Fotbolti.net - podcast cover

Fotbolti.net

Fotbolti.netfotbolti.net
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Heimavöllurinn: Power í Pepsi og Lengjudeildin byrjar!

Fótboltasumarið er byrjað og það með látum! Heimavöllurinn fylgist spenntur með og fer yfir fyrstu umferðina í Pepsi Max og hitar upp fyrir Lengjudeildina sem hefst á morgun. Gestir þáttarins að þessu sinni eru knattspyrnuþjálfararnir Margrét Sveinsdóttir og Steinunn Sigurjónsdóttir.

May 06, 2021

Fantabrögð - Þreföld þristamús!

Frestun á leik Manchester United og Liverpool gerði það að verkum að þessi umferð fór fyrir ofan garð og neðan. Harry Kane var langvinsælasti fyrirliðinn en honum tókst að safna heilum tveimur stigum gegn stálstrákunum frá Sheffield. Aron og Gunni mættu í stúdíóið til að tala um þreföldu umferðina sem blasir nú við Manchester United og þá tvöföldu sem blasir nú við mörgum öðrum liðum. Reiður hlustandi sendi svo inn lesendabréf og las einum þáttastjórnanda pistilinn. En við lifum og lærum.

May 05, 2021

Ástríðan - Premier League leikmaður í Vogana og upphitun fyrir 1. umferð

Þáttastjórnendur Ástríðunnar, Sverrir Mar Smárason og Gylfi Tryggvason komu saman og ræddu komandi sumar. Farið var yfir 1. umferð í 2. og 3.deild. Helstu félagaskipti voru skoðuð og meðal annars sprengja úr Vogunum! Létt spá fyrir leikina og hvað verður um Einherja? Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna.

May 04, 2021

Enski boltinn - Allt tryllt á Old Trafford

Lætin á Old Trafford og leikir helgarinnar í enska boltanum voru til umræðu í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" í dag. Haukur Harðarson, íþróttafréttamaður á RÚV, og Hlynur Valsson, lýsandi hjá Símanum, eru gestir þáttarins að þessu sinni. Meðal efnis: Bálreiðir stuðningsmenn, hliðin opnuðust, hvað gerist í sumar?, stjóraskipti Chelsea skipta sköpun, Tuchel notar hópinn vel, svalur Zidane, skjálfti í Leicester, Bale á eldi, City getur klárað dæmið um næstu helgi, Newcastle og XG kóngarnir öruggi...

May 03, 2021

BÁN: Addi með belti og axlabönd og Hanski hélt hreinu

Boltinn á Norðurlandi ræddi það helsta sem gerðist um helgina. KA byrjaði með flugeldasýningu, Þór lagði Magna og mikil dramatík á Dalvík. Þeir Aksentije Milisic og Sæbjörn Steinke fóru yfir stóru málin og heyrðu í Egga Fúsa. Spáð í spilin og rýnt til gagns. Þátturinn er í boði Kaffid.is, PSA og Vamos.

May 02, 2021

Innkastið - Nýr leikur en sömu úrslit þegar Rúnar mætir Óskari

Uppgjör 1. umferðar Pepsi Max-deildar karla í Innkastinu. Elvar Geir, Tómas Þór og Gunni Birgis fara yfir leikina. Domino's Pizza býður upp á þáttinn. Meðal efnis: KR vinnur alltaf Blika, Sölvi langbestur í Víkinni, skýrsla úr leiðinlegum leik í Kórnum, magnaður markvörður Leiknis, rautt spjald í Árbænum, Gunni giskar og bikarhorn.

May 02, 2021

Heimavöllurinn: Lúxus fyrirpartý fyrir Pepsí Max

Fótboltasumarið 2021 er að hefjast og spennan er óbærileg. Aníta Lísa knattspyrnuþjálfari og Karólína Jack leikmaður Fylkis mæta á Heimavöllinn í lokaupphitun fyrir Pepsí Max deildina. Við heyrum einnig í Báru Kristbjörgu sem fer yfir draumaliðið sitt og rýnir í deildina.

May 01, 2021

Útvarpsþátturinn - Lengjuspáin og opnunarleikurinn krufinn

Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Sérfræðingur þáttarins: Rafn Markús Vilbergsson. Opnunarleikur Pepsi Max-deildarinnar, leikur Vals og ÍA, er krufinn og farið yfir helstu fréttir varðandi deildina. Burðarefni þáttarins er þó spá Lengjudeildarinnar, fjallað er um öll liðin tólf.

