Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Helgi Sigurðsson, þjálfari ÍBV, var gestur þáttarins og ræddi um verkefni hans framundan í Vestmannaeyjum. Leikmannamál, viðskilnaðurinn við Fylki, Gary Martin, blómvöndurinn, kórónaveiran og fleira kom við sögu í spjalli við Helga.
Feb 29, 2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net. Elvar Geir og Tómas Þór fóru yfir það sem er í boði um helgina í Evrópufótboltanum. Þá kom Tómas með ferðasögu en hann heimsótti Everton í vikunni og spjallaði við Gylfa Sigurðsson, Grétar Rafn Steinsson og fleiri.
Feb 29, 2020
27. umferðin í Fantasy Premier League var sannkölluð hauskúpuumferð framan af, en rættist úr eftir því sem á leið og flestir spilarar náðu að tína inn nokkur stig þegar Liverpool vann West Ham 3-2. Bruno Fernandes sýndi frammistöðu sem réttlætir kaup á honum, meðan Everton bræðurnir Calwert-Lewin og Richarlison skoruðu báðir. Framundan er 28. umferðin þar sem 4 lið "hvíla". Hvað gerir maður þá? Er í lagi að selja City menn - borgar sig kannski að bíða fram á föstudag? Er Aubameyang skyldueign ef...
Feb 25, 2020
Evrópu-Innkastið er mætt á svæðið eftir leiki helgarinnar en Magnús Már Einarsson var umsjónarmaður þáttarins að þessu sinni. Jóhann Skúli Jónsson, stuðnigsmaður Manchester United, og Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, mættu og fóru yfir öll helstu tíðindin á Englandi og í stærstu deildum Evrópu. Meðal efnis: Ný hetja á Old Trafford, Evrópudeildin er leið Man Utd í Meistaradeild, frábær Giroud, fúll Mourinho, versta VAR helgin, fögn á Emirates, galin hárgreiðsla Mustafi, spennandi fall...
Feb 24, 2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Gestur þáttarins er Kári Árnason, landsliðsmaður og leikmaður Víkings. Það er rúmlega mánuður í umspilsleikinn mikilvæga gegn Rúmeníu en sigurliðið mun leika gegn Ungverjalandi eða Búlgaríu ytra, hreinan úrslitaleik um sæti á EM 2020.
Feb 22, 2020
Upptaka af útvarpsþættinum Fótbolti.net 22. febrúar 2020. Tómas Þór og Benedikt Bóas stóðu vaktina. Þeir ræddu um helstu fótboltafréttir vikunnar og spjölluðu við umboðsmanninn Cesare Marchetti um málefni Harðar Inga Gunnarssonar. Gestur þáttarins var Kári Árnason.
Feb 22, 2020
Heimavöllurinn er mættur aftur, öflugri sem aldrei fyrr. Í þætti dagsins er farið um víðan völl enda nóg um að vera í boltanum. Knattspyrnuþjálfarinn Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir er gestur þeirra Huldu Mýrdal og Mistar Rúnarsdóttur að þessu sinni og fara þær saman yfir það sem af er undirbúningstímabilinu, ræða nýjasta landsliðsvalið og taka stöðuna á atvinnukonunum okkar svo fáeint sé nefnt.
Feb 20, 2020
26. umferð einkenndist af óreiðu þar sem langt var á milli leikja vegna vetrarfrís. Það sauð á strákunum sem treystu Aguero fyrir fyrirliðabandinu. Enn einu sinni brást það. Nicolas Pepe minnti á sig með 17 stig. Styttist í takmarkaða umferð (blank gameweek) og nú þarf að fara að gera ráðstafanir. Hverju þarf að huga að? Hvað á að gera við Son? Er Man Utd vörnin vöknuð?
Feb 20, 2020
Það stefndi lengi í að Atli Jónasson yrði framtíðar markvörður KR en á leiðinni kom ýmislegt uppá sem varð á endanum til þess að hann spilaði bara einn leik í efstudeild. Hann er gestur podcastþáttarins Miðjunar á Fótbolta.net í dag.
Feb 19, 2020
Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz eru mættir með Evrópu-Innkastið þessa vikuna. Ýtt var á upptöku strax eftir leik Chelsea og Manchester United og leikurinn gerður upp. Lampard hættur að vera töff, Wan-Bissaka í Allir geta dansað, bannið hjá Manchester City, svakaleg frammistaða Arsenal, fallfnykur Villa, skemmtilegasta lið Championship, Immobile og gjörsamlega fáránleg undanþága í La Liga.
Feb 17, 2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Í byrjun: Jón Kári Eldon fer yfir nýja KSÍ merkið sem hefur fengið mikla gagnrýni. 14:00 Elvar og Tómas opinbera niðurstöðu í vali áhorfenda á bestu og verstu völlum Pepsi Max-deildarinnar. 39:00 Viktor Bjarki, aðstoðarþjálfari HK, í viðtali.
