Fotbolti.net - podcast cover

Fotbolti.net

Fotbolti.netfotbolti.net
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Heimavöllurinn: VIÐ ERUM Á LEIÐ TIL ENGLANDS!

Ísland er komið á EM! Það var ljóst í gærkvöldi að landsliðið okkar bjargaði fótboltaárinu 2020 með því að tryggja sér sæti beint á Evrópumótið á Englandi 2022. Það voru því kallaðir út sérfræðingar til að fara yfir málið en þær Aníta Lísa yfirþjálfari hjá KR og Bára Kristbjörg þjálfari Augnabliks mættu á Heimavöllinn.

Dec 02, 2020

Fantabrögð - Man City mættir aftur

Manchester City tóku Burnley 5-0 á heimavelli, í fjórða skiptið í röð. Þau sem tóku sénsinn á Mahrez uppskáru ríkulega í Fantasy Premier League en 2 þáttastjórnendur settu bandið hins vegar á De Bryune sem gekk sömuleiðis vel. Ollie Watkins sá til þess að Ollie-hornið var ríkulegt að þessu sinni, en það er búið að fresta næsta leik hjá honum vegna hópsmits hjá Newcastle. Hvaða leikmann hræðistu mest að vera án? Á að kaupa Cavani? Er einhver ennþá með Arsenal menn? Hvern á að kaupa fyrir Jimenez?...

Dec 01, 2020

Enski boltinn - Mögnuð innkoma Cavani og reiður Klopp

Hlaðvarpsþátturinn „Enski boltinn" er á sínum stað í dag líkt og eftir allar helgar í ensku úrvalsdeildinni. Gunnar Ormslev, lýsandi á Síminn Sport, og Jóhann Skúli Jónsson, þáttastjórnandi í hlaðvarpinu Draumaliðið, fóru yfir umferðina. Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og Domino's sem bjóða upp á þáttinn. Meðal efnis: Markaskorarinn Cavani, þreytt að ræða Pogba, miklar breytingar Solskjær, mistök De Gea líta aulalega út, VAR er drasl, fótbolti gæti breyst í handbolta, reiður Klopp, Mi...

Nov 30, 2020

Maradona í faðmi ljónsins

Seinni hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net laugardaginn 28. nóvember. Orri Páll Ormarsson blaðamaður og rithöfundur mætti í þáttinn. Rætt var um goðsögnina Diego Maradona sem lést á dögunum. Maradona er einn besti, ef ekki besti, fótboltamaður allra tíma og var ótrúlegur karakter. Þá er einnig rætt um áhuga Íslendinga á enska boltanum. Orri skrifaði ástarsögu um þjóðaríþrótt Íslendinga, Í faðmi ljónsins, sem er komin í jólabókaflóðið.

Nov 28, 2020

Þorvaldur Örlygs ræðir um stöðu íslenska boltans

Fyrri hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net laugardaginn 28. nóvember. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræða við Þorvald Örlygsson um stöðu íslenska boltans og um framtíðarpælingar. Þorvaldur lét nýlega af störfum hjá KSÍ þar sem hann þjálfaði U19 og U17 landsliðin. Hann er nú kominn til Stjörnunnar þar sem hann starfar við hlið Rúnars Páls Sigmundssonar.

Nov 28, 2020

Ítalski boltinn - Táraflóð í Napolí og Inter berst við gamla djöfla

Eftir vel heppnað landsleikjahlé ítölsku liðanna er deildin farin aftur af stað. Stuðningsmenn Napolí kveðja hetjuna sína sem féll frá í vikunni og Antonio Conte hefur ekki tekist að særa út úr Inter liðinu gamla djöfla. Í höfuðborginni standa yfir upptökur á þriðju Airplane! grínmyndinni en í þetta sinn tekur Claudio Lotito forseti liðsins við hlutverki Leslie Nielsens . Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson mun í vetur gera reglulega þæt...

Nov 27, 2020

Ungstirnin - 2000 úrvalslið og Blikar koma í heimsókn

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum níunda þætti er fjallað um Yusuf Demir (Rapid Vienna), Marash Kumbulla (Roma) og Yunus Musah (Valencia). Drengirnir bjuggu báðir til úrvalslið úr leikmönnum sem eru fæddir árið 2000. Davíð Ingvarsson og Brynjólfur Andersen Willumsson leikmenn Breiðabliks voru gestir í þættinum og var rætt ...

