Fyrri hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 laugardaginn 20. febrúar. Elvar og Tómas ræða við Birgi Jóhannsson, framkvæmdastjóra ÍTF, um helstu umræðuefnin í íslenskum fótbolta. Það var hiti í kringum aðalfund ÍTF í vikunni þar sem nýr formaður var kjörinn og framundan er ársþing KSÍ. Sjónvarpsrétturinn á íslenskum fótbolta er að losna eftir þetta tímabil og þá verður kosið um að breyta mótafyrirkomulaginu í efstu deild karla á þinginu næsta laugardag.
Feb 20, 2021
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum fjórtánda þætti er fjallað um Tiago Tomás (Sporting), Noni Madueke (PSV) og Fransisco Trincão (Barcelona) Drengirnir búa báðir til lið ársins hingað til á tímabilinu einungis skipað ungstirnum. Jónatan Ingi Jónsson og Hörður Ingi Gunnarsson, leikmenn FH og U-21 árs landsliðs Íslands, eru g...
Feb 20, 2021
Sinisa Mihajlovic tókst að móðga hársára stuðningsmenn Bologna, toppsætið í Serie-A skiptir um hendur en helst innan Mílanóborgar og Juventus upplifir martraðarviku. Um helgina er svo Mílanóslagur þar sem titilbaráttan gæti skýrst enn frekar. Munu Conte og Internazionale standa uppi sem sigurvegarar í lok tímabilsins? Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson mun í vetur gera reglulega þætti þar sem hann fer yfir það sem er að gerast í ítalska...
Feb 19, 2021
Fantabrögð neyddust til að vera með þátt þegar tveimur leikjum var ólokið í umferð 24. Þáttastjórnendur voru þó þegar búnir að safna fullt af stigum enda gáfu leikmenn sem áttu tvöfaldar umferðir vel, þó þeir hafi ekki endilega spilað báða leikina. Efstur á blaði þar var Ilkay Gündogan sem launaði vel traustið fyrir fyrirliðabandið, hvað þá sem þrefaldur fyrirliði. En hvað er framundan? Er Bamford sjálfgefinn fyrirliði í næstu umferð eða eru aðrir kostir í stöðunni? Á að vera með þrjá í Leeds? H...
Feb 17, 2021
Þorsteinn Halldórsson, nýráðinn þjálfari A-landsliðs kvenna, er gestur Heimavallarins að þessu sinni og ræðir við þáttastýrurnar Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir. Þorsteinn segir frá fyrstu vikunum í starfi landsliðsþjálfara, fer yfir næstu verkefni með liðinu, markmið og ýmislegt fleira tengt nýja starfinu sem og aðskilnaðinum við Íslandsmeistara Breiðabliks. Þá eru fastir liðir eins og Símasnilldin, Dominos spurningin og Hekla þáttarins að sjálfsögðu til staðar.
Feb 17, 2021
Það var líf og fjör í leikjum helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni og farið var yfir gang mála í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" í dag. Gestir þáttarins eru Arsenal stuðningsmennirnir Jón Kaldal og Engilbert Aron Kristjánsson. Meðal efnis: Sóknarleikur Arsenal að lagast, ungu leikmennirnir koma með orku, Aubameyang kominn í gang, Ödegaard lofandi, óskiljanleg kaup í WIllian, allt í vaskinn hjá Liverpool, dýrkeypt mistök Alisson, Rodgers spilar á styrkleikana, VAR lituð helgi, Rashford tók of ma...
Feb 15, 2021
Seinni hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net 13. febrúar. Gestur þáttarins er sjálfur Hermann Hreiðarsson. Hermann er þjálfari Þróttar í Vogum í 2. deildinni en hann hefur á þjálfaraferlinum tekið að sér ansi ólík verkefni. Í þættinum ræðir Hermann um þjálfunina, segir nokkrar skemmtilegar bransasögur frá ferlinum, talar um landsliðið, framtíðaráform og fleira.
