Fotbolti.net - podcast cover

Fotbolti.net

Fotbolti.netfotbolti.net
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Fótbolta Quiz Þorkels - Keppni fimm

Íþróttafréttamaðurinn Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson á RÚV leggur sitt að mörkum í að stytta fólki stundirnar í því ástandi sem er í gangi. Það er fimmti miðvikudagurinn í samkomubanni og fimmta spurningakeppni Þorkels af sjö er komin í loftið. Um er að ræða 30 spurninga Pod Quiz sem hægt er að spreyta sig á. Ert þú með allt á hreinu í boltanum? Taktu þátt og skoraði á vini og kunningja.

Apr 15, 2020

Miðjan - Guðmundur Mete: Æskuvinur Zlatan um Malmö, Keflavík og fleira

Guðmundur Viðar Mete flutti ungur að árum til Malmö með fjölskyldu sinni og varð strax vinur Zlatan Ibrahimovic. Saman fóru þeir upp í aðallið Malmö en eftir að leiðir skyldu héldu þeir alltaf vinskap. Guðmundur Viðar kom svo heim til Íslands og spilaði með frábæru liði Keflavíkur í nokkur ár sem átti í hatrammri baráttu við ÍA. Guðmundur Viðar Mete segir sögu sína í podcastþættinum Miðjan hér á Fótbolta.net í dag. Meðal efnis: - Liðsfélagarnir gáfu honum tvær vikur í starfi en er að ná 14 árum ...

Apr 14, 2020

Útvarpsþátturinn - Stóru málin við páskahringborðið

Boltahringborðið í síðasta mánuði vakti mjög góð viðbrögð og í útvarpsþætti vikunnar er leikurinn endurtekinn. Elvar Geir, Tómas Þór, Magnús Már og Benedikt Bóas eru við hringborðið. Hver og einn kemur með sitt umræðuefni að borðinu, umræðuefni sem tengjast íslenska boltanum, enska boltanum og heimsfótboltanum.

Apr 08, 2020

Fótbolta Quiz Þorkels - Keppni fjögur

Íþróttafréttamaðurinn Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson á RÚV leggur sitt að mörkum í að stytta fólki stundirnar í því ástandi sem er í gangi. Það er fjórði miðvikudagurinn í samkomubanni og fjórða spurningakeppni Þorkels því komin í loftið. Tilvalið að halda fjölskyldukeppni um páskana! Um er að ræða 30 spurninga Pod Quiz sem hægt er að spreyta sig á. Ert þú með allt á hreinu í boltanum? Taktu þátt og skoraði á vini og kunningja.

Apr 08, 2020

Miðjan - Stefán Logi: Strokubarnið sem samdi við Bayern Munchen

Stefán Logi Magnússon strauk að heiman 13 ára gamall og lýst var eftir honum í blöðunum. Rúmlega þremur árum síðar var hann orðinn atvinnumaður hjá Bayern Munchen. Ferillinn hans var þó eins og jójó því næstu árin var hann atvinnumaður en kom heim og spilaði í 2. og 3. deild áður en ferillinn fór á flug að nýju og hann varð atvinnumaður og landsliðsmarkvörður Íslands. Stefán Logi er gestur í podcastþættinum Miðjunni á Fótbolta.net í dag. Meðal efnis: - Strauk að heiman 13 ára og lýst eftir honum...

Apr 07, 2020

Útvarpsþátturinn - Farið yfir málin með Hannesi og Begga Ólafs

Útvarpsþátturinn er aðeins í hlaðvarpsformi á meðan á samkomubanni stendur. Gestir í þætti vikunnar eru Hannes Þór Halldórsson landsliðsmarkvörður og leikmaður Vals og Bergsveinn Ólafsson fyrirliði Fjölnis. Elvar Geir og Tómas Þór áttu áhugaverðar umræður við þá félaga um ýmis mál tengd boltanum og í lok þáttarins var svo farið yfir fréttir vikunnar.

Apr 02, 2020

Fótbolta Quiz Þorkels - Þriðja keppnin

Íþróttafréttamaðurinn Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson á RÚV leggur sitt að mörkum í að stytta fólki stundirnar í því ástandi sem er í gangi. Það er þriðji miðvikudagurinn í samkomubanni og þriðja spurningakeppni Þorkels því komin í loftið. Um er að ræða 30 spurninga keppni sem hægt er að spreyta sig á. Ert þú með allt á hreinu í boltanum? Taktu þátt og skoraði á vini og kunningja.

