Síðasta tímabil eins og spænsk sápuópera

Besta deildin byrjar að rúlla þar næsta mánudag og upphitun okkar er komin á fullt. FH er spáð sjöunda sæti deildarinnar eftir að hafa átt mjög svo brösugt tímabil í fyrra. Til þess að ræða FH mætti fótboltaþjálfarinn Magnús Haukur Harðarson á skrifstofu Fótbolta.net. Magnús Haukur er mikill stuðningsmaður FH en í þessu hlaðvarpi fer hann yfir síðasta tímabil, endurkomu Heimis Guðjónssonar í Kaplakrika, leikmannabreytingar og væntingarnar til komandi leiktíðar. Þá hringdi Sæbjörn Þór Steinke í t...

Apr 01, 2023
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android