Feb 13, 2021
Fyrri hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net 13. febrúar. Farið yfir fótboltafréttir vikunnar en framundan eru kosningar hjá ÍTF og KSÍ. Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari ræðir um ráðninguna á Lars Lagerback sem er kominn í teymi íslenska landsliðsins.
Feb 13, 2021
Titilbaráttur eru í útrýmingarhættu í Evrópu, nema á Ítalíu þar sem dramatíkin heldur áfram. Í þættinum verður fjallað um vandræði Napoli, varnarleik Juventus, markahrókinn Goran Pandev og svo verður staðan tekin á ítalska landsliðinu fyrir EM sem fer fram í sumar. Hvernig lítur líklegt byrjunarlið út? Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson mun í vetur gera reglulega þætti þar sem hann fer yfir það sem er að gerast í ítalska boltanum. Verðu...
Feb 12, 2021
Samúel Samúelsson hefur í fjölda ára verið í fararbroddi hjá Vestra á Ísafirði. Hann hefur fengið til félagsins stór nöfn eins og Guðjón Þórðarson, Bjarna Jóhannsson og Nigel Quashie auk um 90 erlendra leikmanna. Hann segir sögu sína í Miðjunni í dag. Meðal efnis: - Fiskur og fótbolti er líf mitt - Átti ekki merkilegan feril sem fótboltamaður - Fékk þrjú rauð spjöld sem stjórnarmaður - Nafn félagsins sem var kallað skástrikið en endaði á Vestra - Alfreð Elías kom liðinu upp en var sagt upp - Str...
Feb 10, 2021
Nú tekur alvara lífsins við í Fantasy Premier League. Við fáum nokkrar umferðir í röð þar sem lið eiga einn, tvo og jafnvel engan leik og nú þarf að fylgjast vel með og muna að breyta liðinu sínu milli leikja. Strákarnir í Fantabrögðum tóku stöðuna á þessu öllu saman, en þó ræðst mikið á því hvernig bikarleikirnir fara í vikunni. Nick Pope og félagar í Burnley eiga 2 álitlega leiki í umferðinni svo mörg okkar ætla að kaupa hann og jafnvel gera hann að fyrirliða. Gúndi, formaður bekkjaráðs og fle...
Feb 09, 2021
Manchester City er í frábærum málum á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir útisigur gegn Liverpool í gær. Dramatík var á Old Trafford og fleiri áhugaverð úrslit litu dagsins ljós. Hlynur Valsson og Jóhann Már Helgason fóru yfir leiki helgarinnar í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn."
Feb 08, 2021
Seinni hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net laugardaginn 6. febrúar. Kristján Atli Ragnarsson mætir í hljóðver og fer yfir annan fjórðung ensku úrvalsdeildarinnar. Hann opinberar val á úrvalsliði og fratliði!
Feb 06, 2021
Fyrri hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net laugardaginn 6. febrúar. Elvar Geir og Tómas Þór opinbera ótímabæru spánna fyrir Pepsi Max-deildina. Guðmundur Steinarsson er með þeim í þættinum.
Feb 06, 2021
Það voru ýmist tíðindi í leikjum vikunnar í ensku úrvalsdeildinni. Manchester United vann risasigur, Liverpool tapaði öðrum heimaleiknum í röð og Rúnar Alex Rúnarsson spilaði sinn fyrsta leik. Tómas Þór Þórðarson og Gunnar Ormslev hjá Síminn Sport eru gestir að þessu sinni í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn". Meðal efnis: Aldrei lýst öðru eins, markaregn Manchester United, tækling sem getur endað feril, Mike Dean mjólkar sviðsljósið, -7 í Fantasy deildinni, vöðvaminni Leno, frumraun hjá Rúnari A...
Feb 04, 2021
Þessi þáttur er með öðru sniði en farið verður yfir fyrri helming tímabilsins. Hver er staðan á liðunum í toppbaráttunni, botnbaráttunni og um miðja deild? Íslendingum fjölgar ört á Ítalíu og Zlatan mætir á undankeppni fyrir ítalska Eurovision. Síðan setur Björn Már saman lið umferða 1-19. Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson mun í vetur gera reglulega þætti þar sem hann fer yfir það sem er að gerast í ítalska boltanum. Verður fjallað um ...
