Fotbolti.net - podcast cover

Fotbolti.net

Fotbolti.netfotbolti.net
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

„Erum hungraðir eftir vonbrigða tímabil í fyrra"

„Mér líst allt í lagi á þessa spá, þetta er kannski eðlilegt miðað við gengi okkar í fyrra en við ætlum okkur stærri hluti - það er ekkert flóknara en það. Ég held að það sé alveg klárt að við ætlum að berjast um þá titla sem eru í boði," sagði Matthías Vilhjálmsson, fyrirliði FH, í viðtali við Fótbolta.net. Tilefnið var spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina en FH er spáð fjórða sæti í sumar.

Apr 11, 2022

BÁN - Upphitunarþáttur: Jói og Donni á línunni

Það er farið að vora, bikarinn er farinn af stað og liðin að klára sinn undirbúning fyrir Íslandsmót. Það er því ekki seinna vænna að hita upp fyrir boltann á Norðurlandi í sumar og nákvæmlega það gerðu þeir Egill Sigfússon og Sæbjörn Steinke. Rætt var við Völsunginn Jóhann Kristinn og Sauðkrækinginn Donna. Þá var rætt um hin liðin á Norðurlandi og rýnt í stöðu þeirra. Fyrsti leikur KA fer fram á Dalvík eftir rúma viku, Þórsarar komnir með nýjan þjálfara í brúna og Þór/KA fengið stórar og þekkta...

Apr 11, 2022

Ástríðan - Spá fyrir 3. deild

Sverrir Mar og Gylfi Tryggva hittust og spáðu í spilin fyrir komandi átök í 3. deildinni í sumar. Hverjir eru komnir og farnir hjá liðunum? Hverjir eru styrkleikar og veikleikar liðanna? Hvernig gekk á undirbúningstímabilinu?

Þátturinn er í boði Bola, Jako og Ice og er hægt að hlusta á í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.

Apr 10, 2022

Ástríðan - Spá fyrir 2. deild

Sverrir Mar og Gylfi Tryggva hittust og spáðu í spilin fyrir komandi átök í 2. deildinni í sumar. Hverjir eru komnir og farnir hjá liðunum? Hverjir eru styrkleikar og veikleikar liðanna? Hvernig gekk á undirbúningstímabilinu?

Þátturinn er í boði Bola, Jako og Ice og er hægt að hlusta á í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.

Apr 10, 2022

„Sýnir hvað Stjarnan er að vinna gott starf"

„Þetta er bara fínt, þetta er betra en í fyrra minnir mig og ef þetta gengur eftir þá erum við í þessum efri hluta þegar deildinni verður skipt upp. Þar vilja öll lið vera," sagði Haraldur Björnsson, markvörður Stjörnunnar, í viðtali við Fótbolta.net í dag. Tilefni viðtalsins var spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina en Stjörnunni er spáð 6. sætinu í ár.

Apr 08, 2022

Útvarpsþátturinn - Besta yfirferðin með Tom og Atla Viðari

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net þessa vikuna er frumfluttur í hlaðvarpi. Tómas Þór Þórðarson sér um þáttinn. Atli Viðar Björnsson, markahrókur og margfaldur Íslandsmeistari, mætir og tekur yfirferð með Tómasi um um öll liðin í Bestu deildinni. Elvar Páll Sigurðsson, fyrrum leikmaður Breiðabliks og Leiknis, sem er í dag markaðssérfræðingur og markaðsstjóri alþjóðlega fyrirtækisins Men and Mice fer yfir samfélagsmiðlana hjá félögunum og hvernig hægt sé að gera betur þar.

Apr 08, 2022

Vilt ekki keppast um eitthvað neðar þegar þú ert búinn að vera þarna uppi

„Nei, ég get nú ekki sagt að ég sé sáttur við þessa spá. Við sýndum í fyrra að við erum með sterkt lið. Ég er allavega ekki sammála þessu orðum það þannig," sagði Ásgeir Sigurgeirsson, fyrirliði KA, í viðtali við Fótbolta.net í dag. Tilefni viðtalsins var spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina en KA er spáð 7. sætinu í sumar.

