Fotbolti.net - podcast cover

Fotbolti.net

Fotbolti.netfotbolti.net
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Innkastið - Stefnuleysi og stór lið komin í mikil vandræði

Innkastið eftir sjöundu umferð Bestu deildarinnar er aðeins seinna á ferðinni en venja er. Þar er þó boðið upp á beinskeytta yfirferð yfir allt það sem skiptir máli. Elvar Geir stýrir þættinum en sérstakir gestir eru Magnús Haukur Harðarson FH-ingur og fjölmiðlamaðurinn Þór Bæring sem fjallar um deildina fyrir Morgunblaðið. Blikar eru í bílstjórasætinu eftir markasúpu gegn Fram, FH-ingar halda sig í neðri hlutanum, Valsmenn hafa tapað tveimur leikjum í röð, KR er með erfiðan heimavöll, Víkingar ...

May 24, 2022

Ástríðan - 3. umferð - Magnaður Kristófer og ekki tala við okkur um virðingu

Sverrir Mar og Gylfi Tryggva settust niður og fóru yfir þriðju umferðina í 2. og 3. deild karla.Meðal umræðuefnis:Garðurinn fékk virðingu en fleygði henni, KFG heldur áfram að skora eftir þörfum, Káramenn steinlágu á Króknum, Völlarar rændir og nú þurfa nokkur lið að fara að vakna.Þátturinn er í boði Bola, Jako, Ice, Pizzunnar þar sem hlustendur geta notað afsláttarkóðann "astridan" til að fá 40% afslátt og Acan Wines inná acan.is.Hægt er að hlusta á í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast fo...

May 24, 2022

Fótboltafréttir vikunnar og spennandi lokaumferð

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er í óhefðbundnu formi þessa vikuna þar sem þáttastjórnendur eru uppteknir í steggjun. En í staðinn er þessi sérstaka hlaðvarpsútgáfa þar sem Elvar Geir Magnússon ræðir við góða menn. Farið er yfir helstu fótboltafréttir vikunnar með Sæbirni Steinke, Úlfur Blandon skoðar Lengjudeildina og Bestu deildina og Kristján Atli Ragnarsson spáir í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar.

May 21, 2022

Fantabrögð - LOKAUMFERÐ

Þá er komið að því. Þetta skrýtna fantasy tímabil með allar sínar tvöföldu umferðir er að verða búið. Bara ein umferð eftir og eins og venjulega með lokaumferðir þá eru allir leikirnir á sama tíma. Blautir draumar fantasy spilarans. Aron og Heiðmar hittust í stúdíóinu og köstuðu fram alls konar hugmyndum að leikmönnum til að kaupa og capteina. Þeir voru samt eiginlega ósammála um allt. Flippuð fyrirliðavöl og er Pukki partýið að byrja aftur? Hver veit?

May 21, 2022

Enski boltinn - Úrslitastund á sunnudag

Þeir Albert Hafsteinsson, Arnar Már Guðjónsson og Baldvin Már Morgarsson ræddu málin með Sæbirni Steinke þessa vikuna. Á morgun fara fram þrír leikir en svo er það úrslitastundin á sunnudag þar sem barist verður um efsta sætið, Meistaradeildarsæti, Evrópudeildarsæti og tvö laus sæti í deildinni. Farið var yfir leiki liðinnar helgar í úrvalsdeildinni, bikarúrslitaleikinn, sigur Newcastle á Arsenal og endurkomu Liverpool í gær. Í lok þáttar var svo málefni í tengslum við Manchester United rædd. En...

May 18, 2022

Ástríðan - 2. umferð - Dalvík og Víðir byrja vel og Njarðvík að pakka saman 2. deildinni

Sverrir Mar, Óskar Smári og Sæbjörn Steinke settust niður og fóru yfir aðra umferðina í 2. og 3. deild karla.Meðal umræðuefnis:Sterk byrjun Haukanna, Garðurinn óskar eftir virðingu, Njarðvík eru ógnasterkir, Kormákur/Hvöt eru búnir að styrkja sig vel og verða ógn og munu styrkingar Völsungs tryggja þeim í toppbaráttuna?Þátturinn er í boði Bola, Jako, Ice, Pizzunnar þar sem hlustendur geta notað afsláttarkóðann "astridan" til að fá 40% afslátt og Acan Wines inná acan.is.Hægt er að hlusta á í spil...

