Fotbolti.net - podcast cover

Fotbolti.net

Fotbolti.netfotbolti.net
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Miðverðirnir fá sviðsljósið - Glódís og Guðrún í spjalli fyrir EM

Miðverðir fá ekki alltaf þá athygli sem þeir eiga skilið, en að þessu sinni fá þeir sviðsljósið hjá okkur. Glódís Perla Viggósdóttir og Guðrún Arnardóttir, tveir af miðvörðum íslenska landsliðsins, settust niður með fréttamanni Fótbolta.net á hóteli landsliðsins í Þýskaland og fóru um víðan völl á tæpum hálftíma. Glódís og Guðrún hafa leikið afskaplega vel saman í hjarta varnarinnar hjá landsliðinu og framundan er Evrópumót. Þetta spjall er góð upphitun fyrir EM núna þegar innan við vika er í fy...

Jul 04, 2022

Útvarpsþátturinn - Íslenski boltinn, Bjarki Már og DSJ

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 2. júlí. Elvar Geir og Tómas Þór ræða um Bestu deildina, leik KR og Víkings og pælingar um félagaskiptagluggann. Einnig er farið yfir Lengjudeildina, dráttinn í Mjólkurbikarnum og Evrópuleikina framundan. Í seinni hlutanum er rætt við leikgreinandann Bjarka Má Ólafsson sem er kominn í nýtt starf og Davíð Snorra Jónasson þjálfara U21 landsliðsins.

Jul 02, 2022

Saga aðstoðarþjálfarans - Frá KF Nörd á Evrópumótið í Englandi

Viltu kynnast aðstoðarþjálfara landsliðsins betur? Þá er óhætt að mæla með hlustun á þessum þætti. Ásmundur Haraldsson var svokölluð barnastjarna í KR en fór svo í háskólanám til Bandaríkjanna þar sem hann varð mikill Kani. Hann bjóst ekki við því að koma aftur heim en endaði nú á því að gera það. Ásmundur var senter á sínum leikmannaferli og var einu sinni markakóngur 3. deildar. Fljótlega beindist hugurinn að þjálfun þó skórnir hafi seint farið upp á hillu. Flestir landsmenn kynntust Ása fyrst...

Jul 02, 2022

Heimavöllurinn á EM: Kempur og töfrakonur í C-riðli

Í boði Orku Náttúrunnar, Dominos, Landsbankans og bílaumboðsins Heklu hitar Heimavöllurinn upp fyrir EM á Englandi! "Svíarnir" Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir og Björn Sigurbjörnsson tóku vel á móti Mist Rúnarsdóttur á Selfossi og fóru yfir C-riðil mótsins. Þar munu mætast Holland, Svíþjóð, Sviss og Portúgal.

Jun 29, 2022

Innkastið - Bikarspjall á bílaplani

Sextán liða úrslit Mjólkurbikarsins eru að baki og Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke skella sér út í sólina á bílaplaninu á Krókhálsi, gera upp leikina og skoða helstu tíðindin í íslenska fótboltanum. Fernukóngur kom inn af bekknum í Kórnum, vítahlaðborð á Akureyri, Eiður Smári vann fyrsta sigurinn, Cupset í Þorlákshöfn, KR lenti í kröppum dansi, framlengt á Framvelli, Gísli Eyjólfs skoraði sparimark og Víkingar léku sér að Selfyssingum.

Jun 29, 2022

Ástríðan - 8. umferð - Luka rekinn eftir sigurleik, þrennur og misjafnt gengi

Sverrir Mar og Gylfi Tryggva settust niður og fóru yfir áttundu umferðina í 2. og 3. deild karla.Meðal umræðuefnis:Reynir S. vinnur sinn fyrsta leik, sækja þrjá spánverja en reka svo þjálfarann. Njarðvík með gamla og góða pökkun. Þróttur R að koma bakdyramegin í baráttuna. Völsungur fékk sitt víti.ÍH með 3 í röð eftir að Arnar Sigþórs fór að brosa. Augnablik virðir stigið á Humarhátíðinni. Káramenn styttra komnir en búist var við. Dalvík tapað 3 af síðustu 4. Sverrir hefur hafið þá vegferð að ja...

Jun 28, 2022

Heimavöllurinn: Flikk flakk og hreint lak í Eistlandi

Dominos, Hekla og Orka Náttúrunnar bjóða upp á landsliðssamba á Heimavellinum. Þær Auður Scheving og Sólveig Larsen eru nýmættar til landsins eftir ferð með U23 landsliðinu til Eistlands þar sem þær sóttu góðan sigur ásamt liðsfélögunum. Þær mættu í gott spjall um landsliðsverkefnið, EM á Englandi, ævintýrin í yngri flokkunum, lánið í Mosó og margt fleira.

