14. umferðin fór ekki alveg eins vel og við höfðum vonað. Jamie Vardy skoraði, en ekki alveg eins mikið og við hefðum óskað okkur. Einungis eitt lið skoraði fleiri en tvö mörk og einungis tvö lið héldu hreinu. Willems lestin gefst ekki upp og Freddie Ljungberg blés lífi í Aubameyang. Fyrir utan að fara yfir mínusstigin sem við tókum á okkur fyrir umferðina fórum við yfir 3 hluti sem skemmdu þessa umferð fyrir okkur og kíktum á næstu umferð sem byrjar á þriðjudag. Fantabrögð elska umferð í miðri ...
Dec 01, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Þórir Hákonarson, fyrrum framkvæmdastjóri KSÍ, kom í útvarpsþáttinn Fótbolti.net. Hann ræddi um fótboltapólitíkina og það sem félögin eru að ræða sín á milli þessa dagana, þar á meðal fjármálin. Þá ræddi hann um hugmyndir um að lengja Íslandsmótið en hann er stuðningsmaður þess að 2021 verði gerð tilraun með að spila þrefalda umferð í Pepsi Max-deildinni, áfram í tólf liða deild, og mótið hefjist þá í febrúar. Umræða er í gangi milli íslenskra félaga um þe...
Nov 30, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Jón Kaldal, stuðningsmaður Arsenal, var á línunni og ræddi um stóru fréttirnar úr enska boltanum. Unai Emery var rekinn úr stjórastól Arsenal og félagið er nú í leit að næsta stjóra.
Nov 30, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Jón Þór Hauksson landsliðsþjálfari var á línunni og ræddi um ástæður þess að íslenska kvennalandsliðið fær ekki að vera með á Algarve æfingamótinu á komandi ári. Þá var einnig rætt um Margréti Láru Viðarsdóttur en þessi magnaða fótboltakona lagði skóna á hilluna í vikunni.
Nov 30, 2019
Þessi "tricky" umferð stóð kannski undir nafni. Man City og Liverpool unnu bæði 2-1, sem þýðir að enn er Liverpool að fá á sig mörk. Rashford og Lacazette skoruðu slatta af stigum sem skiluðu liðum þeirra þó einungis svekkjandi jafnteflum. Mál málanna er þó Burnley sem vann annan 3-0 sigur sinn í röð og aftur skoruðu báðir iðnaðarmennirnir, Wood og Barnes. Stigahæsti leikmaður umferðarinnar, aðra umferðina í röð, var svo einmitt liðsfélagi þeirra, James Tarkowski. En hvern á að kaupa? Á að selja...
Nov 26, 2019
Elvar og Daníel eru með Evrópu-Innkastið og fara yfir leiki liðinnar umferðar í ensku úrvalsdeildinni. Þrettán umferðum er lokið í deildinni. Það eru mörg stjórasæti sjóðheit í deildinni. Hver verður næsti stjóri sem fær sparkið? Grínkallinn Emery, VAR, stórfurðulegur leikur í Sheffield, Balotelli horn og ýmislegt fleira.
Nov 25, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Ljóst er að Ísland þarf vinna Rúmeníu (vonandi á Laugardalsvelli) þann 26. mars og svo Ungverjaland eða Búlgaríu á útivelli nokkrum dögum síðar til að komast á EM alls staðar. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um möguleika Íslands og gerðu einnig upp frammistöðuna í undankeppninni. Farið var yfir einkunnir leikmanna íslenska liðsins í keppninni.
Nov 23, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson voru við enska hringborðið. Gestur var Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea. Rætt var um endurkomu Jose Mourinho í enska boltann en hann er tekinn við Tottenham. Þá fékk Chelsea að sjálfsögðu stórt pláss og sú rómantík sem er í gangi á Brúnni.
Nov 23, 2019
Nú er rétt rúmur mánuður í jólin sem margir telja besta tíma ársins og þá helst af Fantasy tengdum ástæðum. Við erum að fara að sigla inn í 9 umferðir á 40 dögum og þá er eins gott að vera með liðið sitt klárt og muna að breyta á milli leikja! Aron og Gylfi ræddu breytingar fyrir komandi umferð/ir, fyrirliðaval og margt fleira. Er of mikið að vera með þrjá Chelsea menn? Á að kaupa Tielemans eða Maddison? Hvað á að gera í 18. umferð þegar Liverpool á engan leik? Þetta, hitt og allt annað í nýjast...
