Fotbolti.net - podcast cover

Fotbolti.net

Fotbolti.netfotbolti.net
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Útvarpsþátturinn - Stórleikurinn, Rooney og íslenski

Útvarpsþátturinn 16. janúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í fyrri hluta þáttarins: Rætt um feril Wayne Rooney og fjallað um íslenska boltann. Rætt var við Ágúst Gylfason, þjálfara Gróttu, og Orra Frey Hjaltalín, nýjan þjálfara Þórs. Í seinni hlutanum: Enska hringborðið. Hitað upp fyrir stórleik Liverpool og Manchester United. Gestir: Einar Matthías Kristjánsson á kop.is og Þorsteinn Hjálmsson á raududjoflarnir.is.

Jan 16, 2021

Fantabrögð - Allt í skrúfunni fyrir tvöfalda umferð

Umferð 18 er að baki í Fantasy Premier League og við tekur umferð 19. Margir notuðu Free Hit í 18 umferð enda lítið af leikjum og nú er spurning hvort það taki því að nota Bench Boost eða Triple Captain í þeirri 19. Fer leikur Leeds og Southampton fram eða ekki? Á maður að þora að tiple captaina De Bruyne? Hvaða þrjá West Ham menn á að vera með? Hvað með Salah og Liverpool? Þetta og allt annað í nýjasta þættinum af Fantabrögðum. Hlustendur þurfa að hafa hraðar hendur því fresturinn lokar kl. 11 ...

Jan 15, 2021

Enski boltinn - Tekist á fyrir stórleik ársins

Liverpool og Manchester United mætast í toppslag í ensku úrvalsdeildinni á Anfield á sunnudaginn. Hörður Magnússon og Magnús Gylfason fylgjast með hverju sparki hjá sínum liðum og þeir mættu í spjall í dag þar sem hitað var upp fyrir leik helgarinnar. Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og Domino's sem bjóða upp á þáttinn. Meðal efnis: Stórleikurinn á sunnudag, dauðafæri fyrir Manchester United, frelsarinn Klopp, Bailly eins og Song, meiðslapjakkurinn Matip, banter, fólskuleg líkamsárás, ...

Jan 14, 2021

Ítalski boltinn - Róm - höfuðborg alheimsins

Í þætti vikunnar verður farið yfir umferð síðustu umferð þar sem Juventus marði sigur á spræku Sassuolo-liði og Inter og Roma gerðu jafntefli í toppslag umferðarinnar. Framundan er stór helgi í ítalska boltanum. Lazio og Roma eigast við í hörðum nágrannaslag og Juventus og Inter mætast í „Derby d'Italia". B-deildin fer af stað aftur eftir stutt hlé um síðustu helgi og þær fregnir voru að berast að Hólmbert Aron Friðjónsson var að missa keppinaut um framherjastöðuna í Brescia. Ítalski boltinn er ...

Jan 14, 2021

Ungstirnin - Heimsókn úr Breiðholti og íslensk ungstirni seld út

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum tólfta þætti er fjallað um Ilaix Moriba (Barcelona), Pierre Dwomoh (Genk) og Benoit Badashile (Mónakó) Rætt var um félagaskipti ungra íslenskra leikmanna en Finnur Tómas, Karólína Lea og Sveindís Jane hafa öll verið seld út í atvinnumennskuna á síðustu dögum. Drengirnir búa báðir til úrval...

Jan 13, 2021

Útvarpsþátturinn - Óli Kristjáns, Emil og enski

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 9. janúar. Elvar Geir og Tómas Þór fóru yfir fréttir vikunnar og tóku svo upp símann og ræddu við góða viðmælendur. Ólafur Kristjánsson, þjálfari Esbjerg, ræddi um lífið í Danmörku og það góða skrið sem hans lið hefur verið á en það trónir á toppi B-deildarinnar. Emil Pálsson ræddi um sín mál en hann ætlar að takast á við nýja áskorun á sínum ferli eftir þrjú ár hjá Sandefjord. Gylfi Sigurðsson umboðsmaður var líka á línunni og gaf hlustendum inn...

Jan 09, 2021

Ítalski boltinn - Toppliðin tapa stigum, Juve hrekkur í gang og nýr bad boy tekur við af Balotelli

Í þætti vikunnar verður farið yfir umferð vikunnar þar sem Juventus vann toppslaginn gegn AC Milan sem tapar sínum fyrsta leik síðan í mars. Inter og Napoli tapa óvænt stigum og ungstirnið Nicolo Zaniolo er með hjálp móður sinnar að taka við af Balotelli sem óþekki strákur ítalska boltans. Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson mun í vetur gera reglulega þætti þar sem hann fer yfir það sem er að gerast í ítalska boltanum. Verður fjallað um ...

