Fotbolti.net - podcast cover

Fotbolti.net

Fotbolti.netfotbolti.net
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Fótboltafréttir vikunnar - Landsliðsval og leikmannaskipti

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir, Tómas Þór og Magnús Már fara yfir fótboltafréttir vikunnar. Byrjað er að ræða landsliðsvalið og síðustu tvo leikina í undankeppni HM. Magnús Már velur byrjunarlið Íslands úr hópnum sem opinberaður var í vikunni. Annað til umræðu: Pétur Theodór slítur krossbandið í þriðja sinn, sóknarmannaleit Breiðabliks, Aron Jó í Val, staða Hannesar, óvæntustu skipti haustsins, Emil Pálsson fór í hjartastopp, Nuno út og Conte inn, Howe tekur við Newcastle og ...

Nov 05, 2021

Ítalski boltinn - Juventus í æfingabúðum og Bjarki Steinn með nýjan samning

Í þætti vikunnar verður farið yfir vandræðaganginn í Juventus sem endaði á því að liðið var sent í æfingabúðir. Bjarki Steinn skrifaði undir nýjan samning hjá Venezia, hvernig lítur framhaldið út hjá honum? Sampdoria saknar Claudio Ranieri og toppbaráttan er hnífjöfn á milli Napoli og AC Milan. Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson er umsjónarmaður.

Nov 03, 2021

Ungstirnin x Garðabær

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Drengirnir fjalla um Luka Sucic (Salzburg) sem er enn einn spennandi leikmaðurinn í Salzburg og Kaiky Melo (Santos) sem hefur verið mikið líkt við varnarmanninn öfluga Thiago Silva. Þeir ungu og mjög efnilegu leikmenn Stjörnunnar Eggert Aron Guðmundsson og Óli Valur Ómarsson koma í heimsókn og taka...

Nov 03, 2021

Fantabrögð - Salah slakar á og #SkáldaFPL

Það kom að því. Mo Salah skoraði ekki. En lagði þó upp mark svo það voru ekki 100% vonbrigði hjá þeim metfjölda sem setti bandið á hann í þessari umferð. Aron og Gunni mættu í stúdíóið yfir leik Wolves og Everton og fóru yfir það helsta sem hafði gerst í umferðinni: - Reece James með tvennu og 21 stig! - Brentford ekki að gefa - Hvernig munu Spurs verða undir Conte? - #SkáldaFPL Að auki drógum við út sigurvegara í gjafaleik Massabón 🤩

Nov 02, 2021

Enski boltinn - Nuno sparkað, Ramsdale lygasagan og kraftaverk Moyes

Tíundu umferðinni í enska boltanum lýkur í kvöld með viðureign Wolves og Everton. Þeir Andri Geir Gunnarsson úr hlaðvarpsþættinum Steve Dagskrá og Arnar Laufdal Arnarsson, annar af umsjónarmönnunum Ungstirnanna, ræddu um það helsta í umferðinni. Í upphafi þáttar var hringt í Ingimar Helga Finnsson, stuðningsmann Tottenham, og farið yfir tíðindi dagsins. Andri er stuðningsmaður Barcelona og var spænska félagið til umræðu í lok þáttar. Arnar er mikill Ajax maður og ræddi um stöðu Donny van de Beek...

Nov 01, 2021

Útvarpsþátturinn - Enska hringborðið og Aron Þrándar

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 30. október. Enska úrvalsdeildin er í aðalhlutverki í þætti vikunnar. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke, Kristján Atli og Tryggvi Páll ræða um gang mála og valið er úrvalslið fyrsta fjórðungs. Staða Ole Gunnar Solskjær og þjálfaraskipti Barcelona er meðal umræðuefna í þættinum. Þá er Aron Elís Þrándarson, leikmaður OB, í áhugaverðu viðtali.

Oct 30, 2021

Heimavöllurinn: Óvæntar frammistöður og sex blá stig í HM töskuna

Landsliðsveisla á Heimavellinum þegar Margrét Magnúsdóttir þjálfari og Sæbjörn Þór fréttamaður á Fótbolti.net mættu í hús í dag. Ísland vann tvo mikilvæga sigra í undankeppni HM á síðustu viku. Gríðarlega mikilvægur sigur gegn Tékkum og skyldusigur gegn Kýpur.

