Fotbolti.net - podcast cover

Fotbolti.net

Fotbolti.netfotbolti.net
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Fantabrögð - Marserað inn í (a)prílmánuð

Aron, Gunni og Gylfi fóru yfir stöðu mála í Fantasy leiknum. Landsleikjahléð er að klárast og nú hefst lokaspretturinn í deildinni. Leikjaprógrammið sveiflast hjá nokkrum liðum. Hvernig kemur Liverpool undan pásunni? Og fyrir þá sem hafa upp á lítið að keppa, hvernig er best að mótívera sig þannig að maður geti prílað upp töfluna. Hvaða mánuður er betri til þess en apríl? Fantabrögð eru í boði Dominos, Nemíu og GÓ Training.

Mar 31, 2021

Innkastið - Tankurinn að tæmast

Svartur sunnudagur í íslenska boltanum. U21 landsliðið og A-landsliðið eru samtals með 0 stig. Slæmt tap gegn Armeníu, áttum ekkert skilið, trúin ekki til staðar, kallað eftir kynslóðaskiptum. Er vonin úti? Getur gamla bandið komið okkur til Katar? Einnig er rætt um U21 landsliðið. Auglýsingaglugginn sem vonast var eftir er mölbrotinn. Elvar Geir, Magnús Már og Tómas Þór fóru yfir landsliðsdaginn.

Mar 28, 2021

Útvarpsþátturinn - Landsliðin beint í æð og staðan á íslenska boltanum

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 27. mars. Elvar Geir og Tómas Þór voru á sínum stað og landsliðin voru í brennidepli. Tómas Ingi Tómasson var á línunni þegar farið var yfir síðustu leiki U21 landsliðins og A-landsliðsins. Rýnt var í næstu leiki. Hringt var til Armeníu þar sem Hafliði Breiðfjörð fylgir A-landsliðinu og til Ungverjalands þar sem Sæbjörn Steinke fylgist með U21-landsliðinu. Þá var Páll Kristjánsson, formaður KR, á línunni. Rætt var um íþróttastoppið og einnig mögu...

Mar 27, 2021

Heimavöllurinn - Ótímabær spá fyrir neðri deildirnar 2021

Í síðustu viku opinberaði Heimavöllurinn ótímabæra spá sína fyrir Pepsi Max-deildina og nú er komið að því að spá fyrir um neðri deildirnar. Sparkspekingurinn Baldvin Már Borgarson mætir í sett og spáir í Lengjudeildina og 2. deild ásamt Heimavallarstýrum, þeim Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur. Fastir liðir eins og Dominos-spurningin, Hekla þáttarins og Símasnilldin eru að sjálfsögðu á sínum stað.

Mar 26, 2021

Innkastið - 1-7 tapdagur Íslands

Tvöfaldur tapdagur hjá íslenska landsliðinu í dag. U21 landsliðið tapaði sannfærandi fyrir Rússlandi í fyrsta leik sínum á EM og A-landsliðið átti ekki möguleika gegn Þýskalandi í fyrsta leik sínum í undankeppni HM. Elvar Geir Magnússon og Magnús Már Einarsson, ritstjórar Fótbolta.net, fengu Harald Árna Hróðmarsson, þjálfara hjá Val, til að fara yfir landsleikjadaginn. Rætt er um frammistöðu leikmanna og allt tengt leikjunum og framhaldinu. Það eru White Foxog Domino's sem bjóða upp á þáttinn....

Mar 25, 2021

Ungstirnin - EM U21 upphitunarþátturinn

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Þessi þáttur er upphitun fyrir EM U-21 árs. Í þessum sautjánda þætti er farið ítarlega yfir öll sextán liðin sem taka þátt í riðlakeppni EM U-21 árs sem fer fram í Ungverjalandi og Slóveníu 24. mars - 31. mars. Drengirnir velja sitthverja 5 leikmenn til að sérstaklega fylgjast með á mótinu....

Mar 24, 2021

Enski boltinn - Spurs, landsleikir og draumalið

Hjálmar Örn Jóhannsson og Ingimar Helgi Finnsson, stuðningsmenn Tottenham, eru gestir vikunnar í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn." Þeir ræddu gengi Tottenham, leiki helgarinnar, landsleikina framundan og tóku þátt í leik þar sem þeir stilltu upp draumaliðum sínum í ensku úrvalsdeildinni með ákveðnum reglum. Meðal efnis: Ófyrirgefanlegt í Zagreb, endurnýjun hjá Tottenham, Mourinho endar ofar en Tuchel, Alli í fýlu, Kane fer ekki, Newcastle í brekku, hjólin á West Ham vagninum að detta af?, Ödega...

