Fotbolti.net - podcast cover

Fotbolti.net

Fotbolti.netfotbolti.net
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Fantabrögð - Botnlaus Bamford Brunch

Mest óþolandi tímabil allra tíma heldur áfram í Fantasy Premier League. Mörkunum fækkaði heldur betur og stjórar sátu eftir með sárt ennið. Leeds var eina liðið sem skoraði meira en tvö mörk í umferðinni og það var Bamford brunchinn sem hélt áfram með þrennu. Manchester United og Chelsea stoppuðu í götin með því að stilla upp 5 manna vörn, á meðan Salah klikkaði sem vinsælasti fyrirliðinn. Wolves vill ekki skora fyrr en á 80. mínútu og Arsenal vill bara alls ekki skora mörk, allavega ekki lögleg...

Oct 27, 2020

Enski boltinn - Hægt spil Arsenal og líklegir Liverpool menn

Það var Arsenal þema í hlaðvarpsþættinum „enski boltinn" í þessari viku. Einar Guðnason og Jón Kaldal, stuðningsmenn Arsenal, fóru þar yfir leiki helgarinnar á Englandi. Meðal efnis: Hugmyndasnauðir Arsenal menn, vantar markaskorara, stjóraskipti hjá Man Utd og Chelsea, bæta við kílóum á Rúnar Alex, sorgarsaga Özil, vélmenni í VAR, Cavani, Liverpool langlíklegastir, óvissa með Guardiola, Kane skorar úr ekki færum, klikkaður Bielsa, öflugur Ward-Prowse, alls konar lið í toppbaráttu, sakna Wenger....

Oct 26, 2020

Heimavöllurinn: Treystir Jón Þór á ungar í stórleiknum við Svíþjóð?

Hulda Mýrdal og Mist sameinast loksins í stúdíóinu og fara yfir málin. Það á að klára Íslandsmótin en áður en það gerist er RISA leikur á dagskrá þegar Ísland mætir Svíþjóð ytra. Hvernig er staðan á leikmannahópnum og hvernig stillir Jón Þór upp? Hvað gera Pétur og Valskonur svo til að undirbúa sig fyrir Meistaradeildarslaginn sem má líklega ekki æfa saman fyrir? Og hvað gerist í Maxinu miðað við nýjustu fréttir?

Oct 25, 2020

Útvarpsþátturinn - Íslenski boltinn og Logi Ólafs

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 24. október. Flaggskip X977 fullmannað. Elvar Geir og Tómas Þór halda um stjórnartaumana og ræða um teikningarnar að því hvernig klára skal Íslandsmótið. Logi Ólafsson, þjálfari FH, kom í viðtal. Rætt var um stöðu mála, endurkomu hans í fótboltann, sögusagnir um að hann hætti eftir tímabilið, landsliðið og fleira. Þá var rætt um enska boltann, Pele og Arnar Sveinn Geirsson, formaður Leikmannasamtakana, svaraði fyrir umræðu í Pepsi Max-Stúkunni á Stöð 2 ...

Oct 24, 2020

Ítalski boltinn - Zlatan sýningin í Derby della Madonnina

Í þætti vikunnar verður farið yfir Zlatan showið í Derby della Madonnina, Juventus sem missteig sig djúpt í suðrinu og Napoli sem leit út eins og Atalanta gegn Atalanta. Þá verður líka fjallað um Fabio Quagliarella sem skoraði fyrir Sampdoria um helgina, og á að baki ótrúlegan feril bæði innan vallar sem utan. Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson mun í vetur gera reglulega þætti þar sem hann fer yfir það sem er að gerast í ítalska boltanu...

Oct 20, 2020

Fantabrögð - Hvað skal gera við Kevin?

Enski boltinn sneri aftur eftir landsleikjahlé með viðburðaríkri umferð. Rauð spjöld, vítaspyrnur, ótrúleg jafntefli og meiðsli lykilmanna. Á að losa sig við Trent? Hvað með Kevin De Bruyne og Van Dijk sem eru báðir meiddir? Á að kaupa Agüero? Þetta og margt fleira í nýjum þætti af Fantabrögðum. Fantabrögð eru í boði Dominos og Elko.

Oct 20, 2020

Enski boltinn - Ótrúleg úrslit og hrikalegar fréttir

Það er nóg að ræða í hlaðvarpsþættinum „enski boltinn" eftir liðna helgi í ensku úrvalsdeildinni. Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, og Orri Freyr Rúnarsson, stuðningsmaður Man Utd og útvarpsmaður á Rás 2, eru gestir vikunnar.