May 01, 2021

Binni og Grímsi í KA-Special - „Sterkasta KA-liðið by a mile"

Sæbjörn Steinke ræddi við þá Brynjar Inga Bjarnason og Hallgrím Mar Steingrímsson leikmenn KA í sérstökum upphitunarþætti fyrir mót. KA mætir HK í fyrsta leik sínum á morgun og ljóst að KA vill vera í baráttunni um eitthvað stærra og meira en undanfarin ár. Þátturinn var tekinn upp í Podcast Stúdíói Akureyrar.

Apr 30, 2021

Fantabrögð - Fantabrögð x Hemson

Það vantaði bæði Gylfa og Gunna þessa vikuna og því brá Aron á það ráð að fá gest sem hefur gengið ansi vel á þessu tímabili í Fantasy, sjálfan Heiðmar Eyjólfsson sem er langefstur Íslendinga og númer 6 í heiminum. Þeir ræddu gengi Heiðmars á tímabilinu og hvað er á bakvið þennan rosalega árangur hans, en hann er einungis 27 stigum frá toppsætinu á heimsvísu. Strákarnir tóku spurningar hlustenda og fóru yfir hvaða breytingar gætu skilað lúmskum stigum á lokasprettinum. Að lokum fóru þeir svo stu...

Apr 29, 2021

Innkastið - Púlsinn tekinn fyrir fyrstu umferð

Innkastið er með léttan upphitunarþátt fyrir 1. umferð Pepsi Max-deildarinnar þar sem Elvar Geir og Magnús Már taka púlsinn á góðum mönnum. - Jóhannes Karl Guðjónsson ræðir um sumarið framundan hjá ÍA en liðið á opnunarleikinn gegn Val á föstudag. - Tryggvi Hrafn Haraldsson, sóknarmaður Vals, ræðir um meiðslin sem hann hlaut í æfingaleik nýlega. - Gunnar Birgisson ræðir um fréttir vikunnar og giskar á úrslitin í fyrstu umferð. - Haraldur Haraldsson, framkvæmdastjóri Víkings, ræðir stuttlega um á...

Apr 28, 2021

Enski boltinn - Martraðarsumar framundan

Tottenham tapaði gegn Manchester City í enska deildabikarnum um helgina og bið félagsins eftir bikar lengist. Stjóraskipti Tottenham, úrslitaleikurinn og staðan almennt í enska boltanum var til umræðu í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" í dag. Hjálmar Örn Jóhannsson og Ingimar Helgi Finnsson, stuðningsmenn Tottenham, voru gestir þáttarins í dag. Meðal efnis: Martraðarsumar framundan, Reykjalundur, spara pening með því að reka Mourinho, engin trú í úrslitaleiknum, flug á Chelsea, Ten Hag tekur vi...

Apr 27, 2021

Innkastið x Ástríðan - Lögreglumál og Púskas verðlaunasjálfsmark

Mjólkurbikarinn er farinn af stað en aðeins einn leikur er eftir í 1. umferðinni. Í þessum sérstaka bikarþætti sameinast Innkastið og Ástríðan í yfirferð um bikarleiki helgarinnar. Elvar Geir, Sverrir Mar og Ingó Sig eru í hljóðveri. Meðal efnis: Lögreglan kölluð til, Púskas verðlaunasjálfsmark, Hjörtur á skotskónum, Svavar Elliði og félagar í Gullfálkanum brotlentu, Baldvin fékk rautt og vígsluleikur á Hellissandi. Einnig er aðeins litið á upphaf Pepsi Max-deildarinnar, opnunarleik Vals og ÍA s...

Apr 26, 2021

Útvarpsþátturinn - Stóri Pepsi Max þátturinn

Upphitunarþáttur Pepsi Max-deildarinnar 2021. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Sérfræðingur: Úlfur Blandon. Farið er yfir spá Fótbolta.net fyrir Pepsi Max-deildina 2021. Öll liðin eru skoðuð og menn setja ýmsar athugasemdir við spánna!

Apr 24, 2021

Heimavöllurinn - Of feimin til að mæta á æfingar, FH ætlar upp og Arna Sif dóminerar skosku háloftin

Sumarið er komið og það er þétt dagskrá á Heimavellinum að þessu sinni. Karitas Tómasdóttir, splunkuný landsliðskona úr Rangárvallasýslu mætir í heimsókn auk FH-inganna Ernu Guðrúnar Magnúsdóttur og Selmu Daggar Björgvinsdóttur sem geta ekki beðið eftir fótboltasumrinu. Þá slá þáttastýrur á þráðinn til Glasgow þar sem okkar kona, Arna Sif Ásgrímsdóttir, er að gera gott mót.

