44 mörk voru skoruð í 2. umferðinni í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Gunnar Ormslev og Hlynur Valsson, lýsendur hjá Síminn Sport, kíktu í heimsókn í höfuðstöðvar Fótbolta.net í dag. og fóru yfir leiki helgarinnar.
Sep 22, 2020
Elvar Geir, Ingólfur Sigurðsson og Gunnar Birgisson fjalla um Pepsi Max-deildina og Lengjudeildina. Það var hellingur af leikjum á dagskrá þennan mánudaginn og voru þeir til umfjöllunar í þættinum. Einnig var opinberað val á bestu mönnum annars þriðjungs Lengjudeildarinnar og fjórir leikmenn tilnefndir sem besti leikmaður annars þriðjungs Pepsi Max-deildarinnar.
Sep 21, 2020
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 19. september 2020. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Sérfræðingur: Úlfur Blandon. Í upphafi: Rætt var um Pepsi Max-deildina og þjálfara fengu einkunnir. 59:00 Þorlákur Árnason ræddi um erfiðleika íslenskra liða í Evrópu og hvað er til ráða. 80:00 Enski boltinn. Jón Kaldal var á línunni um Arsenal.
Sep 19, 2020
Enska úrvalsdeildin hófst um liðna helgi en Manchester City hefur leik á mánudaginn þegar liðið mætir Wolves á útivelli. Þórgnýr Einar Albertsson og Starri Reynisson stuðningsmenn Manchester City, kíktu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og ræddu um komandi tímabil hjá City. <b>Meðal efnis:</b> Lionel Messi, vonbrigði í fyrra, Guardiola. bras á Foden, brotthvarf David Silva, besti Torres í sögu deildarinnar, vandræði í vinstri bak, framtíðarfyrirliðinn Rodri, besta byrjunarli...
Sep 17, 2020
Fantabrögð gerðu upp fyrstu umferðina á nýju tímabili í Fantasy. Þáttastjórnendur áttu ágætis umferðir en einn þó alveg sérstaklega góða. Chelsea sigraði Brighton þrátt fyrir ósannfærandi frammistöðu og Jimenez er stöðugasti fantasy leikmaðurinn. Aron þurfti að senda frá sér formlega yfirlýsingu í stóra Saliba-málinu og rýnt var í liðið hans og reynt að laga vandamálin. Vertu með í head-to-head deild Fantabragða. Kóðinn er smi0nx. Fylgstu með í vetur og mundu að stilla upp liði fyrir kl. 10 á la...
Sep 15, 2020
Riðlakeppni 4. deildarinnar lauk um helgina og framundan er sjálf úrslitakeppnin. Fyrri leikirnir í 8-liða úrslitum eru á dagskrá á laugardaginn. Magnús Valur Böðvarsson, sérfræðingur um 4. deildina, og Axel Örn Sæmundsson, þjálfari Bjarnarins, kíktu í hljóðver Fótbolta.net í dag og ræddu komandi úrslitakeppni.
Sep 15, 2020
Enska úrvalsdeildin hófst um liðna helgi en Manchester United hefur leik næstkomandi laugardag gegn Crystal Palace. Andri Geir Gunnarsson og Jóhann Skúli Jónsson, stuðningsmenn Manchester United, kíktu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og ræddu um komandi tímabil hjá United sem og helstu tíðindi helgarinnar í enska boltanum. Meðal efnis: Meiri bjartsýni fyrir stórleiki, síðasti séns hjá formlausum Shaw, störukeppni við önnur félög, Sancho, leita annað í glugganum, of dýrir enskir leikme...
Sep 15, 2020
Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Þáttastjórnendur eru Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason. Með þeim að þessu sinni er góður gestur, Helgi Steinar Jónsson sem þekkir fótboltann á austurlandi út í gegn. Farið er yfir allt það helsta í 2. og 3. deild karla.
Sep 14, 2020
Það var tíðindamikill Ofursunnudagur í Pepsi Max-deildinni. Elvar Geir, Gunni Birgis og Ingó Sig fara yfir leiki dagsins og helstu umræðuefnin. Einnig er Lengjudeildin skoðuð. Meðal umræðuefna: Gjafmildir Blikar, gaman í Krikanum, alvöru lokasprettur Stjörnumanna, Valur 2020 eins og KR 2019 og augljósasta bakhrinding í heimi.
Sep 13, 2020
Upptaka af útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 þann 12. september. Elvar Geir og Tómas Þór voru á sínum stað. Í upphafi: Íslenski boltinn. Mjólkurbikarleikir vikunnar og ofursunnudagur framundan í Pepsi Max. 32:00 Landsliðsuppgjör. Freyr Alexandersson aðstoðarlandslandsliðsþjálfari á línunni. 67:30 Gestur þáttarins. Eggert Gunnþór Jónsson, leikmaður FH.