Oct 20, 2020

Útvarpsþátturinn - Landsliðið, ástandið og enski

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 17. október. Kristján Guðmundsson fótboltaþjálfari er sérstakur gestur þáttarins og er hann við boltahringborðið í fyrri hlutanum. Rætt er um ástandið í íslenska boltanum en mótahald er aftur stopp og þá var landsleikjaglugginn gerður upp og þessir þrír leikir sem Ísland lék. Í þættinum er einnig rætt við Kristján Atla Ragnarsson, sérfræðing þáttarins um enska boltann og Davíð Snorra Jónasson sem stökk óvænt í það hlutverk að vera við stjórnvölinn þegar Ísland mætti...

Oct 17, 2020

Ungstirnin - Mosfellingarnir Arnór Gauti og Róbert Orri

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum sjötta þætti er fjallað um Exequiel Palacios (Bayer Leverkusen), Naci Ünüvar (Ajax) og Maarten Vandervoordt (Genk). Gestir þáttarins eru Mosfellingarnir Arnór Gauti Jónsson sem spilar með Fylki og Róbert Orri Þorkelsson hjá Breiðabliki.

Oct 15, 2020

Heimavöllurinn: Unfinished business hjá þeirri bestu og fyrirliðinn ætlar að byggja stúku

Heimavöllurinn beinir spjótum sínum norður á Sauðárkrók að þessu sinni en fyrir stuttu tryggði Tindastóll sér sæti í efstu deild í fyrsta skipti í sögu félagsins. Magnaður árangur og við förum yfir ævintýrið frá A-Ö ásamt þjálfurum liðsins, þeim Guðna Þór Einarssyni og Jóni Stefáni Jónssyni og fyrirliðanum Bryndísi Rut Haraldsdóttur.

Oct 12, 2020

Útvarpsþátturinn - Gamla bandið, Arnar Grétars og leikmannakönnun

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 10. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Landsliðið var í brennidepli og fjallað vel um sigurinn gegn Rúmeníu í umspilinu fyrir EM alls staðar. Í upphafi: Rætt um landsliðiðið. 20:00 Arnar Grétarsson um KA og landsliðið. 57:00 Arnar Sveinn Geirsson, forseti Leikmannasamtaka Íslands, ræðir um óvissuna sem er í gangi varðandi Íslandsmótið í fótbolta. Hversu margir leikmenn vilja að keppni sé hætt? 77:30 Freyr Alexandersson í beinni frá búbblu landsli...

Oct 10, 2020

Ástríðan - Neyðarumræður á skrifstofunni

Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Í ljósi ástandsins var blásið í neyðarumræður á skrifstofu Fótbolta.net. Óskar Smári Haraldsson, Baldvin Már Borgarsson og Sverrir Mar Smárason fóru yfir málin. Rætt var um ýmis málefni tengd neðri deildunum og velt því fyrir sér hvort mótið yrði blásið af?

Oct 09, 2020

Ástríðan - Farið yfir 2. deild og gestir úr 3. deild

Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason ræða um 2. og 3. deildina. Í þáttinn mæta góðir gestir úr tveimur bestu liðum 3. deildarinnar sem hafa tryggt sér sæti í 2. deild á næsta tímabili. Það eru Ási Þórhallsson úr Reyni Sandgerði og Einar Már Þórisson, fyrirliði KV. Þess má geta að þátturinn var tekinn upp á þriðjudagskvöld, þegar útlit var fyrir að fótboltinn væri að fara aftur í frestun.

Oct 07, 2020

Fantabrögð - Ollie-ðandi frammistaða

Ollie hornið var langt að þessu sinni, enda opnaði Ollie Watkins markareikning sinn með þrennu gegn Englandsmeisturum Liverpool. Ekkert við þetta gufuruglaða tímabil meikar sens og þessi umferð í enska boltanum og FPL staðfesti það endanlega. Son var ekki meiddur, heldur fullfrískur og refsaði grimmilega þeim sem seldu hann - aftur! Wolves líta ekki vel út og West Ham eru skyndilega eitt heitasta liðið í deildinni. Þetta og fleiri órökréttar ákvarðanir í nýjasta þættinum af Fantabrögðum. Þátturi...