Oct 27, 2021

Fantabrögð - 9. umferð - Að gera sér dagamun

Aron og Ásgeir mættu glaðir í stúdíóið, enda voru þeir báðir með Salah sem fyrirliða í liðinni umferð. Einhverjir þáttastjórnendur forfölluðust í kjölfarið á ákvörðunum sínum, en bekkjabræður fóru yfir það helsta, eins og: - Munur á gengi milli daga - Hvernig fór Kai Havertz að því að blanka? - Á að kaupa Mason Mount? - Munum við einhverntímann velja annan fyrirliða en Salah? - Hver er pókerhöndin þín í Fantasy?

Oct 26, 2021

Enski boltinn - Íslandsmeistarar rýndu í stöðu Solskjær

Níundu umferðinni í enska boltanum lauk í gær með stórleik Manchester United og Liverpool. Íslandsmeistararnir Júlíus Magnússon og Eiður Ben Eiríksson fóru yfir umferðina og ræddu málin með Sæbirni Steinke. Eins og flestir vita lauk leiknum með risasigri Liverpool og var rýnt í leikinn og stöðu Ole Gunnar Solskjær hjá United. Júlli fór á Emirates og fór yfir málin hjá Arsenal og þá var aðeins skoðað hver gæti tekið við Newcastle. Í lok þáttar var farið yfir stuttlega yfir tímabilið hjá Víkingi m...

Oct 25, 2021

Útvarpsþátturinn - Bak við tjöldin hjá meisturunum og enski

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 23. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Gestur: Heimir Gunnlaugsson formaður meistaraflokksráðs Víkings. Farið er yfir leiðina að tvennunni, stefnu félagsins, hæðir og lægðir meðan Heimir hefur starfað bak við tjöldin, ráðninguna á Arnari Gunnlaugs, leikmannamál og ýmislegt fleira. Einnig er farið yfir íslenskar fréttir og hitað upp fyrir Manchester United - Liverpool með Kristjáni Atla Ragnarssyni.

Oct 23, 2021

Fantabrögð - Uppgjör á 8. umferð

Þáttur vikunnar er mættur. Ásgeir og Heiðmar fóru yfir allt það helsta í umferðinni og spáðu í spilin fyrir komandi umferðir. Þurfa leikmenn á borð við Ronaldo, Benhrama og Jota að víkja fyrir Vardy, Son eða Toney? Er Lukaku að upplifa kulnun í starfi? Er Salah á móti Man Utd betri fyrirliðakostur en flestir aðrir? Alonso kominn í kælingu, af hverju spilar Tuchel ekki bara með tvo vinstri bakverði í kerfinu sínu? Þetta og margt fleira var rætt í þættinum! Ps minnum á föstudagsdeadline í vikunni....

Oct 20, 2021

Ungstirnin - Tchouameni, Babadi, FM og Wirtz

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Drengirnir fjalla um Aurélien Tchouaméni (Mónakó) sem hefur verið orðaður við Chelsea og Real Madrid og Isaac Babadi (PSV) sem er talinn vera mesta efnið úr PSV akademíunni síðan Memphis Depay. Meðal umræðuefnis er Football Manager 22, Florian Wirtz sem var nýlega valinn leikmaður mánaðarins í Bund...

Oct 20, 2021

Enski boltinn - Salah, tap Man Utd og allt um eigendaskiptin

Áttunda umferð ensku úrvalsdeildarinnar fór fram um helgina og er komið að því að gera upp umferðina. Sæbjörn Steinke fékk þá Jón Júlíus Karlsson og Jóhann Má Helgason til að fara yfir stóru málin. Jón Júlíus er mikill Newcastle maður og Jóhann er harður stuðningsmaður Chelsea. Farið var yfir eigendaskipti Newcastle, tap Manchester United gegn Leicester og annað markvert. Hlarðvarpsþátturinn Enski boltinn er í boði Domino's.

Oct 19, 2021

Útvarpsþátturinn - Barist um bikar og landsliðsuppgjör

Útvarpsþátturinn Fotbolti.net er í hlaðvarpsformi þessa vikuna þar sem umsjónarmenn hafa öðrum hnöppum að hneppa á hefðbundnum útsendingartíma. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson fara yfir fótboltafréttir vikunnar. Skagamaðurinn og íþróttafréttamaðurinn Sverrir Mar Smárason er með þeim í þættinum. Það er vel við hæfi enda er bikarúrslitaleikur Víkings og ÍA framundan á laugardaginn. Í þættinum er einnig rætt um íslenska landsliðið og tíðindi úr íslenska fótboltanum.