Apr 23, 2021

Ungstirnin - Pepsi Max upphitun með Rikka G

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Þátturinn að þessu sinni er sérstakur upphitunarþáttur fyrir Pepsi-Max Deildina sem hefst 30. apríl nk. Útvarpsmaðurinn og íþróttafréttamaðurinn Ríkharð Óskar Guðnason mætir sem gestur og spáir fyrir hvar öll tólf liðin munu enda í ár. Magnús Hólm annar þáttarstjórnandi þáttarins fór yfir hvaða ung...

Apr 22, 2021

Ofurdeildin fjarar út og Woodward stekkur frá borði

Annar aukaþáttur vegna Ofurdeildarinnar. Áætlanir um stofnun deildarinnar hafa runnið út í sandinn eftir að ensku félögin stukku frá borði. Elvar Geir og Magnús Már skoða málið með tveimur sérfræðingum. Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri Greiningar Íslandsbanka, ræðir um hvað varð deildinni að falli. Gunnar Gunnarsson, ritstjóri Austurfréttar og sérfræðingur um Manchester United, fer yfir þau tíðindi að Ed Woodward sé hættur sem framkvæmdastjóri United og hvaða áhrif Ofurdeildin hefur á eigend...

Apr 21, 2021

Ítalski boltinn - Lítill spiltími Andra vonbrigði

Hlaðvarpsþátturinn Ítalski boltinn er aftur mættur eftir smá hlé. Björn Már Ólafsson fer yfir allt það helsta sem er að gerast í ítalska boltanum og hvernig síðustu vikur hafa spilast. Skoðað er hvernig Íslendingarnir hafa verið að gera, rætt um stöðu mála í A-deildinni og allar helstu fréttir og sögusagnir skoðaðar. Zlatan, Ronaldo, Ofurdeildin og ýmislegt fleira.

Apr 20, 2021

Enski boltinn - Óvæntur brottrekstur Mourinho og Ofurdeildin

Brottrekstur Jose Mourinho, ný Ofurdeild og leikir helgarinnar voru til umræðu í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" í dag. Orri Freyr Rúnarsson, stuðningsmaður Manchester United, og Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, eru gestir þáttarins að þessu sinni. Meðal efnis: Sprengja milli Mourinho og Levy, óvæntur brottrekstur, hvað gerir ungur Mason við stýrir?, Mourinho gæti tekið við landsliði, peningagræðgi í Ofurdeildinni, stuðningsmenn mótmæla harðlega, mörg lið vilja ekki fara í Ofurdeil...

Apr 19, 2021

Allt nötrar út af Ofurdeildinni - NBA deild í Evrópu

Stofnun nýju Ofurdeildarinnar kallar á sérstakan aukaþátt. Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri Greiningar Íslandsbanka, fer yfir þessa nýju deild og peningana á bak við hana. Elvar Geir og Magnús Már ræða við Björn Berg um allt sem tengist þessum risastóru fréttunum.

Apr 19, 2021

Útvarpsþátturinn - Siggi Höskulds, vetrarverðlaun og Spánarspark

Pepsi Max-deildin fær stórt pláss í þætti Elvars Geirs og Tómasar Þór þessa vikuna. Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Leiknis, er gestur þáttarins og þá eru Vetrarverðlaunin 2021 opinberuð þar sem bestu leikmenn undirbúningstímabilsins eru valdir. Einnig er rætt við Egil Arnar Sigurþórsson dómara og Magnús Val Böðarsson vallarstjóra. Þá er Spánarsparkið einnig til umfjöllunar en það er mikil spenna í La Liga. Mikael Marinó Rivera, stuðningsmaður Real Madrid, er á línunni.

Apr 17, 2021

Meistaradeildin - Enskur úrslitaleikur í kortunum

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er með sérstakan aukaþátt í hlaðvarpsformi þar sem fjallað er um 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas fara yfir leikina, skoða undanúrslitin og spá í Evrópudeildarleikina framundan.

Apr 14, 2021

Fantabrögð - Messi KingGod dregur vagninn

Öllum að óvörum var Stuart Dallas stigahæsti leikmaður umferðarinnar í Fantasy Premier League, sem var óheppilegt því flestir sem áttu hann stilltu honum upp sem þriðja varamanni á bekk. Jesse Lingard a.k.a. Messi KingGod heldur áfram að vera ekkert eðlilega góður og er nú með tæp 13 stig að meðaltali síðustu 3 umferðir. Tottenham á tvöfalda umferð og við megum reikna með því að sjá svívirðilega tölu í fyrirliðavali á Harry Kane. Er kominn tími á að selja alla Manchester City leikmenn? Fantabrög...

