Innkastsbræðurnir Elvar Geir og Daníel Geir ýttu á upptöku strax eftir leik Liverpool og Man Utd. Hafa þeir félagar oft mætt keikari í þáttinn og fór Elvar mikinn í greiningu sinni á liðinu sem hann heldur með.
Dec 16, 2018
Í hlaðvarpsþættinum Miðjunni í þessari viku er Liverpool til umfjöllunar. Félagarnir Magnús Þór Jónsson og Sigursteinn Brynjólfsson af kop.is mættu í spjall og ræddu allt sem tengist Liverpool.
Dec 12, 2018
Liverpool og Tottenham verða bæði í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar næsta mánudag. Eftir spennandi Evrópukvöld tóku Elvar og Daníel upp Evrópu-Innkast vikunnar. Riðlar Meistaradeildarinnar voru skoðaðir, rætt um síðustu helgi í ensku deildinni og Katar-ævintýri Heimis. Einnig var hitað upp fyrir Liverpool - Manchester United og reynt að stilla upp sameiginlegu liði úr hópum þessara félaga.
Dec 11, 2018
Guðmundur Benediktsson kom í stórskemmtilega heimsókn í útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X977. Stóru fótboltamálin voru tekin fyrir og var víða komið við í spjalli hans við Elvar Geir og Tómas Þór. Enski og íslenski boltinn, landsliðið og fleira var í umræðunni og þá valdi Gummi úrvalslið samherja sinna á ferlinum. Gummi er búinn að gefa út bók sem kallast Stóra fótboltabókin.
Dec 08, 2018
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór heyrðu hljóðið í Gísla Eyjólfssyni sem er genginn í raðir Mjällby. Hitað var upp fyrir Tommadaginn sem er á morgun og haldinn til styrktar Tómasi Inga Tómassyni. Spilað var viðtal sem Gaupi tók við Tómas Inga en hann hefur verið að ganga í gegnum erfiða tíma. Þá var Kristinn Jakobsson á línunni og spjallaði meðal annars um VAR myndbandsdómgæsluna.
Dec 08, 2018
Evrópu-Innkastið er í boði Ölvers. Elvar og Daníel tóku upp nýtt Innkast eftir 15. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Leikur hinna lélegu varna, Manchester United - Arsenal, var fyrstur á málefnaskrá. Byrjun Liverpool á tímabilinu kom svo til umræðu og aðrir leikir vikunnar. Einnig voru sumarkaup sex stærstu félaga Englands dæmd og Daníel valdi þrjú bestu kaup sumarsins í deildinni.
Dec 05, 2018
Fyrr í haust fór í loftið nýr hlaðvarpsþáttur þar sem fjallað verður knattspyrnu kvenna. Þátturinn er nú kominn með nafn og heitir „Heimavöllurinn“. í nýjum þætti fer Hulda Mýrdal, annar þáttastjórnandinn, yfir félaggskipti sem hafa átt sér stað eftir að tímabilinu lauk með gestum sínum, þeim Anítu Lísu Svansdóttur þjálfara ÍA og Lilju Dögg Valþórsdóttur leikmanni KR.
Dec 05, 2018
Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz skoða líflega helgi í enska boltanum! Arsenal fær verðskuldað lof eftir sigur gegn Tottenham, dramatískur sigur Liverpool og enn eitt svekkelsið hjá Manchester United. Farið er yfir úrvalslið ensku úrvalsdeildarinnar, skipað leikmönnum sem ekki spila fyrir eitthvað af þessum sex stóru! Þá er farið yfir dráttinn í undankeppni EM. Magnús Már Einarsson er búinn að melta riðil Íslands.
Dec 03, 2018
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fjölluðu um Pepsi-deildina og Tómas sagði frá heimsókn sinni á Akureyri. Hann var viðstaddur þegar KA samdi við öfluga leikmenn í gær. Einn af þeim leikmönnum, Haukur Heiðar Hauksson, var á línunni. Einnig var rætt um helstu fréttir vikunnar í Pepsi-deildinni og spjallað við Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfara HK. Kópavogsliðið býr sig undir Pepsi-deildina á næsta ári.
Dec 01, 2018
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Á morgun, sunnudaginn 2. desember, verður dregið í riðla fyrir undankeppni EM. Elvar Geir og Tómas Þór skoðuðu möguleikana og fóru yfir fyrirkomulagið í drættinum. Á línunni var Gunnar Gylfason, starfsmaður KSÍ. í klippunni er einnig rætt um River Plate og Boca Juniors!
Dec 01, 2018
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net. Hitað upp fyrir grannaslags-sunnudaginn og þá sérstaklega viðureign Liverpool og Everton. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu við Kristján Atla Ragnarsson, sérfræðing um enska boltann, og þá sérstaklega Liverpool.