Feb 04, 2021
Stjórnendur Fantabragða áttu misgóða umferð í 21. leikviku Fantasy Premier League. Prílið lifir sem aldrei fyrr hjá GT meðan sjálfræðissvipting Arons á Fantasy liðinu hans er komin í ferli. Pep rúllettan fór illa með margan Fantasy þjálfarann og þá virðist Thomas Tuchel vera nýjast stjórinn til að raða kúlum í þá byssu. Aðra umferðina í röð var það leikmaður sem fólk var að selja eða bekkja sem sannaði sig - í þetta skiptið Patrick Bamford. Fantabrögð spáðu í spilin fyrir tvær umferðir, enda er ...
Feb 01, 2021
Það er gluggadagur og í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" í dag var rætt um helstu félagaskipti sem og leiki helgarinnar á Englandi. Tottenham stuðningsmennirnir Hjálmar Örn Jóhannsson og Ingimar Helgi Finsson mættu og ræddu málin. Meðal efnis: 11 stig í 13 leikjum, galin uppstilling, Son og Kane fara, Mourinho fær tíma ut tímabilið, Doherty hrikalegt flopp, Bale gæti hætt, sendi Alli skilaboð á Instagram, Liverpool verslar miðverði, Murray ekki 27 ára, mögnuð skyndisóḱn Liverpool, vantar smá up...
Feb 01, 2021
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 30. janúar. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir fréttir vikunnar. Svo kemur Davíð Snorri Jónasson, nýr þjálfari U21 landsliðsins, í heimsókn. Rætt er um þetta efnilega lið, Evrópumótið framundan og Davíð svarar spurningum sem voru sendar í gegnum Instagram. Þá mætir Þórir Hákonarson og segir frá mjög áhugaverðri fyrirlestraröð um fjármál og fótbolta. Einnig er rætt um tillögur um lengingu Íslandsmótsins.
Jan 30, 2021
Þær Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir fá til sín sérlega góða gesti á Heimavöllinn að þessu sinni. Knattspyrnuþjálfarinn og spekúlantinn Daði Rafnsson mætir í sett og ræðir um íslenska uppeldiskerfið og af hverju svona margar íslenskar knattspyrnukonur eru að semja við stórlið úti í heimi. Þá kíkir nýjasti leikmaður Breiðabliks, Andrea Mist Pálsdóttir, í heimsókn. Fer yfir vistaskiptin, síðustu verkefni og framtíðarmarkmið auk þess sem hún velur fimm „gullfætur“ úr efstu deild. Nýi landsliðsþjál...
Jan 29, 2021
Þessi umferð var ekki alveg jafn góð og sú síðasta, enda færri leikir og mikil vonbrigði þar að auki. Metfjöldi setti bandið Bruno Fernandes sem klikkaði en Manchester City leikmenn skiluðu heldur betur. Liverpool vann Tottenham sannfærandi og það sem verra er fyrir Spurs virðist Harry Kane vera meiddur. Er Mane kominn í form? Hvað með Trent? Hver er besti ódýri miðjumaðurinn? En dýri varnarmaðurinn? Þetta og meira í nýjasta þættinum af Fantabrögðum. Fantabrögð eru í boði Dominos, Nemíu og GÓ Tr...
Jan 29, 2021
Manchester City situr á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir fjöruga leiki í vikunni. Magnús Ingvason og Sigurður Helgason, stuðningsmenn Manchester City, mættu í hlaðvarpsþáttinn „Enski boltinn" í dag og ræddu um City og leiki vikunnar. Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og Domino's sem bjóða upp á þáttinn. Meðal efnis: City lengi að ná flugi, Dias smollið inn, vörnin öflug, framherjalausir en skora samt, Messi og Haaland á óskalistanum, Guardiola besti þjálfari sögunnar, misheppnuð hví...
