73. ársþing KSÍ fer fram á laugardaginn en þar berjast Guðni Bergsson og Geir Þorsteinsson um formannsstólinn. Á þinginu fer einnig fram stjórnarkjör auk þess sem tillögur verða teknar fyrir. Í Miðju vikunnar var rætt um þingið en þeir Lúðvík Arnarson, fyrrum varaformaður knattspyrnudeildar FH, og Þórður Guðjónsson, fyrrum framkvæmdastjóri ÍA, fóru yfir stöðuna.
Feb 07, 2019
Evrópu-Innkastið var tekið upp strax eftir að Man City skaust á toppinn í ensku úrvalsdeildinni og fóru þeir Elvar Geir og Daníel Geir yfir toppbaráttuna.
Feb 06, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Björn Daníel Sverrisson var gestur þáttarins og ræddi við Tómas Þór og Elvar Geir. Björn er kominn aftur í FH-búninginn og miklar væntingar eru gerðar til hans.
Feb 02, 2019
Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um íslenska boltann í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Úrslitaleikir undirbúningsmóta, möguleg heimkoma Hannesar, útlitið hjá KR, brjáluð breidd Vals, leikmenn að færa sig um set, Guðjón Þórðarson og formannsslagurinn koma við sögu. Hvar myndi varalið Vals enda í Pepsi-deildinni? Auk þess er viðtal við Þorstein Gunnarsson sem er í framboði til stjórnar KSÍ.
Feb 02, 2019
Sandra María Jessen er nýjasta atvinnukonan okkar í knattspyrnu en hún skrifaði nýlega undir samning við þýska liðið Bayer 04 Leverkusen. Þangað fer hún frá Þór/KA þar sem hún hefur leikið allan sinn meistaraflokksferil eftir að hafa alist upp hjá Þór.
Jan 31, 2019
Dramatíkin var allsráðandi í 24. umferð ensku úrvalsdeildarinnar og fóru þeir Daníel Geir og Elvar Geir yfir úrslitin og umdeild atvik. Þá spáðu þeir félagar því hvaða lið kæmust í Meistaradeildina.
Jan 30, 2019
Tíu dagar eru í ársþing KSÍ þar sem kosið verður um formann til næstu tveggja ára. Geir Þorsteinsson, heiðursformaður, ákvað á dögunum að bjóða sig fram gegn Guðna Bergssyni sem er núverandi formaður. Guðni og Geir eru í formannsslag þessa dagana en þeir mættu í dag í spjall hjá Elvari Geir Magnússyni og Magnúsi Má Einarssyni ritstjórum Fótbolta.net. Rætt var um helstu málefni fyrir ársþingið og á köflum var heitt í kolunum!
Jan 30, 2019
Daníel Geir Moritz fór í bæjarferð en hann og Elvar Geir fengu til sín góða gesti í höfuðstöðvar Fótbolta.net að þessu sinni. Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, og Martin Sindri, stuðningsmaður Liverpool, voru með þeim í Innkastinu. Rætt var um toppliðin og farið í tvo skemmtilega samkvæmisleiki. Meðal annars voru valdir bestu leikmenn Arsenal, Manchester United, Chelsea og Liverpool frá stofnun ensku úrvalsdeildarinnar. Innkastið er í samvinnu við Ölver í Glæsibæ.
Jan 27, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór komu með fyrstu ótímabæru spá ársins fyrir Pepsi-deildina í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Þeir skoðuðu félagaskiptin í vetur og felldu dóma!
Jan 27, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór spjölluðu við Manchester United sérfræðinginn og fréttamanninn Tryggva Pál Tryggvason. Rætt var um gengi United undir stjórn Ole Gunnar Solskjær.
