Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar og Tómas fóru yfir allt það helsta sem er að frétta úr íslenska fótboltanum. Góðar fréttir fyrir Blika en vondar fyrir KR-inga sem misstu tvo leikmenn í langtímameiðsli. Þá var Hafliði Breiðfjörð í beinni útsendingu frá Fossvoginum þar sem Víkingar voru með fréttamannafund og kynntu tvo leikmenn. Rætt var við Arnar Gunnlaugsson, þjálfara Víkinga.
Jan 18, 2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um helgina í enska boltanum og báru núverandi lið Liverpool saman við Manchester United 2008. Liverpool og Manchester United eigast við í stórleik helgarinnar.
Jan 18, 2020
Manchester City rifjuðu upp gamla takta og rassskelltu Aston Villa 6-1 þar sem Agüero fékk 20 stig, Mahrez 17 og KDB 9. Rashford var tekinn útaf eftir 58 mínútur gegn Norwich sem kom þó ekki að sök þar sem hann skoraði tvennu. Liverpool heldur áfram að sigra og Aubameyang kominn í 3 leikja bann. En hvaða breytingar á að gera? Á að selja Traore? Eða Vardy? Kaupa Firmino? Er hann þriðji Liverpool maðurinn fyrir umferð 24? Allt þetta og margt fleira í nýjasta þættinum af Fantabrögðum.
Jan 14, 2020
Elvar Geir og Daníel fara yfir málin í fyrsta Evrópu-Innkasti ársins 2020. Farið er yfir leiki umferðarinnar í ensku úrvalsdeildinni og fréttir Evrópuboltans eru einnig skoðaðar. Meðal efnis: Bras á Mourinho, Liverpool setur met, City tekur annað sætið, sjálfstraust Rashford, Hudson-Odoi sýnir sínar réttu hliðar, rautt á besta leikmann Arsenal, markvarðamistök, vanmetinn stjóri Southampton, Xavi og Barcelona, Raggi Sig til Köben, Zlatan skorar og fleira.
Jan 12, 2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Blaðamaðurinn Þórður Snær Júlíusson er stuðningsmaður Everton og er gríðarlega vel að sér í málefnum félagsins. Hann ræddi um Everton í útvarpsþættinum Fótbolti.net þar sem meðal annars var farið yfir stöðu Gylfa.
Jan 11, 2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Höskuldur Gunnlaugsson kom í heimsókn rétt áður en hann þaut á Keflavíkurflugvöll þar sem hann er að fara í janúarverkefni landsliðsins. Hann ræddi meðal annars um mark sitt gegn ÍA á síðasta tímabili sem hann skoraði daginn eftir að hann missti bróður sinn. Einnig ræðir hann um Breiðablik og Halmstad en í viðtalinu staðfestir hann að allar líkur séu á því að hann spili með Blikum í sumar.
Jan 11, 2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fóru yfir fréttir úr íslenska boltanum, ræddu um íslenska leikmenn sem eru að skipta um lið, vondar fréttir af Laugardalsvelli og fleira. Valdimar Svavarsson, formaður FH, var í símaviðtali. Hann var spurður út í málefni félagsins, launamál og Steven Lennon svo eitthvað sé nefnt.
Jan 11, 2020
GT er snúinn aftur úr Asíureisu og hann og Aron gerðu upp 21. umferðina í Fantasy, sem fór fram 1. og 2. janúar. Jamie Vardy var enn frá og fyrirliðaval tók óvænta stefnu hjá mörgum, en umferðinni lauk með góðri frammistöðu frá Liverpool gegn Sheffield United. David Moyes byrjaði frábærlega hjá West Ham og Arsenal sigraði Manchester United í stórleik umferðarinnar. Strákarnir spáðu í spilin fyrir næstu umferð sem hefst á föstudag með leik Sheffield United og West Ham og ræddu breytingar á sínum ...
Jan 05, 2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Brynjar Skúlason, þjálfari Leiknis á Fáskrúðsfirði, var á línunni. Brynjar ræddi um öflugan árangur Fáskrúðsfirðinga á liðnu ári en liðið komst óvænt upp í 1. deildina, þvert á allar spár. Þá voru aðstöðumál liðsins einnig til umræðu. Í upptökunni er einnig framhald á umræðu um mögulega lengingu Íslandsmótsins. Rætt var við Arnar Svein Geirsson, forseta leikmannasamtakana.
Jan 04, 2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fengu til sín sérfræðinginn Kristján Atla Ragnarsson, stuðingsmann Liverpool. Rætt var um gang mála í enska boltanum. Meðal umrðuefna: Yfirburðir Liverpool, kröfur Pep Guardiola, þróun Manchester United, Mourinho aftur í sama farið, upprisa Southampton, bestu kaup áratugarins og fleira.
Jan 04, 2020
Það kom að því. Liverpool bakvarðabomban sem allir höfðu beðið eftir mætti á svæðið. Trent Alexander-Arnold setti hvorki meira né minna en 24 stig í Fantasy á annan í jólum og bjargaði 19. umferðinni fyrir ansi mörgum leikmönnum. Einn af þeim var Aron Elís Þrándarson, nýr leikmaður OB í Danmörku og sigurvegari draumaliðsleiks Fótbolta.net og Eyjabita í Pepsi Max deild karla í sumar. Aron er með stigahæstu leikmönnum Íslands í Fantasy Premier League og var auk þess valinn í landsliðshóp Íslands í...
