Aukaþing KSÍ fer fram laugardaginn 2. október næstkomandi en þar verður ný bráðabirgðastjórn og nýr bráðabirgðaformaður kosin. Þingið fer fram á Hilton Reykjavík Nordica-hótelinu á Suðurlandsbraut. Frestur til að skila inn framboðum er til miðnættis í kvöld. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu við Þóri Hákonarson, fyrrum framkvæmdastjóra KSÍ og sérfræðing útvarpsþáttarins í fótboltapólitíki, um komandi þing.
Sep 25, 2021
Það er mikil spenna fyrir lokaumferð Pepsi Max-deildarinnar. Víkingur eða Breiðablik verður Íslandsmeistari og hörð barátta er um að forðast það að falla með Fylki. Auk þess er spenna í baráttunni um þriðja sætið sem gæti gefið þátttökurétt í Evrópukeppni, ef Víkingur mun vinna bikarinn. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson skoða leikina í lokaumferðinni. Þetta er upptaka fyrir útvarpsþáttinn Fótbolti.net sem verður í loftinu á morgun.
Sep 24, 2021
Íslendingur trónir á toppnum í Íslendingadeildinni Serie B með fullt hús stiga. Bandarískum eigendum fjölgar enn á Ítalíu. Hjátrú skilaði nýliðum sínum fyrstu stigum í efstu deild og Juventus er hægt og rólega að ná vopnum sínum á nýjan leik.
Sep 24, 2021
Landsleikurinn gegn Hollandi, framtíðin og 2. deild eiga hug og hjörtu Heimavallarins að þessu sinni. Knattspyrnuþjálfarinn Margrét Magnúsdóttir mætir og fer yfir allt það helsta ásamt þeim Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur. Rýnt verður í landsleikinn og Margrét tippar á nokkrar framtíðartsjörnur. Þá verður farið yfir lið og leikmenn ársins í 2. deild en þjálfarar og fyrirliðar félaga í deildinni sjá um valið sem birtist á Fótbolta.net.
Sep 24, 2021
Aron, Ásgeir og Gylfi mættu í dag að henda boltum á milli. Að selja eða ekki selja? Það er efinn. Þrjár sterkustu varnir deildarinnar halda áfram að hala inn stigum. Salah er besti Fantasy leikmaðurinn um þessar mundir. Adama Traore er það ekki. Bara alls ekki. Meðal umræðuefnis í dag er hvaða Chelsea varnarmaður er bestur, hvaða leikkerfi er best, hvernig á maður að spila Ronaldo/Lukaku leikinn og samstilltur tíðahringur kvenna. Ef þú, hlustandi góður, kannt að meta Fantabrögð máttu endilega st...
Sep 22, 2021
Enski boltinn er snúinn aftur eftir leyfi. Sæbjörn Steinke fékk til sín tvo Framara og var farið vel yfir umferðina um helgina og áhugaverðir leikmenn teknir fyrir. Spjallið er ítarlegt en fyrir þá sem vilja alls ekki hlusta á Indriða Áka Þorláksson og Gunnar Gunnarsson tala um gott tímabil með Fram geta spólað fram á 13. mínútu og hlustað á spjall um enska frá þeim tímapunkti.
Sep 21, 2021
Sverrir Mar og Gylfi Tryggva fengu Gunnar Heiðar Þorvaldsson, þjálfara KFS, til sín í spjall. KFS fengu 4 stig úr fyrstu 8 leikjum sumarsins áður en allt snérist við og endaði liðið í 6. sæti deildarinnar með 34 stig, 7 stigum frá 2. sæti. Meðal annars ræða þeir við Gunnar Heiðar um leikstíl og uppbyggingu liðsins, hvernig gekk að halda trúnni á verkefnið, upphafið á þjálfaraferli Gunnars Heiðars og mögulega framtíð hans í fótboltanum. Einnig komu þeir inn á Dr. Hjalta, the BoomBoom room og flei...