Oct 06, 2020

Enski boltinn - Galin úrslit degi fyrir gluggadag

Ótrúleg úrslit litu dagsins ljós í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Í dag er síðan gluggadagurinn og mörg lið í leit að liðsstyrk. Hjálmar Örn Jóhannsson og Ingimar Helgi Finnsson, stuðningsmenn Tottenham, eru í skýjunum eftir 6-1 útisigur á Manchester United. Þeir félagar mættu í heimsókn og ræddu helgina í enska boltanum og gluggdaginn.

Oct 05, 2020

Innkastið - Mátti ekki mæta í viðtal og allt í hnút í Evrópubaráttu

Í Innkastinu er fjallað um sunnudagsumferðina í Pepsi Max-deildinni, spennuna fyrir lokaumferðir Lengjudeildarinnar og einnig um komandi landsleik Íslands og Rúmeníu. Elvar Geir Magnússon, Ingólfur Sigurðsson og Gunnar Birgisson fara yfir málin. Allt í boði White Fox! Meðal efnis: Andlit White Fox í deildinni, Brynjólfur blómstar í fjarveru Mikkelsen, Valur lék sér að Gróttu, KR aftur í vandræðum með HK, torsóttur sigur Stjörnunnar, Skagamenn hafa pakkað saman, KA setur jafnteflismet, Lennon nál...

Oct 05, 2020

Ítalski boltinn - Sérstakur upphitunarþáttur

Loksins er kominn hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson mun í vetur gera reglulega þætti þar sem hann fer yfir það sem er að gerast í ítalska boltanum. Verður fjallað um Íslendingana í deildinni, skemmtilegar sögur, rifjaðar upp goðsagnir og svo verða í hverjum þætti veitt veitt hin skemmtilegu verðlaun „gullna ruslatunnan", eða „Bidone d'oro". Fyrsti þátturinn er upphitunarþáttur þar sem við fáum að kynnast öllum liðunum í deildinni áður en leiktíðin fer al...

Oct 04, 2020

Útvarpsþátturinn - Boltahringborð, VAR og xG

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 3. október. Sérfræðingarnir Rafn Markús Vilbergsson og Úlfur Blandon ræða um allt það helsta í íslenska boltanum, leiki og fréttir tengdar Pepsi Max-deild karla og Lengjudeildinni. Tómas Þór og Elvar Geir ræða um landsliðshópinn og komandi leik gegn Rúmeníu. Vilhjálmur Alvar Þórarinsson dómari var á línunni en VAR verður notað í fyrsta sinn formlega í keppnisleik hér á landi á fimmtudag. Þá var fótboltaþjálfarinn Bjarki Már Ólafsson í beinni frá Katar o...

Oct 03, 2020

Heimavöllurinn: Lengjufjör - Sögulegt á Króknum og Kef stoppar stutt

Það er allt á suðupunkti í boltanum en í dag fær Lengjudeildin sviðsljósið á Heimavellinum. Nú er ljóst að Tindastóll og Keflavík fara upp um deild á meðan það fellur í hlut Fjölnis og Völsungs að falla. Knattspyrnuþjálfararnir Aníta Lísa Svansdóttir og Óskar Smári Haraldsson mæta í sett og skoða Lengjusumarið til þessa.

Oct 02, 2020

Fantabrögð - Ólýsanleg martröð

Einhverntímann var manni kennt að það væri bannað að sparka í liggjandi mann. En Fantasy Premier League virðist ekki hafa kynnt sér þá reglu og lætur mann nú hafa það óþvegið viku eftir viku. Eins og kom fram í síðasta þætti þá tóku allir 3 stjórnendur Fantabragða Wildcard fyrir umferðina og það má segja að það hefði getað gengið betur. En við tjöldum ekki til einnar nætur í þessum bransa, heldur setjum hausinn upp og bíðum spenntir eftir næstu umferð.

Oct 01, 2020

Ástríðan - Yfirferð vikunnar í 2. og 3. deild

Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Þáttastjórnendur eru Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason. Farið er yfir allt það helsta í 2. og 3. deild karla. Leikirnir skoðaðir og fréttir sagðar.

Sep 30, 2020

Ungstirnin - Alex Þór og nýtt ungstirni Juventus

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum fimmta þætti er fjallað um Sergino Dest (Barcelona), Dejan Kulusevski (Juventus) og Michaël Cuisance (Bayern). Þá kemur Alex Þór Hauksson, fyrirliði Stjörnunnar, í heimsókn og er rætt um allt sem hefur verið í gangi hjá honum hingað til á ferlinum.