Apr 01, 2020

Heimavöllurinn - Topp 6, útgöngubannið og besta lið Íslands

Það er smekkfullur þáttur á Heimavellinum í dag. Þátturinn er með óhefðbundnu sniði enda önnur þáttastýran föst í einangrun og hin í vinnunni. Þær láta það þó ekki stöðva sig á tækniöld. Fara yfir málin og heyra hljóðið í þeim Berglindi Björgu Þorvaldsdóttur, Helenu Ólafsdóttur og Margréti Láru Viðarsdóttur sem eiga það auðvitað sameiginlegt að vera með markanef og hafa leikið fyrir Íslands hönd.

Apr 01, 2020

Miðjan - Birkir um ferilinn, Barcelona og fangelsisvist

Markvörðurinn Birkir Kristinsson á merkilegan feril. Hann spilaði í meistaraflokki í rúmlega 20 ár, spilaði fjórum sinnum við Barcelona, og stórleikina við Frakka fyrir aldamótin auk þess að kveðja fyrir framan rúmlega 20 þúsund áhorfendur á Laugardalsvelli. Hann fagnaði líka Evrópumeistaratitli með Barcelona liðinu árið 2009 og sat svo í fangelsi hér á landi og lauk endanlega afplánun í lok síðasta árs. Birkir er gestur podcastþáttarins Miðjunnar hér á Fótbolta.net í dag. Meðal efnis: - Rekur s...

Mar 31, 2020

Útvarpsþátturinn - Boltahringborðið

Boltahringborðið var dregið fram í útvarpsþættinum Fótbolti.net í dag. Þátturinn er í hlaðvarpsformi á meðan á samkomubanni stendur. Elvar Geir og Tómas Þór fengu liðsstyrk en Magnús Már og Benedikt Bóas voru með þeim í þætti dagsins. Hver og einn kemur með sitt umræðuefni að hringborðinu, umræðuefni sem tengjast íslenska boltanum, enska boltanum og Evrópuboltanum.

Mar 26, 2020

Fótbolta Quiz Þorkels - Keppni númer tvö

Íþróttafréttamaðurinn Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson á RÚV leggur sitt að mörkum í að stytta fólki stundirnar í því ástandi sem er í gangi. Í síðustu viku setti hann saman 30 spurninga keppni í Podcast formi og voru viðbrögðin afskaplega góð. Þorkell endurtekur því leikinn. Ert þú með allt á hreinu í boltanum? Taktu þátt og skoraði á vini og kunningja.

Mar 25, 2020

Miðjan - Jónsi var frábær í fótbolta en ástríðan í viðskiptum

Flestir sem lýsa Jóni Þorgrími Stefánssyni segja að hann hafi verið fáránlega góður fótboltamaður en þrátt fyrir það spilaði hann bara á Íslandi og fékk aldrei sénsinn í landsliðsbúning. Eftir ferilinn hefur hann náð miklum frama í viðskiptum og lent í ótrúlegum uppákomum á ferðalögum. Hann er gestur vikunnar í podcastþættinum Miðjan. Þátturinn í dag er í boði Boðleiðar. Með lausnum frá Boðleið er vinnustaðurinn þar sem þú ert, fullkomnar lausnir í fjarvinnu. Nánar er hægt að kynna sér málið á w...

Mar 24, 2020

Fantabrögð - Aukaþáttur - Veira og fleira

Stjórnendur Fantabragða hittust í boði World Class og Nemía og fóru yfir stöðuna, nú þegar ekkert Fantasy er í gangi. Ótrúlegt en satt þá heldur Fantasy Premier League sig samt við upphaflega dagskrá umferða og því fá flestir spilarar 0 stig í hverri umferðinni á fætur annarri. Aron og Gylfi hentu í léttan leik og völdu sín draumalið í ensku úrvalsdeildinni, Aron frá 2000-2009 og Gylfi 2010-2019. Auk þess stikluðu þeir á stóru í umræðu um lífsstíl fótboltans.

Mar 23, 2020

Útvarpsþátturinn - Krísufundur íslenska boltans

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net þessa vikuna ræðir um áhrif heimsfaraldursins á íslenska boltann. Elvar Geir og Tómas Þór fengu til sín góða gesti. Haraldur Haraldsson formaður ÍTF, Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari Stjörnunnar og Arnar Sveinn Geirsson forseti leikmannasamtaka Íslands komu í hljóðver.