Sep 21, 2021
Það er farið að hausta og komið að því að gera upp Lengjudeildina. Úrvalslið deildarinnar verður opinberað en það er valið af þjálfurum og fyrirliðum. Þá verður farið yfir ýmislegt eftirtektar- og eftirminnilegt frá fótboltasumrinu. Það verður gert ásamt sigurreifum gestum úr deildinni. Þeim Rebekku Sverrisdóttur sem vann deildina með KR og Guðrúnu Elísabetu Björgvinsdóttur sem gat ekki hætt að skora og skaut Aftureldingu upp í Pepsi Max.
Sep 21, 2021
Velkomin með okkur í Innkastið þegar aðeins sjö leikir eru eftir af Pepsi Max-deildinni. Um næstu helgi verður lokaumferðin og gera má ráð fyrir svakalegri spennu. Elvar Geir Magnússon, Ingólfur Sigurðsson og Sverrir Mar Smárason fara yfir allt það helsta á svakalegum sunnudegi í Pepsi Max-deildinni. Meðal efnis: Vítaklúðrin og dramatíkin, dómarar í sviðsljósinu, handrit Kára og Sölva, Fylkir fékk alvöru skell á Akranesi, KV komið upp í Lengjudeildina.
Sep 20, 2021
Sverrir Mar og Gylfi Tryggva mættu í hljóðverið og fóru yfir leiki liðinnar helgar sem jafnframt voru þeir síðustu í ár. KV og Völsungur unnu bæði sína leiki en KV fylgja Vogunum upp í Lengjudeild. Ægismenn fara upp úr 3.deild á fleiri skoruðum mörkum og ÍH heldur sér í deildinni á markatölu. Tindastóll og Einherji fallin niður í 4.deild. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport, Sóma safanna, Nemíu og Tryggja.is. Hlustaðu í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spoti...
Sep 20, 2021
Útvarpsþátturinn 18. september. Elvar Geir, Tómas Þór og Úlfur Blandon fara yfir íslenska boltann. Farið er yfir Lengjudeildarverðlaunin og rætt um slúðrið í íslenska boltanum, Mjólkurbikarinn og komandi umferð í Pepsi Max. Besti leikmaður Lengjudeildarinnar er á línunni.
Sep 18, 2021
Szczesny kostar Juventus stig, leigumorðinginn Ballardini þorir að rífa í gikkinn og Serbarnir tveir gefa Fiorentina von um bjarta framtíð með blóm í haga. Pisa fer vel af stað í Íslendingadeildinni Serie B og Alberto Gilardino kennir Óttari Magnúsi markaskorun í einni af fallegustu borgum Ítalíu. Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson er umsjónarmaður.
Sep 17, 2021
Fyrir þá sem misstu af því er Ronaldo byrjaður aftur að leika knattspyrnu fyrir Manchester United. Hann er flottur strákur og skoraði tvö mörk. Salah og Mané eru smábörn en skoruðu báðir. Hvaða áhrif hefur Ronaldo á menn eins og Greenwood og Pogba? Hvað gerum við þegar bestu varnir deildarinnar eru jafnframt þær óútreiknanlegustu með tilliti til leikmannavals? Hið villta spil var virkjað af þátttakanda þáttarins og Arsenal eru óvænt aftur orðnir topplið. Þetta og margt fleira í þættinum í dag.
Sep 15, 2021
Sverrir Mar og Gylfi Tryggva mættu í hljóðverið og fóru yfir leiki liðinnar helgar. Húsavík nötraði úr spennu þegar Völsungur og KV skildu jöfn. Stressið tók yfir hjá Njarðvík. Spennan fyrir lokaumferðina er rosaleg. Höttur/Huginn tryggði sér toppsætið í 3. deild. Ægismenn réttu KFG keflið. Dalvíkingar urðu sér til skammar utan vallar. KFS tapaði leik! Augnablik tapaði ekki leik! Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport, Sóma safanna, Nemíu og Tryggja.is. Hlustaðu í spilaranum hér að...