Nov 19, 2019
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er aðeins fyrr á ferðinni þessa vikuna en upptaka af honum verður einnig á sínum stað milli 12 og 14:00 á X-inu á morgun.
Nov 15, 2019
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er aðeins fyrr á ferðinni þessa vikuna en upptaka af honum verður einnig á sínum stað milli 12 og 14:00 á X-inu á morgun.
Nov 15, 2019
Í fjarveru Arons var Gylfi settur í þá krefjandi stöðu að stýra þættinum og sjá um alla erfiðisvinnuna. Það gekk eins og það gekk. Gestur hans var enginn annar Davíð Regins, fyrrum Reykjavíkurmeistari frjálsra ungmenna í borðtennis og útvarpsmaður á Áttunni. Gylfi, sem er að öllum líkindum FIFA-aðstoðardómari ásamt því að vera leikmaður Elliða (sem leikur í 3. deild), ákvað að útskýra VAR fyrir þjóðinni í eitt skipti fyrir öll. Umferðin var nokkuð eftir bókinni, Tammy og Vardy minntu enn einu si...
Nov 12, 2019
Liverpool er með átta stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir 3-1 sigur á Manchester City í toppbaráttuslag í gær.
Nov 11, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Sigurbjörn Hreiðarsson kom í langt spjall við Tómas Þór Þórðarson um boltann. Bjössi var aðstoðarmaður Ólafs Jóhannessonar hjá Val en er nú tekinn við sem aðalþjálfari Grindavíkur.
Nov 09, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Tómas Þór Þórðarson var einn í fiskabúrinu og tók á móti íþróttafréttamanninum Einari Erni Jónssyni, stuðningsmanni Arsenal, og Ingimar Helga Finnssyni, stuðningsmanni Tottenham. Haldinn var krísufundur um gang mála hjá þessum tveimur liðum. Hallgrímur Indriðason, formaður Liverpool-klúbbsins, ræddi svo um húllumhæ klúbbsins fyrir stórleikinn á Spot.
Nov 09, 2019
Nú fer hver að verða síðastur að verða sér út um pláss á Lundstram vagninum. Þessi 4 milljóna demantur var maður umferðarinnar og er klárlega Fantasy leikmaður ársins hingað til. Manchester United náði ekki að fylgja eftir góðum sigri á Norwich, Mané heldur áfram að draga vagninn fyrir Liverpool og Tammy og Vardy sóknarlínan er málið. Við förum yfir Aguero málið, breytingar fyrir næstu umferð og fyrirliðaval í þessari erfiðu umferð þar sem toppliðin Liverpool og Manchester City eiga innbyrðis le...
Nov 05, 2019
Brjáluð boltahelgi að baki og Elvar og Daníel fara yfir gang mála í Evrópu-Innkastinu. Bayern er búið að sparka stjóranum og ýmis sæti í ensku deildinni eru farin að hitna enn frekar. Endalausar endurkomur Liverpool, City í kröppum dansi, magnaður Ben Foster, sagan endalausa hjá United, Xhaka vandamálið, Leiftrandi lið Leicester, Balotelli horn og ýmislegt fleira góðgæti.
Nov 04, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, var gestur og ræddi ítarlega við Elvar Geir og Tómas Þór. Rúnar er á leið í sitt áttunda tímabil í þjálfun meistaraflokks Stjörnunnar og í sjöunda árið sem aðalþjálfari. Í skemmtilegu og áhugaverðu viðtali ræðir Rúnar um starf sitt í Garðabænum. vonbrigðin að hafa ekki náð Evrópusæti, leikmannamál, ævintýrin í Evrópu og ýmislegt fleira. Rúnar talaði hreint út og var óhræddur við að koma með skot á hina og þessa...
Nov 02, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Jón Páll Pálmason, nýr þjálfari Víkings í Ólafsvík, var í viðtali frá Noregi. Jón Páll tekur við af Ejub Purisevic sem unnið hefur frábært starf hjá félaginu en hann fer fullur sjálfstrausts í nýtt starf. Jón Páll hefur undanfarin ár unnið í Noregi en í viðtalinu segir hann frá því að ætlunin hafi verið að flytja til Bandaríkjanna áður en tækifærið bauðst í Ólafsvík.