Sep 12, 2020
Þeir Aksentije Milisic og Sæbjörn Þór Þórbergsson fóru yfir þá leiki sem fram hafa farið síðan þeir ræddu málin síðast. 2. deild karla var í sviðsljósinu og sérstaklega stórskemmtilegur leikur D/R gegn Völsungi í gær. KF er í öruggum málum og vann granna sína í enn eitt skiptið. Baráttan er hins vegar blóðug á botninum. Þórsarar stimpluðu sig rækilega úr toppbaráttunni í Lengjunni og Magni á gífurlega mikilvægan leik framundan. Þór/KA mætir KR í undanúrslitum bikarsins en ekkert gengur í deildin...
Sep 10, 2020
Landsliðið okkar fær loksins að spreyta sig eftir alltof langa covid pásu. Framundan eru risa leikir gegn Lettlandi og Svíþjóð og leikmannahópurinn sem tekur þátt í þeim verkefnum var kynntur í dag.
Sep 10, 2020
Enska úrvalsdeildin hefst á laugardaginn og Fótbolti.net heldur áfram upphitun sinni fyrir mótið. Einar Matthías Kristjánsson, Magnús Þór Jónsson og Sigursteinn Brynjólfsson, stuðningsmenn Liverpool af kop.is, kíktu í spjall fyrir tímabilið. Meðal efnis: Thiago Alcantara, fá leikmannakaup, æfingaóður Klopp, nýr vara vinstri bakvörður, nýtt leikkerfi?, Keita gæti komið inn í liðið, of lítil samkeppni, risa leikir í byrjun, Minamino á uppleið, færri stig til að landa titlinum, annað einvígi við Ma...
Sep 10, 2020
Gylfi Tryggvason sneri aftur í byrjunarliðið hjá Fantabrögðum og gaf upp sitt lið fyrir fyrstu umferð í Fantasy Premier League. Strákarnir ræddu allt sem þú þarft að vita fyrir nýtt tímabil í enska boltanum, m.a. nýja leikmenn Chelsea og mikilvægustu breytinguna á Fantasy leiknum í ár. Kóðinn í head-to-head deild Fantabragða er smi0nx. Fylgstu með í vetur og mundu að stilla upp liði fyrir kl. 10 á laugardaginn!
Sep 09, 2020
Enska úrvalsdeildin hefst um næstu helgi og Fótbolti.net heldur áfram upphitun sinni fyrir mótið. Einar Guðnason, aðstoðarþjálfari Víkings R, og Einar Örn Jónsson, íþróttafréttamaður á RÚV, komu og ræddu um lið Arsenal.
Sep 09, 2020
Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Þáttastjórnendur eru Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason. Boðið er upp á langan og veglegan þátt að þessu sinni þar sem málin eru skoðuð í 2. og 3. deild.
Sep 09, 2020
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Þáttastjórnendur eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum þriðja þætti er fjallað um Alessandro Bastoni (Inter), Romario Baró (Porto) og Filip Stevanovic (Partizan). Rætt er um ævintýri Mason Greenwood og Phil Foden hér á Íslandi. Þá er haldið áfram að skoða hvaða efnilegu leikmenn gætu brotist inn í aðallið sinna félaga og látið að sér kveða í ensku ú...
Sep 08, 2020
Enska úrvalsdeildin hefst um næstu helgi og Fótbolti.net heldur áfram upphitun sinni fyrir mótið. Tottenham stuðningsmennirnir Hjálmar Örn Jóhannsson og Ingimar Helgi Finnsson kíktu í spjall og ræddu komandi tímabil. Meðal efnis: Amazon þættirnir, bjartsýni eftir erfiða tíma, trú á Mourinho, lítið til í buddunni, vesen í vinstri bakverði, sókndjarfur Doherty, Fantasy, Alli vantar pláss, gríðarlegt leikjaálag, tengsl Parrott við mafíuna, spútniklið vetrarins, fósturmamma Lloris og síðasta tímabil...
Sep 07, 2020
Eftir landsleik Íslands og Englands í Þjóðadeildinni, 0-1 tapið svekkjandi, fóru Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Magnús Már Einarsson yfir leikinn. Rætt var um allt það helsta og farið yfir frammistöðu einstakra leikmanna. Einnig var rýnt í framhaldið og hvernig mögulegt byrjunarlið gegn Belgum gæti litið út. Landsliðs-Innkastið er í boði White Fox.