Jan 08, 2021

Fantabrögð - Free Hiti í mönnum

Fyrsti þáttur Fantabragða á árinu 2021 var heldur betur viðburðaríkur. Aron og Gunni mættu í stúdíóið og fóru yfir umferð 17 auk þess að spá í spilin fyrir umferðir 18 og 19 sem liggja saman og krefjast nokkurrar íhugunar, enda liðin með mismarga leiki. Meðal efnis í þættinum: -Markmannarússíbaninn -Er Dominic Alveg-Búinn? -Hvaða leikmenn eru skyldueign í Free Hit lið í 18. umferð? -Hvaða lið eiga bestu leikina í tvöföldu umferðinni (19)? -Er möst að kaupa Kevin De Bruyne? -Á að selja Salah?...

Jan 05, 2021

Enski boltinn - Manchester liðin í stuði

Það hefur verið líf og fjör í ensku úrvalsdeildinni að undanförnu og farið var yfir gang mála í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" á Fótbolta.net í dag. Hlynur Valsson og Gunnar Ormslev, lýsendur á Síminn Sport, voru gestir þáttarins að þessu sinni. Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og Domino's sem bjóða upp á þáttinn. Meðal efnis: Kórónuveiran truflaði ekki Manchester City, náðugt í fyrsta leik Steffen, taflan ójöfn, Lampard fær lengri tíma, Man Utd á flugi, Pogba kominn í gang, Bruno F...

Jan 04, 2021

Útvarpsþátturinn - Man Utd upp að hlið Liverpool og Alex til Svíþjóðar

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 2. janúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í þætti dagsins var rætt við Tryggva Pál Tryggvason fréttamann og sérfræðing um Manchester United um enska boltann en United er komið upp að hlið Liverpool á toppi deildarinnar. Einnig var Alex Þór Hauksson í viðtali en hann er að yfirgefa Stjörnuna og halda til Svíþjóðar. Þá var rætt við Gunnar Einarsson sem tók í vetur við þjálfun Víkings í Ólafsvík.

Jan 02, 2021

Áramótabomba Heimavallarins - Glerþök mölvuð

Árinu 2020 er að ljúka og Heimavöllurinn hendir í áramótauppgjörsþátt af því tilefni. Gestir: Sveindís Jane, Ingibjörg Sigurðardóttir og Vanda Sigurgeirsdóttir. Hápunkti ársins var náð á þriðjudagskvöldið þegar íslenskar knattspyrnukonur komu, sáu og sigruðu í kjöri á íþróttamanni, þjálfara og liði ársins. Heimavöllurinn fer yfir allt það helsta og heyrir í mögnuðum gestum. Nýjasta atvinnukonan okkar, Sveindís Jane, segir frá félagaskiptunum til þýsku risanna í Wolfsburg. Ingibjörg Sigurðardótti...

Dec 31, 2020

Fantabrögð - Árið kvatt á viðeigandi hátt

Hlustendur eru reiðir. Þessi umferð var ömurleg og það er ekkert um það annað að segja. Aron var lítill í sér heima en GT geitin og Sá besti reyndu að binda um sár hvor annars og hugga hlustendur. Við Fantar viljum nýta tækifærið og þakka fyrir árið sem er að líða. Megi næsta ár verða okkur gæfuríkt og betra að öllu leyti.

Dec 31, 2020

Ungstirnin - Jón Dagur og Alfons takast á

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum ellefta þætti er fjallað um Charles De Ketelaere (Club Brugge), Amad Diallo (Man United) og Rayan Cherki (Lyon) Drengirnir búa báðir til úrvalslið úr leikmönnum sem eru fæddir árið 2002. Jón Dagur Þorsteinsson og Alfons Sampsted leikmenn AGF og Bodø/Glimt eru gestir í þættinum, drengirnir ...

Dec 28, 2020

Útvarpsþátturinn - Áramótakæfan 2020

Hátíðarútgáfa útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977, síðasti þátturinn á árinu 2020! Elvar Geir, Tómas Þór, Benedikt Bóas og Magnús Már gera upp fótboltaárið 2020 á léttu nótunum og veita verðlaun í ýmsum misgáfulegum flokkum. Rætt er við Gary Martin, Sóla Hólm og Patrik Gunnarsson og gleðin að vopni.

