Enski boltinn snýr aftur á nýju ári og var umferðin um liðna helgi gerð upp í dag. Átta leikir fóru fram en tveimur leikjum var frestað vegna smita. Það var Fylkisþema í þættinum því þeir Egill Sigfússon og Kristján Gylfi Guðmundsson voru gestir Sæbjarnar Steinke - báðir gestirnir þjálfarar hjá Fylki. Farið var yfir vafaatriðin í leik Arsenal og Manchester City, önnur stór atvik umferðarinnar og rýnt í stórleik Chelsea og Liverpool. Þeir Egill og Krissi eru báðir Man Utd menn og var farið í leik...
Jan 04, 2022
Hlaðvarpsþátturinn Enski boltinn og útvarpsþátturinn Fótbolti.net sameinast í þætti þar sem rætt er um hátíðartörnina í enska boltanum. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas fara yfir málin. Stuðningsfólk Liverpool og Manchester United er svekkt eftir úrslit vikunnar en Leicester kom gríðarlega á óvart með sigri í gær. United var heppið að ná stigi gegn Newcastle. Falla norðanmenn? Manchester City er að síga fram úr í titilbaráttunni og ungstirni Arsenal skína skært.
Dec 29, 2021
Guðrún Arnardóttir er gestur í jólaþætti Heimavallarins. Guðrún varð sænskur meistari með stjörnuprýddu liði Rosengård í haust eftir að hafa verið keypt til liðsins frá Djurgarden á miðju tímabili. Hún fer yfir frábært fótboltaár og rúmlega það með þeim Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur.
Dec 28, 2021
Gunni og Heiðmar gerðu upp "umferð" 18 í Fantasy Premier League. En enska úrvalsdeildin er haldin frestunaráráttu þessa dagana og það bitnar heldur betur á Fantasy liðunum okkar. Mjög erfitt er að reikna út hvaða leikir verða spilaðir og þ.a.l. hvar er möguleiki á stigum. Heiðmar og Gunni fóru yfir þessa fjögurra leikja umferð og reyndu að giska á hvað gerist næst. - 1,3 milljón spilarar keyptu Ollie þegar hann átti svo ekki leik - Hemson tók séns með fyrirliðavalið sem gekk svo upp - Einn úr Fa...
Dec 22, 2021
Ungstirnin eru í hátíðarskapi og fá til sín tvo af efnilegustu leikmönnum Íslands. Gestir þáttarins eru unglingalandsliðsmennirnir Kristian Hlynsson og Orri Steinn Óskarsson sem báðir eru sautján ára, fæddir 2004. Kristan er í herbúðum Ajax og skoraði á dögunum sitt fyrsta mark fyrir aðallið félagsins. Orri er hjá FCK í Danmörku þar sem hann hefur raðað inn mörkum fyrir unglingaliðið og verið orðaður við stórlið í Evrópu. Arnar Laufdal Arnarsson heldur um stjórnartaumana í þættinum og gestastjór...
Dec 22, 2021
Hinn árlegi uppgjörsþáttur á X977. Elvar Geir, Tómas Þór og Benni Bóas gera upp fótboltaárið 2021, bæði hér heima og erlendis. Veitt eru verðlaun í fjölmörgum flokkum. Frekari orð eru óþörf! Gleðilega hátíð!
Dec 18, 2021
Sjö leikir fóru fram í liðinni umferð, þremur leikjum var frestað. Fjölmiðlamaðurinn Máni Pétursson er mikill Leedsari og landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson er stuðningsmaður City. Hluti þáttarins fór í að ræða þessi tvö lið og svo farið yfir þá leiki sem voru spilaðir. Það er Sæbjörn Steinke sem stýrir þættinum. Þátturinn er í boði Domino's.
Dec 17, 2021
Gylfi Tryggvason gaf sér tíma til að mæta í sitt eigið podcast eftir að hafa mátt þola háðsglósur á netinu í vikunni. Hann og Aron fóru yfir stóru málin í umferð 16 og það sem er framundan í Fantasy heimum. - Er Maddison í forgangi? - Hvernig er best að fá stig á bekkinn? - Á að nota triple captain í næstu umferð?