Mar 23, 2021

Útvarpsþátturinn - Óskar Hrafn og Arnar Viðars

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 20. mars. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í fyrri hlutanum er Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari Breiðabliks gestur. Rætt er við hann um þróun mála hjá Blikaliðinu síðan hann tók við stjórnartaumunum. Í seinni hlutanum er rætt við Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfara en hann er í Þýskalandi þar sem Ísland hefur leik í undankeppni HM á fimmtudag. Einnig er farið yfir fréttir vikunnar og Sæbjörn Steinke, fréttamaður Fótbolta.net, er í beinni frá Un...

Mar 20, 2021

Heimavöllurinn: Ótímabær spá fyrir Pepsi Max 2021

Það er komið að ótímabærri spá fyrir Pepsi Max-deild kvenna 2021. Í þetta skiptið fengu þær Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir góða gesti til að fara yfir málin með sér enda ekki nema 47 dagar í fyrsta leik. Gestaspákonur þáttarins eru þær Aníta Lísa Svansdóttir og Lilja Dögg Valþórsdóttir sem þekkja deildina út og inn. Auk spánnar verða að sjálfsögðu fastir liðir í boði Bílaumboðsins Heklu, Símans og Dominos. Þá erum við að tala um Símasnilldina, Dominos-spurningina og auðvitað Heklu þáttarins....

Mar 19, 2021

Fantabrögð - Fjögurra leikja fjör

28. umferðin var heldur döpur í Fantasy Premier League. 5 vinsælustu fyrirliðarnir klikkuðu allir og meðalstigafjöldinn var einungis 43 stig. Aron og Gunni mættu í stúdíóið aðallega til að skoða hina fátæklegu umferð 29 og hvað skal gera í henni. Á að wildcarda? Free Hita? Hvorugt? Verður Kane fyrirliði hjá öllum? Fantabrögð eru í boði Dominos, Nemíu og GÓ Training.

Mar 17, 2021

Innkastið - Landsliðsveisla framundan: Hverjir byrja?

Búið er að opinbera landsliðshópinn fyrir komandi leiki í undankeppni HM. Vegna ástandsins er þó enn talsverð óvissa og lykilmenn gætu verið fjarri góðu gamni gegn Þýskalandi. Arnar Þór Viðarsson treystir á gamla bandið en U21 landsliðið leikur í lokakeppni EM í sama landsleikjaglugga. Elvar Geir, Tómas Þór og Magnús Már ræddu um komandi landsleikjaglugga. Hvernig verður byrjunarliðið og hvaða væntingar gerum við til komandi landsleikja?

Mar 17, 2021

Ungstirnin - U21 hópurinn og heimsókn úr Garðabæ

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fotbolti.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum sextánda þætti er fjallað um Pierre Kalulu (AC Milan), Jesper Lindstrom (Bröndby) og Matteo Lovato (Hellas Verona) Farið var yfir U-21 landsliðshópinn fyrir EM og var stillt upp sameiginlegu byrjunarliði fyrIr leikina þrjá. Einnig var lauslega farið yfir suma hópa hjá öðrum þjóðum en það v...

Mar 17, 2021

Útvarpsþátturinn - Gluggadómar og enskt hringborð

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í fyrri hluta þáttarins er félagaskiptaglugginn á Íslandi skoðaður. Hvaða einkunnir fá félögin í Pepsi Max-deildinni fyrir leikmannahræringar sínar? Í seinni hlutanum kemur Kristján Atli Ragnarsson og ræðir um ensku úrvalsdeildina og Meistaradeild Evrópu. Eru Haaland og Mbappe nýju Messi og Ronaldo? Þá opinberar hann val á úrvalsliði þriðja fjórðungs enska boltans.

Mar 14, 2021

Heimavöllurinn: Bríet Bragadóttir: Ekki hægt að skulda í dómgæslu

FIFA-dómarinn Bríet Bragadóttir er gestur Heimavallarins að þessu sinni. Bríet ræðir um dómarastarfið við þær Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur en rödd dómara heyrist afar sjaldan í fjölmiðlum. Bríet gefur áhugaverða innsýn í þetta vanmetna en gríðarlega mikilvæga starf. Fastir liðir eins og Símasnilldin, Dominos spurningin og Hekla þáttarins eru svo að sjálfsögðu til staðar í boði bestu vina Heimavallarins. Símans, Dominos og bílaumboðsins Heklu.