Nov 27, 2020

Miðjan - Siggi Bond var neyddur til að ræna apótek í Amsterdam

Sigurður Gísli Snorrason varð Íslandsmeistari með FH árið 2015 en lífernið fór illa með hann. Fimm árum síðar fann hann botn í lífinu þegar hann mætti vopnaður byssu í apótek í Amsterdam og var handtekinn. Hann sneri lífinu við, tók sig á og átti gott tímabil með Þrótti í Vogum í sumar og stefnir hátt í fótboltanum að nýju. Siggi Bond segir sögu sína í Miðjunni í dag. Meðal efnis: - Hvaðan kemur gælunafnið Siggi Bond? - Gekk illa að ráða við hann á mótum - Andrúmsloftið eftir úrslitaleikinn 2014...

Nov 26, 2020

Fantabrögð - Lognið á undan storminum næstu helgi

Það var fullur bátur af föntum í þættinum í dag. Hlutirnir virðast loks vera að færast í eðlilegt horf. Fantasy-guðirnir sýndu spilurum vægð þegar þeir leyfðu Bruno að skora. Liverpool hélt hreinu. Dominic Calwert-Lewin skoraði. Kane lagði upp. Chris Wood svaraði kallinu. Ekkert nýtt undir sólinni. Sem þýðir að í rauninni var allt nýtt undir sólinni. Þrátt fyrir það eru ákveðnar leikjasveiflur í gangi og næstu vikur munu skipta sköpum fyrir stjóra sem eru að elta uppi forskot. Hvaða liðum á að f...

Nov 24, 2020

Enski boltinn - Ætla að sjá Tottenham taka við bikar í vor

Tottenham stuðningsmennirnir Hjálmar Örn Jóhannsson og Ingimar Helgi Finnsson mættu skellhlæjandi á skrifstofu Fótbolta.net. Tottenham situr á toppi ensku úrvalsdeildarinnar en í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" í dag var rætt um sigur Spurs á Manchester City sem og aðra leiki helgarinnar í enska boltanum. Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og Domino's sem bjóða upp á þáttinn. Meðal efnis: Taktík Mourinho, Kane kemur stanslaust á óvart, "stálu" Höjberg á þrjár milljónir punda, bóluefni ...

Nov 23, 2020

Útvarpsþátturinn - Arnar Viðars, Sindri Kristinn og enski

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 21. nóvember. Elvar Geir og Tómas Þór ræða ítarlega við Arnar Þór Viðarsson, þjálfara U21 árs landsliðsins og yfirmann knattspyrnumála hjá KSÍ. Rætt er um frábæran árangur U21 landsliðsins og um leitina að næsta A-landsliðsþjálfara. Arnar hefur áhuga á stöðunni. Einnig heyrum við hljóðið í Sindra Kristni Ólafssyni, markverði Keflavíkur. Liðið vann Lengjudeildina í sumar. Þá var Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur í enska boltanum, einnig á lín...

Nov 21, 2020

Fantabrögð - Kaup og Salah

Fantasy liðin okkar halda áfram að verða fyrir áföllum í landsleikjahléum. Stærstu fréttirnar eru þær að Mohamed Salah sýktist af kórónaveirunni en spurningin er hvort hann verður frá í einn leik eða lengur. Ef maður selur hann, hvern á maður að kaupa í staðinn? Eru Everton að fara að snúa við blaðinu þegar þeir fá sína bestu menn til baka? Á að selja Kane og Son? Á að taka þrjá í Aston Villa? Hver er hinn nýi Trent? Allt þetta og meira til í nýjustu Fantabrögðum.

Nov 19, 2020

Heimavöllurinn - Íslandsmeistari best í 2. deild og ungfrú Hveragerði skuldar tattú

2. deildin á hug og hjörtu Heimavallarins að þessu sinni. HK-ingarnir Karen Sturludóttir og Lára Hallgrímsdóttir fara yfir sumarið en HK leikur í Lengjudeildinni að ári. Þá kemur Dagný Rún Gísladóttir, konan sem átti stóran þátt í að stofna nýjan meistaraflokks Hamars, í heimsókn og segir frá ævintýrinu í Hveragerði.

Nov 19, 2020

Innkastið - Íslenska blandan breytist en margt jákvætt í kortunum

Innkastið eftir tap Íslands gegn Englendingum á Wembley. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson, Ingólfur Sigurðsson og Magnús Már Einarsson fara yfir sviðið og ræða landsliðsmálin. Meðal umræðuefna: Frammistaðan gegn Englandi og einkunnir, Hamren og fleiri kveðja, hver verður næsti landsliðsþjálfari?, staða enska landsliðsins, U21 landsliðið á EM. Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og Domino's sem bjóða upp á þáttinn.