Dec 30, 2019
Elvar og Daníel skoða jólatörnina í ensku úrvalsdeildinni í síðasta Evrópu-Innkasti ársins 2019. Meðal efnis: Handakrikarangstöður í VAR, De Bruyne leikmaður ársins?, enginn veikur blettur hjá Liverpool, þáttur Jody Morris í sigri Chelsea, handbragð Arteta, Andreas Pereira, breytt hlutverk Gylfa, Ancelotti og Ferguson, Haaland til Dortmund, Zlatan til AC Milan og bestu leikmenn áratugarins.
Dec 30, 2019
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson, Benedikt Bóas Hinriksson og Magnús Már Einarsson fóru yfir árið 2019 í Áramótakæfunni sem var nú smökkuð í sjöunda sinn. Hressir viðmælendur, gleði, bombur og góðir gestir. Veitt voru verðlaun í ýmsum flokkum.
Dec 28, 2019
18. umferðin í Fantasy Premier League reyndist alveg eins erfið og hún virkaði á pappír. Jamie Vardy og Danny Ings skoruðu en Manchester United og Tottenham fóru illa með fólk. Sérstaklega Heung Min Son sem skellti sér í 3 leikja jólabann með því að fá beint rautt. Hann var einn vinsælasti fyrirliðinn um helgina og því ansi margir spilarar sem enduðu með mínusstig fyrir fyrirliðann, enda virkar fyrirliða "bónusinn" í báðar áttir og því tvöfaldast mínusinn ef fyrirliðinn manns er í þeim pakka. Þa...
Dec 22, 2019
Heimavöllurinn snýr aftur og þáttastýrurnar Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir hafa um ýmislegt að ræða eftir huggulegt haustfrí. Goðsögnin Margrét Lára Viðarsdóttir hefur lagt skóna á hilluna og landsliðskonurnar Dagný Brynjarsdóttir og Rakel Hönnudóttir eru komnar heim úr atvinnumennskunni. Rakel kíkir einmitt í heimsókn á Heimavöllinn og ræðir tímann í Svíþjóð og Englandi og endurkomuna í íslenska boltann.
Dec 21, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Hörður Magnússon kom í heimsókn en hann er hættur störfum sem íþróttafréttamaður, í bili að minnsta kosti. Hann fór yfir viðburðarík ár sem stjórnandi Pepsi Max-markanna, ræddi um árangur Liverpool í vetur og fleira tengt boltanum.
Dec 21, 2019
Grótta kom gríðarlega á óvart á liðnu sumri og vann 1. deildina. Liðið leikur í deild þeirra bestu á komandi ári. Birgir Tjörvi Pétursson, formaður knattspyrnudeildar Gróttu, kom í heimsókn í útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X977. Í þættinum opinberaði hann að þó leikmenn liðsins séu ekki á föstum launagreiðslum þá sé búið að setja upp sérstakt kerfi bónusgreiðslna fyrir leikmenn og þá þurfa þeir ekki að greiða neitt fyrir æfingaferð liðsins. Hvernig mun Gróttuleiðin virka í Pepsi Max-deildinni? Fæ...
Dec 21, 2019
Í fjarveru GT dugði ekkert minna en að fá alvöru fallbyssu í þáttinn og því mætti Jói Skúli, stjórnandi hlaðvarpsins Draumaliðið og ræddi um Fantasy gengi sitt. Hann gerði svo upp 17. umferðina með Aroni og spáði í spilin fyrir næstu umferð. Eðlilega snerist umræðan mikið um hvað ætti að gera við Liverpool menn þar sem þeir eiga ekki leik í 18. umferð vegna HM félagsliða. Jói lokaði síðan þættinum með því að velja drauma-fantasy lið sitt í gegnum tíðina. Þar komu heldur betur upp skemmtileg nöfn...
Dec 18, 2019
Evrópu-Innkastið er sent út frá Ölveri í Glæsibæ þessa vikuna. Benedikt Bóas blaðamaður og Gunnar Ormslev kappleikjalýsandi voru með Elvari í Innkastinu að þessu sinni. Toppbaráttan var skoðuð og Gunnar fékk það heimaverkefni að velja úrvalslið ensku úrvalsdeildarinnar hingað til. HM félagsliða, El Clasico, Ancelotti eða Arteta og fleira í þætti vikunnar.
Dec 17, 2019
Ejub Purisevic var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 og fór yfir fótboltasögu sína í viðtali við Elvar Geir og Tómas Þór. Ejub hefur markað djúp spor í íslenskan fótbolta en hann er þekktastur fyrir að ná ótrúlegum árangri sem þjálfari Víkings í Ólafsvík. Í viðtalinu segir Ejub frá því hvað leiddi hann til Íslands, ræðir um stríð í heimalandi sínu, ár sín sem spilandi þjálfari Sindra á Höfn í Hornafirði og opinberar í fyrsta sinn af hverju hann fór til Ólafsvíkur á sínum tíma. Áhugave...