Mar 12, 2021

Ítalski boltinn - Óásættanlegur Ronaldo, varnarmaður með óróapúls og Eurovision dramatík Zlatans

Juventus var hent öfugu út úr Meistaradeild Evrópu og mikil umræða er um framtíð Ronaldos hjá félaginu. Chris Smalldini var púslið sem varnarleikur Rómverja vantaði, ekkert fær stöðvað Internazionale og Patric varnarmaður Lazio mælist enn með óróapúls. Íslensku stelpurnar í Napoli leggja sitt af mörkum í hörku fallbaráttu en liðinu er fyrirmunað að skora og Birkir Bjarnason er í toppstandi fyrir landsleikina framundan. Þetta allt saman, ásamt dramatískri Eurovision yfirferð, í þætti vikunnar af ...

Mar 12, 2021

Fantabrögð - Shaw's hunk redemption

Fantabrögð skelltu sér í stúíóið á þriðjudegi, þó að leikur Manchester City og Southampton væri enn eftir. Það var enginn glaðari með það en Aron, sem horfði fram hjá tvöfaldri umferð City og setti fyrirliðabandið á Harry Kane. Strákarnir svöruðu spurningum hlustenda, veltu upp spurningunni um Gareth Bale, tóku fyrir Chelsea og Manchester City og róteringar á þeim og völdu fyrirliða í snúinni umferð sem er framundan. Fantabrögð eru í boði Dominos, Nemía og GÓ Training.

Mar 09, 2021

Enski boltinn - Utanríkisráðherra ræðir vandræði Liverpool

Manchester United vann grannaslaginn gegn Manchester City á meðan Liverpool tapaði sjötta heimaleik sínum í röð í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra og stuðningsmaður Liverpool, og Ágúst Reynir Þorsteinsson, eigandi Bombay Bazaar og stuðningsmaður Chelsea, eru gestir vikunnar í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" að þessu sinni. Meðal efnis: Man Utd stöðvaði sigurgöngu City, Solskjær gerir gott mót, lygasaga Liverpool, karakterslaust lið, þunnur hópur, Klo...

Mar 08, 2021

Útvarpsþátturinn - Ótímabær Pepsi Max spá og boltapólitík

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 6. mars Í fyrri hlutanum er opinberuð ný ótímabær Pepsi Max-spá. Úlfur Blandon ræðir við Elvar Geir og Tómas Þór um liðin tólf. Í seinni hlutanum kemur Haraldur Haraldsson, framkvæmdastjóri Víkings og fyrrum formaður ÍTF, og ræðir um ólguna í fótboltapólitíkinni á Íslandi. Tillögur um fjölgun leikja í Pepsi Max-deildinni voru felldar á ársþinginu síðasta laugardag.

Mar 06, 2021

Fantabrögð - Fantabrögð x Davíð Örn Atlason

Það er óhætt að segja að stærsta umferð tímabilsins hafi ekki staðið undir væntingum. 14 lið áttu tvo leiki en mikið rót var á liðunum og vandasamt verk að hitta á leikmenn sem spiluðu tvo leiki. Því brugðum við á það ráð að fá til okkar góðan gest, Davíð Atlason, en hann er í 3. sæti af Íslendingum í FPL eins og staðan er núna. Við fórum yfir 26. umferðina og skoðuðum aðeins hvað er framundan. Hvert er markmiðið hjá Davíð og hvað er leyndarmálið á bakvið þessa velgengni? Fantabrögð eru í boði D...

Mar 05, 2021

Enski boltinn - Mögnuð Meistaradeildarbarátta

Það er skammt stórra högga á milli í ensku úrvalsdeildinni en fjöldi leikja fór fram í vikunni og heil umferð er framundan um helgina. Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, og Orri Freyr Rúnarsson, stuðningsmaður Manchester United, mættu í hlaðvarpsþáttinn „enski boltinn" og fóru yfir stöðuna hjá sínum liðum sem og öðrum. Meðal efnis: Bragðarefurinn Tuchel, lukkupottur Chelsea, leiðinlegt VAR, Mount fyrstur á blað, sögulega lélegur árangur Liverpool, pirraður Salah, sumarkaup Liverpool ek...

Mar 05, 2021

Ástríðan - Nú er það ótímabær spá í 3. deild

Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Sverrir Mar Smárason, Gylfi Tryggvason og Magnús Már Einarsson fara yfir 3. deild karla í þessum þætti. Rennt er yfir öll liðin og opinberuð ótímabær spá fyrir deildina.

Mar 05, 2021

Ástríðan - Ótímabær spá fyrir 2. deildina

Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Sverrir Mar Smárason og Gylfi Tryggvason fara yfir 2. deild karla og opinbera ótímabæra spá sína fyrir deildina. Rennt er yfir öll liðin en búast má við jafnri og spennandi keppni í sumar.