Sep 14, 2021
Elvar Geir, Tómas Þór og Ingó Sig eru í Innkasti vikunnar. Leikir helgarinnar í Pepsi Max-deildinni eru gerðir upp og einnig er Lengjudeildin, 2. deild og Mjólkurbikarinn til umræðu. Breiðablik vann 3-0 sigur gegn Val og Víkingar unnu auðveldan sigur gegn HK. Tómas er búinn að reikna það út að HK og Fylkir falla úr deildinni.
Sep 13, 2021
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 11. september. Í þættinum: Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta í boltanum. Marteinn Ægisson, framkvæmdastjóri Þróttar í Vogum, er á línunni en liðið er komið upp í Lengjudeildina. Rafn Markús Vilbergsson og Sæbjörn Steinke fara yfir Lengjudeildina. Sverrir Örn Einarsson í beinni frá Vestmannaeyjum.
Sep 11, 2021
Það var aldeilis dramatískt fótboltakvöld í gær. Blikar skrifuðu söguna þegar þær skutu sér áfam í riðlakeppni Meistaradeildarinnar, fyrstar íslenskra liða. Úrslitin réðust uppbótartíma Lengjudeildarinnar. Afturelding fylgir KR upp í efstu deild og hlutskipti Gróttu og ÍA varð að falla. Úrslitaleikur 2. deildar er framundan, sem og lokaumferð Pepsi Max-deilar. Heimavöllurinn fer yfir þetta allt saman með frábærum gestum en þær Alexandra Bía Sumarliðadóttir, Sigríður Dröfn Auðunsdóttir og Helga K...
Sep 10, 2021
Eitt stig af níu mögulegum var niðurstaðan úr þungum landsleikjaglugga Íslands. Eftir 0-4 tap gegn Þýskalandi fóru Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Gunnar Birgisson yfir leikinn og landsleikjagluggann. Því miður var ekki nægilega mikið jákvætt hægt að taka úr þessum glugga. Einnig er rætt um U21 landsliðið og Gunni giskar á spennandi umferð í Pepsi Max-deildinni.
Sep 08, 2021
Sverrir Mar og Gylfi Tryggva mættu í hljóðverið og fóru yfir leiki liðinnar helgar. Kári og Fjarðabyggð eru staðfest fallin og Þróttur Vogum eru komnir upp úr 2. deild. Lokaumferðirnar í 3. deild verða MAGNAÐAR bæði á toppi og botni. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport, Sóma safanna, Nemíu og Tryggja.is. Hlustaðu í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.
Sep 07, 2021
Þeir bestu, Dr. Gunni og Hemson, mættu í hljóðverið. Þeir fóru yfir góð ráð sem hjálpa Fantasy stjórum að verða bestir. Öll bestu hlaðvörpin einkennast af góðu jafnvægi. Þess vegna ræstum við Aron úr fæðingarorlofi. Hann mætti í gífurlegu hormónaójafnvægi sem nýbakaður faðir en fyrst og fremst sem stuðningsmaður Arsenal. Fór þar yfir marga leikmenn Arsenal sem hlustendur geta sleppt því að kaupa. Ef þú, hlustandi góður, kannt að meta Fantabrögð máttu endilega styðja við hlaðvarpið með því að sme...
Sep 06, 2021
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum þætti er fjallað um Gavi (Barcelona) og Lucas Gourna-Douath (Saint Etienne). Fjallað var um íslenska U-21 landsliðið sem og undankeppni EM U-21, hver hefur verið besti ungi leikmaður Pepsi-Max og margt fleira.
Sep 06, 2021
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 4. september. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Bjarni Guðjónsson, framkvæmdastjóri KR, er gestur. Rætt er um landsleikinn gegn Rúmeníu og komandi leiki. Fréttamannafundur Arnars Þórs Viðarssonar var í beinni. Þá er rætt um íslenska boltann og Magnús Valur Böðvarsson var á línunni.
Sep 04, 2021
Það er nóg um að vera í boltanum núna þegar deildarkeppnirnar hér heima eru að klárast, Blikar eru í dauðafæri í Meistaradeildinni og það er landsleikur framundan. Heimavöllurinn fær til sín góða gesti til að fara yfir þetta allt saman en það eru knattspyrnuþjálfarinn Aníta Lísa Svansdóttir og íþróttafréttamaðurinn Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson.
