<p>Aron og Gunni gerðu upp umferð 26 fyrir leik Arsenal og Wolves. Salah skilaði heldur betur sem þrefaldur fyrirliði hjá þorra þjóðarinnar í Fantasy samfélaginu með þá 84 stig. Burnley vann tvo leiki og hélt hreinu.</p><p>Aðallega ræddu þeir samt hvað á að gera í umferðum 27-30, en þær eru allar með óhefðbundinn leikjafjölda. </p><p>- Eiga allir að taka Free Hit í umferð 27? </p><p>- Að hverju þarf að huga fyrir umferð 30? </p><p>- Úr hvaða ...
Feb 25, 2022
Toppliðin halda áfram að misstíga sig í hnífjafnri toppbaráttu. Mourinho lætur dómara finna fyrir syndum feðranna og er kominn í bann. Bandaríska innrásin heldur áfram og stuðningsmenn Cagliari og Napoli hata hvora aðra af undarlegum ástæðum. Silvio Berlusconi fagnar marki í Íslendingaslag með því að fara í sleik. Allt er eins og það á að vera í ítalska boltanum - þar sem Íslendingum finnst skemmtilegast að spila.
Feb 25, 2022
Efstu deildir karla og kvenna hafa fengið nafnið Besta deildin. Þetta kom fram á kynningarfundi Íslensks Toppfótbolta í Bæjarbíói í dag. Í tilefni fundarins er hér aukaþáttur í hlaðvarpsformi af útvarpsþættinum Fótbolti.net. Tómas Þór og Elvar Geir ræða um kynningarfundinn, útlitið og nafnið á deildinni og sigurskjöldinn. Þá er rætt við Björn Þór Ingason, markaðsstjóra ÍTF, um þá undirbúningsvinnu sem ráðist var í og tilurð vörumerkisins.
Feb 24, 2022
Á laugardaginn verður ársþing KSÍ haldið á Ásvöllum í Hafnarfirði. Það verður kosið kosið til formanns en Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, ákvað að taka slaginn og bjóða sig fram á móti Vöndu Sigurgeirsdóttur. Fótbolti.net gaf lesendum kost á því að senda inn spurningar á Sævar og Vöndu og setti svo saman lista með tólf spurningum. Við þökkum öllum þeim sem sendu inn spurningar og þó einhverjar hafi ekki komist á þennan spurningalista er ekki ólíklegt að þær verði notaðar síðar til umfjöllu...
Feb 23, 2022
Það var létt yfir mönnum í þætti dagsins. Þeir Ísak Máni Wium og Tómas Steindórsson sátu með Sæbirni Steinke og þá var Ingimar Helgi Finnsson á línunni, reif upp tólið á Tenerife. Ísak er stuðningsmaður Manchester United, Tómas heldur með West Ham og Ingimar er Tottenham-megin í lífinu. Rætt var um leiki umferðarinnar og aðeins spáð í leiki Liverpool, Man Utd og Chelsea í miðri viku. Hversu góður er Harry Kane? - Skiptingin á Paul Pogba - Kaupstefna West Ham - Wout Weghorst - Roy Hodgson og svo ...
Feb 22, 2022
Útvarpsþátturinn 19. febrúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í upphafi þáttar er yfirferð yfir Lengjubikarinn og fréttir úr íslenska boltanum. Gestir þáttarins eru Birgir Jóhannsson framkvæmdastjóri ÍTF og Þórir Hákonarson íþróttastjóri og sérfræðingur þáttarins. Rætt er um nýja samninga í íslenska boltanum, peningastreymi og komandi ársþing. Þeir spá jöfnum og spennandi formannskosningum. Í lok þáttar er síðan skoðað hvað er í gangi í enska boltanum.
Feb 19, 2022
Gestir Heimavallarins að þessu sinni eru þær Ingunn Haraldsdóttir og Katrín Ómarsdóttir. Ingunn er nýkomin heim úr atvinnumennsku í Grikklandi og Katrín er orðin aðstoðarþjálfari Hauka. Stelpurnar okkar byrja á sigri í fyrsta leik á She Believes Cup og Dagný setti þar hraðamarkamet. Árið 2022 erum við enn að verða vitni að ótrúlegum atvikum en Þróttarar fengu engan bikar afhentan kvöldið sem þær urðu Reykjavíkurmeistarar. Slíkar uppákomur og ýmislegt annað hefur orðið til þess að Ingunn, Katrín ...