Apr 07, 2022

Fantabrögð - Lokaspretturinn

"Eftir" umferð 31 (stórleikur Everton og Burnley var eftir) fékk Aron góðvin þáttarins, Snorra Heiðar Andrésson til að fara yfir síðustu umferðir í Fantasy Premier League og spá í spilin fram að lokum leiktíðar.

Meðal annars:

- Hvenær er best að nota Free Hit?
- Hvenær er best að bench boosta ef maður á það eftir?
- Á að selja Kane til að kaupa Son eða öfugt?
- Hvað gerðist hjá Arsenal og Chelsea?
- Hvaða lið á að ...

Apr 07, 2022

Enski boltinn - Áfram þrot hjá United og Everton gæti fallið

Sæbjörn Steinke ræddi við þá Gunnar Gunnarsson og Ingimar Helga Finnsson. Rætt var um liðna umferði í enska boltanum og einnig um leikina í Meistaradeildinni. Getur Everton í alvöru fallið? Þeirri spurningu er svarað og þá er baráttan um efsta sætið og Meistaradeildarsætið mjög hörð. Paul Pogba er gagnslaus, Daniel Amartey er einn af grínköllunum, Harry Kane fer hvergi og Oliver Skipp hornið er á sínum stað. Menn hallast að sigri Liverpool á Etihad - allt undir á sunnudag! Enski boltinn er í boð...

Apr 07, 2022

Veit ekki hvort Guðjón Orri Carragher Sigurjónsson gefi kost á sér

„Nei, það væri ekki ásættanlega niðurstaða. Við ætlum hærra en það. Við erum nýliðar í deildinni og kemur ekki á óvart að okkur sé spáð 9. sæti." „Við erum alveg með okkar markmið um hvað við ætlum að gera og það er eitthvað ofar en 9. sætið, við förum hærra en það og verðum helvíti fúlir með sjálfa okkur ef sú spá rætist." Þetta sagði Eiður Aron Sigurbjörnsson, fyrirliði ÍBV, við Fótbolta.net í gær. Rætt var við hann í tilefni af því að ÍBV er spáð 9. sæti í spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildin...

Apr 06, 2022

Útvarpsþátturinn - Styttist í Bestu deildina og enski farinn aftur af stað

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 4. apríl. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.Íslenski boltinn er aðalmálið í fyrri hlutanum og farið yfir fréttir vikunnar. Jón Þór Hauksson þjálfari ÍA og Baldur Sigurðsson eru á línunni.Í seinni hlutanum fer Kristján Atli yfir enska boltann og gefur skýrslu úr leik Liverpool og Watford sem Liverpool vann 2-0.

Apr 02, 2022

Ungstirnin - MLS og NxGn topp 50 listinn

Við kíkjum til Bandaríkjanna og kynnum hlustendum fyrir Gabriel Slonina (2004 / Chicago Fire) sem er einn mest spennandi markmaður heims og var nánast kominn til Chelsea þangað til allt vesenið í kringum Roman Abramovich byrjaði. Einnig kynnum við Caden Clark (2003 / NY Red Bulls) sem er búinn að skrifa undir hjá RB Leipzig og lítur virkilega vel út. Boðið er upp á stutta kynningu á Tobias Gulliksen (2003 / Stromsgodset) sem gæti orðið næsti Martin Ödegaard en þeir eru báðir uppaldir hjá Strömsg...

Mar 31, 2022

Innkastið - Leitin erfiða að jákvæðum punkti

Það var urmull landsleikja á dagskrá í dag og þeir Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas fylgdust með öllu því sem átti sér stað. Athygli þeirra beindist helst að vináttulandsleik Spánar og Íslands sem var leikur kattarins að músinni. Einnig er rætt um baráttuna um HM sæti, yngri landsliðin, nýjan þjóðarleikvang og fréttir úr Bestu deildinni.

Mar 29, 2022

Útvarpsþátturinn - Vetrarverðlaun og Óli Jó

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 26. mars. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Hitað er upp fyrir Bestu deildina og bestu menn undirbúningstímabilsins valdir, úrvalslið, besti leikmaðurinn og besti þjálfurinn. Hver er líklegastur til að verða besti leikmaður Bestu deildarinnar í sumar? Þá mætir sjálfur Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH, í þáttinn og rætt er um komandi tímabil og fleira.