Sep 03, 2021
Sverrir Mar og Gylfi Tryggva mættu í hljóðverið og fóru yfir leiki liðinnar helgar. Augnablik tapar og tapar á meðan allt er grænt hjá KFS. Völsungur gerir sig meira og meira gildandi í toppbaráttunni í 2.deild. Hvaða lið fara upp? Hvaða lið fara niður? Þetta og margt fleira var rætt í stútfullum þætti Ástríðunnar. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna. Hlustaðu í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.
Aug 31, 2021
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra Íslands, og Ágúst Reynir Þorsteinsson, eigandi Bombay Bazaar eru gestir vikunnar í hlaðvarpsþættinum Enski Boltinn. Guðlaugur Þór er stuðningsmaður Liverpool og Ágúst heldur með Chelsea. Þessi lið áttust við í stórleik helgarinnar og enduðu leikar með jafntefli. Þátturinn er langt boltaspjalli þar sem er rætt um stórleikinn og aðra leiki helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.
Aug 30, 2021
Innkast vikunnar. Fjallað er um hreinsunina hjá KSÍ, 19. umferð Pepsi Max-deildarinnar og einnig litið í Lengjudeildina og 2. deildina. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Ingólfur Sigurðsson eru í þætti dagsins. Meðal efnis: Kallað eftir stjórnarskiptum hjá KSÍ, þjálfaraskipti í Árbænum?, Blikar í sjöunda himni, Valsmenn að stimpla sig út, FH fær mikið hrós eftir tap gegn Víkingi, skemmtun í Vesturbæ, glórulaus dómur í Kórnum, pirraðir Skagamenn, Lengjudeildarhornið og svakaleg spenna ...
Aug 30, 2021
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 28. ágúst. Íþróttafréttamenn fara yfir fótboltafréttir vikunnar og af nægu er að taka. Elvar Geir Magnússon, Benedikt Bóas Hinriksson og Henry Birgir Gunnarsson í þætti vikunnar. Spjótin beinast að forystu KSÍ sem verst alvarlegum ásökunum, áhugaverður landsliðshópur var kynntur í vikunni og andrúmsloftið á fréttamannafundinum var óhefðbundið, framundan eru þrír landsleikir á Laugardalsvelli í undankeppni HM. Þá er rætt um endurkomu Cristiano Ron...
Aug 28, 2021
Farið er yfir yfirvofandi ljótan skilnað Juventus og Ronaldo, fyrsta umferðin í Serie A er gerð upp og hitað er upp fyrir ítalska kvennaboltann þar sem við Íslendingar munum eiga að minnsta kosti tvo fulltrúa í vetur. Ítalski boltinn - þar sem Íslendingum finnst skemmtilegast að spila. Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson er umsjónarmaður.
Aug 27, 2021
Óskar Smári mætti í hljóðverið þar sem farið var yfir málin. Lokaspretturinn er framundan í 2. og 3. deild. Farið var yfir ýmsar ráðgátur, eins og Hauka og Tindastól. Hvers vegna er allt í rugli hjá þeim? Hvað ætla þau að gera til að laga þetta? Hvaða lið fara upp? Hvaða lið fara niður? Þetta og margt fleira var rætt í stútfullum þætti Ástríðunnar. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna. Hlustaðu í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.
Aug 26, 2021
Antonio er kóngurinn og það er ekkert meira um það að segja. Ódýrir miðjumenn gera Lukaku að freistingu sem erfitt verður að standast. Sætasta stelpan á ballinu mætir alltaf seint á ballið. Hið villta spil á ekki að virkja núna. Hlutirnir eru ekki allir eins og þeir sýnast. Allt þetta var rætt í þættinum og meira til. Ef þú, hlustandi góður, kannt að meta Fantabrögð máttu endilega styðja við hlaðvarpið með því að smella <a href="http://www.patreon.com/fantabrogd" target="_blank">hér</a&...
Aug 25, 2021