Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um íslenska landsliðið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Komandi leikir Íslands, þeir fyrstu í undankeppni EM, voru til umræðu. Sérstaklega var rætt um leikinn gegn Andorra sem verður næsta föstudag. Hópurinn sem Erik Hamren valdi var skoðaður og stillt upp líklegu byrjunarliði. Sigurbjörn Hreiðarsson sagði sitt álit á því sem framundan er.
Mar 16, 2019
Sjötti leikmaðurinn var tekinn inn í úrvalslið áratugarins í útvarpsþættinum Fótbolti.net. Liðið er valið í tilefni af tíu ára afmæli þáttarins á X977 og samanstendur af leikmönnum í efstu deild 2009-2019. Baldur Sigurðsson, miðjumaður Stjörnunnar og fyrrum leikmaður KR, var tekinn inn í liðið en í spilaranum má heyra viðtal við hann.
Mar 16, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór skoðuðu dráttinn í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar en dregið var á föstudag. Ajax - Juventus Liverpool - Porto Tottenham - Man City Man Utd - Barcelona
Mar 16, 2019
Í nýjasta hlaðvarpsþætti Heimavallarins spá þáttastýrurnar í spilin fyrir komandi tímabil. Nú eru 7 vikur í að keppni hefjist í Pepsi Max-deildinni og af því tilefni skella þær Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir í ótímabæra spá fyrir deildina.
Mar 15, 2019
Í Evrópu-Innkastinu að þessu sinni var dregið til gamans í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu! Fjögur ensk lið voru í pottinum en ekkert pláss var fyrir fulltrúa frá Þýskalandi. Í þættinum er rætt um Meistaradeildina, endurkomu Zidane, kaflaskil hjá Bayern og Real, Balotelli og fleira. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz sjá um Innkastið sem er í samvinnu við Ölver.
Mar 13, 2019
Gestir Miðjunnar í þessari viku eru fyrrum landsliðsmennirnir Ríkharður Daðason og Rúnar Kristinsson. Í þættinum var farið aftur til 5. september 1998 og rifjaður upp leikur Íslands og Frakklands á Laugardalsvellinum. Seinna í þættinum var rifjaður upp leikur Frakklands og Íslands í París 1999 í sömu keppni. Einnig var rætt um leikinn þegar þessar sömu þjóðir mættust á EM í Frakklandi 2016 og í lok þáttar var aðeins farið yfir landsliðið í dag en á morgun velur Erik Hamrén landsliðsþjálfari land...
Mar 13, 2019
Evrópu-Innkastið er í samstarfi við Ölver í Glæsibæ. Elvar og Daníel fóru yfir helgina í ensku úrvalsdeildinni, skoðuðu stórleikinn í London og fóru yfir áhugaverða helgi þar sem markverðir og dómarar gerðu mörg mistök! Einnig valdi Daníel bestu kaup Jurgen Klopp eftir áskorun frá hlustanda. Championship-deildin var líka til umræðu, árásin á Jack Grealish og Íslendingurinn sem spilaði sinn fyrsta leik í deildinni um helgina. Þá var rætt um furðulega heimsókn Joachim Löw til Bæjaralands og næstu ...
Mar 10, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Elvar Geir og Tómas Þór fengu Óskar Örn Hauksson, leikmann KR, í heimsókn í útvarpsþáttinn. Óskar var tekinn inn í úrvalsliðið áratugarins í Pepsi-deildinni. Viðtalið við Óskar kemur eftir um 18 mínútu í upptökunni. Fyrst er umræða um Kolbein Sigþórsson og viðtal við Eið Aron Sigurbjörnsson, varnarmann Vals, sem einnig var tekinn inn í úrvalsliðið.
Mar 09, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Fjallað um Meistaradeild Evrópu. Guðmundur Benediktsson var staddur í París þegar Manchester United vann sögulegan sigur gegn PSG. Hann heimsótti Elvar Geir og Tómas Þór. Einnig var rætt um stöðu mála hjá Real Madrid. Mikaael Marinó Rivera er stuðningsmaður Madrídarliðsins og var á línunni.
Mar 09, 2019
Knattspyrnumaðurinn, Albert Brynjar Ingason er gestur Miðjunnar í þessari viku. Albert gekk á dögunum í raðir Fjölnis frá uppeldisfélagi sínu Fylki. Albert hefur á ferli sínum leikið með Fylki, Þór, Val, FH og nú Fjölni. Hann varð til að mynda Íslandsmeistari með FH sumarið 2012. Undanfarin ár hefur hann vakið mikla athygli á Twitter og þá sérstaklega undanfarnar vikur. Í miðjunni í dag ræðum við, við Albert um sögurnar á bakvið nokkrar af vinsælustu twitter færslum hans og meira til.