Feb 19, 2022
AC Milan fór á toppinn og miðað við leikjaprógramið framundan fara þeir ekki þaðan í bráð. Nýr Íslendingur var í hóp hjá Venezia og Björn Már skoðar hvaða ungu Íslendingar eru líklegastir til að fá tækifærið í Serie A næst. Stuðningsmenn Atalanta verða sér til skammar með söngva um Dusan Vlahovic og Albert Guðmundsson þreytir frumraun sína í deildinni þar sem Íslendingum finnst skemmtilegast að spila.
Feb 17, 2022
Það er loksins komið að því, tvær síðustu umferðir í ensku úrvalsdeildinni gerðar upp og leikir vikunnar í Meistaradeildinni. Þeir Arnar Laufdal Arnarsson og Egill Sigfússon ræddu málin með Sæbirni Steinke. Þrír sigrar hjá Liverpool, þrír sigrar hjá Man City en ekki gekk eins vel hjá Man Utd og Tottenham. Þá var hringt í Þórodd Hjaltalín Jr. og hann spurður út í tvöfalda gula spjaldið á Gabriel Martinelli í leik Arsenal og Wolves. Laufið segir frá því þegar hann hitti Steve Sidwell, Vicente Guai...
Feb 17, 2022
Aron, Heiðmar og Ásgeir hittust og ræddu umferð 25 í Fantasy sem "réðist" á síðustu sekúndu. Strákarnir skoðuðu risavaxna umferð 26 og ræddu möguleikana sem flestir velta fyrir sér eins og Triple captain á Salah, Bench boost, Free Hit og hvað þetta allt heitir nú. Þátturinn er í boði hlustenda sem styrkja okkur á Patreon, Nemíu og Massabón.
Feb 17, 2022
Elvar Geir og Tómas Þór í útvarpsþætti vikunnar. Farið er yfir fréttir vikunnar í íslenska boltanum og heyrt í Rúnari Kristinssyni þjálfara KR og Hólmari Erni Eyjólfssyni sem er kominn heim úr atvinnumennskunni og samdi við Val. Enski boltinn er einnig til umfjöllunar en Sæbjörn Steinke er nýkominn til landsins eftir rannsóknarleiðangur til Englands þar sem hann skellti sér á þrjá leiki.
Feb 12, 2022
Fantabrögð og Lélega Fantasy podcastið tóku höndum saman þessa vikuna og voru með sameiginlegan þátt. Fjórmenningarnir fóru yfir stigin sín, planið framundan, möguleg Wildcard lið og fleira. Annað sem kom fram í þættinum: - Hver væri hvað í hinu podcastinu? - Á hvaða heimavist í Hogwarts væri Gummi Fel? - Hvað kom fyrir Pálma í dag? - Hver verður fyrirliði í umferð 25?
Feb 11, 2022
AC Milan vann óvæntan sigur í Derby della Madonnina og galopnaði titilbaráttuna. Dusan Vlahovic skoraði í sínum fyrsta leik fyrir Juventus. Simone Verdi stóð undir nafn sem aukaspyrnusérfræðingur deildarinnar og botnbaráttan harðnar enn. Ítalski boltinn - þar sem Íslendingum finnst skemmtilegast að spila. Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson er umsjónarmaður.
Feb 10, 2022
Það verður kosningabarátta um formannssæti KSÍ á ársþingi sambandsins þann 26. febrúar. Í dag tilkynnti Sævar Pétursson að hann hefði ákveðið að taka slaginn og bjóða sig fram gegn Vöndu Sigurgeirsdóttur. Elvar Geir og Sæbjörn Steinke slógu á þráðinn norður til Akureyrar og heyrðu í Sævari. Hann býst við jafnri baráttu, telur sig hafa breiðari þekkingu úr hreyfingunni en segist verða fyrsti maðurinn til að óska Vöndu til hamingju ef hann ber ekki sigur úr býtum í kosningunni. Í viðtalinu ræðir h...
Feb 07, 2022
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 5. febrúar. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir fótboltafréttir vikunnar. Formannsslagurinn, undirbúningstímabilið, þjálfaramál, enski boltinn og fleira koma við sögu. Sóknarmaðurinn Andri Rúnar Bjarnason kemur í þáttinn en hann er mættur aftur úr atvinnumennskunni erlendis og ætlar sér stóra hluti með ÍBV í sumar. Þá er Vanda Sigurgeirsdóttir formaður KSÍ á línunni en hún býður sig áfram fram í formannsstólinn. Það eru þrjár vikur í ársþing....