Dec 26, 2020

Fantabrögð - Sá besti á bekknum

Það var tilfinningarússíbani hjá Fantasy þjálfurum þessa helgi þegar Mohamed Salah byrjaði á bekknum hjá Liverpool. Margir voru farnir að horfa uppá að þurfa að treysta á varafyrirliðann, en Salah kom inná og skilaði 16 stigum, eins og GT geitin hafði spáð. Fantabrögð ákváðu að leika þetta eftir og Sá besti - Gunnar Björn Ólafsson var því hvíldur á bekknum í þessum þætti. Aron ofhugsaði fyrirliðavalið sitt og þurfti að gjalda fyrir það. Bruno fékk 17 stig og Grealish 10 meðal annars. Son og Kane...

Dec 22, 2020

Útvarpsþátturinn - Jólaþáttur: Ari Freyr og Heimir Guðjóns

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 19. desember. Síðasti þáttur fyrir jól. Í fyrri hlutanum ræða Elvar Geir og Tómas Þór um fótboltann í Katar, íslenskar fréttir og hringja í Ara Frey Skúlason landsliðsmann. Meðal annars er rætt um framtíðina hjá honum, tilfinningarnar á Wembley og Lagerback. Í seinni hlutanum er ítarlegt og áhugavert spjall við Heimi Guðjónsson, þjálfara Íslandsmeistara Vals. Rætt er um liðið tímabil hjá Valsmönnum, íslenska og færeyska boltann, landsliðið og ýmislegt fleira.

Dec 19, 2020

Enski boltinn - Taktík Tottenham og nakti keisarinn

Hlaðvarpsþátturinn „Enski boltinn" er á sínum stað í dag líkt og eftir allar umferðir í ensku úrvalsdeildinni. Hjálmar Örn Jóhannsson og Ingimar Helgi Finnsson, stuðningsmenn Totttenham og Vignir Már Eiðsson, stuðningsmaður Arsenal, kíktu á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fóru yfir leiki vikunnar. Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og Domino's sem bjóða upp á þáttinn.

Dec 17, 2020

Ítalski boltinn - Paolo Rossi kvaddur og leikmenn þvingaðir í æfingabúðir

Paolo Rossi er fallinn frá og því er farið ítarlega yfir hans feril í þessum áttunda þætti ítalska boltans. Íslendingarnir eru farnir að láta til sín taka á nýjan leik eftir erfiðar vikur, félög eru farin að loka leikmennina sína inni á æfingasvæðinu yfir jólin og Ronaldo skorar út vítaspyrnum. Allt er eins og það á að vera á Ítalíu. Í þætti vikunnar verður líka farið yfir 10 efnilegustu leikmenn Serie-A að mati Björns. Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. ...

Dec 17, 2020

Enski boltinn - Gylfi í stuði og toppbaráttan harðnar

Hlaðvarpsþátturinn „Enski boltinn" er á sínum stað í dag líkt og eftir allar helgar í ensku úrvalsdeildinni. Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, og Orri Freyr Rúnarsson, útvarpsmaður á Rás 2 og stuðningsmaður Manchester United, fóru yfir leiki helgarinnar að þessu sinni. Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og Domino's sem bjóða upp á þáttinn.

Dec 14, 2020

Ungstirnin - Ísak Bergmann er gestur

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum tíunda þætti er fjallað um Karim Adeyemi (RB Salzburg), Nuno Mendes (Sporting) og Kang-in Lee (Valencia). Drengirnir bjuggu báðir til úrvalslið úr leikmönnum sem eru fæddir árið 2001. Hinn sautján ára Ísak Bergmann Jóhannesson, leikmaður Norrköping, er gestur þáttarins að þessu sinni. Ísak...

Dec 14, 2020

Fantabrögð - Vardy party

Dominic er aaalveg að verða búinn. Það eru nýir svipustrákar í bænum. Styttist í jólatörnina og áfram höldum við að undirbúa okkar lið fyrir hana. Við myndum bæta við að Son og Kane hafi haldið áfram að leggja upp mark hvor á annan en það er ekki lengur fréttnæmt svo við ætlum ekki að nefna það hér. Fantabrögð eru í boði Dominos, Teq Ísland, Nemíu og GÓ Training.