Apr 13, 2021

Enski boltinn - West Ham bestir í London

Baráttan um Meistaradeildarsæti verður harðari og harðari og það voru dramatísk sigurmörk í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Tómas Steindórsson, stuðningsmaður West Ham, og Guðmundur Gunnar Guðmundsson, stuðningsmaður Arsenal, og Mate Dalmay, markaðsstjóri Fótbolta.net, fóru yfir stöðuna í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" í dag. Meðal efnis: Meðal efnis: Moyes á Zoom, Nolan drillaði liðið, fyndið þegar Lingard kom, Noble lyftir Meistaradeildardeidlarbikarnum, dýrt partý hjá Leicester, öflug en...

Apr 12, 2021

Útvarpsþátturinn - Alfons, Rúnar Kristins og Meistaradeildin

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 10. apríl. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta í boltanum. Hringt er til Noregs þar sem Alfons Sampsted ræðir um stöðu mála. Alfons er ríkjandi Noregsmeistari með Bodö/Glimt en upphafi norsku deildarinnar var frestað vegna Covid-19 faraldursins. Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, er gestur þáttarins. Í ítarlegu spjalli ræðir um stöðu mála í Vesturbænum og Pepsi Max-deildina sem er framundan. Í lok þáttarins fer Kristján Atli Ragnarsson...

Apr 10, 2021

Fantabrögð - Whole Jota Love

A-príl mánuðurinn mikli byrjaði heldur hægt og var það einungis fyrirliðinn Harry Kane sem bjargaði umferðinni hjá mörgum. Liverpool unnu 3-0 sigur á Arsenal þar sem Diogo Jota skoraði tvö mörk. Hann er nú eftirsóttasta varan í Fantasy Premier League og þjálfarar keppast við að kaupa hann. Spurningar hlustenda í þessum þætti af Fantabrögðum snerust að stóru leyti um Wildcard, enda þáttastjórnendur búnir að tala mikið fyrir því að spila því á þessum tímapunkti og a.m.k. einn þeirra búinn að virka...

Apr 07, 2021

Enski boltinn - Liverpool vaknar og Barcelona í dulargervi

Boltinn byrjaði að rúlla á ný í ensku úrvalsdeildinni um helgina eftir landsleikjahlé. Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, og Hlynur Valsson, lýsandi hjá Símanum, fóru yfir stöðu mála. Meðal efnis: Eins og í tölvuleik, WBA eins og Barcelona í dulargervi, reynir á andlegu hliðina hjá Chelsea, Jorginho markahæstur, Liverpool réttir úr kútnum, Trent brjálaður, Arsenal gátu ekkert, misheppnuð tilraun með Aubameyang, Liverpool á góðan séns gegn Real Madrid, Man City vel gíraðir, hvaða framhe...

Apr 06, 2021

Ungstirnin - Uppgjör á riðlakeppni EM U21

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum átjánda þætti gera þeir upp riðlakeppni Evrópumóts U21 landsliða. Gleðilega páska!

Apr 05, 2021

Útvarpsþátturinn - Láki um landsliðið, Addi Grétars og Birkir Már

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór hringdu til Hong Kong í Þorlák Árnason yfirmann knattspyrnumála hjá knattspyrnusambandi Hong Kong til að ræða framtíð íslenska landsliðsins, Arnar Grétarsson talaði um KA og fótboltann í Covid og Birkir Már Sævarsson fór yfir áhugaverða landsliðsviku.

Apr 03, 2021

Innkastið - Hverjir spila í september?

A landslið Íslands náði í fyrsta sigurinn í undankeppni HM í kvöld. Ísland vann Liechtenstein örugglega 4-1 á útivelli. Framundan eru fimm heimaleikir í röð í undankeppninni í haust og þar kemur betur í ljós hvort Ísland geti blandað sér í baráttuna um að komast á HM í Katar. U21 landslið Íslands tapaði 2-0 gegn Frökkum í dag og endaði án stiga á EM í Ungverajalandi. Tómas Þór Þórðarson, Gunnar Birgisson og Magnús Már Einarsson fóru yfir þessa leiki og stöðuna.

Mar 31, 2021
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android