Mar 04, 2021

Ungstirnin - Landsliðsval Musiala og Víkingar

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum fimmtánda þætti er fjallað um Tanguy Nianzou (Bayern), Kamaldeen Sulemana (Nordsjælland) og Adam Hlozek (Sparta Prag). Farið er yfir landsliðsval ungstirnisins Jamal Musiala, hvort hann velji að spila fyrir England eða Þýskaland sem og komandi landsliðshóp U21 landsliðsins. Atli Barkarson ...

Mar 03, 2021

Enski boltinn - Everton, Newcastle og vondir stórleikir

Hlaðvarpsþátturinn „Enski boltinn" er á sínum stað í dag en þar er farið yfir helstu atriði helgarinnar í enska boltanum. Jón Júlíus Karlsson, stuðningsmaður Newcastle, og Viðar Guðjónsson, stuðningsmaður Everton, eru gestir vikunnar en rætt var ítarlega um þeirra lið sem og leiki helgarinnar í enska boltanum. Meðal efnis: Everton orðið ítalskara, léttara yfir Gylfa, færri stuðningsmenn gagnrýna Gylfa, Rabiot og Aarons á leiðinni?, Bruce heppinn með áhorfendabann, Joelinton ein verstu kaup sögun...

Mar 01, 2021

Útvarpsþátturinn - Ótímabær Lengjuspá og Alexander Scholz

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 27. febrúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Rætt er um fréttir vikunnar og Rafn Markús Vilbergsson opinberar ótímabæra spá fyrir Lengjudeildina. Fjallað er um öll lið deildarinnar. Enski boltinn kemur einnig við sögu og þá er rætt við Alexander Scholz, fyrrum leikmann Stjörnunnar. Scholz er lykilmaður hjá dönsku meisturunum í Midtjylland.

Feb 27, 2021

Ítalski boltinn - Grannaslagur, skattsvik og túristar í Meistaradeild Evrópu

Ný vika, ný vandamál. Ítölsku liðin hafa átt erfiðu gengi að fagna í Evrópu. Vel þekktur eigandi Íslendingaliðs sætir skattrannsókn enn á ný og þátttaka Zlatans á Sanremo tónlistarhátíðinni sætir gagnrýni. Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson mun í vetur gera reglulega þætti þar sem hann fer yfir það sem er að gerast í ítalska boltanum. Verður fjallað um Íslendingana í deildinni og skemmtilegar sögur rifjaðar upp um goðsagnir.

Feb 26, 2021

Fantabrögð - Risaumferð framundan

Aron og Gylfi settust niður yfir leik Leeds og Southampton og fóru yfir málin fyrir RISAumferð 26 í Fantasy Premier League. 14 af 20 liðum deildarinnar eiga tvo leiki í umferðinni og því má reikna með að margir spili spilum eins og þrefalda fyrirliðanum, bekkjarbombunni eða jafnvel hinu villta spili. Það er því að mörgu að huga og þurfa þjálfarar að vera á tánum til að fá sem mest af stigum út úr komandi leikjum. Fantabrögð eru í boði Dominos, Nemíu og GÓ Training.

Feb 23, 2021

Enski boltinn - Hvað er í gangi hjá Liverpool?

Hlaðvarpsþátturinn „Enski boltinn" er á sínum stað í dag en þar er farið yfir helstu atriði helgarinnar í enska boltanum. Liverpool hefur frá jólum einungis unnið tvo af ellefu leikjum í ensku úrvalsdeildinni en liðið hefur tapað fjórum leikjum í röð á Anfield. Einar Matthías Kristjánsson, Magnús Þór Jónsson og Sigursteinn Brynjólfsson frá kop.is mættu í þátt dagsins og fóru yfir málefni Liverpool sem og aðra leiki helgarinnar. Meðal efnis: Söguleg taphrina á Anfield, Klopp þarf að breyta til, t...

Feb 22, 2021

Arnór Smára spilar í fyrsta sinn í íslensku deildinni

Seinni hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 laugardaginn 20. febrúar. Arnór Smárason, leikmaður Vals, kom í heimsókn. Arnór er 32 ára og er að fara að spila sitt fyrsta tímabil í íslensku deildinni. Hann hefur verið erlendis frá unga aldri og spilað í Skandinavíu, Hollandi og Rússlandi. Hann gekk í raðir Valsmanna í vetur. Í þessari klippu er einnig símaviðtal við Helga Val Daníelsson sem er kominn aftur í baráttuna eftir erfið meiðsli.

Feb 20, 2021
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android