Jun 28, 2022

Útvarpsþátturinn - Euro-Vikes, Besta liðið og Lengjudeildin

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 25. júní. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Fjallað er um Víking í Meistaradeildinni og Haraldur Haraldsson framkvæmdastjóri félagsins fer yfir möguleika Íslands á að endurheimta fjórða Evrópusætið. Sérstakt Bestu deildar uppgjör þar sem valið er úrvalslið deildarinnar hingað til, besti leikmaðurinn og besti þjálfarinn. Hvaða leikmenn hafa verið mestu vonbrigðin? Einnig er fjallað um Lengjudeildina og besti leikmaður deildarinnar hingað til valinn. Rafn ...

Jun 25, 2022

Heimavöllurinn á EM: B&B fara yfir rosalegan B-riðil

Í boði Orku Náttúrunnar, Dominos og bílaumboðsins Heklu hitar Heimavöllurinn upp fyrir EM á Englandi! Mist rúllaði á Selfoss og hitti þar fyrir þjálfarana Björn Sigurbjörnsson og Báru Kristbjörgu Rúnarsdóttir og saman fóru þau yfir B-riðil mótsins þar sem Danmörk, Finnland, Spánn og Þýskaland munu takast á.

Jun 22, 2022

Innkastið - Ísak býr til mörk og Valur tengir saman sigra

Innkastið. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas í þættinum að þessu sinni. Víkingar með Meistaradeildarsýningu gegn Levadia Tallinn, Valsmenn tengja saman sigra, Leiknir og ÍBV eiga á hættu að missa af lestinni, Eiður Smári byrjaði á jafntefli við erfiðar veðuraðstæður, Fram vígði nýjan völl, markverðir gerðu mistök, himininn er blár og Ísak býr til mörk og KR safnar jafnteflum.

Jun 21, 2022

Ástríðan - 7. umferð - Arnar Halls hættir fyrir úrslitaleiki og toppbaráttan í 3. deild svakaleg

Sverrir Mar, Gylfi Tryggva og hinn síveiki Óskar Smári settust niður og fóru yfir sjöttu umferðina í 2. og 3. deild karla. Meðal umræðuefnis: ÍR fyrsta liðið til að tapa fyrir KFA og Arnar Halls hætti fyrir stærstu leikina, Ægismenn fengu á sig þrjú mörk en unnu þó, Njarðvík með endurkomu gegn Völsungi í 6 stiga leik, flóðgáttir opnuðust hjá Víkingi Ó, Kári og ÍH með tvo í röð, Víðir ýktasta jojo liðið, Dalvík á sigurbraut aftur og sendi Kormák/Hvöt í fallsæti.Þátturinn er í boði Bola, Jako, Ice...

Jun 21, 2022

Innkastið - Óli Jó rekinn og fyrsta tap Blika

Það var margt að ræða í Innkastinu þessa aðfaranótt föstudags. Heil umferð í Bestu deildinni, brottrekstur og fyrsta tap toppliðsins.Fjögur jafntefli, Víkingssigur, Valssigur og þrjú mörk í uppbótartíma.Þeir Sverrir Mar Smárason og Baldvin Már Borgarsson fóru yfir hlutina með Sæbirni Steinke.

Jun 17, 2022

Heimavöllurinn: Beint úr Bestu á EM í Englandi

Dominos, Hekla og Orka Náttúrunnar bjóða upp á fótboltaveislu á Heimavellinum. Landsliðskonurnar Elísa Viðarsdóttir, fyrirliði Vals, og Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir, leikmaður Breiðabliks, komu í gott spjall um Bestu-deildina og mál málanna: Úrslitakeppni Evrópumótsins sem er rétt handan við hornið.

Jun 16, 2022

Ástríðan - 6. umferð - Línur skýrast aldrei í 3. deild og Ægir fékk á sig mark

Sverrir Mar, Gylfi Tryggva og maðurinn sem skrifar löngu viðtölin, Sæbjörn Steinke, settust niður og fóru yfir sjöttu umferðina í 2. og 3. deild karla. Meðal umræðuefnis: ÍR harka inn öðrum sigri í röð, Luka Jagacic gæti fengið sparkið frá Reyni S., Ægismenn fengu á sig sitt fyrsta mark en unnu þó, Rafael Victor er hinn nýji Cristofer Rolin, fyrsti sigur ÍH stoppaði Augnablik, Víðir með virðingu eftir helgina, Kári reif sig í gang og KFS með sigur á Hvolsvelli. Þátturinn er í boði Bola, Jako, Ic...