Dec 13, 2021
Vítaumferðin mikla fór fram um helgina og voru vítadómarnir fyrirferðamiklir í þætti dagsins. Þeir Eiður Ben Eiríksson, þjálfari Þróttar Vogum, og Gunnar Gunnarsson, leikmaður Fram, fóru yfir málin með Sæbirni Steinke. Eiður var með kenningu um drættina hjá UEFA og Gunnar þurfti að taka það á sig að hrósa leikmanni United. Eiður átti þá samlíkingu dagsins sem tengdist vítaspyrnu Liverpool. Þátturinn í dag var í boði Domino's, Fast próteinstykkjanna og Celsius orkudrykksins.
Dec 13, 2021
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 11. desember. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið yfir helstu fótboltafréttir vikunnar og hringt til Kóngsins Lyngby og spjallað við Frey Alexandersson en komið er vetrarhlé í dönsku deildinni. Rætt er við Daníel Geir Moritz, eiganda ÍBV. Vestmannaeyingar hafa verið að styrkja sig og þá stefna þeir á að leggja gervigras á heimavöll sinn. Gestur þáttarins er miðjumaðurinn Emil Pálsson sem fór í hjartastopp en var endurlífgaður í leik með Sogndal í Noregi á ...
Dec 11, 2021
Strákarnir í Ástríðunni, Sverrir Mar, Gylfi Tryggva og Óskar Smári, hittust og spjölluðu um allt sem tengist 2. og 3. deild karla í fótbolta og það sem tengist þeim ekki neitt. Meðal umræðuefna voru öll helstu félagaskipti liða í deildunum, þjálfaramál, sameining Leiknis F. og Fjarðabyggðar, óeining í Kormáki/Hvöt og hvaða lið eru ný í deildunum. Einnig tilkynntu þeir Bola-Mann Ársins í ástríðunni og Sverrir Mar sagði skemmtilega frá frægðarför Óskars Smára í MK. Þátturinn er í boði Bola og Ölge...
Dec 11, 2021
Lögreglan hefur á undanförnum dögum heimsótt bæði forseta Sampdoria og höfuðstöðvar Juventus. Hvers vegna? Roma tapar illa gegn Internazionale sem er allt í einu orðið líklegasta liðið til að vinna titilinn og Íslendingaliðið Venezia tapar illa í Veneto-nágrannaslagnu eftir að hafa komist 3-0 yfir. Þetta og fleira í ítalska boltanum, þar sem Íslendingum finnst skemmtilegast að spila. Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson er umsjónarmaður....
Dec 09, 2021
Aron, Gunni og Heiðmar gerðu upp 15. umferðina í Fantasy Premier League. Aron var dapur, Gunni var með dólg og Heiðmar skipti einum Tottenham manni út fyrir annan. Strákarnir fengu flóð af spurningum, rýndu í lið Manchester United, reyndu að skera úr um besta kostinn á miðju Man. City og reyndu að velja annan fyrirliða en Salah.
Dec 08, 2021
Fimmtánda umferð ensku úrvalsdeildarinnar fór fram um helgina, umferðin kláraðist með leik Everton og Arsenal í gær. Guðmundur Gunnar Guðmundsson er stuðningsmaður Arsenal, Ingimar Helgi Finnsson er stuðningsmaður Tottenham og Tómas Steindórsson er stuðningsmaður West Ham. Farið var yfir umferðina, Antonio Conte og þurrkur Harry Kane komu við sögu, verðmiðinn á Jarrod Bowen og Declan Rice og loks Arsenal og Mikel Arteta. Þátturinn er í boði Domino's.
Dec 07, 2021
Útvarpsþátturinn 4. desember. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Fréttir vikunnar, ferðasaga úr enska boltanum, Jón Daði Böðvarsson í viðtali og Gunnlaugur Jónsson ræðir um sjónvarpsþættina Víkingar.