Dec 01, 2018
Bræðurnir Ingólfur og Guðmundur Þórarinssynir hafa vakið athygli á fótboltavellinum í gegnum tíðina sem og fyrir hæfileika á tónlistarsviðinu. Í Miðju dagsins eru þeir í löngu og stórskemmtilegu spjalli um fótboltann og tónlistina. Farið er yfir víðan völl og margar áhugaverðar og fyndnar sögur koma upp úr pokahorninu.
Nov 28, 2018
Fyrr í haust fór í loftið nýr hlaðvarpsþáttur þar sem fjallað verður knattspyrnu kvenna. Þátturinn er nú kominn með nafn og heitir „Heimavöllurinn“. í nýjum þætti fer Hulda Mýrdal, annar þáttastjórnandinn, yfir leikmenn landsliðsins með gestum sínum, þeim Anítu Lísu Svansdóttur þjálfara ÍA og Lilju Dögg Valþórsdóttur leikmanni KR. Í þættinum ræða þær meðal annars fyrsta æfingahóp Jón Þórs en æfingar fóru fram í byrjun nóvember. Þær fara einnig yfir bestu leikmenn landsliðsins og spennandi leikme...
Nov 27, 2018
Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz snúa aftur með Evrópu-Innkast og nóg var að ræða! Í þættinum: Hitað upp fyrir Pub Quiz, áfall fyrir Suður-Amerískan fótbolta, Pochettino og Manchester Untied, Aron frakki á Gylfa, bakverðirnir vopn Liverpool, Özil og Emery, rautt fyrir dýfu, ánægja þegar Ranieri vinnur, Meistaradeildin, stór lið í vandræðum, leikmenn sem við viljum fá aftur. Innkastið er í samvinnu við Ölver í Glæsibæ
Nov 26, 2018
Landsliðsárið 2018 var gert upp í útvarpsþættinum á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fóru yfir hæðir og of margar lægðir. Fer Hamren inn í undankeppni EM í heitu sæti? Hver er landsliðsmaður ársins 2018? Hverjir þurfa að girða sig í brók? Gæti fótboltamaður orðið íþróttamaður ársins? Hvernig er draumariðill okkar fyrir undankeppni EM? Þessar spurningar og fleiri koma við sögu í þættinum.
Nov 24, 2018
Það hefur ýmislegt gengið á hjá Manchester United á þessu tímabili en gengi liðsins hefur verið undir væntingum. <a href="https://twitter.com/SiggiHlo" target="_blank">Siggi Hlö</a> og <a href="https://twitter.com/joiskuli10" target="_blank">Jóhann Skúli Jónsson</a> kíktu á Magnús Má Einarsson í Miðjuna í dag og ræddu ítarlega um Manchester United. <b>Meðal efnis:</b> Gengi Manchester United í vetur, Jose Mourinho og stælarnir í honum, vandræðin í vörninni, fr...
Nov 21, 2018
Freyr Alexandersson aðstoðarlandsliðsþjálfari notaði 45 mínútur af afmælisdeginum sínum í að fara yfir landslðsmálin með Elvari Geir Magnússyni. Það hefur verið í nægu að snúast síðan Freyr og Erik Hamren tóku við. Úrslitin hafa ekki verið að óskum en Freyr segir að Ísland megi ekki hætta að hugsa stórt og markmiðið sé að komast á EM 2020. Innkastið að þessu sinni var tekið upp á hóteli landsliðsins í Spa í Belgíu en þar fer Freyr yfir fyrstu mánuði hans og Hamren í starfi. Meðal efnis: Ástæða m...
Nov 18, 2018
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Guðjón Pétur Lýðsson, nýjasti leikmaður KA, var gestur þáttarins. Tómas Þór Þórðarson ræddi við hann. Guðjón yfirgaf Valsmenn eftir að hafa orðið Íslandsmeistari með Hlíðarendaliðinu síðustu tvö ár og bindur hann miklar vonir við skipti sín norður yfir heiðar.
Nov 17, 2018
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Tómas Þór Þórðarson stýrði þættinum og spjallaði við Kristján Guðmundsson um landsleikinn gegn Belgíu í Þjóðadeildinni sem tapaðist 2-0. Farið var yfir helstu umræðupunkta leiksins og hringt til Belgíu, þar sem Elvar Geir Magnússon fylgist með undirbúningi íslenska liðsins fyrir vináttulandsleik gegn Katar.