Feb 15, 2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Þórir Hákonarson, fyrrum framkvæmdastjóri KSÍ, ræddi við Elvar og Tómas um komandi ársþing KSÍ og helstu málin sem þar verða rædd. Í gær var ársreikningur KSÍ opinberaður en 50 milljóna króna tap var á rekstrinum og gert er ráð fyrir áframhaldandi taprekstri.
Feb 15, 2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar og Tómas ræddu um tveggja ára bannið sem Manchester City var dæmt í fyrir að brjóta fjárhagsreglur. Manchester City var í gær dæmt í bann frá Evrópukeppnum í fótbolta næstu tvö keppnistímabil, og sektað um 30 milljónir evra. Refsingin er fyrir brot á reglum um fjárhagslega háttvísi. Forráðamenn City eru vonsviknir yfir ákvörðun UEFA, þó hún komi þeim ekki á óvart, og ætla að áfrýja niðurstöðunni til alþjóða íþróttadómstólsins, CAS.
Feb 15, 2020
Jón Páll Pálmason hefur þjálfað meistaraflokkslið í tíu ár þrátt fyrir að vera aðeins 37 ára gamall en hann tók við Víkingi Ólafsvík í vetur af Ejub Purisevic sem hafði stýrt liðinu síðan í upphafi aldarinnar. Hann er gestur podcastþáttarins Miðjunar á Fótbolta.net í dag. Meðal efnis: - Þjálfaði tónlistarmanninn Auður - Fannst hann hafa brugðist þegar Orri féll fyrir eigin hendi - Glímdi sjálfur við þunglyndi - 27 ára í fyrsta meistaraflokks starfinu - Bjargaði tveimur stigum með að hlaupa inn á...
Feb 12, 2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Guðmundur Þórarinsson var búinn að pakka takkaskónum og kassagítarnum og var á leið til Tyrklands þegar málin tóku óvænta stefnu. Hann samdi nýlega við New York City. Gummi Tóta fór yfir aðdragandann að þessum félagaskiptum og sagði meðal annars frá áhuga liðs í ítölsku A-deildinni. Þá ræddi hann um efasemdarraddir þess efnis að hann sé í fótboltanum af heilum hug.
Feb 08, 2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net. Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari karlaliðs Keflavíkur, kom í heimsókn og ræddi meðal annars um tíma sinn sem landsliðsþjálfari kvennaliða Kína og Íslands. Óhætt er að segja að Siggi Raggi hafi átt líflegan þjálfaraferil þar sem ýmislegt hefru gengið á og hann þurft að takast á við nýjar áskoranir.
Feb 08, 2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fóru yfir tíðindi vikunnar í íslenska boltanum og spjölluðu við Sævar Pétursson, framkvæmdastjóra KA, um aðstöðuleysi fyrir norðan og nýjan áhugaverðan leikmann.
Feb 08, 2020
Ragna Lóa Stefánsdóttir hefur komið víða í fótboltaheiminum, var frábær fótboltakona og landsliðskona, lenti í hræðilegum meiðslum en varð síðar footballers wife í Englandi. Í dag er hún aðstoðarþjálfari KR. Hún er gestur vikunnar í podcastþættinum Miðjunni. Meðal efnis: - Engir yngri flokkar en var í hverfisliði með Óla Þórðar og Sigga Jóns - Tók við þjálfun meistaraflokks ÍA tvítug - Þjálfaði Laxdal bræður í Stjörnunni - Spilandi þjálfari í KR, í landsliðinu og að ala upp börn - Fótbrotið - So...
Feb 05, 2020
Skelfingarumferð dundi yfir þá sem höfðu bandið ekki á Salah. Agüero gat ekkert. Sterling getur ekkert. Dularfullt mannshvarf í Leicester. Eina sem er öruggt í þessum heimi er að Sheffield heldur hreinu. Stigahæstir í þessari umferð í Budweiser deildinni voru þeir Kristján Breiðfjörð með liðið FC Breiði Reiði og Bjarni Ben Kristjánsson með liðið Scholes scores goals. Hafið samband við mate@fotbolti.net til að vitja vinninga.
Feb 03, 2020
Það var Liverpool þema í Evrópu Innkastinu að þessu sinni en þeir Sigursteinn Brynjólfsson, Einar Matthías Kristjánsson og Magnús Þór Jónsson frá kop.is kíktu í heimsókn og ræddu við Magnús Má Einarsson. Mikil umræða var um topplið Liverpool og aðra leiki helgarinnar á Englandi auk þess sem kíkt var á stærstu deildir Evrópu.
Feb 03, 2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór komu með fyrstu ótímabæru spá ársins fyrir Pepsi Max-deildina í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Þeir skoðuðu félagaskiptin í vetur og felldu dóma! Þá völdu þeir þá leikmenn sem þeir eru spenntastir fyrir að fylgjast með á þessu ári.