Oct 14, 2021

Glataður þjóðarleikvangur og yfirtaka Sádi-Arabíu á Newcastle

Seinni hluti útvarpsþáttarins 9. október. Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri Greiningar Íslandsbanka, ræðir við Elvar Geir og Tómas Þór. Fjallað um möguleika á því að fá nýjan þjóðarleikvang og einnig um stóru fréttirnar úr enska boltanum en Newcastle er nú með ríkustu eigendur í bransanum.

Oct 09, 2021

Landsliðsumræða - Tómlegur völlur og döpur úrslit

Fyrri hluti útvarpsþáttarins 9. október. Elvar Geir, Tómas Þór og Magnús Már gera upp 1-1 jafnteflisleikinn gegn Armeníu. HM-draumurinn er algjörlega dauður og sárafáir mættu á Laugardalsvöll. Slakt lið Armena fékk stig gegn Íslandi en Ísak Bergmann varð yngsti markaskorari landsliðsins frá upphafi. Farið er yfir frammistöðu leikmanna og framhaldið. Einnig er rætt um komandi bikarúrslitaleik Víkings og ÍA sem verður næsta laugardag.

Oct 09, 2021

Fantabrögð - Afsakið (landsleikja)hlé

Umferð 7 var versta umferðin í Fantasy það sem af er tímabili. Meðalskorið var einungis 38 stig og þó Fantabræður hafi flestir verið yfir því þá er ekki hægt að segja að þeir hafi riðið feitum hesti. Aron og Heiðmar gerðu upp umferðina og fóru yfir allt það helsta (og versta). - Spurningar hlustenda - Hvað þarf að hafa í huga þegar maður tekur Wildcard í landsleikjahléi? - Chelsea og City varnarmenn - Hver er þessi Haraldur?

Oct 08, 2021

Ítalski boltinn - Emil snýr aftur og fimm bestu í deildinni valdir

Emil Hallfreðsson er genginn til liðs við Virtus Verona, en hvaða lið er þetta eiginlega? Íslensku miðverðirnir eru farnir að byrja leiki, hinn tónelski Mourinho vill fá að stjórna tónlistinni og svo verða valdir í þættinum fimm bestu leikmenn deildarinnar í fyrstu sjö umferðunum. Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson er umsjónarmaður.

Oct 08, 2021

Heimavöllurinn: PEPSI MAX UPPGJÖR 2021

Það er loksins komið að því. Pepsí Max uppgjörið 2021. Sæbjörn Þór og Helga Katrín fréttaritarar Fótbolta.net mættu í partýið og fara yfir allt það helsta í sumar.

Oct 07, 2021

Vanda Sig er sest í formannsstólinn - Ætlar að koma KSÍ úr krísunni

Elvar Geir Magnússon ritstjóri Fótbolta.net heimsótti Vöndu Sigurgeirsdóttur á skrifstofu hennar í Laugardalnum. Vanda er tekin við sem formaður KSÍ og er fyrsta konan sem tekur við formennsku í aðildarfélagi hjá UEFA. Í viðtalinu ræðir hún um tiltektina sem framundan er, hvort hún sé komin til að vera, gagnrýni í Podcöstum, stuðningsyfirlýsingu við Arnar, traust framkvæmdastjórans, ímynd KSÍ, yfirmann fótboltamála, Laugardalsvöll, reynsluna frá ferli hennar og "Vanda Sig" brandarana.

Oct 07, 2021

Enski boltinn - Systurnar fóru yfir sviðið

Um helgina fór fram síðasta umferðin í ensku úrvalsdeildinni fyrir landsleikjahlé. Sæbjörn Steinke ræddi við systurnar Ástu Eir og Kristínu Dís Árnadætur um leiki umferðarinnar. Farið var yfir liðsvalið hjá Solskjær, viðbrögð Ronaldo, Werner kominn á blað og stórkostlegur lokaleikur í umferðinni. Watford rak þjálfarann, Brentford að byrja vel og hvort liðið er meira spennandi Brighton eða Arsenal.