Dec 04, 2021
Íslenska landsliðið er í bílstjórasætinu í undankeppni HM eftir stóran útisigur á Kýpur – en þjóðin vildi fleiri mörk. Gullknötturinn var afhentur í þriðja skipti í kvennaflokki og fór til Barcelona. Þá var haldið hér á landi alþjóðlegt fótboltamót sem snerist um svo margt annað en bara fótbolta, Global Goals World Cup. Gestir okkar í dag eru fyrrverandi og núverandi knattspyrnukonurnar Guðrún Valdís Jónsdóttir og Kristín Sverrisdóttir sem eru í hópi ungra athafnakvenna sem skipulögðu mótið.
Dec 01, 2021
Þáttur vikunnar af Fantabrögðum var eingöngu skipaður Íslandsmeisturum í Fantasy, því það voru Gunni og Heiðmar sem tækluðu umferð 13. Þeir áttu ekki góðar umferðir af ýmsum ástæðum en fóru yfir allt það helsta, m.a. Marcos Alonso, Diogo Jota, hvað á að vera með marga spilandi á bekknum um jólin? Fantabrögð eru í boði hlustenda sem styrkja Fantabrögð á patreon.com/fantabrogd. Einnig í boði Nemíu og Massabón.
Nov 30, 2021
Níu leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Leik Burnley og Tottenham var frestað. Félagarnir Jóhann Már Helgason og Orri Freyr Rúnarsson fara yfir umferðina, Sæbjörn Steinke stýrir þættinum. Byrjað er á viðureign Arsenal og Newcastle og þaðan unnið sig í gegnum umferðina þar til kemur að lokaleiknum, stórleik Chelsea og Manchester United. Jói er Chelsea maður og Orri er United maður og eru málefni liðanna rædd. Hvernig mun Rangnick spila? Verður Ronaldo hafður á bekknum? Er Werner ...
Nov 29, 2021
Útvarpsþátturinn 27. nóvember. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Fótboltafréttir vikunnar. Tryggvi Páll Tryggvason, fréttamaður og sérfræðingur um Manchester United, ræðir um komu Ralf Rangnick á Old Trafford. Björn Berg Gunnarsson ræðir um Peninga. Hann var að gefa út bók fyrir jólabókaflóðið og í spjalli við hann er meðal annars talað um peningana í kringum boltann, Ronaldo, HM í Katar og fleira.
Nov 27, 2021
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Arnar Laufdal kemur með mjög spennandi slúðurpakka um unga og efnilega leikmenn á Íslandi þar sem stórar fréttir líta dagsins ljós. Drengirnir fjalla um Victor Kristiansen (FCK) sem er enn einn spennandi leiknaðurinn úr verksmiðju Kaupmannahafnar og Samuele Ricci (Empoli) sem hefur verið orðaður vi...
Nov 27, 2021
Fantasy snýst um bakverði. Bakverði og aftur bakverði. Ásgeir og Aron mættu í stúdíóið og ræddu það sem skiptir máli í Fantasy í dag - varnarmenn. Ásgeir viðurkenndi að hafa brotið vinnureglur og Aron tók hálfan þáttinn í að þylja upp stig af bekknum. Ekkert nýtt undir sólinni þar. - Af hverju keyptum við Bryan Mbeumo? - Hvað er Jota búinn að fá í bónus á leiktíðinni? - Af hverju er Benteke besti framherjinn í dag? - Raphinha hringir sig inn veikan
Nov 23, 2021
Tólfta umferð ensku úrvalsdeildarinnar fór fram um helgina. Sæbjörn Steinke fékk Keflvíkingana Ástbjörn Þórðason og Rúnar Þór Sigurgeirsson með sér til að fara yfir umferðina. Ástbjörn er stuðningsmaður Liverpool og Rúnar er stuðningsmaður Arsenal. Hvaða lið endar í topp fjórum? Getur Norwich haldið sér uppi? Reece James eða Trent Alexander-Arnold og margt fleira. Í gær kom út aukaþáttur þar sem eingöngu var rætt um Manchester United og er hægt að nálgast þann þátt í hlaðvarspforritum og á Fótbo...