Mar 26, 2022

Hannes og hans magnaði fótboltaferill

Hannes Þór Halldórsson lagði hanskana á hilluna á dögunum. Hannes átti magnaðan fótboltaferil og leið hans á stærsta svið fótboltans er uppfull af sögum. Hannes mætti í útvarpsþáttinn Fótbolti.net í drottningarviðtal.

Mar 19, 2022

Enska hringborðið - Háspenna um alla deild

Fyrri hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net laugardaginn 19. mars. Enska hringborðið var dregið fram og Kristján Atli Ragnarsson ræddi um ensku úrvalsdeildina við þá Elvar og Tómas. Titilbarattan, fallbaráttan, baráttan um fjórða sætið, úrvalslið þriðja fjórðungs. Þetta er allt á sínum stað.

Mar 19, 2022

Aukaþáttur - Fótboltafréttir vikunnar og landsliðsval

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net verður á sínum stað á morgun laugardag þar sem boðið verður upp á pakkfulla dagskrá. Boðið er upp á sérstakan aukaþátt á föstudegi þar sem Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir fótboltafréttir vikunnar. Þá er rætt við Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfara. Landsliðsval fyrir vináttuleiki gegn Finnum og Spánverjum, Lengjubikarinn, Meistaradeildardráttur og enski boltinn koma við sögu í yfirferðinni.

Mar 18, 2022

Heimavöllurinn: Ótímabær spá fyrir neðri deildir 2022

Í boði Dominos og Heklu Bílaumboðs halda ótímabærar spár Heimavallarins áfram og nú er komið að því að skoða 2. og Lengjudeild. Knattspyrnuþjálfararnir Margrét Magnúsdóttir og Ruth Þórðardóttir mæta og fara yfir spánna ásamt þáttastýrunum Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur.

Mar 17, 2022

Enski boltinn - Ástríða, Meistaradeild og saxað á City

Farið var um víðan völl í Enska boltanum þessa vikuna. Farið var yfir síðustu umferð og tengt það við leiki ensku liðanna í Meistaradeildinni. Þeir Sverrir Mar Smárason og Gylfi Tryggvason ræddu málin með Sæbirni Steinke. Manchester United er úr leik í Meistaradeildinni og átti ekkert skilið í gær, City getur ekki skorað gegn Palace og Liverpool vélin mallar og mallar. Arsenal er líklegast í 4. sætið en liðið á erfiða leiki eftir. Hvað gera liðin sem eru örugg um að falla ekki en eiga ekki mögul...

Mar 17, 2022

Ungstirnin - Prófessorinn og Thor

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn eru Arnar Laufdal Arnarsson og Kristinn Helgi Jónsson. Alejandro Garnacho (Man Utd) og Arda Guler (Fenerbahce) eru til umfjöllunar í þættinum að þessu sinni. Þá eru tvö viðtöl, við Ólaf Kristjánsson sem tók nýlega við sem yfirmaður fótboltamála hjá Breiðabliki og Þorleif Úlfarsson, Thor, leikmann Houston Dynamo í MLS-deildinni bandarísku.

Mar 16, 2022

Útvarpsþátturinn - Siggi Höskulds, Gústi Gylfa og fótboltafréttir

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 12. mars. Umsjón: Elvar Geir Magnússon og Benedikt Bóas Hinriksson. Gestir: Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Leiknis og Ágúst Gylfason þjálfari Stjörnunnar. Rætt um Bestu deildina og fótboltafréttir vikunnar, bæði hér heima og erlendis.

Mar 12, 2022

Fantabrögð - Frekjuköst og forföll

Strákarnir í Fantabrögðum tóku upp þátt um leið og umferð 28 kláraðist í Fantasy Premier League. Þeir fóru stuttlega yfir síðustu umferð en einbeittu sér fyrst og fremst að komandi umferðum, 29 og 30.  Strákarnir tóku spurningar hlustenda, m.a.

- Á að selja Reece James?

- Á að kaupa Doherty og Kulusevski?

- Hvenær er rétti tíminn til að nota Wildcar...

Mar 11, 2022

Heimavöllurinn: Ótímabær spá fyrir Bestu deildina 2022

Það er komið að því! Heimavöllurinn hendir í ótímabæra spá fyrir Bestu deildina 2022. Knattspyrnuþjálfarinn Guðni Þór Einarsson mætir og fer yfir spánna ásamt þáttastýrunum Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur.