Oct 05, 2021

Meistaradeildarupphitun: Leikur gegn PSG á morgun

Á morgun mætir Breiðablik franska stórliðinu PSG í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Af því tilefni ræddi Sæbjörn Steinke við systurnar Ástu Eir og Kristínu Dís Árnadætur en þær eru einmitt leikmenn Breiðabliks. Leikurinn fer fram á Kópavogsvelli annað kvöld. - Mættu PSG fyrir tveimur árum - Þakklæti til starfsfólks Breiðabliks - Nýju leikmennirnir - Þjálfarabreytingar - Hvernig er að vera með systur sinni í liði? - Endurkoma Ástu eftir barnsburð - Og svo margt fleira

Oct 05, 2021

Útvarpsþátturinn - Landsliðið, Arnar Grétars og Pepsi Max

Það var nóg að ræða í útvarpsþætti vikunnar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið yfir fótboltafréttirnar, rætt um landsliðið og Pepsi Max-deildina. Tómas Þór fer yfir laglausar hetjur íslenska boltans. Gestur þáttarins: Arnar Grétarsson, þjálfari KA.

Oct 02, 2021

Heimavöllurinn Extra: Margrét Lára velur topp 5 sem komu skemmtilega á óvart

Brakandi blíða á Heimavellinum í dag. Pepsí uppgjör nálgast óðfluga á Heimavellinum. Til að hita upp fyrir þá veislu fengum við Margréti Láru til að segja okkur betur frá Íslandsmeistaraliði Vals, spá í Bikarúrslitin og velja topp fimm leikmenn sem komu henni skemmtilega á óvart í deildinni í sumar.

Oct 01, 2021

Ástríðan - Uppgjörsþáttur 3. deildar

Sverrir Mar fékk til sín gesti úr liðunum sem enduðu í tveimur efstu sætum deildarinnar og fór yfir sumarið. Þorkell Þráinsson, fyrirliði Ægis, og Brynjar Þorri, leikmaður Hattar/Hugins mættu, fóru yfir deildina í heild, sín lið og eigin frammistöðu. Lið Ársins var sömuleiðis tilkynnt í boði Jako Sport auk bestu manna. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport, Sóma safanna, Nemíu og Tryggja.is.

Sep 30, 2021

Fantabrögð - Ronaldo út? Lukaku inn?

Ásgeir, Gunni og Snorri hittustu í stúdíóinu og gerðu upp 6. umferðina í FPL. Helstu umræðuefni: - Á að wildcarda núna? - Á maður að selja Ronaldo fyrir Lukaku? Er það jafn augljóst og allir vilja meina? - Triple Chelsea vörn? - Hvað gerum við við Luke Shaw og Jota? Fantabrögð eru í boði Massabón, Nemíu og hlustenda sem styrkja okkur á Patreon.

Sep 29, 2021

Ástríðan - Uppgjörsþáttur 2. deildar

Sverrir Mar fékk til sín gestir úr liðunum sem enduðu í 1. og 2.sæti deildarinnar og fór yfir sumarið. Samúel Már úr KV og Unnar Ari úr Þrótti Vogum, sem báðir voru valdir í lið ársins af fyrirliðum og þjálfurum, fóru yfir deildina í heild, sín lið og eigin frammistöðu. Lið Ársins var sömuleiðis tilkynnt í boði ICE nikótínpúða. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport, Sóma safanna, Nemíu og Tryggja.is. Hlustaðu í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.

Sep 27, 2021

Innkastið - Lokahóf eftir magnað tímabil

Það er komið að síðasta Innkasti tímabilsins! Elvar Geir Magnússon, Íslandsmeistarinn Tómas Þór Þórðarson og Skagamaðurinn Sverrir Mar Smárason eru í hljóðverinu og halda sérstakt lokahóf. Víkingar eru Íslandsmeistarar og Tómas fagnaði rækilega á laugardagskvöldinu, HK féll úr deildinni á meðan ÍA bjargaði sér á ótrúlegan hátt. Farið er yfir alla leikina og þá er lið ársins opinberað, þjálfari ársins, leikmaður ársins í boði Bose og besti ungi leikmaðurinn.

Sep 27, 2021

Ungstirnin - Kristall á línunni og næstu Haaland og Neymar

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Kristall Máni Ingason leikmaður Víkinga var á línunni og ræddu drengirnir um tímabilið sem var að klárast en Kristall og Víkingar urðu Íslandsmeistarar á laugardaginn. Drengirnir fjölluðu um Benjamin Sesko (RB Salzburg) og Angelo Gabriel (Santos) en þessum leikmönnum hefur verið mikið líkt við Erli...

Sep 27, 2021
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android