Jan 28, 2021
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum þrettánda þætti er fjallað um Ali Akman (Bursaspor), Christos Tzolis (PAOK) og Talles Magno (Vasco De Gama). Drengirnir bjuggu báðir til úrvalslið leikmanna sem fæddir eru 2004 þar sem aðal áherslan var á íslenska stráka. Nikola Dejan Djuric, fyrrum leikmaður Midtjylland og Hauka, var gest...
Jan 28, 2021
Fantabrögð mættu með fullskipað lið til að gera upp lengstu umferð sögunnar í Fantasy Premier League. John Stones var óvænt stigahæsti leikmaður umferðarinnar á meðan Mohamed Salah klikkaði og fékk fjögur. Michail Antonio verðlaunaði síðan þá sem keyptu hann ríkulega með 18 stigum. Margt gekk upp en margt klikkaði einnig. Þáttastjórnendur voru allir töluvert yfir meðaltali þessa umferðina en einn var þó áberandi minnst sáttur. Hvern á að kaupa fyrir Kevin De Bryune sem er meiddur? En Jamie Vardy...
Jan 25, 2021
Seinni hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net 23. janúar. Matthías Vilhjálmsson er kominn heim úr atvinnumennskunni og farinn að spila á ný með FH. Matti kom í útvarpsþáttinn og ræddi meðal annars um heimkomuna, árin í Noregi og framtíðina. Hann á fjóra Noregsmeistaratitla að baki með stórliði Rosenborg.
Jan 23, 2021
Fyrri hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net 23. janúar. Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri ÍA og fyrrum formaður KSÍ, kom í heimsókn. Rætt var um stöðu íslenska boltans frá ýmsum hliðum. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu ýmislegt tengt íslenska boltanum, meðal annars umræðu um fjölgun leikja í Pepsi Max-deildinni og áhrif Covid-19 á síðasta tímabil. Þá ræddi Geir um starf sitt hjá ÍA en hann hefur staðið í ströngu við að laga fjárhagsstöðu félagsins.
Jan 23, 2021
Það er skammt stórra högga á milli í ensku úrvalsdeildinni þessa dagana og sveiflurnar miklar á toppnum. Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, og Orri Freyr Rúnarsson, stuðningsmaður Manchester United, mættu í hlaðvarpsþáttinn „enski boltinn" og fóru yfir stöðuna hjá sínum liðum sem og öðrum.
Jan 22, 2021
Það vantaði ekki dramatíkina á Ítalíu þessa vikuna, hvorki innan vallar né utan. Eftir að hafa keypt Mario Balotelli til Monza er Adriano Galliani farinn að láta til sín taka á ítalska þinginu, Rómverjar gera hver mistökin á fætur öðrum og Juventus reynir eftir fremsta megni að stimpla sig út úr titilbaráttunni. Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson mun í vetur gera reglulega þætti þar sem hann fer yfir það sem er að gerast í ítalska bolta...
Jan 21, 2021
Þær fréttir bárust á dögunum að markvörðurinn öflugi, Sonný Lára Þráinsdóttir, ætlaði sér ekki að leika áfram með Breiðablik þar sem hún hefur átt magnaðan tíma síðustu ár. Sonný Lára mætir í spjall til Huldu Mýrdal og Mistar Rúnarsdóttur og fer yfir málin. Þá koma einnig KM-leikmennirnir Júlía Óladóttir og Hrund Steinarsdóttir í spjall en KM stendur fyrir Knattspyrnufélag Miðbæjar og liðið ætlar að taka þátt í 2.deild í sumar.
Jan 19, 2021
Erkifjendurnir í Liverpool og Manchester United gerðu markalaust jafntefli í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Rikki G, lýsandi á Stöð 2 sport, og Hrafn Kristjánsson, körfuboltaþjálfari og stuðningsmaður Liverpool, fóru yfir leiki helgarinnar í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" að þessu sinni.
Jan 18, 2021