Mar 08, 2019
Einvígi Manchester City og Liverpool um Englandsmeistaratitilinn heldur áfram og nú er City komið skrefinu á undan. Enski boltinn er að vanda í aðalhlutverki í Evrópu-Innkastinu en Elvar og Daníel skoðuðu leiki helgarinnar. Einnig var horft til Þýskalands, Ítalíu og komandi leikja í Meistaradeildinni. Balotelli horn, er Klopp að fara á taugum?, Norður-Lundúnaslagurinn og margt fleira til umræðu. Innkastið er í samstarfi við Ölver í Glæsibæ.
Mar 04, 2019
Elvar Geir og Tómas Þór komu með aðra ótímabæru spá ársins fyrir Pepsi-Max deildina í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Það hafa orðið nokkrar tilfæringar síðan fyrsta spáin var birt fyrir rúmum mánuði. Á toppnum eru stórtíðindi! Liðin tólf voru skoðuð og kostir og gallar þeirra ræddir.
Mar 02, 2019
Þriðja fjórðungsuppgjör tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni var á dagskrá útvarpsþáttarins Fótbolti.net. Elvar Geir og Tómas ræddu við sérfræðing þáttarins, Kristján Atla Ragnarsson, um þriðja fjórðung ensku úrvalsdeildarinnar og hann valdi úrvalsliðið, besta leikmanninn, besta stjórann og mestu vonbrigðin. Úrvalsliðið: Dubravka; Young, Van Dijk, Shaw; Ward-Prowse, Pogba, Bernardo Silva, Son; Aubameyang, Mane, Aguero. Besti leikmaður: Sergio Aguero. Besti þjálfari: Ole Gunnar Solskjær. Mestu von...
Mar 02, 2019
Þær Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir og Guðrún Jóna Kristjánsdóttir eru gestir Heimavallarins í dag og ræða við Mist Rúnarsdóttur um landsliðin okkar og þau verkefni sem eru í gangi um þessar mundir.
Mar 02, 2019
Sex efstu lið ensku úrvalsdeildarinnar voru öll í eldlínunni í kvöld í 28. umferð. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fóru yfir umferðina í Evrópu-Innkastinu. Meðal efnis: Margir áttu stórleik hjá Liverpool, sterkur sigur hjá City, sem betur fer fyrir Sarri vann hann, Kane að skemma fyrir Tottenham?, Gylfi skákar mörgum stórum nöfnum, gaman í Newcastle, El Clasico og úrvalslið Riise. Ölver býður upp á Evrópu-Innkastið.
Feb 27, 2019
Ástríðan er við völd í ensku Championship deildinni en fjölmargir Íslendingar hafa taugar til félaga sem spila í þessari stórskemmtilegu deild.
Feb 27, 2019
Það var nóg um að vera í Innkasti dagsins hjá þeim Elvari Geir og Daníel Geir. Stóru liðin voru í brennidepli en til gamans má geta að leikir þeirra allra eru sýndir hjá samstarfsaðila Innkastsins, Ölveri í Glæsibæ.
Feb 24, 2019
Elvar Geir og Tómas Þór héldu upp á tíu ára afmæli útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 í dag. Farið var yfir sögu þáttarins og einnig hitað upp fyrir Pepsi Max-deildina og farið yfir tíu leikmenn sem þáttastjórnendur eru virkilega spenntir fyrir að sjá í deildinni í sumar. Gestur var Gunnleifur Gunnleifsson sem var einlægur og skemmtilegur.
Feb 23, 2019
Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur útvarpsþáttarins Fótbolta.net um Liverpool, var á línunni í þættinum í dag þegar hitað var upp fyrir stórleik Manchester United og Liverpool. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu við Kristján.
Feb 23, 2019
Lára Kristín Pedersen, leikmaður Þórs/KA, hefur undanfarin ár verið einn besti miðjumaðurinn í Pepsi-deild kvenna. Hin 24 ára gamla Lára hefur tvíveigs orðið íslandsmeistari og tvívegis bikarmeistari með Stjörrnunni á ferli sínum. Lára hefur á sama tíma glímt við matarfíkn og meðal annars misst af landsleik og Evrópuleik af þeim sökum. Í miðju dagsins ræðir Lára meðal annars um matarfíknina, hvernig hún hefur unnið gegn fíkninni, hvernig áhrif matarfíknin hefur haft á fótboltann og hvernig fíkni...
Feb 20, 2019
Þrátt fyrir markaleysi í Meistaradeildinni í kvöld var slatti af fjöri og útlit fyrir spennandi og skemmtilegan seinni leik milli Bayern München og Liverpool. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz tóku upp nýtt Evrópu-Innkast eftir leiki kvöldsins. Í þættinum var meðal annars rætt um blóraböggla í boltanum, stöðu Sarri, könnun um hvort Solskjær eða Pochettino yrði betri ráðning, óvinsælustu konu Ítalíu og fróðlegan konudag sem er framundan. Ölver í Glæsibæ býður upp á Innkastið.