Feb 05, 2022
Félagsskiptagluggi ítölsku liðanna gerður upp með einkunnagjöf. Albert Guðmundsson fetar í fótspor langafa síns í Serie A. Litríkur forseti Palermo fellur frá en skilur eftir sig ótrúlega sögu. Óttar Magnús yfirgefur Siena þar sem allt er í vafasamri upplausn og ungir Íslendingar vilja hvergi annars staðar spila enn á Ítalíu - eðli máls samkvæmt. talski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson er umsjónarmaður.
Feb 01, 2022
Aron og Gunni hittust og reyndu að setja tilfinningar sínar í garð Watford leikmanna í orð. Það var erfitt, en einhver þarf að gera þetta. Strákarnir tóku fyrir spurningar hlustenda, veltu fyrir sér hverja þeir myndu kaupa á Wildcardi og hvernig næstu umferðir myndu spilast. Fantabrögð eru í boði hlustenda sinna sem styrkja okkur á Patreon, einnig í boði Nemíu og Massabón. Takk fyrir að hlusta.
Feb 01, 2022
Félagaskiptaglugganum á Englandi var skellt í lás klukkan 23:00 í gærkvöldi og voru sum félög að græja síðustu skiptin í blálok gluggans. Pierre-Emerick Aubameyang, Aaron Ramsey, Dele All, Donny van de Beek og fleiri öflugir skiptu um félag í gær. Þeir Aksentije Milisic og Egill Sigfússon ræða málin við Sæbjörn Steinke (BÁN-bræður). Farið er yfir félögin í ensku úrvalsdeildinni, rætt um skipti Alberts Guðmundssonar, stærstu skiptin á Ítalíu og aðeins spáð í spilin með sumargluggann. Þátturinn er...
Feb 01, 2022
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 29. janúar. Umsjón: Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas. Rætt er um fréttir vikunnar, þjálfaraleit ÍA, formannsslag KSÍ og fleira. Eggert Ingólfur Herbertsson, formaður ÍA, er á línunni og einnig Sæbjörn Steinke sem horfði á Stjörnuna vinna Breiðablik í úrslitaleik Fótbolta.net mótsins. Gestur þáttarins er Damir Muminovic, varnarmaður Breiðabliks. Einnig er fjallað um enska boltann og félagaskiptagluggann.
Jan 29, 2022
23. umferðin í ensku úrvalsdeildinni fór fram um helgina og loksins fóru allir leikir fram! Þeir Magnús Þór Jónsson (Liverpool) og Birgir Ólafsson (Tottenham) fara yfir það helsta með Sæbirni Steinke. Tottenham þarf að bakka Conte upp, Liverpool þyrfti að fá miðjumann, West Ham olli vonbrigðum, City missteig sig, mark dæmt af Kane en ekki af Uxanum, sautján endursýningar, Hodgson kominn aftur, allt í rugli hjá Everton og margt fleira. Enski boltinn er í boði Domino's (fyrir alla) og White Fox (f...
Jan 26, 2022
Bára Kristbjörg aðstoðarþjálfari Selfoss og Aníta Lísa þjálfari Fram eru gestir Heimavallarins. Við förum yfir U23 og U19 ára landsliðshópana sem voru tilkynntir í síðustu viku ásamt því að rýna í stöðu nýrra atvinnukvenna erlendis. Við fáum einnig innsýn inn í hugarheim og vinnu þjálfara hjá gestum þáttarins. Það eru einnig 3 mánuðir í að Íslandsmótið verði flautað í gang. Við gátum ekki sleppt gestunum án þess að fara yfir liðin tíu sem mæta til leiks í apríl. Við förum yfir leikmannamarkaðinn...
Jan 25, 2022
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 22. janúar. Algjörlega ótímabær spá fyrir Íslandsmótið 2022. Elvar Geir, Tómas Þór og Sverrir Mar ræða um öll liðin tólf í Íslandsdeildinni, Hverjir eru komnir og farnir og hverjir verða bestir næsta sumar?