Mar 20, 2020

Heimavöllurinn - Harpa Þorsteins, U23 og apakettir í USA

Það er engin önnur en landsliðskonan og markamaskínan Harpa Þorsteinsdóttir sem er gestur Heimavallarins að þessu sinni. Hún fer yfir allt það helsta í boltanum í dag ásamt vallarstýrunum Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur. Því er fagnað að U23 ára landslið verði sett í gang á árinu og Harpa velur sitt U23 ára lið. Landsliðið er svo áfram til umræðu og það er erfitt að horfa framhjá þeirri óvissu sem hefur skapast í fótboltaheiminum í kjölfar útbreiðslu Covid 19.

Mar 20, 2020

Fótbolta Quiz Þorkels

Íþróttafréttamaðurinn Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson á RÚV leggur sitt að mörkum í að stytta fólki stundirnar í því ástandi sem er í gangi. Hann setti saman 30 spurninga keppni í Podcast formi.

Mar 18, 2020

Miðjan - Lárus Guðmunds um bikartitla, mútugreiðslur og fleira

Lárus Guðmundsson var á sínum tíma eldfljótur og brögðóttur markahrókur sem fékk mikið lof hjá mönnum eins og Sir Alex Ferguson. Hann var sigursæll, bæði Íslandsmeistari og svo bikarmeistari í Belgíu og Þýskalandi en var líka sakaður um mútur og átti í útistöðum við landsliðsþjálfara Íslands. Hann er gestur podcastþáttarins Miðjunnar á Fótbolta.net í dag. Þátturinn í dag er í boði Boðleiðar. Með lausnum frá Boðleið er vinnustaðurinn þar sem þú ert, fullkomnar lausnir í fjarvinnu. Nánar er hægt a...

Mar 18, 2020

Áratugarlið efstu deildar - Samantekt

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net hélt upp á tíu ára afmæli sitt á X977 á síðasta ári með því að velja úrvalslið áratugarins í efstu deild á Íslandi, 2009-2019. Heyrt var í öllum leikmönnum liðsins og þjálfari valinn fyrir þetta magnaða lið. Hér er samantektarþáttur þar sem spiluð eru brot úr viðtölum við þessa fræknu kappa sem komust í þetta magnaða lið. Liðið: Gunnleifur Gunnleifsson; Pétur Viðarsson, Daníel Laxdal, Eiður Aron Sigurbjörnsson, Bjarni Ólafur Eiríksson; Davíð Þór Viðarsson, Bjarni Gu...

Mar 16, 2020

Útvarpsþátturinn - Fjárhagsáhyggjur í fótboltaheiminum

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net verður hlaðvarpsþátturinn Fótbolti.net á meðan samkomubann er í gangi. Björn Berg Gunnarsson, fræðslustjóri Íslandsbanka og fótboltaáhugamaður, er gestur þáttarins. Björn ræðir meðal annars ræða um hvaða áhrif ástandið í heiminum hefur á tekjuöflun fótboltafélaga, hér heima og erlendis. Þá eru ýmsar vangaveltur um það hvernig fótboltaheimurinn tekst á við það ástand sem nú er í gangi. Elvar Geir og Tómas Þór ræða svo um hverju það gæti breytt fyrir íslenska landslið...

Mar 14, 2020

Innkastið - Kóróna rænir fótboltanum og lægð hjá Liverpool

Evrópu-Innkastið býður upp á sérstakan aukaþátt þessa vikuna. Elvar Geir Magnússon, Daníel Geir Moritz og Magnús Már Einarsson ræða um áhrif heimsfaraldursins á fótboltann. Þá fara þeir yfir leiki vikunnar í Meistaradeildinni og komandi leiki (vonandi) í ensku úrvalsdeildinni.

Mar 12, 2020

Fantabrögð - 29. Umferð - Rússíbanareiðir

29. umferðin í Fantasy Premier League var ekki sú besta. Allavega ekki fyrir okkur sem settum allt traust á leikmenn sem áttu að eiga tvöfalda umferð, því hún varð það svo alls ekki eftir að frestuðum leik Manchester City og Arsenal var frestað aftur. Gamlar hetjur síðan fyrr í vetur eins og John Lundstram og Jamie Vardy sneru aftur með bombur en Harvey Barnes var stigahæstur í umferðinni með 19 stig. Stigahæstur í Budweiser deildinni var hins vegar Valtýr Njáll með 107 stig.