Feb 19, 2019
Úr útvarpsþættinum á X977. Eysteinn Lárusson, framkvæmdastjóri hjá Breiðabliki, mætti í þáttinn. Í vikunni seldu Blikar tvo lykilmenn út í atvinnumennsku en alveg ótrúlegt magn af ungum leikmönnum félagsins hefur haldið út fyrir landsteinana. Breiðablik hafnaði í 2. sæti Pepsi-deildarinnar í fyrra. Hvernig ætlar félagið að fylla í skörðin? Eysteinn svaraði því og sagði frá umhverfinu sem Breiðablik hefur búið til. Gervigras og ýmislegt fleira kom við sögu í spjalli hans við Elvar Geir og Benedik...
Feb 16, 2019
Bjarni Ólafur Eiríksson var tekinn inn í úrvalslið áratugarins í efstu deild í útvarpsþættinum Fótbolti.net. Liðið er valið í tilefni tíu ára afmælis þáttarins. Bjarni kom í heimsókn í þáttinn og sagði meðal annars frá þeirri ákvörðun sinni að leggja skóna á hilluna... í bili allavega! Bjarni verður 37 ára á árinu og hefur verið lykilmaður hjá Valsmönnum. Hann fékk það heimaverkefni í þættinum að velja úrvalslið leikmanna sem hann hefur spilað með hjá Val. Elvar Geir og fyrrum samherji Bjarna hj...
Feb 16, 2019
Þórir Hákonarson hjá ÍTF er sérfræðingur útvarpsþáttarins Fótbolti.net í fótboltapólitíkinni. Hann mætti í þáttinn og gerði upp ársþing KSÍ. Hann telur að fótboltahreyfingin þurfi að íhuga með hvaða hætti formannsslagurinn var og segir að Ceferin málinu sé ekki lokið. Hann segir að ársþingið hafi skilið eftir sig margt jákvætt en þó séu einni neikvæðir punktar. Rætt var um með hvaða hætti nýr varaformaður verður valinn, skort á konum, umsvif ÍTF, gengisfellingu 2. deildar, leikjaniðurröðin Pepsi...
Feb 16, 2019
Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir þáttastýrur Heimavallarins taka stöðuna á boltanum ásamt Báru Kristbjörgu Rúnarsdóttur, þjálfara og fyrrum leikmanns, í nýjasta þætti Heimavallarins.
Feb 15, 2019
Gunnlaugur Jónsson er gestur Hafliða Breiðfjörð í aukaþætti af Miðjunni á Fótbolta.net í dag.
Feb 14, 2019
Elvar og Daníel eru mættir með Evrópu-Innkast vikunnar. Það er Ölver í Glæsibæ sem býður upp á Innkastið. Meistaradeildin var plássfrek í þættinum en ungar stjörnur skinu skært. Mögnuð úrslit hjá Tottenham og franskir yfirburðir á Old Trafford. Stjörnuframmistaða Angel Di Maria, hörmungarframmistaða Alexis Sanchez og fleira. Er Mbappe kominn að hlið Ronaldo og Messi? Einnig var rætt um ferð til Brighton, ósanngirni í garð Gylfa og hver sé besti stjórinn sem hafi ekki unnið Meistaradeildina... sv...
Feb 14, 2019
Hermann Hreiðarsson er gestur vikunnar hjá Magnúsi Má Einarssyni í Miðjunni. Í þættinum kemur hann með margar skemmtilegar sögur frá áhugaverðum ferli sínum. Hemmi spilaði í enska boltanum í fimmtán ár en hann er einnig næstleikjahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi. Eftir ferilinn hefur Hemmi þjálfað ÍBV og Fylki auk þess sem hann var síðast aðstoðarþjálfari Kerala Blasters í Indlandi.
Feb 12, 2019
Björgvin Stefánsson, framherji KR, var gestur í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu 97,7 á laugardaginn þar sem hann ræddi við Tómas Þór Þórðarson og Benedikt Bóas Hinriksson. Björgvin er skemmtilegur karakter og óhætt er að mæla með spjallinu við hann.
Feb 11, 2019
Það var líf og fjör í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu í dag þar sem Tómas Þór Þórðarson, Benedikt Bóas Hinriksson og Magnús Már Einarsson voru við stjórnvölinn. Björgvin Stefánsson, framherji KR, var gestur þáttarins að þessu sinni og farið var yfir víðan völl í stórskemmtilegu spjalli við hann. Útvarpsþátturinn Fótbolti.net fagnar tíu ára afmæli um þessar mundir og fram á vor verður valið úrvalslið áratugarsins (2009-2019). Davíð Þór Viðarsson, miðjumaður FH, var fyrsti leikmaðurinn til að ve...
Feb 09, 2019