Jan 22, 2022
Ásgeir og Hemson tóku upp þátt yfir leik Brentford og Man Utd þar sem Hemson gat varla einbeitt sér, verandi með bandið á Bruno. - Á meðan Salah tekur frí frá Fantasy, þá stíga gömlu kanónurnar upp á móti. Bruno, Kane, De Bruyne mennirnir. - Er Aston Villa liðið til að horfa til núna? Gerrard að smíða stórvirki í Birmingham. - Er 7M€ fyrir Coutinho alltof lítið? - Er Fantasy orðið 50% heppni og 50% gæði? - Burnley á 5 leiki inni, hvort myndir þú velja Cancelo í einn leik eða Lowton með 5 leiki? ...
Jan 20, 2022
Umferðinni í ensku úrvalsdeildinni lauk í gær, átta leikir af tíu fóru fram - tveimur var frestað út af svolitlu. Sæbjörn Steinke fékk þá Arnór Gauta Ragnarsson og Sigurð Gísla Bond Snorrason til að gera upp helgina með sér og ræða stóru málin. Benítez var látinn fara frá Everton, Manchester United tapaði niður tveggja marka forskoti, Manchester City vann stórleikinn, Liverpool kláraði Brentford og Leeds lagði West Ham á útivelli. Arnór er stuðningsmaður Southampton og ræddi um hvers vegna. Bond...
Jan 17, 2022
Elvar Geir og Benedikt Bóas sjá um útvarpsþátt vikunnar. Hringt er í Pálma Rafn Pálmason spilandi íþróttastjóra KR og Kristján Atli Ragnarsson mætir við enska hringborðið í annað fjórðungsuppgjör. Allt það helsta úr enska boltanum. Einnig er rætt um íslenska fótboltalandsliðið og gerð heiðarleg en misheppnuð tilraun til að hafa handboltahorn.
Jan 15, 2022
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Drengirnir eru ekki bara tveir í þættinum að þessu sinni en góðvinur þeirra Kristinn Helgi Jónsson er einnig. Aðalumræðuefnið í þessum þætti er fótboltaleikurinn vinsæli Football Manager og er rætt fram og til baka um hann. Mörg ungstirni sem koma við sögu í spjallinu.
Jan 14, 2022
Íslendingar eignuðust nýjan leikmann í Serie A um nýliðna helgi þegar Bjarki Steinn Bjarkason kom inná fyrir Venezia gegn AC Milan. Nú er útlit fyrir að hann sé á leið á láni suður á bóginn til Catanzaro. Fiorentina er búið að finna arftaka Dusan Vlahovic sem er á útleið, en um er að ræða gamla hetju úr ítalska boltanum. Leik Internazionale og Juventus í ofurbikarnum lauk með hótunum um barsmíðar.
Jan 13, 2022
Aron og Gylfi stigu villtan dans í hljóðverinu þar sem þeir fóru óvenju langt út fyrir efnið. Það kom ekki að sök, einhvers staðar innan um þennan 65 mínútna hafsjó orða má heyra umræðu um Fantasy. Chelsea á skrítið prógram framundan. Baugarnir á Tsimikas. Hið stórkostlega AFCON er að hefjast. Tvöföld umferð er framundan hjá mörgum liðum og enn herjar á okkur veiran skæða. Þetta og margt annað. Allt í boði Nemíu, Massabón og fyrst og fremst Patreon. Ef þú, hlustandi góður, kannt að meta Fantabrö...
Jan 10, 2022
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 8. janúar. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir það helsta í boltanum. Sæbjörn Steinke er með þeim í þættinum. Farið er yfir innlendar og erlendar fréttir. Þórir Hákonarson fer yfir leikjafyrirkomulag Íslandsdeildarinnar og breytt umhverfi íslenska boltans.
Jan 08, 2022
Nýtt fótboltaár er hafið og spennandi tímar framundan. Nú þegar árið 2021 er liðið og rúmlega það er við hæfi að líta aðeins til baka yfir það helsta sem gerðist á liðnu ári og auðvitað að velta fyrir sér hvað nýtt fótboltaár ber í skauti sér. Heimavöllurinn fær til sín geggjaða gesti. Landsliðskonurnar Berglind Rós Ágústsdóttir og Cecilía Rán Rúnarsdóttir mæta í sett ásamt hinni einu sönnu Helenu Ólafsdóttur sem fer yfir hápunkta síðasta árs.
Jan 07, 2022