Nov 18, 2020

Útvarpsþátturinn - Þjálfaraskipti hjá Íslandi og Pepsi Max tíðindi

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 14. nóvember. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Örvar Arnarsson, fréttamaður Fótbolta.net, er á línunni en hann var í Búdapest á fimmtudaginn þegar Ísland tapaði úrslitaleiknum gegn Ungverjalandi. Sigurbjörn Hreiðarsson fer yfir leikinn og ræðir um framhaldið. Hver mun taka við landsliðinu af Erik Hamren sem tilkynnti að hann muni ekki halda áfram við stjórnvölinn. Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, ræðir um peningana sem íslensk félagslið miss...

Nov 14, 2020

Innkastið - Ólýsanlegt svekkelsi en hvað gerist næst?

Landsleikurinn gegn Ungverjum er gerður upp í boði White Fox, Viking og Domino's. Íslandi tókst ekki að koma sér á þriðja stórmótið í röð. Hrikalega svekkjandi tapleikur í Búdapest þar sem Ísland var yfir þar til á 88. mínútu. Hvað fór úrskeiðis og hvað tekur við? Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Ingólfur Sigurðsson fóru yfir leikinn í .Net hljóðverinu.

Nov 12, 2020

Ungstirnin - Mikilvægt verkefni U21 og Luigi gestur

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum áttunda þætti er fjallað um Becir Omeragic (FC Zurich), Leonidas Stergiou (St. Gallen) og Florian Wirtz (Bayer Leverkusen). Rætt er um mikilvæga leiki U21-landsliðsins sem spilar gegn Ítalíu á fimmtudag og Írlandi á sunnudag. Þessir leikir skipta miklu máli í baráttunni um að komast í loka...

Nov 11, 2020

Ítalski boltinn - Kvensjúkdómalæknirinn Lotito og lið umferða 1-7

AC Milan trónir á toppnum þegar sjö umferðir eru liðnar af Serie-A. Lazio heldur áfram að safna stigum í uppbótartíma en utan vallar er liðið í vandræðum enda starfsmenn félagsins sakaðir um að svindla á Covid prófum. Eða hvað? Veit forseti liðsins betur en við öll hvernig veiran dreifir sér? Fiorentina nýtir landsleikjahléið til að ráða nýjan þjálfara sem þekkir Flórens betur en flestir og fyrstu leiðinlegu leikir ársins í Serie-A litu dagsins ljós um helgina. Í þættinum verður líka tekið saman...

Nov 10, 2020

Enski boltinn - Tom og Bjarni fóru yfir stóru málin

Tómas Þór Þórðarson og Bjarni Þór Viðarsson á Síminn Sport kíktu á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fóru yfir helgina í ensku úrvalsdeildinni. Þeir félagar ræddu um byrjun tímabils og einnig var rætt um stórleik Ungverjalands og Íslands. Meðal efnis: Firmino á að fara á bekkinn, þreyta í stórleiknum, fleiri skiptingar, Ole ennþá með klefann, Bruno Fernandes með heilt lið á bakinu, bakverðir Man Utd slakir, Aston Villa hljóp yfir Arsenal, geggjaður Grealish, lágt XG hjá Aubameyang, frískur Mourin...

Nov 09, 2020

Útvarpsþátturinn - Úrslitaleikur landsliðsins og íslenskar fréttir

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 7. nóvember. Umsjón Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hitað upp fyrir Ungverjaland - Ísland, úrslitaleikinn um sæti á EM sem verður á fimmtudaginn. Hannes Þór Halldórsson landsliðsmarkvörður er á línunni. Þá var einnig rætt við Sigurbjörn Hreiðarsson. Hann rýndi í stórleikinn í Búdapest og ræddi einnig aðeins um þá gulu og glöðu í Grindavík. Rætt var við Rúnar Pál Sigmundsson um endurnýjunina í Garðabæ en fréttatilkynningarnar hrannast inn frá Stjörnunni....

Nov 07, 2020

Ástríðan - Uppgjör 2. deildar með góðum gestum

Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Nú er komið að því að gera tímabilið í 2. deild upp en fulltrúar þeirra liða sem komust upp úr deildinni mættu í hljóðver. Magnús Þórir Matthíasson, leikmaður Kórdrengja, og Arnar Logi Sveinsson, leikmaður Selfyssinga, eru gestir þáttarins. Umsjónarmenn eru Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason en þeir gera upp árið í 2. deild.