Jan 27, 2019
Enski framherjinn Gary Martin skrifaði á dögunum undir samning hjá Íslandsmeisturum Vals. Gary er mættur aftur í Pepsi-deildina eftir dvöl hjá Lokeren og Lilleström. Gary vakti mikla athygli í íslenska boltanum á árunum 2010 til 2016 þegar hann skoraði mikið með ÍA, KR og Víkingi. Í Miðju vikunnar tók Magnús Már Einarsson langt viðtal við Gary þar sem farið var yfir feril hans, allt frá barnæsku í Darlington þar til dagsins í dag.
Jan 23, 2019
23. umferðin í ensku úrvalsdeildinni kláraðist rétt áðan og hlóðu Elvar Geir og Daníel Geir Moritz í nýtt Innkast að því tilefni. Rétt áður en hætt var að taka upp sá Elvar frétt um að Hannes Þór Halldórsson væri á leið í Val og kom það sem þruma úr heiðskýru lofti í þáttinn. Þá var einnig farið í samkvæmisleik og völdu þeir bestu vörnina í sögu deildarinnar, fjagra manna varnarlínu, og er góð vörn ekki neitt án góðs markvarðar. Meðal efni þáttarins: Dýfa Salah, sterkur sigur Liverpool, Speroni ...
Jan 20, 2019
Upptaka af útvarpsþættinum Fótbolti.net 19. janúar. Elvar Geir Magnússon var einn í hljóðverinu að þessu sinni en hann hringdi í Tómas Þór Þórðarson sem er í Þýskalandi að fylgjast með strákunum okkar í handboltalandsliðinu. Enski boltinn var til umfjöllunar og valdir voru fimm bestu markverðir heims í dag. Gestur þáttarins var Orri Sigurður Ómarsson sem er kominn aftur í herbúðir Vals.
Jan 19, 2019
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir hefur verið áberandi í íslenskum fótbolta í rúman áratug. Hún ólst upp hjá Breiðablik en skipti yfir í Stjörnuna fyrir tímabilið 2005. Þar tók hún þátt í ótrúlegum uppgangi félagsins. Spilaði 271 meistaraflokksleiki, flesta með fyrirliðabandið, og vann fjóra Íslandsmeistaratitla og þrjá bikarmeistaratitla. Á þeim tíma spilaði Adda einnig 10 A-landsleiki og fór á láni til Kristianstad í Svíþjóð. Í haust bárust svo óvænt tíðindi úr Garðabænum þegar tilkynnt var um a...
Jan 17, 2019
Andri Rúnar Bjarnason, framherji Helsingborg, hefur klifið metorðastigann hratt undanfarin ár. Hinn 28 ára gamli Andri jafnaði markametið í Pepsi-deildinni 2017 og í fyrra varð hann markakóngur í sænsku B-deildinni með Helsingborg. Þá hefur hann einnig leikið sína fyrstu landsleiki fyrir Íslands hönd.
Jan 16, 2019
Evrópu-Innkastið var eingöngu innan ensku úrvalsdeildarinnar að þessu sinni þegar 22. umferðin var gerð upp.
Jan 15, 2019
Elvar Geir Magnússon og Magnús Már Einarsson, ritstjórar Fótbolta.net, hafa undanfarna viku dvalið í Katar.
Jan 14, 2019
Þrátt fyrir að Elvar Geir Magnússon sé í Katar og Tómas Þór Þórðarson í Þýskalandi þá var útvarpsþátturinn Fótbolti.net á sínum stað á X977. Benedikt Bóas Hinriksson og Þorkell Máni Pétursson leystu af í laugardagsþættinum.
Jan 13, 2019
Mánuður er síðan Heimir Hallgrímsson var ráðinn sem þjálfari Al Arabi í Katar. Heimir hefur verið að taka til í leikmannahópnum að undanförnu og koma sínum hugmyndum að.
Jan 09, 2019
Í hlaðvarpsþættinum Miðjunni í þessari viku mætti Guðni Bergsson formaður KSÍ í ítarlegt spjall. Guðni er að ljúka tveggja ára kjörtímabili sínu og þarf að sækja nýtt umboð á ársþingi í febrúar þar sem honum mætir mótframboð frá Geir Þorsteinssyni forvera hans í embætti. Hafliði Breiðfjörð ræddi við Guðna á mánudaginn og spjallið má heyra í spilaranum að ofan og öllum helstu Podcast þjónustum.