Sep 05, 2020
Seinni hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 5. september. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson halda um stjórnartaumana og Jóhann Már Helgason, sérfræðingur um Chelsea, var með þeim. Enska úrvalsdeildin fer aftur af stað um næstu helgi og nóg hefur verið í gangi hjá Chelsea, liðið hefur verið hrikalega öflugt á leikmannamarkaðnum og keypt nýjar stjörnur.
Sep 05, 2020
Fyrri hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 5. september. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson halda um stjórnartaumana og sérfræðingurinn Úlfur Blandon var með þeim. Meðal umræðuefna: Fréttirnar úr Pepsi Max-deildinni, Evrópumöguleikar KR, komandi leikir í Lengjudeildinni og landsleikirnir. Þá settu Tómas og Úlfur saman úrvalslið fyrir Pepsi Max. Hvort liðið er sterkara?
Sep 05, 2020
Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Í þessum hliðarþætti koma góðir gestir og ræða um lífið í neðri deildunum. Gestir þáttarins eru Ingimar Elí Hlynsson, aðstoðarþjálfari ÍA, og Atli Gunnar Guðmundsson, markvörður Fjölnis. Þáttastjórnendur eru Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason.
Sep 04, 2020
Gylfi Tryggvason lá undir feldi að þessu sinni að stilla upp liði og til að fylla hans skarð fékk Aron til leiks ríkjandi Íslandsmeistara í Fantasy Premier League, Gunnar Björn Ólafsson. Saman fóru þeir yfir lið Gunnars og spáðu í spilin fyrir komandi leiktíð. - Hvað gerir Chelsea með heilt lið af nýjum leikmönnum? - Pogba og Traore með kórónaveiruna - Er Mitrovic leikmaðurinn með mest value í ár? - Er Aron með Arsenal gleraugun límd of fast á sig? - Budweiser deildin búin að opna
Sep 01, 2020
Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Sverrir Mar Smárason heldur einn um stjórnartaumana að þessu sinni en hann fékk öflugan liðsstyrk sér við hlið. Alexander Már Þorláksson mætti og fór með honum yfir sviðið. Farið er yfir leikina í 2. og 3. deild síðustu vikuna.
Aug 31, 2020
BÁN hringdi á sunnudagskvöldi í þá Anton Frey Jónsson og Egil Sigfússon og fóru þeir Aci og Sæbjörn yfir Lengjudeildina og KA með séfræðingunum að sunnan. Staðan: Þór/KA þarf að horfa á liðin fyrir neðan, Þórsarar horfa upp fyrir sig, líflína hjá Magna og KF búið að halda sér uppi. Völsungur fallið en D/R vann lykilsigur. Samherji og Tindastóll karlamegin keppa að litlu á meðan Stólastelpur horfa í Paxið.
Aug 30, 2020
Elvar Geir og Gunni Birgis stýrðu Innkastinu og fengu sérstakan heiðursgest í þáttinn; Gunnar Sigurðarson. Gunni samloka fór meðal annars yfir vindasamt tímabil hjá hans mönnum í Víkingi Ólafsvík og valdi skemmtilegustu og verstu velli landsins. Í þættinum er farið yfir leiki helgarinnar í Pepsi Max-deildinni og Lengjudeildinni með ýmsum útúrdúrum.
Aug 30, 2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Það nötrar allt og skelfur bak við tjöldin hjá stórliði Barcelona. Kallað er eftir því að forseti félagsins segi af sér og Lionel Messi vill fara. Eða hvað? Vill hann fara? Einar Örn Jónsson íþróttafréttamaður á RÚV er ansi fróður um stöðu mála í Katalóníu og hann mætti í þáttinn.
Aug 29, 2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór stýrðu uppgjöri fyrri helmings Pepsi Max-deildarinnar. Sérfræðingur þáttarins er þjálfarinn og leikgreinandinn Arnar Hallsson sem hefur verið með pistla á Fótbolta.net á tímabilinu þar sem hann rýnir dýpra í leiki deildarinnar. Hann kom með nýja vinkla í umræðuna. Einnig var opinberað úrvalslið fyrri helmings deildarinnar.
Aug 29, 2020
Allir meðlimir Innkastsins sem ekki eru í sóttkví voru samankomnir á Ölveri í Glæsibæ og fóru yfir helstu málin. Elvar Geir, Gunni Birgis og Ingó Sig gerðu upp fjóra leiki í Pepsi Max-deildinni en burðarleikurinn var stórleikur KR og Vals á Meistaravöllum sem endaði 4-5. Eðlilegt. Einnig var rætt um komandi leiki íslenskra liða, deilur Skagamanna og Gunna, áhorfendabann og fleira.
Aug 26, 2020
Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Þáttastjórnendur eru Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason. Farið var yfir leiki helgarinnar í 2. og 3. deild. Áfram halda vandræði Völsungs og Bondhornið var kynnt til leiks
Aug 25, 2020