May 18, 2022

Heimavöllurinn: Lokaspá 2.deildar, Lengjusprengja og framtíðarleikmenn Íslands

Í boði Dominos og Heklu mæta Sunneva Hrönn leikmaður FH í Lengjudeildinni og Arnar Páll Garðarsson aðstoðarþjálfari KR á Heimavöllinn og fara yfir lokaspá fyrir 2.deildina sem hefst á miðvikudaginn. Sunneva er fyrrum leikmaður Hamars og Arnar Páll er fyrrum þjálfari KH. Við förum einnig yfir fyrstu 2.umferðirnar í Lengjudeildinni.

May 17, 2022

Innkastið - Enginn á séns í Blika og fallfnykur í Breiðholti og Eyjum

Innkastið gerir upp 6. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke í hljóðverinu á Krókhálsi. Blikar með fullt hús, allt aðrir Víkingar en í fyrra, KA dansar í takt, Silfurskeiðin vaknar, Valsmenn í vandræðum með að finna taktinn, KR byrjað að safna stigum, Framarar unnu sinn fyrsta leik, fallfnykur í Breiðholti og Eyjum, Lengjudeildarhornið, Rauði baróninn gefur ráð og fleira.

May 17, 2022

Útvarpsþátturinn - Besta deildin og ferðasaga Tom

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 14. maí. Elvar Geir og Tómas Þór er á sínum stað og Sæbjörn Steinke er með þeim í þætti vikunnar. 5. umferð Bestu deildarinnar er gerð upp, rýnt í leikina og litið á helstu fréttir og næstu leiki. Einnig er farið yfir það sem er að gerast í Lengjudeildinni. Í seinni hlutanum er farið í enska boltann og Tómas segir ferðasögu en hann var á faraldsfæti í vikunni; hitti Egil Drillo Olsen og var á heimavelli Tottenham þegar liðið rúllaði yfir Arsenal....

May 14, 2022

Enski boltinn - Stórliðin í brennidepli fyrir lokasprettinn

Arnar Laufdal, stuðningsmaður Liverpool, sér um þáttinn að þessu sinni. Eysteinn Þorri Björgvinsson, stuðningsmaður Manchester United og Brynjar Örn Hauksson, stuðningsmaður Chelsea, eru með honum. Stórliðin eru í brennidepli í þættinum fyrir spennandi lokasprett sem er framundan. Það eru úrslitaleikir á næsta leyti og Manchester City er í góðri stöðu fyrir lokaleikina í úrvalsdeildinni.

May 13, 2022

Ástríðan - Eiríkur hafði svo bara tíma! Eru Haukar langnæstbesta lið deildarinnar?

Sverrir Mar, Óskar Smári og Gylfi Tryggva settust niður þrátt fyrir allt og fóru yfir fyrstu umferðina í 2. og 3. deild karla.Meðal umræðuefnis:Eru Haukar langnæstbesta lið 2. deildar? Gaui Þórðar hefur engu gleymt. Eiríkur hafði svo bara tíma eftir allt saman. Er reitur og spil það eina sem hugurinn girnist í 3. deild? Munu Vængirnir fljúga upp?Þátturinn er í boði Bola, Jako, Ice og Pizzunnar þar sem hlustendur geta notað afsláttarkóðann "astridan" til að fá 40% afslátt. Hægt er að hlusta á í s...

May 10, 2022

Innkastið - Stór lið fjarlægjast og vítaveislu hafnað í Breiðholti

Elvar Geir, Ingó Sig og Sverrir Mar eru í Innkastinu og gera upp fjórðu umferð Bestu deildarinnar. Víkingur átti að fá þrjú víti en fékk ekkert, Bykov þekkir ekki Kjartan, ótrúlegur uppbótartími í Garðabæ, rautt og sex mörk í leiðinlegum leik, Blikum halda engin bönd og Lengjudeildarhornið mætir til leiks.

May 09, 2022

Útvarpsþátturinn - Íslenski boltinn og Meistaradeildin

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 7. maí. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir sviðið í íslenska boltanum, kryfja 2-2 leik FH og Vals í Bestu deildinni, hita upp fyrir aðra leiki, skoða fréttir vikunnar, fyrstu leiki Lengjudeildarinnar og fleira. Kristján Atli, sérfræðingur þáttarins um enska boltann, er á línunni og ræðir um Meistaradeildina mögnuðu.

May 07, 2022

Ástríðan - Veislan er að hefjast

Veislan er að hefjast! Sverrir Mar og Gylfi Tryggva ræddu stöðuna þegar mótið er við það að hefjast. Félagsskipti hafa átt sér stað, bikarleikir hafa farið fram og skýrari mynd er komin á hvernig deildirnar munu verða. Niðurstaðan? Þetta verður einhver þvæla og það er engin leið að spá í neitt. En strákarnir reyndu.Þátturinn er í boði Bola, Jako, Ice og Pizzunnar þar sem hlustendur geta notað afsláttarkóðann "astridan" til að fá 40% afslátt. Hægt er að hlusta á í spilaranum hér að ofan, í gegnum...