Dec 14, 2020

Útvarpsþátturinn - Fótbolti.net - Djúpar boltaumræður með Arnari og Arnari

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 12. desember. Umsjón: Tómas Þór og Elvar Geir, Fyrri hlutinn: Landsliðsumræður og rætt við Helga Kolviðsson, fyrrum aðstoðarþjálfara landsliðsins. Helgi er opinn fyrir því að snúa aftur til starfa fyrir KSÍ ef krafta hans er óskað. Seinni hlutinn: Rætt um leikfræði við Arnar Gunnlaugsson, þjálfara Víkings, og Arnar Hallsson, þjálfara ÍR. Spjallað var um hugmyndafræði stjóra í ensku úrvalsdeildinni, möguleika á framþróun í íslenskum fótbolta og landsliði...

Dec 12, 2020

Fantabrögð - Gyllta fimman og aðrar nauðsynjavörur

Vitringarnir þrír settust niður og ræddu framtíðina. Helstu lúxusleikmennirnir skiluðu allir sínu og nú sitja margir stjórarnir með höfuðverk. Stutt á milli umferða og jólatörnin á næsta leyti. Hvern er best að hafa? Og hvað með Dominic-Alveg-Búinn? Nóg af spurningum, nóg af svörum. Fantabrögð eru í boði Dominos, Teq Ísland, Nemíu og GÓ Training.

Dec 10, 2020

Ítalski boltinn - Íslendingur til Napoli eftir 107 ára bið!

Í þætti vikunnar snýst allt um nágrannaslagi. Torino tapar sem fyrr gegn nágrönnum sínum í Juventus og þjálfari Birkis og Hólmberts í Brescia fékk stígvélið daginn fyrir nágrannaslaginn mikla sem kenndur er við strengjahljóðfæri - Derby del violino. AC Milan heldur sigurgöngu sinni áfram, í leik þar sem Norðurlandabúar voru í aðalhlutverkum og íslendingar eiga knattspyrnumann í Napoli, 107 árum eftir að það gerðist síðast. Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltan...

Dec 09, 2020

Innkastið - Lokkandi riðill og óvissuástand í Laugardal

Fótbolti.net blæs í Innkast. Elvar Geir, Magnús Már og Gunnar Birgis ræddu málin. Farið var yfir riðil íslenska landsliðsins í undankeppni HM en dregið var í gær. Þýskaland, Rúmenía, Norður-Makedónía, Armenía og Liechtenstein eru í riðli Íslands. Þá var rætt um landsliðsþjálfaramálin og rennt yfir þá sem eru komnir og farnir í Pepsi Max-deild karla.

Dec 08, 2020

Enski boltinn - Fjögurra hesta kapphlaup um titilinn

Hlaðvarpsþátturinn „Enski boltinn" er á sínum stað í dag líkt og eftir allar helgar í ensku úrvalsdeildinni. Hlynur Valsson, lýsandi á Síminn Sport, og Ingólfur Sigurðsson fóru yfir umferðina að þessu sinni. Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og Domino's sem bjóða upp á þáttinn. Meðal efnis: Son og Kane í banastuði, góð kaup hjá Spurs, Tottenham getur orðið meistari, Arteta eins og snákasölumaður, öruggur Curtis Jones, Klopp fær allt út úr hópnum, framlína Wolves floppaði, lúðalegur Kell...

Dec 07, 2020

Landsliðsumræða - Trúnaðarbrestur og þjálfaraleit

Seinni hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 laugardaginn 5. desember. Elvar Geir og Tómas Þór ræða um landsliðsþjálfaramálin og stóru fréttirnar af því að Jón Þór Hauksson hafi farið yfir strikið í ummælum sínum við leikmenn kvennalandsliðsins. Starf Jóns Þórs er í hættu. Rætt er um leitina að næsta þjálfara karlalandsliðsins en Tómas telur að Lars Lagerback sé líklegastur í stólinn. Rætt er við Víði Sigurðsson, yfirmann íþróttadeildar Morgunblaðsins, um þjálfaraleitina og einnig um bókina...

Dec 05, 2020

Enska hringborðið - Úrvalsliðið og ruslflokkurinn

Fyrri hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 laugardaginn 5. desember. Fyrsta fjórðungsuppgjör tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni. Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur þáttarins um enska boltann, mætir í hljóðverið. Hann ræðir við Elvar og Tómas um tímabilið hingað til og opinberar val sitt á úrvalsliðinu og vonbrigðaliðinu.

Dec 05, 2020
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android