Jun 14, 2022

Innkastið - Landsliðið kvatt og Besta deildin boðin velkomin

Landsliðsuppgjör í Innkastinu að þessu sinni og einnig hitað upp fyrir komandi umferð í Bestu deildinni sem fer aftur af stað á miðvikudaginn. Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke ræða um jafnteflið gegn Ísrael og landsleikjagluggann í heild. Dráttur íslensku liðanna í Evrópu og U21 landsliðið eru einnig til umræðu ásamt því að Lengjudeildarhornið er á sínum stað.

Jun 14, 2022

Útvarpsþátturinn - Landsliðin og Víkingar með Arnari Gunnlaugs

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 11. júní. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Rætt um harða gagnrýni á landsliðið og landsliðsþjálfarann, síðustu leiki og ákvörðunina að spila gegn Sádi-Arabíu. Gestur er Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Íslands- og bikarmeistara Víkings. Hann ræðir um landsliðið, U21 og Bestu deildina. Þá skoðar Mist Rúnarsdóttir valið á kvennalandsliðshópnum fyrir EM. Sérfræðingur: Mist Rúnarsdóttir.

Jun 11, 2022

Ástríðan - 5. umferð - ÍH og Reynir S. einu stigalausu liðin

Sverrir Mar, Óskar Smári og Gylfi Tryggva settust niður þrátt fyrir allt og fóru yfir fimmtu umferðina í 2. og 3. deild karla.Meðal umræðuefnis:Pollið á Twitter sagði að Gylfi bullaði mest en hann var með svör við því. Erfitt að lesa í nokkur lið og aðeins tvö lið eru eftir stigalaus. Vanmat hjá Víði? Hvort eru Dalvík eða Sindri besta liðið í 3.deild? Stígandi fyrir austanÞátturinn er í boði Bola, Jako, Ice og Acan.is.Hægt er að hlusta á í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Sp...

Jun 08, 2022

Bjarni Helgason um Dætur Íslands og kvennalandsliðið - „Á alltaf að vera í þessum hóp"

Bjarni Helgason, blaðamaður á Morgunblaðinu, ræddi við Sæbjörn Steinke um nýja þætti sem sýndir eru á mbl.is. Bjarni heimsótti leikmenn í kvennalandsliðinu og eru tveir þættir þegar komnir út. Þættirnir heita Dætur Íslands. Rætt er um þættina og þá er einnig tekinn snúningur á landsliðshópnum sem tilkynntur verður á föstudag. Hverjar verða valdar?

Jun 07, 2022

Þórðardætur eru alltaf saman - „Kötlu finnst ég svolítið erfið að búa með"

Þær Íris Una og Katla María Þórðardætur hafa farið saman í gegnum ferilinn til þessa, þær búa saman og vinna á sama vinnustað. Þær ræddu við Sæbjörn Steinke og fóru fyrir ferilinn til þessa. Af hverju að fara á Selfoss? Árin með Fylki og Keflavík eru rætt og þá eru þær spurðar út í vinkonu sína hana Sveindísi Jane. Þetta og margt fleira á um tuttugu mínútum.

Jun 07, 2022

Synir Andrésar hins sterka ræddu málin - Sverðó og Jökull til Örebro?

Andréssynir, þeir Axel Óskar og Jökull ræddu við Sæbjörn Steinke en þeir eru staddir á Íslandi í fríi. Axel er leikmaður Örebro í Svíþjóð og Jökull er leikmaður Reading á Englandi. Þeir fóru yfir liðið tímabil og Axel um byrjunina á tímabilinu með Örebro. Axel segir frá því að hann hafi komið Jökli úr því að leika sér með sverð og í að standa milli stanganna í markinu. Er möguleiki á því að Jökull fari til Örebro?

Jun 06, 2022

Aron Sig um Horsens, Union og landsliðið - „Pæla ekki allir í því eða?"

Fjölnismaðurinn Aron Sigurðarson gekk í raðir danska félagsins Horsens síðasta haust en þangað kom hann frá belgíska félaginu Royale Union Saint-Gilloise. Aron ræddi við Sæbjörn Steinke um tímabilið í Danmörku, skiptin frá Union, ævintýri Union í Belgíu, framherja Brighton og landsliðið svo eitthvað sé nefnt. Hann lék stórt hlutverk þegar Horsens fór upp úr dönsku B-deildinni á dögunum og verður í Superliga á komandi tímabili.