Nov 02, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um helstu fótboltafréttirnar sem eru til umræðu á kaffistofum landsins. Elvar sagði frá því sem hann hafði heyrt varðandi mál Kolbeins Sigþórssonar en hann komst í fréttirnar eftir vandræði á skemmtistað í Svíþjóð. Rætt var um vandamál Granit Xhaka hjá Arsenal, fjörið í Færeyjum og fleira.
Nov 02, 2019
Fjörug helgi er að baki í ensku úrvalsdeildinni og í Evrópu innkasti vikunnar ræddi Magnús Már Einarsson við Jóhann Skúla Jónsson stuðningsmann Manchester United og Jóhann Má Helgason stuðningsmann Chelsea.
Oct 28, 2019
LOKSINS, LOKSINS! Loksins, eftir 3 slæmar Fantasy umferðir í röð fengum við skemmtilega umferð! Leicester vann sögulegan 0-9 útisigur þar sem Vardy og Perez skoruðu þrennur. Góðkunningjar Fantasy, þeir Salah og Sterling, skoruðu báðir og sóknarleikur Man Utd lifnaði við. Á meðan er Aguero orðinn bekkjarmatur og Aubameyang klikkaði í þriðja leiknum í röð. Við fórum yfir allt það helsta og skoðuðum breytingar fyrir næstu umferð, sem lítur vel út.
Oct 27, 2019
Ólafur Kristjánsson var gestur í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu 97,7 í dag. Þar var Ólafur í löngu spjalli við þá Tómas Þór Þórðarson og Benedikt Bóas Hinriksson. Ólafur fór yfir nýliðið tímabilið hjá FH og framhaldið hjá liðinu. Hann ræddi einnig hugmyndir um að lengja tímabilið á Íslandi og ræddi um að finna verkefni fyrir leikmenn sem eru ekki að fá nægilega mikinn spiltíma.
Oct 26, 2019
Íslenski landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi Traustason var í spjalli hjá Tómasi Þór Þórðarsyni og Benedikt Bóas Hinrikssyni í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu 97,7 í dag.
Oct 26, 2019
Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, var í viðtali í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu í dag.
Oct 26, 2019
Það er rífandi stemmning á Heimavellinum í dag. Þær fréttist bárust í dag að jólabókin í ár er klár. Það er bókin Óstöðvandi sem þar landsliðsfyrirliðinn Sara Björk segir frá ferlinum innan sem utan vallar. Við fáum til okkar Magnús Örn Helgason sem skrifaði bókina og ræðum allt sem að henni kemur.
Oct 24, 2019
Einu sinni var gaman í Fantasy. Einu sinni spiluðu leikmenn eins og Aguero og Salah og skoruðu jafnvel ef vel lá á þeim. En nú erum við að treysta á 4M varnarmenn til að bjarga umferðunum hjá okkur, viku eftir viku. Nú sitjum við heima hjá okkur undir sæng og biðjum þess að verða ekki fórnarlömb Pep roulette í enn eitt skiptið. Að Liverpool haldi hreinu. Að Pukki nái einu marki í viðbót áður en við seljum hann. En ekkert gerist. Fram að næstu umferð sitjum við og öskrum út í tómið. Biðjum um að ...
Oct 22, 2019
Nýtt Evrópu-Innkast þar sem farið er yfir helgina í ensku úrvalsdeildinni og önnur tíðindi Evrópuboltans. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz tóku þáttinn upp eftir að Arsenal, lið Daníels, hafði tapað gegn nýliðum Sheffield United. Rætt var um stöðu Unai Emery og frammistaða Sheffield lofuð. Stórleikur helgarinnar á Old Trafford var að sjálfsögðu krufinn sem og VAR vesenið um helgina.
Oct 21, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Það er svo sannarlega tilefni til að rífa enska hringborðið fram á gólfið enda risaslagur í enska boltanum á sunnudag. Manchester United tekur á móti toppliði Liverpool en Sóli Hólm, skemmtikraftur og formaður Liverpool samfélagsins á Íslandi, mætti í útvarpsþáttinn. Elvar Geir og Magnús Már ræddu við Sóla um komandi leik og það helsta sem er í gangi í ensku úrvalsdeildinni.
Oct 19, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Freyr Alexandersson aðstoðarlandsliðsþjálfari ræddi við Elvar Geir og Magnús Má um ýmislegt tengt íslenska landsliðinu. Margt áhugavert kom fram.
Oct 19, 2019