Sep 30, 2020

Boltinn á Norðurlandi: Æðri máttarvöld aðstoðuðu Magnamenn - Dramatík á Húsavík

Farið yfir úrslit helgarinnar og kvöldins í kvöld. Einnig var aðeins rýnt í næstu leiki. Magni, Völsungur og Þór/KA með frábæra sigra. Stutt í titilinn hjá Tindastóli og óvænt markaflóð hjá KA. Víti eða ekki víti á Þórsvelli? Kormákur/Hvöt leikur úrslitaleik á morgun gegn ÍH. Rætt var við þá Anton Frey Jónsson um Magna og Egil Sigfússon um KA.

Sep 29, 2020

Innkastið - Mörg risastór atvik og rauð spjöld

Innkastið fer yfir sunnudagsumferðina í Pepsi Max-deildinni og fer einnig yfir Lengjudeildina. Allt í boði White Fox! Elvar Geir, Ingó Sig og Gunni Birgis höfðu um nóg að ræða. Það er grimm Evrópubarátta, nóg af rauðum spjöldum og stórum atvikum. Haustlægðirnar herja á mótið og veðurguðirnir hafa sín áhrif.

Sep 27, 2020

Útvarpsþátturinn - Leikstílar í Pepsi Max og óverðskuldaður sigur Man Utd

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 26. september. Elvar Geir og Tómas Þór gera upp síðustu umferð í Pepsi Max, ræða helstu fréttapunktana og opinbera úrvalslið og besta leikmann umferðarinnar. Þá er farið yfir niðurstöðuna í vali á besta leikmanni annars þriðjungs. Breki Logason, fyrrum fréttastjóri, er harður stuðningsmaður Vals og er á línunni en Valsmenn eru búnir að stinga af í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn. Arnar Hallsson, þjálfari og leikgreinandi, kemur í heimsókn o...

Sep 26, 2020

Ástríðan - Umdeilt bann og umtalað viðtal

Loksins er kominn nýr þáttur af Ástríðunni! Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Þáttastjórnendur eru Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason en þeir skoða baráttuna í 2. og 3. deild karla. Það hefur nóg gengið á síðan síðasti þáttur var tekinn upp og boðið upp á þéttan pakka. Meðal efnis: Sewa farinn frá Tindastóli, umdeilt leikbann McAusland, stuðningsmenn á Dalvík, skandall ef Höttur/Huginn fer niður og umræðan um viðtalið við þjálfara Kórdrengja.

Sep 26, 2020

Boltinn á Norðurlandi: Til hamingju Tindastóll - Endurtekið efni og Völsungsvon

Þeir Aksentije Milisic og Sæbjörn Þór Þórbergsson fóru yfir síðustu tvær vikurnar í boltanum á Norðurlandi. Endurtekið efni hjá KA - stefnir í met. Frægi lygni sjórinn hjá Þór, KF og Tindastóli, lífróður hjá Magna, D/R og Völsungi. Fjórir úrslitaleikir framundan hjá Þór/KA og Tindastóll í fyrsta sinn komið með lið í efstu deild. Hafa samband: saebjorn@fotbolti.net

Sep 25, 2020

Fantabrögð - Wild(card) boys

2. umferðin í Fantasy Premier League þetta tímabilið sýndi okkur heldur betur hvað þessi leikur getur verið grimmur. Hún kenndi okkur hvað þolinmæði getur verið mikilvæg í þessum leik og spilarar sem héldu tryggð við leikmenn eins og Kane, Son og Mane eftir 1. umferð uppskáru nú ríkulega. En það var ekki staðan hjá Fantabrögðum. Þáttastjórnendurnir þrír áttu allir lélega umferð og sáu ekki annan valkost í stöðunni en að leggja í borðið hið villta spil. Aron, Gylfi og Gunni fóru yfir stöðuna á "n...

Sep 24, 2020

Ungstirnin - Efnilegir í þýska og Adam Páls gestur

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Þáttastjórnendur í þessum fjórða þætti eru Arnar Laufdal Arnarsson og Eysteinn Þorri Björgvinsson. Í þættinum er fjallað um Jamal Musiala (Bayern Munchen), Youssoufa Moukoko (Dortmund) og Giovanni Reyna (Dortmund). Drengirnir ræddu um 12 unga leikmenn í Pepsi-Max deildinni og það sem hefur verið að gerast í enska boltanum. Þá kom Adam Ægir Pálsson, leikmaður Víking Reykjaví...

Sep 23, 2020
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android