Dec 14, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Er viðurefnið LiVARpool sanngjarnt? Er tilviljun að Steven Gerrard samdi til 2024? Hvernig verður drátturinn í Meistaradeildinni á mánudag? Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um Evrópufótboltann.
Dec 14, 2019
Sérstök hátíðarútgáfa af Innkastinu! Teymið var kallað saman til að skoða stöðu mála hjá öllum tólf liðum Pepsi Max-deildar karla. Tómas Þór, Elvar Geir, Gunni Birgis og Magnús Már skoðuðu tíðindin sem hafa borist í haust og vetur. Hvernig eru leikmannahóparnir að líta út, hvaða leiðir er verið að fara í þjálfaramálum og hvaða vonir og væntingar er hægt að gera til liðanna?
Dec 11, 2019
Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA, er gestur í hlaðvarpsþættinum Miðjunni að þessu sinni. Meðal efnis: Draumabyrjun á síðasta tímabili, af hverju fjaraði undan liðinu?, leikmannamálin, breytingar á leikstíl ÍA, framhaldið á Akranesi, nýir aðstoðarþjálfarar, fjölgun leikja á Íslandsmótinu, ungur sonur í atvinnumennskunni, gervigras á Akranesvöll, ótrúlegt gengi Liverpool, ævintýri Leicester og jólahátíðin á Englandi.
Dec 10, 2019
Það skiptust á skin og skúrir þessa helgina hjá Aroni og Gylfa þegar kom að Fantasy. Þrefaldi Tottenham skammturinn hjá Aroni skilaði sér heldur betur þegar þeir unnu 5-0 sigur á Burnley. Á meðan unnu Liverpool 3-0 sigur og héldu hreinu en þar sem Trent spilaði aðeins 50 mín. fékk hann ekki stig fyrir að halda hreinu. Vardy hélt áfram að skora, Rashford er allt í einu orðinn einn heitasti leikmaðurinn í leiknum og Danny Ings heldur áfram að vinna í þakinu hjá sér. Á að kaupa Shelvey? Er Vardy áf...
Dec 10, 2019
Það var líf og fjör í Evrópu-Innkastinu að þessu sinni en gestir voru Tottenham stuðningsmennirnir Hjálmar Örn Jóhannsson og Ingimar Helgi Finnsson. Öllu léttara var yfir þeim en síðast þegar þeir kíktu í heimsókn í byrjun október. Síðan þá hefur Jose Mourinho tekið við Tottenham og liðið klifrað upp töfluna. Farið var yfir leiki helgarinnar á Englandi og helstu tíðindi á Spáni, Ítalíu og Þýskalandi. Hjálmar kom síðan með byltingarkennda tillögu í tengslum við fjölgun leikja á Íslandsmótinu!...
Dec 09, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór héldu áfram að ræða um mögulega lengingu á Íslandsmótinu. Þá var Bjarni Ólafur Eiríksson í viðtali en hann gekk nýlega í raðir ÍBV. Daníel Geir Moritz, eigandi ÍBV, hefur blásið í herlúðra í Vestmannaeyjum.
Dec 07, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Fjallað um enska boltann. Tómas Þór sagði frá vinnuferð sinni þar sem hann heimsótti Turf Mor og Anfield, sá Manchester City rúlla yfir Burnley og Everton tapa illa fyrir Liverpool. Þá var Magnús Þór Jónsson af kop.is á línunni og ræddi um Everton og desemberdagskrá Liverpool.
Dec 07, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Farið er yfir það helsta í ítalska boltanum. Björn Már Ólafsson, helsti sérfræðingur Íslands um ítalska boltann var í beinni frá Malmö. Hann ræddi við Elvar og Tómas um gang mála.
Dec 07, 2019
Í Evrópu-Innkastinu að þessu sinni fer öll orkan í ensku úrvalsdeildina enda tvær umferðir að baki síðan þátturinn var síðast á dagskrá. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz eru umsjónarmenn þáttarins. Daníel er lítill í sér vegna stöðu mála hjá Arsenal en liðið tapaði fyrir Brighton í gær. Meðal efnis: Hver á að taka við Arsenal? Getur Everton fallið? Á hvaða leið er Manchester United? Af hverju er Pellegrini enn í starfi? Hvernig er Liverpool tilbúið í desember?
Dec 06, 2019
Strákarnir hittust í GT studio og ræddu 15. umferðina. VAR-sóknarlínan sýndi, eins kaldhæðið og nafnið er, enn og aftur fram á mikilvægi sitt. Vardy, Abraham og Rashford skoruðu allir. Tammy lék marga þjálfara grátt og einhverjir söfnuðu stigum á bekknum. Mælt er með að hlustendur fái sér sæti áður en þeir hlusta á lok þáttarins því stærstu sprengju í sögu þáttanna var varpað. Ekki missa af því. Eða kannski væri annar þeirra alveg til í að hlustendur myndu einmitt missa af því.
Dec 06, 2019