Nov 17, 2018
Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Tómas Þór Þórðarson eru staddir í Brussel þar sem íslenska landsliðið mætir efsta liði heimslistans, Belgíu, í Þjóðadeildinni. Í Innkasti frá Belgíu ræða þeir um líklegt byrjunarlið Íslands, ótrúlega langan meiðslalista, verkefni Hamren, ljótan heimavöll Belgíu, umdeilda Twitter færslu, lukkudýr landsliðsins, ofmetna hluti og fleira.
Nov 14, 2018
Evrópu-Innkastið gerði upp helgina í ensku deildinni og kom svo við í Þýskalandi og á Ítalíu. Daníel Geir og Elvar Geir fóru yfir hlutina eins og þeim er lagið og var farið með Elvar í Ander Herrera leikinn.
Nov 11, 2018
Hér má nálgast upptöku af útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 10. nóvember. Arnar Grétarsson var gestur í þættinum og var aðalumræðuefnið íslenska landsliðið, hópurinn sem opinberaður var á föstudaginn og komandi leikir gegn Belgíu og Katar. Félagaskipti í íslenska boltanum koma einnig við sögu í upptökunni og þá var Arnar spurður að því af hverju hann væri ekki að þjálfa í dag. Þá var rætt um stöðu yfirmanns fótboltamála hjá KSÍ en Arnar hefur ekki áhuga á þeirri stöðu.
Nov 10, 2018
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Breiðhyltingurinn Brynjar Hlöðversson varð Færeyjarmeistari undir stjórn Heimis Guðjónssonar í sumar. Hann var einn af þremur sem tilnefndir voru sem leikmaður ársins í deildinni. Brynjar spjallaði við Elvar og Tómas um ævintýralegt ár í færeyska boltanum, um lífið utan vallar og fleira. Óvíst er hvort Brynjar verði áfram hjá HB en í viðtalinu metur hann líkurnar á því 60%.
Nov 10, 2018
Fyrr í haust fór í loftið nýr hlaðvarpsþáttur þar sem fjallað verður knattspyrnu kvenna. Þátturinn er nú kominn með nafn og heitir „Heimavöllurinn“. Í fyrsta þætti var farið yfir keppni í Pepsi-deild kvenna í sumar en í nýjum þætti fer Hulda Mýrdal, annar þáttastjórnandinn, yfir landsliðsmál með gestum sínum, þeim Anítu Lísu Svansdóttur og Lilju Dögg Valþórsdóttur.
Nov 08, 2018
Gestur vikunnar í Miðjunni er Srdjan Tufegdzic sem tók á dögunum við liði Grindavíkur eftir þrettán ár hjá KA á Akureyri. Túfa fór yfir víðan völl í spjalli sínu við Magnús Má Einarsson.
Nov 07, 2018
Elvar og Daníel gera upp fótboltahelgina og er af nægu að taka. Meðal efnis: Jafntefli í stórleiknum, flautumörkin gefa og taka, gult fyrir minningarfagn, furðuleg stytta, Íslendingar heitir, Alfreð heitur janúarbiti, Morata vaknaður, Pochettino næsti stjóri Real Madrid, fyrsti sigur Newcastle, Úlfavonbrigði, VAR notað illa, vond hugmynd um Ofurdeild.
Nov 04, 2018
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Fjallað var um tíðindin af íslenska félagaskiptamarkaðnum, þar á meðal leikmennina sem Skagamenn hafa fengið til sín. Þá var Guðmundur Magnússon á línunni en hann gekk í raðir ÍBV frá Fram. Einnig er rætt við Kristin Björgúlfsson, formann leikmannasamtaka Íslands.
Nov 03, 2018
Sigurbjörn Hreiðarsson, aðstoðarþjálfari Íslandsmeistara Vals, var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Hann ræddi við Elvar Geir og Tómas Þór um liðið tímabil Valsmanna, leikmannakaup, samkeppnina í Pepsi-deildinni og einnig um íslenska landsliðið. Þá kom Liverpool aðeins við sögu.
Nov 03, 2018
Október 2018 er einhver versti mánuðurinn í glæstri sögu spænska stórveldisins Real Madrid en liðið tapaði 5-1 gegn erkifjendunum í Barcelona um síðustu helgi.
Oct 31, 2018
Tíðindamikil helgi að baki í boltanum. Manchester City og Liverpool halda áfram að leiðast hönd í hönd á toppi ensku úrvalsdeildarinnar, harmleikur í Leicester og Evrópumeistararnir spörkuðu stjóranum. Elvar og Daníel fengu félagsskap Halldórs Marteinssonar af raududjoflarnir.is í Innkastinu að þessu sinni. Skoðaðir voru leikir helgarinnar í enska boltanum, Arsenal og Tottenham misstu af stigum en Manchester United lagði Gylfa og félaga.
Oct 29, 2018