Mar 11, 2022

Enski boltinn - Chelsea í fordæmalausri stöðu

Sérstakur aukaþáttur vegna stórfrétta dagsins af málum Chelsea. Rússneski eigandinn Roman Abramovich var beittur refsiaðgerðum af breskum stjórnvöldum og eignir hans frystar. Chelsea hefur notið mikillar velgengni í eignartíð Abramovich en nú eru framundan nýir og breyttir tímar. Elvar Geir Magnússon og Sæbjörn Steinke fara yfir tíðindin og með þeim er stuðningsmaður Chelsea, Ágúst Reynir Þorsteinsson.

Mar 10, 2022

Enski boltinn - Stöðnun hjá United og ömurleg líðan gegn West Ham

Umferðinni í enska boltanum lauk með stórsigri Tottenham gegn Everton. Risaleikur umferðarinnar var á Etihad á sunnudag, City liðið sýndi mikla yfirburði og þá sérstaklega í seinni hálfleik! Þátturinn í dag var smá litaður af því að Blikinn Andri Rafn Yeoman ræddi um sína menn í Brighton og fá hlustendur innsýn inn í hlutina á Amex. Það var Blikaþema því Adam Örn Arnarson var hinn gesturinn. Adam er stuðningsmaður Liverpool og fóru Blikarnir yfir umferðina með Sæbirni Steinke. Coutinho, Dan Burn...

Mar 08, 2022

Útvarpsþátturinn - Ótímabær Lengjuspá og boltafréttir

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 5. mars. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Sérfræðingur: Úlfur Blandon. Íslenskar fótboltafréttir vikunnar, ótímabær spá fyrir Lengjudeildina og Ívar Ingimarsson, nýr stjórnarmaður KSÍ, á línunni.

Mar 05, 2022

Heimavöllurinn: Ævintýri á framandi slóðum og stóra málið í nefnd

Viðburðarrík fótboltavika var að líða. Stelpurnar okkar tóku 2. sætið á She Believes Cup og U16 spreytti sig í Miðgarði. Vanda Sigursteinsdóttir var endurkjörin sem formaður KSÍ og ýmisleg mál voru rædd á nýafstöðnu ársþingi. Knattspyrnuspekúlantinn Daði Rafnsson mætti á Heimavöllinn og fór yfir allt það helsta ásamt þáttastýrunum þeim Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur.

Mar 02, 2022

Enski boltinn - 22 vítaspyrnur og Bielsa farinn

Enski boltinn er gerður upp með tveimur leikmönnum Stjörnunnar. Þeir Eggert Aron Guðmundsson, stuðningsmaður Chelsea, og Ísak Andri Sigurgeirsson, stuðningsmaður Liverpool, fara yfir úrslitaleik Liverpool og Chelsea í enska deildabikarnum. Í tilefni af því að tveir Stjörnumenn voru mættir var einnig talsvert rætt um Stjörnuna. Þá er hringt í Mána Pétursson og farið yfir stjórabreytingu Leeds. Máni hafði eðlilega mikið um það að segja. Manchester United náði ekki að leggja Watford og City var stá...

Feb 28, 2022

Útvarpsþátturinn - Ótímabær spá fyrir Bestu og Heimir Guðjóns

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977, 26. febrúar. Elvar Geir og Tómas Þór opinbera uppfærða spá fyrir Bestu deildina 2022. Það eru nokkrar áhugaverðar breytingar frá síðustu spá! Gestur þáttarins er Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals. Í þættinum er einnig rætt um enska boltann og ársþing KSÍ.

Feb 26, 2022

Ungstirnin - Nýr meðlimur og verðandi stórstjörnur

34. þátturinn af Ungstirnunum er mættur. Kristinn Helgi Jónsson er nýjr meðlimur í tveggja manna teymi þáttarins en hann og Arnar Laufdal eru nú umsjónarmenn. Í þessum þætti er Savio sem er að ganga til liðs við Manchester City kynntur. Einnig er fjallað um Gabriel Carvalho nýjasta leikmann Atletico Madrid og svo Brenden Aaronson hjá RB Salzburgs sem mun 100% taka næsta skref í sumar og ganga til liðs við stærra félag. Rætt er um félagaskipti ungstirna í janúarglugganum og þá sérstaklega um Dusa...

Feb 25, 2022
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android