Mar 11, 2020

Miðjan - Tómas Ingi Tómasson fer yfir ferilinn

Tómas Ingi Tómasson fór víða á fótboltaferlinum, var eini atvinnumaður Íslands í Austur Þýskalandi og náði flottum árangri hér á landi sem ytra. Eftir ferilinn breytti hann leiknum í fótboltaumfjöllun í sjónvarpi og fór svo í þjálfarastörf. Undanfarin ár hefur hann átt í erfiðri baráttu við heilsuna. Hann er gestur podcastþáttarins Miðjunnar á Fótbolta.net í dag. Þátturinn í dag er í boði Boðleiðar. Með lausnum frá Boðleið er vinnustaðurinn þar sem þú ert, fullkomnar lausnir í fjarvinnu. Nánar e...

Mar 11, 2020

Innkastið - Tómar stúkur, rauð Manchester og feðgar á ferð

Það er tíðindamikil helgi að baki í Evrópufótboltanum. Enski boltinn er að vanda í aðalhlutverki í þættinum en Elvar Geir Magnússon, Daníel Geir Moritz og Magnús Már Einarsson fóru yfir allt það helsta. Meðal efnis: Leikið fyrir luktum dyrum, United á réttri leið, Gilmour magnaður, Henderson og Henderson, markverðir í stuði, Real Madrid núllar út El Clasico og KA leit skelfilega út.

Mar 09, 2020

Heimavöllurinn - Varnarsinnuð vonbrigði

Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir taka stöðuna á boltanum ásamt Lilju Dögg Valþórsdóttur í nýjasta þætti Heimavallarins. Landsliðin eru áberandi í þætti dagsins en bæði A-landsliðið og U19 eru stödd á Spáni þar sem þau taka þátt í æfingamótum og undirbúa sig fyrir krefjandi verkefni. Þá er einnig farið yfir helstu fréttir og boðið upp á nokkra slúðurmola.

Mar 08, 2020

Miðjan - Rauði Baróninn á mannamáli

Garðar Örn Hinriksson eða Rauði Baróninn eins og hann er oft kallaður er einn besti dómari sem hefur dæmt hér á landi. Hann hefur þó komið víða við, hefur gert það gott í tónlist, leikið í bíómynd og rekið slúðurvef. Hann glímir í dag við Parkinson sjúkdóminn og hefur vakið athygli fyrir pistlaskrif um fótbolta. Hann er gestur podcastþáttarins Miðjunnar á Fótbolta.net í dag. Meðal efnis: - Dómarar aldrei heiðraðir fyrir sín störf - Leikmenn eltu hann inn í skóla eftir fyrsta leikinn - Gaf sex ra...

Mar 04, 2020

Fantabrögð - 28. Umferð - VAR Gylfi rangstæður?

Hörmung. Það er 28. umferðin í einu orði. Hörmung. Alltof margir góðkunningjar Fantabragða annað hvort spiluðu ekki eða byrjuðu á bekk og má þar nefna Jamie Vardy, Danny Ings og Joe Gomez. Liverpool tapaði sínum fyrsta leik í vetur, fjögur lið áttu ekki leik og þetta gerði m.a. að verkum að þessi umferð var sú langlélegasta í vetur og var meðalskor spilara 26 stig. Liðsmenn Fantabragða áttu ólíku gengi að fagna og líkur eru á rage wildcardi. Við tókum VAR umræðuna í dómarahorninu og spáðum í spi...

Mar 03, 2020

Innkastið - Liverpool lendir á vegg og Pep lyftir bikar

Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz eru mættir með nýtt Evrópu-Innkast sent út beint frá höfuðborginni. Í þættinum er farið yfir El Clasico og úrslitaleik enska deildabikarsins. Óvænt úrslit í ensku úrvalsdeildinni, dónaskapur í Þýskalandi og veira herjar á Evrópuboltann.

Mar 01, 2020

Ótímabæra 1. deildarspáin og fréttir vikunnar

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar og Tómas fengu Baldvin Már Borgarsson, sérfræðing um 1. deildina, til að setja saman ótímabæra spá fyrir keppni sumarsins. Þá var farið yfir fréttir vikunnar í íslenska boltanum, burst Breiðabliks gegn ÍA, tíðindalaust ársþing og fleira.

Feb 29, 2020
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android