May 06, 2022

Fantabrögð - Stærsta umferð tímabilsins framundan

Framundan í fantasy er stærsta umferð tímabilsins - umferð 36. Stóru liðin spila öll tvöfalt og flestir þurfa ekki að hafa mikið fyrir því að ná 11 spilandi mönnum með tvo leiki. Aron og Ásgeir ræddu það helsta í umferð 35 sem einkenndist af 19 stigum Son, en eyddu megninu af tímanum í að ræða það sem er framundan.

May 05, 2022

Innkastið - Stórfengleg skemmtun og skrópað í viðtöl

Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas fara yfir 3. umferð Bestu deildarinnar. Sóknarmenn í ham en varnarmenn í basli í besta leik í sögu Bestu deildarinnar, drama á Dalvík, allir komnir á blað nema Keflvíkingar, Blikar rúlluðu yfir FH-inga og hasar á Hlíðarenda þar sem Valur vann KR.

May 02, 2022

Númer sex eins og Tinna Mark og LeBron

Bjarni Mark Duffield er staddur á Íslandi í stuttu fríi þar sem ekki var spilað í norsku B-deildinni um helgina. Sæbjörn Steinke fékk Bjarna í spjall sem hægt er að hlusta á í spilaranum hér að ofan og í öllum hlaðvarpsveitum. Bjarni er leikmaður Start í Noregi en hann söðlaði um og gekk í raðir félagsins eftir nokkur í ár í Svíþjóð þar á undan. Hann er Siglfirðingur sem skipti yfir í KA þegar hann komst nálægt meistaraflokksaldri og lék með KA í efstu deild tímabilið 2018. Síðan hafði hann veri...

May 02, 2022

Útvarpsþátturinn - Sú Besta og Lengjudeildarspáin

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 30. apríl Elvar Geir, Tómas Þór og Rafn Markús ræða um Bestu deildina og opinbera spá fyrir Lengjudeildina. Farið er yfir öruggan sigur Íslandsmeistara Víkings gegn Keflavík og hitað upp fyrir 3. umferðina. Þá er rætt um öll liðin tólf í Lengjudeildinni. Einnig mætir Oscar Clausen formaður Leiknis og ræðir um áhugavert verkefni í Breiðholti.

Apr 30, 2022

Enski boltinn - Leeds niður og West Ham Evrópumeistari?

Enski boltinn í dag fór mest í að ræða málefni West Ham og Leeds þar sem gestir þáttarins eru á þeirri hlið í lífinu. Þeir Máni Pétursson og Tómas Steindórsson ræddu málin við Sæbjörn Steinke. Evrópuævintýri West Ham er í fullum gangi en liðið þarf að ná í sigur í Þýskalandi í seinni undanúrslitaleiknum. Leeds er fimm stigum fyrir ofan fallsæti en Máni er þó á því að liðið falli úr úrvalsdeildinni. Þetta og miklu meira í þættinum sem er í boði Domino's og WhiteFox (fyrir 18 ára og eldri)....

Apr 29, 2022

Heimavöllurinn: Keflavíkursamba, miðvarðamörk og ein uppalin hjá Blix

Besta deildin er hafin og fyrsta umferðin var góð skemmtun. Á Heimavöllinn eru mættar þær Alexandra Bía Sumarliðadóttir, Sigríður Dröfn Auðunsdóttir og Steinunn Sigurjónsdóttir til að fara yfir leiki fyrstu umferðar ásamt Mist Rúnarsdóttur. Að sjálfsögðu í boði Dominos og Heklu.

Apr 28, 2022

Fantabrögð - Allt í skrúfunni

Aron og Gunni hittust og ræddu síðustu umferðir í Fantasy og stemminguna í kringum leikinn þessa dagana, en hlutirnir ganga nokkuð erfiðlega. Meðal efnis í þættinum: - Reece James og brotin loforð - Á að selja Tottenham menn? - Á að Free Hitta í umferð 36 eða 37? - Hvað er að frétta af Gylfa? - Verða róteringar hjá Liverpool?P.S. eftir að þátturinn var tekinn upp kom í ljós að leikur Wolves og Man City verður í umferð 36 og því eiga þau lið bæði tvöfalda umferð þá.

Apr 27, 2022

Innkastið - Sitt sýndist hverjum í Vesturbænum

Innkastið breytir ekki sigurliði og heldur sig við sama byrjunarlið og í fyrstu umferð. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Sverrir Mar fara yfir allt það helsta úr 2. umferð. KR fór illa með tækifærin sín í stórleiknum, Endurkomusigur FH í Kaplakrika, Íslandsmeistararnir voru teknir í bakaríið af Skagamönnum, ljótt mark færði Val sigur, Stjörnumenn skelltu Leiknismönnum í Breiðholti og KA skildu Eyjamenn eftir í sárum.