Nov 22, 2021
Ole Gunnar Solskjær var látinn taka pokann sinn í morgun eftir tæp þrjú ár í starfi hjá Manchester United. Fótbolti.net ákvað að taka aukaþátt þar sem rætt var um Manchester United. BÁN teymið; þeir Sæbjörn Steinke, Aksentije Milisic og Egill Sigfússon ræddu um United. Hver tekur við? Af hverju var Ole einn látinn fara? Af hverju ekki fyrr? Hver á að taka við? Síðasti naglinn í kistuna og margt fleira á rúmlega 40 mínútum.
Nov 21, 2021
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 20. nóvember. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Benedikt Bóas fara yfir það helsta í boltanum. Leikmannaskipti, íslenska landsliðið, undankeppni HM, stjóramálin í enska og fleira til umfjöllunar. Vanda Sigurgeirsdóttir formaður KSÍ er í viðtali, Kristján Atli ræðir um enska boltann, Þóroddur Hjaltalín um dómaramál og Sævar Pétursson um afreksþjálfun á Íslandi.
Nov 20, 2021
Birkir Már Sævarsson lagði landsliðsskóna á hilluna á sunnudag. Birkir Már lék 103 landsleiki og fór með íslenska liðinu á tvö stórmót. Hann var fastamaður í liðinu um árabil. Birkir fer yfir ferilinn með landsliðinu, aðallega gullaldarárin, og ferilinn til þessa með landsliðinu. Það var Sæbjörn Steinke sem ræddi við Birki.
Nov 17, 2021
Landsliðskonurnar Agla María Albertsdóttir og Telma Ívarsdóttir eru gestir Heimavallarins að þessu sinni. Þær standa í ströngu með Breiðabliki í Meistaradeild Evrópu og A-landsliðinu okkar sem ætlar sér á HM. Knattspyrnukonurnar öflugu fara yfir allt það helsta í haustprógramminu og margt fleira.
Nov 15, 2021
Eftir áralanga dvöl í óbyggðunum mættust stálin stinn í dag þegar Gunni og Gylfi, umdeilanlega þeir bestu í bransanum, fóru yfir 11. umferð og margt annað. Lífið er lag sem þeir sungu saman tveir. Eins og alltaf. Dýrir varnarmenn eru betri en dýrir miðjumenn. Arsenal eru bestir. Antonio er ekki allur þar sem hann er séður. Salah rýfur 400 stiga múrinn og Reece James skorar 29,8 mörk í vetur. Ef þú, hlustandi góður, kannt að meta Fantabrögð máttu endilega styðja við hlaðvarpið með því að smella &...
Nov 13, 2021
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 13. nóvember. Þorlákur Árnason, þjálfari Þórs og fyrrum starfsmaður KSÍ, gerir upp landsleikinn gegn Rúmenum og horfir til framtíðar. Jón Rúnar Halldórsson, stjórnarmaður í ÍTF, er gestur þáttarins. Rætt er við hann um breytingar á íslensku deildinni, sjónvarpssamninga og fleira tengt íslenska boltanum. Þá fara Elvar Geir og Tómas Þór yfir fótboltafréttir vikunnar, bæði innlendar og erlendar.
Nov 13, 2021
Það er komið landsleikjafrí í ensku úrvalsdeildinni. Tólfta umferðin fór fram um helgina og var farið yfir það helsta. Manchester City rústaði grönnum sínum í United, en þó einungis með tveimur mörkum. Liverpool lá gegn West Ham og tveir stjórar voru reknir. Hverjir taka við Norwich og Aston Villa? Þeir Tómas Þór Þórðarson, ritstjóri enska boltans á Símanum og þjálfarinn Óskar Smári Haraldsson fóru yfir það helsta með Sæbirni Steinke. Enski boltinn er í boði Dominos.
Nov 09, 2021
Davíð Snorri Jónasson þjálfari U21 landsliðsins valdi í síðustu viku hóp fyrir tvo leiki sem framundan eru. Ísland mætir Liectenstein næsta föstudag og Grikklandi þriðjudaginn 16. nóvember. Báðir leikirnir eru liður í undankeppni EM 2023. Davíð var í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net og ræddi um komandi leiki og riðil Íslands.
Nov 08, 2021