Jan 09, 2019
Janúarglugginn er fyrirferðarmikill í fyrsta Evrópu-Innkastinu á nýju ári. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz skoðuðu hvað efstu sex liðin ættu að gera í vetrarglugganum. Bikarkeppnin, eigendur í enska boltanum, komandi leikir í úrvalsdeildinni, bestu mennirnir á almanaksárinu 2018 og titilmöguleikarnir koma einnig við sögu í spjalli þeirra. Evrópu-Innkastið er í samvinnu við Ölver í Glæsibæ þar sem hægt er að sjá alla helstu boltaleikina í Evrópu!
Jan 06, 2019
oppbaráttan var að sjálfsögðu í aðalhlutverki við enska hringborðið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Elvar Geir og Benedikt Bóas ræddu við Kristján Atla um fyrsta fjórðung ensku úrvalsdeildarinnar og hann valdi úrvalsliðið, besta leikmanninn, besta stjórann og mestu vonbrigðin. Úrvalsliðið: Alisson; Aspilucueta, Van Dijk, Maguire, Robertson, Torreira, Son, Shaqiri, Aubameyang, Kane, Salah. Besti leikmaður: Van Dijk.
Jan 05, 2019
Geir Þorsteinsson, heiðursformaður KSÍ, tilkynnti í útvarpsþættinum Fótbolti.net að hann býður sig fram sem formaður KSÍ en ársþing KSÍ fer fram 9. febrúar. Geir býður sig því fram gegn sitjandi formanni, Guðna Bergssyni, sem tók við af Geir fyrir tveimur árum eftir spennandi formannsslag við Björn Einarsson. Geir ræddi við Elvar Geir og Benedikt Bóas um framboð sitt í útvarpsþættinum Fótbolti.net.
Jan 05, 2019
Veglegur áramótaþáttur þar sem fótboltaárið 2017 var gert upp á X977. Umsjónarmenn: Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson, Magnús Már Einarsson og Benedikt Bóas Hinriksson. Veitt voru verðlaun í ýmsum flokkum og gleðin var við völd.
Dec 29, 2018
Í síðasta þætti ársins af Heimavellinum stikla þáttastýrur á stóru og renna yfir fótboltaárið sem er að líða. Farið verður yfir hvað gerðist í deildum og bikar hér heima og eftirminnileg atvik rifjuð upp. Þá er litið yfir árangur landsliðanna okkar á árinu auk þess sem fjallað verður um atvinnukonurnar okkar.
Dec 29, 2018
Það var nóg um að vera í þætti dagsins í Innkastinu hjá þeim Elvari Geir og Daníel Geir. Báðir voru í jólastuði og fóru um víðan völl.
Dec 27, 2018
Landsliðskonan Ingibjörg Sigurðardóttir er gestur þeirra Huldu Mýrdal og Mistar Rúnarsdóttur í nýjasta hlaðvarpsþætti Heimavallarins.
Dec 23, 2018
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Manchester United var til umræðu. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu við Tryggva Pál Tryggvason, blaðamann og sérfræðing um Manchester United. Ráðning Ole Gunnar Solskjær var helsta umræðuefnið.
Dec 22, 2018
Í hlaðvarpsþættinum Miðjunni í þessari viku er lífleg umræða um Leeds United sem er á toppnum í ensku Championship deildinni. Magnús Már Einarsson ræddi við Árna Þór Birgisson formann Leeds klúbbsins á Íslandi og útvarpsmanninn Mána Pétursson.
Dec 19, 2018
Ólafur Kristjánsson, þjálfari FH, var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Hann ræddi um gang mála hjá Hafnarfjarðarliðinu, síðasta tímabil og fleira. Einnig var rætt um stöðu íslenska boltans og málefni tengd honum.
Dec 17, 2018