Jun 06, 2022

Útvarpsþátturinn - Ísland, þjálfaramál og Selfoss

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 4. júní. Í þættinum er fjallað um landsliðið, þjálfaramál á Íslandi, landslið Bestu deildarinnar valið og fleira. Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari er á línunni og einnig Gary Martin en Selfyssingar eru á miklu flugi í Lengjudeildinni.

Jun 04, 2022

Ungstirnin: Sumarglugginn og Dagur Dan gestur

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn eru Arnar Laufdal Arnarsson og Kristinn Helgi Jónsson.

Jun 01, 2022

Ástríðan - 4. umferð - Til hamingju Njarðvík og Dalvík

Fullur bátur fór yfir 4. umferðina í 2. og 3. deild karla.Meðal umræðuefnis:Baráttan um 2. sætið í báðum deildum, Garðurinn endurheimti virðinguna, ÍR að leika sér, hver ætlar að skora á móti Ægi, hver ætlar að tapa á móti Reyni, ÍH vantar nýjan fjármálastjóra, bestu vinunum gengur vel.Þátturinn er í boði Bola, Jako, Ice, Pizzunnar þar sem hlustendur geta notað afsláttarkóðann "astridan" til að fá 40% afslátt og Acan Wines inná acan.is.Hægt er að hlusta á í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podca...

May 31, 2022

Innkastið - Mjög vont verður enn verra hjá Val og FH

Sverrir Mar Smárason er umsjónarmaður í Innkastinu eftir 8. umferð Bestu deildarinnar. Með honum eru Baldvin Már Borgarsson og Aron Elí Sævarsson, leikmaður Aftureldingar. Valur lenti í hremmingum gegn Fram og tapaði fjórða leik sínum í röð, Kjartan Henry á skotskónum og hrakfarir FH halda áfram, Breiðablik heldur áfram að vinna og Leiknir heldur áfram að tapa, Víkingar á sigurbraut en KA tapaði öðrum leik sínum í röð, Stjarnan vann ÍBV naumlega og Gaui Lýðs í agabanni, Keflavík komið í gírinn e...

May 30, 2022

Heimavöllurinn: Þriðjungsuppgjör Bestu og allt eftir bók í bikar

Það er þegar búið að spila þriðjung Bestu deildarinnar og knattspyrnuþjálfararnir Guðni Þór Einarsson og Guðrún Jóna Kristjánsdóttir mæta og fara yfir deildina til þessa – að sjálfsögðu í boði Heklu og Dominos. Lengjudeildin er einnig til umræðu sem og bikarkeppnin en nú er ljóst hvaða lið verða í pottinum þegar dregið verður í 8-liða úrslit.

May 30, 2022

Útvarpsþátturinn - Bikardraumar, París og lið ársins

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 28. maí. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í fyrri hlutanum er rætt um íslenska boltann, Mjólkurbikarinn og landsliðið. Í seinni hlutanum velur Kristján Atli lið tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni og heyrt er í Hafliða Breiðfjörð sem verður á úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

May 28, 2022

Hjörvar um Viaplay - Meistaradeildin, landsliðið og margt fleira

Streymisveitan Viaplay er eitthvað sem margir Íslendingar hafa kynnst í vetur, flestir lesendur eflaust í kringum Meistaradeildina í fótbolta. Framundan er úrslitastund í Meistaradeildinni því á laugardagskvöld fer fram sjálfur úrslitaleikurinn. Þeir Hörður Magnússon og Heimir Hallgrímsson munu lýsa úrslitaleiknum frá Stade de France. Hjörvar Hafliðason er íþróttastjóri Viaplay og ræddi við Sæbjörn Steinke um Viaplay og það sem framundan er þar. Eftir úrslitaleikinn er komið að Þjóðadeildinni þa...

May 26, 2022

Enski boltinn - Fagnaði titlinum í hjarta samfélagsins

Titilbaráttan í ensku úrvalsdeildinni var gerð upp í dag með því að fá stuðningsmann Manchester City og stuðningsmann Liverpool í hljóðver. Þeir Eiríkur Þorvarðarson, markmannsþjálfari og stuðningsmaður City, og Sveinn Waage, fyrrum fyndnasti maður Íslands og stuðningsmaður Liverpool, fóru yfir upplifun sína af lokadegi ensku úrvalsdeildarinnar með Sæbirni Steinke. Sveinn var á Anfield á sunnudag en á sama tíma var Eiríkur staddur í Garðabæ. Fyrstu 35 mínúturnar eða svo fóru í að ræða City og Li...

May 25, 2022
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android