Apr 25, 2022

Ungstirnin - Úrslitaleikur, spennandi leikmenn og ungir í Bestu

37. þátturinn af Ungstirnunum er mættur. Hitað er upp fyrir úrslitaleik Salzburg vs Benfica sem fer fram Í DAG og er sýndur á Stöð 2 Sport 2 klukkan 16:00 og hvetjum við alla til þess að horfa. Danilo (2001 / Palmeiras) sem var orðaður við Arsenal í janúar og Vinicius Tobias sem var keyptur til RM frá Shaktar út af því sem gengur á í Úkraínu ( 2004/R. Madrid) eru kynntir fyrir þjóðinni. Rætt er um Football Manager þar sem að Lorenzo Lucca er besti leikmaðurinn í leiknum Farið er yfir ungu leikme...

Apr 25, 2022

Útvarpsþátturinn - Upphitun fyrir Bestu og enskt hringborð

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 23. apríl. Elvar Geir og Benedikt Bóas hita upp fyrir 2. umferð Bestu deildarinnar og Úlfur Blandon spáir í spilin fyrir umferðina. Í seinni hlutanum mætir Kristján Atli og fer yfir allt það helsta í enska boltanum. Mun Erik Ten Hag fá þá þolinmæði sem hann þarf á Old Trafford?

Apr 23, 2022

Enski boltinn - Ferna og Everton fellur

Vonin um fernuna lifir hjá Liverpool, Man City einbeitir sér að tveimur keppnum og Burnley er á lífi í fallbaráttunni - og rúmlega það. Farið var yfir síðustu vikuna í enska boltanum, fall Derby tekið fyrir og enski bikarinn tekinn meðfram leikjum síðustu helgar í úrvalsdeildinni. Þeir Ingimar Helgi Finnsson, Jón Júlíus Karlsson og Þórarinn Ingi Valdimarsson fóru yfir gang mála í deildinni með Sæbirni Steinke og eru þeir allir á því að Burnley haldi sér uppi. Tottenham tekur fjórða Meistaradeild...

Apr 22, 2022

Heimavöllurinn: Upphitun fyrir Bestu deildina

Besta deildin hefst eftir fimm daga og það er komin tími á upphitun í boði Dominos og Heklu. Mist Rúnarsdóttir og Hulda Mýrdal hita upp fyrir deildina með Sæbirni Þór Steinke íþróttafréttamanni á Fótbolti.net.

Apr 22, 2022

Spjallað við Steina - Í bílstjórasætinu og EM framundan

Kvennalandsliðið sótti sex stig í landsleikjaglugganum fyrr í þessum mánuði. Hvítrússar og Tékkar sigraðir og liðið í bílstjórasætinu í undankeppninni fyrir HM í Ástralíu og Nýja-Sjálandi á næsta ári. Tveir leikir eru eftir í riðlinum og verða þeir spilaðir í haust. Nú fer hins vegar einbeitingin öll á lokakeppni EM sem fram fer á Englandi í júlí. Sæbjörn Steinke ræddi við landsliðsþjálfarann Þorstein Halldórsson og er farið yfir ýmislegt með Steina. Oftar en einu sinni er farið fram og til baka...

Apr 21, 2022

Innkastið - Besta deildin ætlar að standa undir nafni

1. umferð Bestu deildarinnar er gerð upp í Innkastinu. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Sverrir Mar ræða um leikina. Íslandsmeistararnir byrja á endurkomusigri, lömb leidd til slátrunar í Kópavogi, Eyjamenn bensínlausir eftir flotta frammistöðu á Hlíðarenda, KR-ingar sýndu nýliðum Fram enga miskunn, Skagamenn sóttu stig í Garðabæ og Akureyringar fögnuðu á Dalvík.

Apr 21, 2022

Enski boltinn - Úrslitin sem þeir hlutlausu vildu

Það var heil umferð spiluð um liðna helgi í ensku úrvalsdeildinni og hápunkturinn var stórleikur Man City og Liverpool á sunnudag. Það er orðið þannig að liðin vilja ekki ná fjórða sætinu og var Tottenham eina liðið sem vann af liðunum í 4.-8. sæti. Þeir Ingimar Helgi Finnsson og Sigurður Orri Kristjánsson fóru yfir helgina með Sæbirni Steinke. Þátturinn er í boði WhiteFox (18 ára og eldri) og Domino's (fyrir alla).

Apr 12, 2022
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android