Nov 06, 2020

Ástríðan - Uppgjör ársins í 3. deildinni

Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Í þessum þætti er tímabilið í 3. deildinni gert upp, opinberað val á liði ársins og þeim bestu í deildinni. Umsjónarmenn eru Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason.

Nov 05, 2020

Ítalski boltinn - Forsetar harðir í horn að taka

Zlatan Ibrahimovic er kominn með sjö mörk í fjórum leikjum fyrir AC Milan sem trónir á toppi Serie-A eftir 6 umferðir. Bakfallsspyrnumarkið hans gegn Udinese var eitt af fjölmörgum stórkostlegum mörkum umferðarinnar. Varnarlína Inter bauð upp á hrekkjavökuþema gegn Parma og tveir þjálfarar eru á barmi þess að missa starfið. Þrír Íslendingar spiluðu stór hlutverk í bikarleikjum á meðan landsliðsmaður er kominn út í kuldann hjá einum harðasta forseta landsins. Um þetta allt og meira til er fjallað...

Nov 04, 2020

Fantabrögð - Tökum skrýtna sénsa

Fantabrögð fóru í saumana á því sem gerðist um helgina og spáðu í næstu umferð. Er Calwert-Lewin partýið búið? Er Jack Grealish orðinn skyldueign? Hvað með Jannick Vestergaard eða Diogo Jota? Er Chelsea að komast í gang? Á að selja Tottenham menn eftir næstu umferð?

Nov 03, 2020

Enski boltinn - Liverpool kreistir sigra og einbeitingarlaus Pogba

Það var Liverpool þema í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" á Fótbolti.net í dag. Liverpool stuðningsmennirnir Hlynur Valsson og Hrafn Kristjánsson fóru yfir sviðið. Hlynur er lýsandi hjá Síminn Sport en Hrafn þjálfar körfuboltalið Álftnesinga. Meðal efnis: Liverpool kreistir sigra, Manchester City leikurinn gengur fyrir, Salah með miðverði eins og bakpoka, byrjun Jota ekki tilviljun, Mpabbe á óskalista City?, Partey frábær, Arteta byggir út frá vörninni, einbeitingarlaus Pogba, vondur árangur Ma...

Nov 03, 2020

Innkastið - Uppgjör Pepsi Max-deildarinnar 2020

Innkastið gerir upp Pepsi Max-deild karla 2020. Einnig er rætt um Lengjudeildina. Elvar Geir, Tómas Þór og Gunni Birgis eru í sérstökum uppgjörsþætti tímabilsins. Lið ársins er opinberað, þjálfari ársins, leikmaður ársins, besti ungi leikmaðurinn og White Fox ákvörðun ársins.

Nov 02, 2020

Útvarpsþátturinn - Fótboltinn blásinn af

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 31. október. Íslandsmótinu í fótbolta 2020 er lokið. Elvar Geir og Tómas Þór skoða lokastöðuna í þættinum og ræða um þessa ákvörðun. Rætt er við Ólaf Inga Skúlason hjá Fylki og Bjarna Guðjónsson, aðstoðarþjálfara KR. Bæði þess lið voru í baráttu um Evrópusæti þegar mótinu var slaufað. Þá fer Úlfur Blandon, sérfræðingur þáttarins, yfir Lengjudeildina.

Oct 31, 2020

Ungstirnin - 98 úrvalslið og Ísak í sviðsljósinu

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum sjöunda þætti setja þeir saman úrvalslið leikmanna sem fæddir eru 1998, fara yfir helstu tíðindi og ræða meðal annars um athyglina sem Ísak Bergmann Jóhannesson hefur verið að fá. Í þættinum er fjallað um Myron Boadu (AZ), Rayan Aït-Nouri (Wolves) og Mohamed Ihattaren (PSV).

Oct 29, 2020

Ítalski boltinn - Afskorið svínshöfuð og ljót skilaboð

Fimm umferðir eru nú liðnar af leiktíðinni á Ítalíu og sumir stuðningsmenn eru þegar farnir að hóta eigendum liðsins með afskornu svínshöfði og ljótum skilaboðum. Íslendingar eru farnir að byrja, koma inná og skora. Í þættinum verður líka farið yfir umferð þar sem Juventus missteig sig gegn Verona, AC Milan og Roma skildu jöfn í æsispennandi markaleik og haustþokan í Reggio Emilia gerði áhorfendum erfitt fyrir. Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már...

Oct 27, 2020
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android