Feb 01, 2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar og Tómas ræddu stuttlega um gervigrasið í Egilshöll og félagaskipti Odion Ighalo til Manchester United. Svo var Mitch Freeley, íþróttafréttamaður beIN SPORTS í Katar á línunni. Illa hefur gengið hjá Al-Arabi, liði Heims Hallgrímssonar og Arons Einars Gunnarssonar, að undanförnu. Hverjar eru væntingarnar hjá Al-Arabi og hvernig er staða Heimis? Mitch svaraði því.
Feb 01, 2020
Elvar og Daníel tóku Evrópu-Innkast með frjálsri aðferð. Hverjir eru mennirnir sem réðust að heimili Ed Woodward? Elvar fór ofan í málið. Kobe Bryant minnst, Liverpool á leið í frí, bikardráttur, mestu vonbrigði tímabilsins, kaupin sem gætu átt sér stað og ýmislegt fleira í þættinum að þessu sinni.
Jan 29, 2020
Mikael Nikuláson hefur vakið athygli í podcastþættinum Dr. Football undanfarin misseri. Hann tók við þjálfun 2. deildar liðs Njarðvíkur í haust eftir 10 ára fjarveru úr þjálfun. Hann er gestur í podcastþættinum Miðjunni þessa vikuna. Meðal efnis: - Hætti í fótbolta í fjögur ár til að djamma og vinna í tískubransanum - Stoltur af endurkomu í frábært Fylkis lið - Útihlaupin hjá Óla Þórðar - Fyrstu árin í þjálfun með ÍH - Skilur ekki afhverju Brynjar markvörður yfirgaf félagið - Búið að semja við R...
Jan 29, 2020
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 25. janúar. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas ræddu um íslenska landsliðið, nú þegar tveir mánuðir eru í undanúrslitaleikinn gegn Rúmeníu í umspilinu fyrir EM. Þeir ræddu ítarlega við Frey Alexandersson, aðstoðarþjálfara landsliðsins, sem var gestur þáttarins. Kiddi vallarstjóri var einnig á línunni og staðan tekin á Laugardalsvelli nú þegar stutt er í leikinn mikilvæga. Þýski og enski boltinn voru líka til umræðu í þættinum.
Jan 25, 2020
Það var sannkölluð jarðarfararstemning í upptökuverinu í kvöld. Bragðarefirnir kröfðust þess að fá umfjöllun um umferðina STRAX. Fyrirliði þáttarins, Gylfi, ræsti Tind með sér sem gestastjórnanda um miðja nótt til að gera upp umferðina. Helst ber þar að nefna ákvörðun margra sem verður rifjuð upp næstu 10 árin, þ.e. að gefa Sadio Mané þrefalt fyrirliðaband. Mané. Vardy. GT. Allir þessir háklassa sóknarmenn meiddust í vikunni. Við óskum þeim góðs bata.
Jan 24, 2020
Davíð Smári Lamude, er gestur í hlaðvarpsþættinum Miðjunni að þessu sinni. Hann er þjálfari Kórdrengja sem hafa spilað 3 ár í deildarkeppni hér á landi og hafa farið upp um deild síðustu 2 ár. Þeir spila því í 2. deildinni í sumar. Meðal efnis: - Yfirlýsing um að vinna 2. deildina í haust - Afhverju hætti Ingvar Kale - Hver verður í markinu í sumar - Hvernig er félagið fjármagnað - Þurftu að neita auglýsendum - Draumur um að komast í Pepsi Max-deildina - Plön um yngri flokka starf - Aðstöðumál -...
Jan 22, 2020
Laugardagurinn í 23. umferð var ekkert minna en hræðilegur. Þrátt fyrir að átta leikir væru á dagskrá ströggluðu Fantasy spilarar við að ná tveggja stafa tölu - ekki fyrir einstaka leikmenn heldur fyrir allt liðið í heild. Liverpool bjargaði því sem bjargað varð en meira var það ekki. En við horfum björtum augum til framtíðar þar sem næsta umferð hefst strax á morgun! Næst á dagskrá er 24. umferðin og í henni á Liverpool tvo leiki. Margir spilarar munu því eflaust nota "triple captain" spilið og...
Jan 20, 2020
Strax eftir sigur Liverpool gegn Manchester United ýttu Daníel og Elvar á upptöku og fóru yfir leikinn. Daníel gaf leikmönnum Liverpool einkunn og Elvar sá um að dæma gestina. Farið var yfir aðra leiki helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni og einnig var fjallað um Balotelli, Haaland og fleira. Í lokin var svo komið að því að velja þá stjóra í enska boltanum sem væru bestu kostirnir sem barfélagar.
Jan 19, 2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Atli Sveinn Þórarinsson var gestur hjá Elvari og Tómasi. Atli var ráðinn aðalþjálfari Fylkis eftir síðasta tímabils og starfar hann við hlið Ólafs Stígssonar. Í viðtalinu ræðir Atli um komandi tímabil í Árbænum, höfuðhögg sem gerðu að verkum að hann þurfti að hætta í fótbolta á sínum tíma og fleira tengt boltanum.
Jan 18, 2020